Hreppsnefnd Ásahrepps
11. fundur
15. mars 2023
kl.
08:30
-
13:45
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson
hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson
hreppsnefndarfulltrúi
Reynir Örn Pálmason
hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Oddviti bar upp tillögu að bæta við tveimur nýjum dagskrárliðum nr. 5 og 17 og aðrir dagskrárliðir færist til sem því nemur. Tillagan samþykkt samhljóða.
Dagskrá
1.
Kynning á byggingaráformum í Lækjartúni
Til fundarins eru mættur fulltrúi Reir verk ehf, undir þessum dagskrárlið, Hilmar Þór Kristinsson. Einnig er mættur landeigandi, Tyrfingur Sveinsson.
Fulltrúi Reir verk ehf. kynnti hugmyndir fyrirtækisins um uppbyggingu gagnavers á iðanaðarlóðum sem skipulagðar hafa verið í landi Lækjartúns, austan við spennustöð Landnets.
Eftir kynninguna urðu umræður og fyrirspurnir. Hreppsnefnd kallar eftir ásýndarteikningum af fyrirhuguðum byggingum til að kynna fyrir íbúum sveitarfélagsins. Deiliskipulag svæðisins gerir ráð fyrir 5 byggingarlóðum sem samtals telja 50.600 fm með hámarksbyggingarmagn 40.500 fm. Hreppsnefnd Ásahrepps hefur samþykkt deiliskipulag svæðisins og bíður hún afgreiðslu Skipulagsstofnunar og birtingu í B-deild Stjórnartíðinda. Á grundvelli stærðargráðu og eðli þessa verkefnis er hreppsnefnd umhugað um gott samtal um framtíðarsýn fyrirtækisins og gerð samfélagssáttmála vegna þess.

2.
Fundargerð 255. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 255. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 23-179.
Mál nr. 1; Holtamannaafréttur L221893; Illugaver, Lindarkot, Sylgjufell og þúfuvatnaskáli; Fjallaskálar; Stofnun lóða - 2302033.
Lögð eru fram lóðablöð frá Eflu f.h. Ásahrepps vegna lóðastofnunar úr þjóðlendunni Holtamannaafréttur L221893. Um er að ræða fjórar lóðir, Illugaver stærð 2.037,4 fm, Lindarkot stærð 1.756,1 fm, Sylgjufell stærð 1.802,9 fm og Þúfuvatnaskáli stærð 3.011,6 fm. Lóðirnar eru undir fjallaskála þar sem gert er ráð fyrir að viðhalda núverandi mannvirkjum en nýbyggingar eru óheimilar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða stofnun lóðanna skv. fyrirliggjandi umsóknar. Þar sem um lóðir í þjóðlendu er að ræða skal leita samþykkis forsætisráðuneytisins fyrir stofnun lóðanna.
Mál nr. 28; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 23-179 - 2302001F.
Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 23-179 lögð fram til kynningar.

3.
Fundargerð 256. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 256. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 23-180.
Mál nr. 1; Áshamrar L165337; Aukið byggingamagn (B1); Deiliskipulagsbreyting - 2302063.
Lögð er fram umsókn frá Óðni Erni Jónssyni er varðar breytingu á deiliskipulagi fyrir Áshamra L165337. Óskað er eftir að byggingarmagn á byggingarreit B1 verði 450 fm í stað 200 fm. Á lóðinni er heimilt að byggja íbúðarhús og bílskúr.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi. Málið verði grenndarkynnt eigendum Húsa 1 L165292 og Húsa 1 land L165334.
Mál nr. 2; Áskot L165263; Deiliskipulag - 2204011.
