Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

12. fundur
19. apríl 2023 kl. 08:30 - 13:30
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Ósk Ómarsdóttir varamaður í hreppsnefnd
Helga Björg Helgadóttir hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 257. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2304010
Mál nr. 35; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 23-181 - 2303002F.
Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 23-181 lögð fram til kynningar.
2.
Fundargerð 258. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2304037
Mál nr. 1; Skammilækur (L202060); byggingarheimild; gestahús - 2303054.
Fyrir liggur umsókn Reynis Arnar Pálmasonar, móttekin 20.03.2023, um byggingarheimild fyrir 61 m2 gestahúsi með svefnlofti á jörðinni Skammilækur L202060 í Ásahreppi.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að málið fái málsmeðferð á grundvelli 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar. Berist engar athugasemdir vegna grenndarkynningar skal málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

Mál nr. 2; Ásmúli Ássel L165327; Ás-Sel; Deiliskipulag - 2303058.
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til Ás-Sels L165327 í Ásahreppi. Skipulagið tekur til afmörkunar lóðar auk byggingarreita fyrir íbúðarhús, bílskúr, skemmu/hesthús og tveggja gestahúsa. Innan svæðis er heimilt að byggja upp að hámarki 1.500 m2. Gert er ráð fyrir að núverandi aðkomuvegur víki fyrir nýjum aðkomuvegi.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða deiliskipulagið og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.

Mál nr. 24; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 23-182 - 2303004F.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 23-182.
3.
Fundargerð 3. fundar stjórnar Húsakynna bs.
Málsnúmer 2304002
Til kynningar.
4.
Fundargerð 4. fundar stjórnar Húsakynna bs.
Málsnúmer 2304015
Eina mál á dagskrá þessa fundar er ársreikningur Húsakynna bs. fyrir rekstrarárið 2022.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir fyrir sitt leyti fram lagðan ársreikning.
5.
Fundargerð 9. fundar stjórnar Odda bs.
Málsnúmer 2304036
Dagskrárliður nr. 1 þarfnast staðfestingar hreppsnefndar Ásahrepps. Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir fyrir sitt leyti ársreikning Odda bs. fyrir rekstrarárið 2022.
Að öðru leyti er fundargerðin til kynningar.
6.
Fundargerð 3. fundar stjórnar Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps bs.
Málsnúmer 2304016
3. dagskrárliður þarfnast staðfestingar hreppsnefndar Ásahrepps. Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir samhljóða fyrir sitt leyti ársreikning Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps bs. fyrir rekstrarárið 2022.
Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.
7.
Fundargerð 76. fundar stjórnar Brunavarna Rangárvallasýslu bs.
Málsnúmer 2304011
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir fyrir sitt leyti ársreikning Brunavarna Rangárvallasýslu bs. fyrir rekstrarárið 2022, skv. bókun stjórnar í 1. dagskrárlið.
Fundargerð að öðru leyti til kynningar.
8.
Fundargerð 29. fundar stjórnar Tónlistarskóla Rangæinga bs.
Málsnúmer 2304021
Dagskrárliður 1 þarfnast staðfestingar hreppsnefndar Ásahrepps. Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir fyrir sitt leyti ársreikning Tónlistarskóla Rangæinga bs fyrir rekstrarárið 2022.
Aðrir dagskrárliðir til kynningar.
9.
Fundargerð 226. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Málsnúmer 2304034
Til kynningar.
10.
Fundargerð 227. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Málsnúmer 2304035
Til kynningar.
11.
Fundargerð 228. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Málsnúmer 2304017
Dagskrárliður 1 þarfnast staðfestingar hreppsnefndar. Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir fyrir sitt leyti ársreikning Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs. fyrir rekstrarárið 2022.
Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.
12.
Fundargerð 69. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu
Málsnúmer 2304032
Til kynningar.
13.
Fundargerð 70. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu
Málsnúmer 2304033
Til kynningar.
14.
Fundargerð 71. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu
Málsnúmer 2304013
Til kynningar.
15.
Fundargerð 100. fundar stjórnar UTU
Málsnúmer 2304029
Til kynningar.
16.
Fundargerð 108. fundar svæðisráðs vestursvæðis VJÞ
Málsnúmer 2304001
Til kynningar.
17.
Fundargerð 109. fundar svæðisráðs vestursvæðis VJÞ
Málsnúmer 2304031
Til kynningar.
18.
Fundargerð 226. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Málsnúmer 2304019
Til kynningar.
19.
Fundargerð 592. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2304004
Til kynningar.
20.
Fundargerð 593. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2304005
Til kynningar.
21.
Fundargerð 58. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 2304007
Til kynningar.
22.
Fundargerð 920. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2304009
Til kynningar.
23.
Fundaragerð 52. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Málsnúmer 2304022
Til kynningar.
24.
Fundargerð 53. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Málsnúmer 2304023
Til kynningar.
25.
Fundargerð 54. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Málsnúmer 2304024
Til kynningar.
26.
Fundargerð 4. fundar stjórnar Arnardrangs hses.
Málsnúmer 2304030
Til kynningar.
27.
Fundargerð 24. fundar svæðisskipulagsnefnar Suðurhálendis
Málsnúmer 2304025
Til kynningar.
28.
Fundargerð 594. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2304027
Til kynningar.
29.
Fundargerð 921. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2304028
Til kynningar.
30.
Ársreikningur Ásaljóss fyrir rekstrarárið 2022
Málsnúmer 2304008
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi ársreikning Ásaljóss 2022 og áritar hann.
Helstu kennitölur ársreikningsins eru:
Rekstrartekjur: kr 5.875.414
Rekstrarkostnaður: kr 1.926.664
Afskriftir: kr 3.771.849
Fjármagnsgjöld: kr 296.086
Rekstrarniðurstaða: kr -119.185

