Hreppsnefnd Ásahrepps
10. fundur
15. febrúar 2023
kl.
08:30
-
12:00
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson
hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson
hreppsnefndarfulltrúi
Reynir Örn Pálmason
hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 253. fundar skipulagsnefndar UTU
Mál nr. 1; Vallarás (Ásmúli lóð 3) L192728; Skilgreining lóða og byggingarskilmálar; Deiliskipulag - 2301053.
Lögð er fram umsókn frá Guðmundi Guðlaugi Gunnarssyni er varðar nýtt deiliskipulag sem tekur til lands Ásmúla lóð 3 L192728 í Ásahreppi. Samhliða er óskað eftir því að staðfangið Vallarás verði notað innan svæðisins. Í deiliskipulaginu felst heimild til að stofna 7 landspildur út úr Vallarási (Ásmúla lóð 3) og munu þær fá nafnið Vallarás 1-7, spildurnar eru um 6 ha hver. Heimilt er að hafa fasta búsetu á spildunum og stunda þar landbúnaðartengda starfsemi eða annan minniháttar atvinnurekstur ótengdan landbúnaði.
Skipulagsnefnd hefur frestað afgreiðslu erindisins til næsta fundar og falið skipulagsfulltrúa að eiga samskipti við umsækjanda og hönnuð skipulagsins varðandi ítarlegri útfærslu skipulagsskilmála.
Mál nr. 2; Lækjartún II L215415; Lækjartún II tengivirki L230714 og Lónsheiði 1, 2, 3, 5 og 7; Fjölgun iðnaðarlóða; Deiliskipulagsbreyting - 2209081.
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar vegna tengivirkis í landi Lækjartúns II L215145 eftir auglýsingu. Með deiliskipulagsbreytingunni er bætt við 5 lóðum austan við lóð tengivirkis. Á nýjum lóðum er heimilt að byggja upp hreinlegan orkufrekan iðnað. Með breytingunni stækkar skipulagssvæðið úr ríflega 2 ha í um 8 ha. Umsagnir bárust á auglýsingatíma breytingartillögunnar og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Hreppsnefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Hreppsnefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 30; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 23-177 - 2301004F.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 23-177.

2.
Fundargerð 254. fundar skipulagsnefndar UTU
Mál nr. 1; Búðarhálsvirkjun; Breytt afmörkun; Deiliskipulagsbreyting - 2212068
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Búðarhálsvirkjunar. Með breytingunni er skipulagssvæðinu breytt og sá hluti þess sem náði yfir Hrauneyjafossstöð er felldur út. Þrjár námur sem komnar eru undir Sporðöldulón eru felldar úr. Engar nýjar framkvæmdir eða mannvirki verða heimiluð. Samhliða deiliskipulagsbreytingunni er unnið deiliskipulag fyrir Hrauneyjafossstöð. Breytt afmörkun skipulagssvæðisins er 7543 ha.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða viðkomandi breyting á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingar á deiliskipulagi.
Mál nr. 2; Hrauneyjafossstöð og leitarmannahús Þóristungum; Skipulagssvæði sameinuð; Deiliskipulag - 2212067.
Lögð er fram deiliskipulagsáætlun sem tekur til Hrauneyjafossstöðvar og leitarmannahúss að Þóristungum. Deiliskipulagið snýst um að staðfesta núverandi landnotkun. Uppsett afl Hrauneyjafossstöðvar er allt að 210 MW og verður heimilt að stækka hana í 240 MW. Ef farið verður í þær framkvæmdir munu þær einungis felast í endurbótum á núverandi vélum og verða innanhúss. Unnin hefur verið mannvirkjaskráning fyrir stöðina og eru settir skilmálar í tengslum við hana. Þá voru fornminjar skráðar. Þóristungur L229271, mannvirki eru í Ásahreppi. Á staðnum er skáli og hesthús, gisting er fyrir 14 gesti. Mannvirki eru nýtt sem leitarmannahús og í langtímaleigu, einkum til veiðimanna. Heimilt er að byggja eitt hús til viðbótar og vera með gistingu fyrir allt að 40 gesti. Þóristungur er fjallasel skv. aðalskipulagi. Skipulagssvæðið er tvískipt og er um 173 ha að stærð.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að deiliskipulagið verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.
Mál nr. 3; Sigöldustöð; Skipulagssvæði sameinuð; Deiliskipulag - 2212066.
Lögð er fram deiliskipulagsáætlun sem tekur til Sigöldustöðvar í Ásahreppi og Rangárþingi ytra. Deiliskipulagið snýst um að staðfesta núverandi landnotkun og heimila stækkun stöðvarinnar. Í dag er virkjað rennsli 240 m3 /s og afl Sigöldustöðvar er 150 MW. Framkvæmdir við stöðina hófust árið 1973 og var hún gangsett í byrjun árs 1978. Landsvirkjun áformar nú að stækka stöðina með því að bæta við fjórðu vélinni og auka með því afl stöðvarinnar í allt að 215 MW. Auk þess verður stöðvarhús stækkað og frárennslisskurður breikkaður næst stöðvarhúsi. Unnin hefur verið mannvirkjaskráning fyrir stöðina og eru settir skilmálar í tengslum við hana. Þá voru fornminjar skráðar. Skipulagssvæði Sigöldustöðvar er um 108 ha að stærð.