Lögð er fram tillaga er varðar nýtt deiliskipulag innan jarðar Áskots í Ásahreppi eftir auglýsingu og yfirferð Skipulagsstofnunar. Í deiliskipulaginu felst skilgreining byggingarreita og byggingarheimilda sem taka til núverandi íbúðarhúsa, reiðhallar og hesthúss, viðbyggingar við núverandi skemmu og reita fyrir gistihús og tækjaskúr. Athugasemdir bárust frá Skipulagsstofnun við gildistöku tillögunnar eftir auglýsingu og eru þær lagðar fram við afgreiðslu þess ásamt uppfærðum skipulagsgögnum. Breytingar eru gerðar á skipulagsstillögu eftir auglýsingu þar sem byggingareitur B1 sem upprunalega var skilgreindur fellur út og í staðinn skilgreindur; B1-íbúðarhús-1 og B1-íbúðarhús-2, ásamt nýjum skilmálum sem taka til endurbygginga eða viðhalds á núverandi húsnæði. Að auki eru gerðar breytingar sem taka til skilmála fyrir gistihús og tækjaskúr; B3 og B4. Hæð yfir gólfkóta verður 4.5 m í stað 3.5 m.
Þakhalli og þakform verður frjálst í stað einhalla þaks.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Hreppsnefndin telur að brugðist hafi verið við athugasemdum Skipulagsstofnunar með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Að mati hreppsnefndarinnar eru þær breytingar sem gerðar hafa verið á tillögunni eftir auglýsingu ekki þess eðlis að þörf sé á að auglýsa málið að nýju. Hreppsnefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda og verði sent Skipulagsstofnun til varðveislu í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 25; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 23-180 - 2302003F.
Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 23-180 lögð fram til kynningar.

4.
Fundargerð aukaaðalfundar Bergrisans, 20. febrúar 2023 ásamt tillögu að endurskoðuðum samþykktum byggðasamlagsins
Lögð fram fundargerð aukaaðalfundar Bergrisans bs, sem haldinn var 20. febrúar 2023. Á fundinum var samþykkt breyting á samþykktum byggðasamlagsins, en slíkar breytingar þurfa að öðlast samþykki allra aðildarsveitarfélaga, en taka verður tvær umræður um breytingu samþykkta.
Tillaga aukaaðalfundar um breytingu á samþykktum byggðasamlagsins er lögð fram hjá hreppsnefnd Ásahrepps til fyrri umræðu. Lögð fram kynning lögmanna sem gerði grein fyrir þeim breytingum sem gerðar haf verið á samþykktunum. Umræða varð um tillöguna.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að vísa samþykktunum til síðari umræðu hjá hreppsnefnd Ásahrepps á næsta reglubundna fundi hreppsnefndar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að vísa samþykktunum til síðari umræðu hjá hreppsnefnd Ásahrepps á næsta reglubundna fundi hreppsnefndar.
5.
Fundargerð samráðsnefndar Ásahrepps og Rangárþings ytra
Lögð fram fundargerð samráðsnefndar Ásarhepps og Rangárþings ytra sem haldinn var 13. mars 2023.
Varðandi 1. dagskrárlið, þá samþykkir hreppsnefnd Ásahrepps samhljóða að tilnefna Ísleif Jónasson og Nönnu Jónsdóttur sem fulltrúa Ásahrepps í viðræðunefndina.
Að öðru leyti staðfestir hreppsnefnd Ásahrepps fundargerðina samhljóða.
Að öðru leyti staðfestir hreppsnefnd Ásahrepps fundargerðina samhljóða.
6.
Fundargerð 8. fundar stjórnar Odda bs.
Lögð fram fundargerð 8. fundar stjórnar Odda bs.
Til kynningar.
7.
Fundargerð 8. fundar seyrustjórnar
Lögð fram fundargerð 8. fundar stjórnar seyruverkefnis ásamt fundargögnum, þ.e. Ársskýrsla 2022 og minnisblað LEX um seyrurekstur.Stjórnin óskar eftir umræðum um rekstrarform verkefnisins í sveitarstjórnum aðildarsveitarfélaganna.
Hreppsnefnd Ásahrepps ræddi efni minnisblaðs LEX og telur mikilvægt að aðildarsveitarfélögin komist að sameiginlegri niðurstöðu og móti framtíðarsýn fyrir verkefnið.
Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.
Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.
8.
Fundargerð 51. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Lögð fram fundargerð 51. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
9.
Fundargerð 225. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Lögð fram fundargerð 225. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 55. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 55. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
11.
Fundargerð 56. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 56. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga ásamt tölvuskeyti sem vakin er athygli á bókun stjórnar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að taka undir þau áherslumál sem stórn Samtaka orkusveitarfélaga ávarpar í bókun sinni og rétt sé að staldra við í skipulagsmálum orkumannvirkja þar til línur skýrast um framtíðarsýn um gjaldtöku af orkumannvirkum. Hreppsnefnd Ásahrepps telur ljóst að nauðsynlegt sé að nærsamfélög orkumannvirkja njóti ávinnings vegna þeirra en að arður slíkra verkefna færist ekki sjálfkrafa til höfuðborgarsvæðisins. Sérstaklega í því efni um ósanngirni í gjaldtöku dreifingarkostnaðar á raforku á landsbyggðinni eins og henni er nú háttað.
Hreppsnefnd Ásarhepps gerir eftirfarandi bókun:
Ríkisstjórn Íslands setti í stjórnarsáttmála sinn aðgerðir um orkuskipti og útfösun jarðefnaeldsneytis, þar sem grunnur er lagður að fullum orkuskiptum og að þeim verði náð eigi síðar en árið 2040.
Því er mikilvægt að ríkið meti stöðu á framleiðslu á raforku á Íslandi, áætli þörf til frekari framleiðslu og ákveði með hvaða móti og hvar skuli afla þeirrar orku út frá ýmsum þáttum svo sem umhverfislegum, samfélagslegum og efnahagslegum með Rammaáætlun eða öðru sambærilegu ferli.
Endurskoða þarf hverjar heimildir sveitarfélaga eigi að vera til gjaldtöku og eða álagningar gjalda og meta hvort leitast eigi við aðrar heimildir svo sem til skattaafslátta eða samfélagssjóða eða annað sem hefur efnahagsleg áhrif fyrir sveitarfélög, ágóða landeigenda, bætur til fasteignaeigenda í grennd vegna virðisminnkunar, tryggingar vegna umhverfisskaða á framkvæmdar- og rekstrartíma og vegna niðurrifs að rekstrartíma liðnum og fleira.
Arður af nýtingu náttúruauðlinda til raforkuframleiðslu þarf að skiptast með sanngjörnum hætti milli þeirra sem eru hagaðilar við orkuvinnslu. Tryggja þarf með lögum að nærumhverfið þar sem orkan á uppsprettu sína, njóti efnahagslegs ávinnings sem mun styrkja byggð þar sem orkan verður til um allt land. Það er sanngirnismál að orkuvinnslan skili sambærilegum tekjum í nærsamfélagið eins og öll önnur atvinnustarfssemi gerir. Einnig þarf að breyta raforkulögum til að tryggja að dreifikostnaður raforku sé sá sami í dreifbýli og þéttbýli.

12.
Fundargerð 57. fundar Samtaka orkusveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 57. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
13.
Fundargerð 919. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram fundargerið 919. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
14.
Kosning í skipulagsnefnd UTU
Í ljósi þess að fulltrúi Ásahrepps í skipulagsnefnd UTU hefur verið ráðinn sem skrifstofustjóri hjá UTU, þá þarf að skipa nýjan aðal- og varamann í skipulagsnefnd og einnig aðal- og varamann í stjórn Umhverfis- og tæknisviðs Uppsvetia bs (UTU).
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að kjósa Ísleif Jónasson sem aðalmann í skipulagsnefnd UTU fyrir hönd Ásahrepps og Reynir Örn Pálmason sem varamann. Jafnframt er Ísleifur Jónasson kosinn sem aðalmaður Ásahrepps í stjórn UTU og Reynir Örn Pálmason sem varamaður.
15.