Eignir samtals: kr 76.040.603
Skuldir samtals: kr 6.674.422
Eigið fé samtals: kr 72.366.181
Eigið fé og skuldir samtals: kr 76.040.603

Handbært fé samtals: 3.894.060
31.
Ársreikningur Ásahrepps fyrir árið 2022; fyrri umræða
Málsnúmer 2304038
Friðrik Einarsson og Valtýr Valtýsson fóru yfir ársreikning og skýrðu ýmsa liði, ásamt því að svara fram komnum fyrirspurnum.

Hreppsnefnd Ásahrepps þakkar Friðriki fyrir greinagóða yfirferð og vísar ársreikningi Ásahrepps til síðari og loka umræðu á aukafundi hreppsnefndar. Stefnt er að því að aukafundur hreppsnefndar Ásahrepps verði haldinn 27. apríl 2023 klukkan 8:30.
32.
Tillaga að endurskoðuðum samþykktum Bergrisans bs; önnur umræða
Málsnúmer 2303009
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti fyrirliggjandi tillögu að endurskoðuðum samþykktum fyrir byggðasamlagið Bergrisann bs.
33.
Tillaga um breytingu á samþykkt um stjórn og fundarsköp Ásarhepps vegna barnaverndarþjónustu
Málsnúmer 2303014
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að 42. grein samþykktanna verð svo hljóðandi:

42. gr.
Fastanefndir, aðrar nefndir, stjórnir og ráð sem sveitarfélagið á aðild að.