Mál nr. 4; Vatnsfellsstöð L193783 og Vatnsfellsveita Þórisvatns; Deiliskipulag - 2212065.
Lögð er fram tillaga deiliskipulags sem tekur til Vatnsfellsstöðvar og Vatnsfellsveitna í Ásahreppi. Deiliskipulagið snýst um að staðfesta núverandi landnotkun. Uppsett afl Vatnsfellsstöðvar er allt að 90 MW og verður heimilt að stækka hana í 110 MW. Framkvæmdir felast í endurbótum á núverandi vélum. Um er að ræða framkvæmd innanhúss. Unnin hefur verið mannvirkjaskráning fyrir stöðina og eru settir skilmálar í tengslum við hana. Þá voru fornminjar skráðar. Skipulagssvæði Vatnsfellsstöðvar er um 60 ha að stærð og skipulagssvæði Vatnsfellsveitu um 5 ha.

Mál nr. 5; Syðri-Hamrar 3 200445; Skemma; Fyrirspurn - 2301087.
Lögð er fram fyrirspurn frá Guðjóni Björnssyni er varðar byggingu skemmu að Syðri-Hömrum 3 á lóð L1 þar sem gert er ráð fyrir byggingu hesthúss.
Helga Björg Helgadóttir víkur af fundi við afgreiðslu þessa dagskrárliðar.
Að mati mati hreppsnefndar Ásahrepps er talið að uppbygging skemmu í stað hesthúss á viðkomandi reit falli ágætlega að landnotkun svæðisins í aðalskipulagi og að ekki sé þörf á deiliskipulagsbreytingu. Að mati hreppsnefndarinnar er bygging skemmu í stað hesthúss, eins og skilmálar deiliskipulag gera ráð fyrir, óverulegt frávik frá skilmálum og telur hreppsnefndin ólíklegt að hagsmunir nágranna skerðist vegna þessa hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Mælist hreppsnefndin þó til þess að komi til umsókn um byggingarleyfi fyrir skemmu á viðkomandi reit, á grundvelli framlagðrar fyrirspurnar, verði sú umsókn grenndarkynnt innan svæðisins á grundvelli 44. gr. skipulagslaga.
Mál nr. 6; Sjónarhóll L198871; Nýr byggingarreitur og skilmálaar; Eldri viðbætur; Deiliskipulagsbreyting - 2301071.
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar vegna bæjartorfu Sjónarhóls L198871 í Ásahreppi. Í breytingunni felst að skilgreindur er nýr byggingarreitur B3 innan marka deiliskipulagsins. Innan reitsins er gert ráð fyrir uppbyggingu íbúðarbygginga tengdar starfsemi búsins.
Fyrir liggur umsókn hjá UTU um stækkun lóðar Sjónarhóls sem hefur ekki hlotið afgreiðslu innan skipulagsnefndar. Mælist skipulagsnefndin til þess að sú breyting verði samhliða gerð á deiliskipulagi svæðisins og að uppfærð tillaga verði lögð fram við afgreiðslu málsins innan hreppsnefndar. Lögð voru fram annars vegar tillaga að breyttu deiliskipulagi og hins vegar landskiptagjörð fyrir Sjónarhól og Krók, dags. 15. nóvember 2022. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að viðkomandi breyting á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingar á deiliskipulagi.
Mál nr. 7; Ás-Sel (áður Ásmúli Ássel), Ás 1-3 land B L223982 og Ás 1-3 land C L223983; Sameining lóða - 2301069.
Lögð er fram beiðni um sameiningu lóða Ás 1-3 land B L223982 og Ás 1-3 land C L223983 við Ásmúla Ássel L165327. Eftir sameiningu verður landið samtals um 11,6 ha að stærð og fær staðfangið Ás-Sel.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemd við sameiningu landeignanna skv. fyrirliggjandi umsókn. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir erindið samhljóða.
Mál nr. 8; Hlíðarás (Berusstaðir 2 land 1) L207089; Skilgreining lóða og byggingarheimildir; Deiliskipulag - 2301052.
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til Hlíðaráss (Berustaðir 2 - land 2) L207089. Innan deiliskipulags er gert ráð fyrir byggingarheimildum fyrir íbúðarhús auk véla- reið- og/eða tamningaskemmu allt að 800m², hámarkshæð er 6,5m. Hesthús eða gripahús má vera allt að 300m², hámarkshæð húss er 6m. Gestahús má vera allt að 80m², hámarkshæð húss er 5,5m.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að deiliskipulagið með fyrirvara um lagfærð gögn m.t.t. fjarlægð mannvirkja frá miðlínu vegar og er varðar staðsetningu hreinsivirkis innan svæðisins. Mælist hreppsnefndin til þess að skipulagið verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.
Mál nr. 9; Lækjarás L206942; Breytt afmörkun og stærð lóðar - 2301056.
Lögð er fram umsókn frá Benedikt Elvari Jónssyni er varðar breytta legu og stærð lóðar Lækjaráss L206942.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemd við afmörkun lóðarinnar skv. fyrirliggjandi umsókn með fyrirvara um lagfærð gögn. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir erindið samhljóða.
Mál nr. 10; Vallarás (Ásmúli lóð 3) L192728; Skilgreining lóða og byggingarskilmálar; Deiliskipulag - 2301053.
Lögð er fram umsókn frá Guðmundi Guðlaugi Gunnarssyni er varðar nýtt deiliskipulag sem tekur til lands Ásmúla lóð 3 L192728 í Ásahreppi. Samhliða er óskað eftir því að staðfangið Vallarás verði notað innan svæðisins. Í deiliskipulaginu felst heimild til að stofna 7 landspildur út úr Vallarási (Ásmúla lóð 3) og munu þær fá nafnið Vallarás 1-7, spildurnar eru um 6 ha hver. Heimilt er að hafa fasta búsetu á spildunum og stunda þar landbúnaðartengda starfsemi eða annan minniháttar atvinnurekstur ótengdan landbúnaði.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að deiliskipulagið með fyrirvara um lagfærð gögn m.t.t. fjarlægð mannvirkja frá miðlínu vegar og er varðar staðsetningu hreinsivirkis innan svæðisins. Mælist hreppsnefndin til þess að skipulagið verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.
Mál nr. 34; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 23-178.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 23-178.
Til kynningar.