Tillaga um bætta samþættingu skóla-, íþrótta- og tómstundastarfs
Lagt fram tölvuskeyti sveitarstjóra Rangárþings ytra varðandi hugmyndir um stofnun vinnuhóps til að rýna betur möguleika á bættri samþættingu skóla-, íþrótta- og tómstundastarfs, sbr. bókun stjórnar Odda bs og bókun sveitarstjórnar Rangárþings ytra.
Hreppsnefnd Ásahrepps tekur undir þau sjónarmið sem koma fram í bókun stjórnar Odda bs og sveitarstjórnar Rangárþings ytra. Hreppsnefnd Ásahrepps telur nausynlegt að móta skýrar hlutverk og skipan í umræddan vinnuhóp.
16.
Reglur um veitingu styrkja vegna tengingu veitna, lagningu slitlags á heimreiðar og uppsetningu ljósastaura
Lögð fram drög að reglum um veitingu styrkja vegna tenginga veitana, s.s. fráveitu, hitaveitu, kaldavatnsveitu og vatnsveitu. Einnig er varðar lagningu slitlags á heimreiðar og uppsetningu ljósastaura.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagðar reglur og felur sveitarstjóra að birta þær á heimsasíðu sveitarfélagsins.
17.
Endurskoðun á afgreiðslu hreppsnefndar Ásahrepps frá 10. fundi sínum, dagskrárlið 2, liðir 1, 2, 3 og 4, deiliskipulög fyrir Búðarhálsvirkjun, Hrauneyjafossstöð, Sigöldustöð og Vatnsfellsstöð.
Nanna Jónsdóttir víkur af fundi við afgreiðslu þessa dagskrárliðar.Í ljósi bókunar í 11. dagskrárlið þessa fundar þá samþykkir hreppsnefnd Ásahrepps samhljóða að taka til endurskoðunar afgreiðslu sína og bókun á umræddum dagskrárliðum.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að draga til baka fyrri ákvörðun sína á 10. fundi hreppsnefndar 2. dagskrárlið er varðar deiliskipulagsbreytingar á eftirfarandi landsvæðum orkumannvirkja:
2 - mál nr. 1: Búðarhálsvirkjun - 2212068
2 - mál nr. 2: Hrauneyjafossstöð - 2212067
2 - mál nr. 3: Sigöldustöð - 2212066
2 - mál nr. 4: Vatnsfellsstöð - 2212065
Í ljósi bókunar sveitarstjórnar Ásahrepps undir 11. dagskrárlið þessa fundar, þá samþykkir hreppsnefnd Ásahrepps samhljóða að fresta afgreiðslu þessara mála.

18.
Vindlundur við Sultartanga, lýsing
Lögð fram skipulags- og matslýsing fyrir Búrfellslund vegna fyrirhugaðra breytingar á aðalskipulagi Rangárþing ytra 2016-2028. Óskað er eftir umsögn hreppsnefndar Ásahrepps.
Jafnframt er lagt fram tölvuskeyti sveitarstjóra Skeiða- og Gnúpverjahrepps, dags. 22. febrúar 2023, þar sem fram kemur að sveitarfélagið muni leggjast gegn frekari orkuvinnslu og veita neikvæða umsögn um verkefnið, þar til að sanngjörn skipting auðlindarinnar verður leidd í lög.
Hreppsnefnd Ásahrepps vísar til bókunar hreppsnefndar undir dagskrárlið 11 þessa fundar. Hreppsnefnd Ásahrepps hafnar umræddum vindlundi að svo stöddu og skorar á lögfjararvaldið að móta stefnu og umgjörð um slík orkumannvirki gagnvart nærsamfélaginu og umhverfinu.

19.