Hreppsnefnd kýs í eftirtaldar nefndir, ráð og stjórnir:
A.
Til fjögurra ára.
Hreppsnefnd kýs fulltrúa og varafulltrúa þeirra í eftirtaldar nefndir sem kosið er í á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar hreppsnefndar og er kjörtímabil þeirra hið sama og hreppsnefndar. Hreppsnefnd kýs nefndum formann og varaformann.
1.
Atvinnu-, jafnréttis- og ferðamálanefnd. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara. Meðal verkefna er að fjalla um atvinnumál í sveitarfélaginu í umboði hreppsnefndar og gera tillögur til hennar um efni sem tengjast atvinnumálum og mótar framtíðarsýn í atvinnumálum á svæðinu. Nefndin fylgir eftir stefnu hreppsnefndar fyrir hennar hönd og er tengiliður hreppsnefndar við atvinnu- og ferðamál á svæðinu. Einnig á nefndin að vera ráðgefandi fyrir hreppsnefnd í jafnréttismálum innan sveitarfélagsins, sbr. 13. gr. laga nr. 151/2020, um stjórnsýslu jafnréttismála.
2.
Umhverfisnefnd: Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara.
3.
Stjórn Brunavarna Rangárvallasýslu bs. Einn fulltrúi og annar til vara. Brunavarnir Rangárvallasýslu bs. er sameinað byggðasamlag í eigu sveitarfélaganna í Rangárvallasýslu. Slökkvistöðvar Brunavarna Rangárvallasýslu bs. eru á Hvolsvelli og Hellu.
4.
Fjallskiladeild Holtamannaafréttar. Einn fulltrúi og annar til vara.
5.
Kjörstjórn. Hreppsnefnd kýs á fyrsta fundi sínum þrjá fulltrúa og jafnmarga til vara í yfirkjörstjórn sveitarfélaga til fjögurra ára sbr. 17. gr. kosningalaga nr. 112/2021.
6.
Oddi bs. Byggðasamlag um rekstur leik- og grunnskóla Ásahrepps og Rangárþings ytra, þ.e. leikskólinn Laugalandi, Heklukot á Hellu, Laugalandsskóla og grunnskólann á Hellu. Stjórn byggðasamlagsins skal skipuð fjórum aðalmönnum, þ.e. oddvitum beggja sveitarfélaga og tveimur fulltrúum úr byggðarráði Rangárþings ytra, sbr. auglýsingu um staðfestingu á samþykkt fyrir byggðasamlagið nr. 366/2023. Jafnframt skulu skipaðir fjórir varamenn úr hópi aðal- og varamanna í sveitarstjórn.
7.
Sameiginlegt þjónustusvæði Suðurlands um þjónustu við fatlað fólk, Bergrisinn bs. Þrettán sveitarfélög á Suðurlandi mynda sameiginlegt þjónustusvæði á Suðurlandi um þjónustu við fatlað fólk í samræmi við lög nr. 38/2018, um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, sem starfar skv. sérstöku samkomulagi. Stjórn þjónustusvæðisins er skipuð þremur fulltrúum, þ.e. einum frá hverju félagsþjónustusvæð sbr. auglýsingu um staðfestingu á samþykkt fyrir byggðasamlagið nr. 514/2015. Yfirstjórn sameiginlegrar skóla- og félagsþjónustu (NOS) skipar einn fulltrúa í stjórn þjónustusvæðisins. Framkvæmd þjónustusamningsins er í höndum þriggja manna þjónusturáðs og skipar NOS einn fulltrúa.
8.
Félagsmálanefnd Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslna. Einn fulltrúi og annar til vara, skv. 5. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og 87. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
9.
Samráðsnefnd Ásahrepps og Rangárþings ytra. Fimm aðalmenn, auk varamanna. Verkefni samráðsnefndar eru um samstarfið að Laugalandi, um sameign og stjórnun Holtamannaafréttar og önnur verkefni sem samráðsnefndin telur áríðandi vegna annarra samstarfsverkefna.
10.
Skipulagsnefnd Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs. Ásahreppur, Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur skipa sameiginlega sex manna skipulagsnefnd uppsveita skv. samþykkt fyrir byggðasamlagið sbr. auglýsingu nr. 35/2022. Ásahreppur skipar einn aðalmann og annan til vara í nefndina. Nefndin fer með skipulagsmál skv. 6. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og byggingarmál skv. 7. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.