3.
Fundargerð 7. fundar stjórnar Odda bs.
Til kynningar.
4.
Minnisblað vegna fundar stjórnar Brunavarna Rangárvallasýslu og Landsvirkjunar
Til kynningar.
5.
Fundargerð 97. fundar stjórnar UTU
Til kynningar.
6.
Fundargerð 224. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Til kynningar.
7.
Fundargerð 49. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
8.
Fundargerð 50. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
9.
Fundargerð 2. fundar stjórnar Arnardrangs hses.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 3. fundar stjórnar Arnardrangs hses.
Til kynningar.
11.
Fundargerð 591. fundar stjórnar SASS
Til kynningar.
12.
Fundargerð 917. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Til kynningar.
13.
Fundargerð 918. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Til kynningar.
14.
Styrkbeiðni vegna söngskrár Karlakórs Rangæinga 2023
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita styrk að upphæð kr. 10.000.
15.
Styrkbeiðni frá Suðurlandsdeild í hestaíþróttum 2023
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að hafna beiðninni.
16.
Uppfært samkomulag um sameiginlega ábyrgð og mat á persónuvernd vegna Gagnalóns
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti framlagt samkomulag um sameiginlega ábyrgð vegna gagnalóns Sambands íslenskra sveitarfélaga og felur sveitarstjóra að undirrita samkomulagið fyrir hönd Ásahrepps.
Einnig samþykkir hreppsnefnd Ásahrepps framlagt kjarasamningsumboð til Sambands íslenskra sveitarfélaga og felur sveitarstjóra að ganga frá samningsumboði fyrir Ásahrepp og undirrita það fyrir hönd sveitarfélagsins.

17.
Framtíðarsýn um núverandi virkjanir og nýframkvæmdir innan Ásahrepps
Umræða varð um hugmyndir manna um framtíðarsýn varðandi núverandi virkjanir innan marka Ásahrepps og hugsanlegra stækkana þeirra. Einnig umræða um framtíðarsýn og afstöðu til mögulegra nýrra virkjanakosta.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að óska eftir samstarfi við önnur sveitarfélög á vatnasvæði Þjórsár og æskilegt væri að sameinast um vinnuhóp hjá þessum sveitarfélögum til að gæta hagsmuna þeirra. Ísleifi Jónassyni og Nönnu Jónsdóttur falið að eiga viðræður við önnur sveitarfélög á vatnasvæði þjórsár og vera fulltrúar Ásahrepps ef vinnuhópur verður settur á.

18.
Umsókn til reiðveganefndar Geysis vegna hugmynda um reiðvegagerð í Ásahreppi
Nefndin kemur fram með eftirfarandi tillögu:
Nefndin leggur til að hreppsnefnd Ásahrepps feli sveitarstjóra að sækja um styrk til
reiðveganefnd Geysis vegna framkvæmda við lagning reiðvega og girðingarvinnu við eftirtalil
verkefni:
1) Áströð með mögulegri tengingu við Ásveg og Ásmundarstaðaveg.
2) Reiðvegur með Bugavegi innan marka Ásahrepps, frá mörkum sveitarfélaga að
Kastalabrekku.
Hreppsenfnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagða tillögu nefndarinnar.
Að öðru leyti er fundargerðin samþykkt samhljóða.

19.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Til kynningar.
20.
Tölvuskeyti og minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga um ágang búfjárs
Til kynningar.
21.
Umsókn um nýjan héraðsveg að Laufási 3 (Fjallstúni) í Ásahreppi
Til kynningar.
22.
Byggðaþróunarfulltrúi Rangárvallasýslu
Til kynningar
23.
Hvatning til sveitarfélaga frá Dýraverndarsambandi Íslands
Til kynningar.
24.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Til kynningar.