Framtíð félagsheimilisins Ásgarðs
Lögð fram drög að lóðarsamningi vegna lóðar félagsheimilisins Ásgarðs, sem Jón Páll Hilmarsson, lögmaður, hefur unnið að ásamt eigendum lóðarinnar. Einnig lagt fram tölvuskeyti Jóns Páls Hilmarssonar, dags. 21. febrúar 2023.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti fyrirliggjandi lóðarleigusamning. Næsta skref málsins er að landeigendur og Ungmnennafélag Ásahrepps fullgeri umræddan samning og fái honum þinglýst.
20.
Deiliskipulag fyrir Hvanngiljahöll
Lögð fram tillaga að deiluskipulagi fyrir Hvanngiljahöll á Holtamannaafrétti ásamt uppdrætti og afstöðumynd. Einnig lagt fram bréf skipulagsembættis UTU sem greinir frá því að tillagan sé komin í auglýsingu. Jafnframt er lagt fram tölvuskeyti skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra, þar sem að fram kemur að skipulagsnefnd Rangárþings ytra gerir engar athugasemdir við framlagða tillögu, með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar Rangárþings ytra.
Tillagan er í takt við hugmyndir hreppsnefndar Ásahrepps, sbr. bókun á 9. fundir hreppsnefndar, dagskrárliður 16.
21.
Beiðni um samstarfssamning og fjárstyrk vegna íþróttastarfs Skotíþróttafélagsins Skyttna
Lagt fram tölvuskeyti formanns Skotíþróttafélagsins Skyttur, dags. 22. febrúar 2023, ásamt drögum að þjónustusamningi milli félagsins og Ásahrepps.
Hreppsnefnd Ásahrepps hefur hug á að styrkja verkefnið en í ljósi íbúafjölda Ásahrepps í samanburði við önnur sveitarfélög í sýslunni er það skoðun hreppsnefndar að lágmarksfjárhæð sé of há. Hreppsnefnd Ásahrepps er reiðubúin að styrkja verkefnið um kr. 250.000 árlega í ljósi ákvæða framlagðra draga um samning.
22.
Tillaga um breytingu á samþykkt um stjórn og fundarsköp Ásarhepps vegna barnaverndarþjónustu
Lögð fram tillaga stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftefellssýslu um breytingar á samþykktum um stjórn og fundarsköp aðildarsveitarfélaga byggðasamlagsins, sem lýtur að nauðsynlegu ákvæði um framsal á valdi til fullnaðarafgreiðslu barnaverndarþjónustu. Viðbót þessi verði formi viðauka við samþykktir sveitarfélaganna.
Tillaga um viðauka:
1) Byggðsamlag sveitarfélaganna Ásahrepps, Rangárþings ytra, Rangárþings eystra, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps um félags- og skólaþjónustu, sbr. auglýsing nr. [auglýsing um staðfestingu samþykktar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu bs.] fer með verkefni barnaverndarþjónustu samkvæmt 10. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002, sem ekki er falin öðrum.
2. Samþykkt þessari um stjórn og fundarsköp fylgir viðauki
auglýsing um fullnaðarafgreiðslu byggðasamlags sveitarfélaganna Ásahrepps, Rangárþings ytra, Rangárþings eystra, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps um félags- og skólaþjónustu]um fullnaðarafgreiðslu mála skv. 3. mgr. 12. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
Umræða varð um tillöguna. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að vísa tillögunni til annarrar og lokaafgreiðslu á næsta fundi hreppsnefndar Ásahrepps.

23.
Byggðaþróunarfulltrúi Rangárvallasýslu
Lagt fram minnisblað um byggðaþróunarfulltrúa í Rangárvallasýslu, dags. 3. mars 2023, sem tekið var saman af Markaðs- og kynningarfulltrúm Rangárþings ytra og Rangárþings eystra.