11.
Stjórn Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs. Ásahreppur, Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur eiga aðild að byggðasamlaginu. Aðildarsveitarfélögin tilnefna hvert um sig einn aðalmann og einn varamann í stjórn byggðasamlagsins að afloknum sveitarstjórnarkosningum og er kjörtímabil stjórnar það sama og sveitarstjórnar. Stjórnarfulltrúar skulu vera aðalmenn í sveitarstjórnum aðildarsveitarfélaganna. Stjórnin annast daglegan rekstur byggðasamlagsins. Framsals- og valdheimildir til byggingarfulltrúa fara eftir ákvæðum 30.- 33. gr. samþykktar þessarar og samþykktar fyrir byggðasamlagið Umhverfis- og tæknisvið uppsveita bs.
12.
Stjórn sameiginlegs seyruverkefnis. Ásahreppur, Hrunamannahreppur, Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur og Flóahreppur hafa gert samstarfssamning um sameiginlegan seyrurekstur. Ásahreppur skal skipa einn aðalmann og annan til vara í stjórn verkefnisins.
13.
Stjórn Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs. Einn aðalmaður og annar til vara skv. samþykktum byggðasamlagsins.
14.
Stjórn Húsakynna bs. Einn aðalmaður og annar til vara og skulu þeir kjörnir úr hópi aðalfulltrúa hreppsnefndar. Stjórn byggðasamlagsins er skipuð þremur aðalmönnum, tveimur frá Rangárþingi ytra og einum frá Ásahreppi, og eru þeir kjörnir úr hópi aðalfulltrúa í sveitarstjórnunum, sbr. auglýsingu um staðfestingu á samþykkt fyrir byggðasamlagið nr. 762/2022. Húsakynni bs. sjá um eignarhald og rekstur á sameiginlegri eign Rangárþings ytra og Ásahrepps. Sveitarfélögin geta falið Húsakynnum bs. að sjá um eignarhald og rekstur annars húsnæðis ef það samrýmist samþykktum byggðasamlagsins.
15.
Stjórn Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslna bs. Einn aðalmaður og annar til vara skv. samþykktum byggðasamlagsins.
Byggðasamlag sveitarfélaganna Ásahrepps, Rangárþings ytra, Rangárþings eystra, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps um félags- og skólaþjónustu, sbr. auglýsing nr. [auglýsing um staðfestingu samþykkta byggðasamlagsins] fer með verkefni barnaverndarþjónustu samkvæmt 10. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002, sem ekki er falin öðrum.
Samþykkt þessari um stjórn og fundarsköp fylgir viðauki [auglýsing um fullnaðarafgreiðslu byggðasamlags sveitarfélaganna Ásahrepps, Rangárþings ytra, Rangárþings eystra, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps um félags- og skólaþjónustu] um fullnaðarafgreiðslu mála skv. 3. mgr. 12. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
16.
Stjórn Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps bs. Einn aðalmaður og annar til vara og skulu þeir kjörnir úr hópi aðalfulltrúa hreppsnefndar. Stjórn byggðasamlagsins er skipuð þremur aðalmönnum, tveimur frá Rangárþingi ytra og einum frá Ásahreppi, og eru þeir kjörnir úr hópi aðalfulltrúa í sveitarstjórnunum. Vatnsveita Rangárþings ytra og Ásahrepps bs. starfar samkvæmt samningi sveitarfélaganna um rekstur hennar og samþykkta hennar. Vatnsveitan sér um eignarhald og rekstur allra vatnsveitumannvirkja og dreifikerfis í eigu og á ábyrgð sveitarfélaganna annarra en þeirra sem eru í einkaeigu.
17.
Stjórn Tónlistarskóla Rangæinga bs. Einn fulltrúi og annar til vara. Þar sem ekki eru kosnar sérstakar nefndir fer hreppsnefnd með verkefni þeirra