Lagt er til að sveitarfélögin í Rangárvallasýslu vinni áfram að verkefninu og auglýsi sameiginlega eftir Byggðaþróunarfulltrúa til starfa í samstarfi við SASS. Í upphafi er lagt til að samningur sé gerður á milli Héraðsnefndar og SASS svo verkefnið geti farið af stað. Héraðsnefnd verði falið umboð til að ganga til samninga við SASS vegna verkefnisins og verði einnig falið að leiða verkefnið áfram. Þarf hvert svetiarfélag að skipa einn fulltrúa í stýrihóp sem vinnur áfram að verkefninu. Öll verkefni sem Byggðaþróunarfulltrú hyggst fara í, hvort sem er að beiðni SASS eða sveitarfélaganna þriggja fara í gegnum formann stjórnar stýrihópsins eða eftir atvikum stýrihópinn allan.
Sveitarfélögin þurfa því að gera ráð fyrir auknu framlagi í héraðssjóð vegna verkefnisins og gera áætlanir ráð fyrir að framlag Ásahrepps til verkefnisins á þessu ári verði kr. 480.000.
Umræða varð um þessa tillögu í hreppsnefnd Ásahrepps.
Hreppsnefnd Ásahepps samþykkir að vera ekki þátttakandi á þessum forsendum, en lítur á að aðkoma hreppsins verði áfram á forsendum framlags SASS sem aðili að þeim samtökum.

24.
Styrkbeiðni frá styrktarsjóði Einstakra barna
Lögð fram styrkbeiðni Einstakra barna, stuðningsfélag barna og ungmenna með sjaldgæfa sjúkdóma eða sjaldgæf heilkenni, dags. 28. febrúar 2023.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að styrkja félagið um kr. 10.000.
25.
Styrkbeiðni vegna útgjáfu Krafts-blaðsins
Lagt fram tölvuskeyti frá Krafti, stuðningsfélagi fyrir ungt fólk sem greins hefur með krabbamein, dags. 2. mars 2023. Óskað er eftir stuðningi vegna útgáfu fréttablaðsins Krafts.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita styrk að upphæð kr. 10.000.
26.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Lagt fram málaflokkayfirlit fyrir sveitarsjóð Ásahrepps fyrir tímabilið 1. janúar - 28. febrúar 2023.Einnig lagðir fram drög að fréttapunktum af vettvangi Ásahrepps í mars 2023.
Til kynningar.
27.
Íþróttafélög í Rangárvallasýslu
Lagt fram minnisblað, dags. 21. febrúar 2023, vegna samtals milli sveitarfélaga og íþróttafélaga í Rangárvallasýslu.
Til kynningar.
28.
Skýrslur Hestamannafélagsins Geysis fyrir starfsárið 2022
Lögð fram árskkýrsla Hestamannafélagsins Geysis 2022 ásamt skýrslu um þátttöku í æskulýðsstarfi Geysis á árinu 2022.
Til kynningar.
29.
Úthlutun úr Landbótasjóði 2023
Lagt fram tölvuskeyti Landgræðslunnar, Landbótasjóði, dags. 28. febrúar 2023, þar sem kynnt er úthlutun úr Landbótasjóði fyrir árið 2023. Ásahreppur fékk úthlutað kr. 3.454.000 vegna verkefnanna á árinu 2023.
Sveitarstjóra falið að óska eftir tilboðum í áburðarkaup fyrir veitta styrkfjárhæð, svo og fyrir áburð sem Landsvirkjun greiðir fyrir skv. samkomulagi um mótvægisaðgerðir.
Til kynningar.
Til kynningar.
30.
Tilkynning um nýja gjaldskrá Vatnajökulsþjóðgarðs 2023
Lagt fram tölvuskeyti Vatnajökulsþjóðgarðs, dags. 3. mars 2023, þar sem tilkynnt er um nýja gjaldkrá Vatnajökulsþjóðgarðs sem tekur gildi á árinu 2023.
Til kynningar.
31.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar Ásahrepps, skv. samþykktri fundardagskrá, verður haldinn 19. apríl 2023 á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi. Fundur hefst kl. 8:30. Ekki liggur fyrir um tímasetningu aukafundar hjá hreppsnefnd vegna framlagningar eða afgreiðslu ársreiknings Ásahrepps 2022.
Til kynningar.