Jafnframt samþykkir hreppsnefnd Ásahrepps samhljóða viðauka, við samþykkt um stjórn og fundarsköp Ásahrepps, um fullnaðarafgreiðslu mála hjá Barnaverndarþjónustu Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu samkvæmt 3. mgr. 12. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
34.
Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis gististaðar í flokki II; Miðmundarholt 2
Málsnúmer 2303026
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að gera engar athugasemdir við að leyfi verði veitt í rekstrarflokki II-C, fyrir allt að 8 gesti.
35.
Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis gististaðar í flokki II; Miðmundarholt 5
Málsnúmer 2303027
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að gera engar athugasemdir við að leyfi verði veitt í rekstrarflokki II-C, fyrir allt að 4 gesti.
36.
Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis gististaðar í flokki II; Áshamrar 2
Málsnúmer 2303028
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að gera engar athugasemdir við að leyfi verði veitt í rekstrarflokki II-H, fyrir allt að 8 gesti, 4 í hvorum matshluta.
37.
Ísleifur Jónasson vék af fundi undir þessum dagskrárlið. Beiðni um styrk vegna uppsetningar á varmadælu, ljósastaura, kaupa á hreinsistöð og tengingu ljósleiðara
Málsnúmer 2304012
Meðfylgjandi bréfinu eru afrit reikningum og greiðslukvittunum sem sýna að bréfritarar hafa þegar greitt allan kostnað vegna þessara verkefna.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita styrk til þessara verkefna samkvæmt samþykkt hreppsnefndar um styrkveitingar dags. 15. mars 2023.
Þar sem ekki er gert ráð fyrir styrkveitingu vegna uppsetningar varmadælu að upphæð kr. 1.864.483 í fjárhagsáætlun Ásahrepps 2023, þá samþykkir hreppsnefnd samhljóða að gera viðauka við fjárhagsáætlun ársins að upphæð 1,9 milljónir króna sem færist á deild 1381-4120. Þessum útgjöldum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
38.
Kostnaður vegna svæðiskorts Suðurlands
Málsnúmer 2304014
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi skiptingu kostnaðar við uppfærslu og prentun svæðiskortsins.
39.
Skoðanakönnun meðal sveitarfélaga frá Markaðsstofu Suðurlands
Málsnúmer 2304018
Hreppsnefnd Ásahrepps felur sveitarstjóra að svara könnuninni.
40.
Fundargerð svæðisskipulagsnefndar Suðurhálendis ásamt minnisblaði
Málsnúmer 2304026
Samkvæmt minnisblaðinu yrði viðbótarkostnaður Ásahrepps vegna svæðisskipulags Suðurhálendis kr. 1.395.349, sem myndi skiptast niður á tvö ár. Á árinu 2023 yrði til greiðslu kr. 930.233 og síðan á árinu 2024 kr. 465.116.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að vinnu við svæðisskipulag Suðurhálendis verði lokið og samþykkir viðbótarkostnað við verkefnið eins og fram kemur í minnisblaðinu.
Þar sem ekki er gert ráð fyrir þessum viðbótarkostnaði að upphæð kr. 930.233 í fjárhagsáætlun Ásahrepps 2023, þá samþykkir hreppsnefnd samhljóða að gera viðauka við fjárhagsáætlun ársins að upphæð kr. 930.233, sem færist á deild: 0929, og þeim útgjöldum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
41.
Eftirfylgni vegna ákvörðunar hreppsnefndar um skipulagsmál orkumannvirkja á 11. fundi
Málsnúmer 2304039
Til kynningar.
42.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Málsnúmer 2101011
Til kynningar.
43.
Bréf innviðaráðuneytis; starfsaðstæður kjörinna fulltrúa
Málsnúmer 2304003
Til kynningar.
44.
Bréf Skipulagsstofnunar vegna deiliskipulags Lækjartúns II
Málsnúmer 2304006
Til kynningar.
45.
Niðurstaða umsóknar um nýjan héraðsveg að bænum Steinási
Málsnúmer 2304020
Til kynningar.
46.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Til kynningar.