Hreppsnefnd Ásahrepps
14. fundur
17. maí 2023
kl.
08:30
-
11:00
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson
hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson
hreppsnefndarfulltrúi
Reynir Örn Pálmason
hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Lögð fram tillaga um dagskrárbreytingu að inn komi nýr dagskrárliður nr. 23 og aðrir dagskrárliðir færist til sem því nemur.
Dagskrá
1.
Fundargerð 259. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 259. fundar skipulagsnefndar UTUj ásamt afgreiðslufundi byggingarfulltrúa nr. 23-183.
Mál nr. 19; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 23-283 - 2303004F.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 23-183.

2.
Fundargerð 260. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 260. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 23-184.
Mál nr. 1; Hlíðarás (Berustaðir 2 land 1) L207089; Skilgreining lóða og byggingarheimildir; Deiliskipulag - 23001052.
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til Hlíðaráss (Berustaðir 2 - land 2) L207089 eftir auglýsingu. Innan deiliskipulags er gert ráð fyrir byggingarheimildum fyrir íbúðarhús auk véla- reið- og/eða tamningarskemmu allt að 800 m², hámarkshæð er 6,5 m. Hesthús eða gripahús má vera allt að 300 m², hámarkshæð húss er 6 m. Gestahús má vera allt að 80 m², hámarkshæð húss er 5,5 m. Umsagnir bárust á auglýsingatíma skipulagsins og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Hreppsnefndin telur ekki ástæðu til að bregðast sérstaklega við umsögn Vegagerðarinnar vegna málsins þar sem um túnatenginu er að ræða, auk þess sem viðkomandi tenging er utan marka deiliskipulagsins. Hreppsnefnd Ásahrepps mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 2; Fremstatunga (L225243); byggingarleyfi; starfsmannahús - breyta notkun í hótel og gistihús - 2304062.
Fyrir liggur umsókn Eiríks V. Pálssonar fyrir hönd Hálendisins ehf., móttekin 26.04.2023, um byggingarleyfi að breyta notkun á starfsmannahúsum í hótel og gistihús á viðskipta- og þjónustulóðinni Fremstatunga L226243 í Ásahreppi.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að málið fái málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna útgáfu framkvæmda- eða byggingarleyfis þar sem segir að sveitarstjórn sé heimilað að vikið sé frá kröfum 2. mgr. um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu þegar um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Mál nr. 3; Vallarás (Ásmúli lóð 3) L1922728; Skilgreining lóða og byggingarskilmálar; Deiliskipulag - 2301053.
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til lands Ásmúla lóð 3 L192728 í Ásahreppi eftir auglýsingu. Samhliða er óskað eftir því að staðfangið Vallarás verði notað innan svæðisins. Í deiliskipulaginu felst heimild til að stofna 7 landspildur út úr Vallarási (Ásmúla lóð 3) og munu þær fá nafnið Vallarás 1-7, spildurnar eru um 6 ha hver. Heimilt er að hafa fasta búsetu á spildunum og stunda þar landbúnaðartengda starfsemi eða annan minniháttar atvinnurekstur ótengdan landbúnaði.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Hreppsnefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Í því felst að túngarður sem vísað er til innan umsagnar Minjarstofnunar Íslands hefur verið færður inn á uppdrátt. Hreppsnefnd Ásahrepps mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 22; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 23-284 - 2304006F.
Lögð frm fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 23-184.

3.
Fundargerð 4. fundar nefndar um göngu-, reiðhjóla- og reiðleiðir í Ásahreppi
Lögð fram fundargerð 4. fundar nefndar um göngu-, reiðhjóla- og reiðleiðir í Ásahreppi.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagða fundargerð.
4.
Fundargerð 72. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu
Lögð fram fundargerð 72. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
Til kynningar.
5.
Fundargerð 10. fundar stjórnar Odda bs
Lögð fram fundargerð 72. fundar stjórnar Odda bs.
Til kynningar.
6.
Fundargerð aðalfundar Rangárbakka 2023
Lögð fram fundargerð aðalfundar Rangárbakka, þjóðaleikvangs íslenska hestsins ehf, frá 17. apríl 2023.
Til kynningar.
7.
Fundargerð aðalfundar Rangárhallarinnar 2023
Lögð fram fundargerð aðalfundar Rangárhallarinnar, frægðarhallar íslenska hestsins ehf, frá 17. apríl 2023.
Til kynningar.
8.
Fundargerð 2. fundar öldungaráðs Rangárvallasýslu 2022-2026
Lögð fram fundargerð 2. fundar öldungaráðs Rangárvallasýslu kjörtímabilið 2022-2026, ásamt drögum af samþykktum fyrir öldungaráðs Rangárvallasýslu.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fyrir sitt leyti fyrirliggjandi drög að samþykktum fyrir öldungaráð Rangárvallasýslu og felur sveitarstjóra eða oddvita að undirrita hana fyrir hönd Ásahrepps.
Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.

9.
Fundargerð 227. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Lögð fram fundargerð 227. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 25. fundar svæðisskipulagsnefndar Suðurhálendis
Lögð fram fundargerð 25. fundar svæðisskipulagsnefndar Suðurhálendis.
Til kynningar.
11.
Fundargerð 595. fundar stjórnar SASS
Lögð fram fundargerð 595. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
12.
Fundargerð aukaaðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga, 21. apríl 2023
Lögð fram fundargerð aukaaðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga sem haldinn var 21. apríl 2023.
Til kynningar.
13.
Fundargerð 61. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 61. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
14.
Fundaragerð 62. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 62. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
15.
Fundargerð 63. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 63. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
16.
Fundargerð 925. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 925. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
17.
Endurskoðun á afgreiðslu hreppsnefndar Ásahrepps frá 11. fundi sínum, dagskrárlið 17, er varðar deiliskipulög fyrir Búðarhálsvirkjun, Hrauneyjafossstöð, Sigöldustöð og Vatnsfellsstöð.
Hreppsnenfnd Ásahrepps tekur afstöðu til fyrri ákvörðunar í ljósi bókunar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga og stöðu mála varðandi skipulagsmál orkumannvirkja.
Í ljósi bókunar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga á 63. fundi sínum (sjá dagskrárlið 15) samþykkir hreppsnefnd Ásahrepps (3 atkvæði með ÍJ, HBH og ÞI, einn var á móti RÖP og einn sat hjá NJ) að falla frá ákvörðun sinni á 11. fundi sínum, dagskrárliður 17, um að draga til baka fyrri ákvörðun sína á 10. fundi hreppsnefndar. Málið lýtur að deiliskipulagsbreytingum á landsvæðum orkumannivirkja á Holtamannaafrétti.
Fyrri afgreiðsla hreppsnefndar Ásahrepps (á 10. fundi sínum) á fundargerð skipulagsnefndar UTU nr. 254 öðlast þar með gildi.
Bókununin var svo hljóðandi:
Lögð fram fundargerð 254. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 23-178.
Mál nr. 1; Búðarhálsvirkjun; Breytt afmörkun; Deiliskipulagsbreyting - 2212068
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Búðarhálsvirkjunar. Með breytingunni er skipulagssvæðinu breytt og sá hluti þess sem náði yfir Hrauneyjafossstöð er felldur út. Þrjár námur sem komnar eru undir Sporðöldulón eru felldar úr. Engar nýjar framkvæmdir eða mannvirki verða heimiluð. Samhliða deiliskipulagsbreytingunni er unnið deiliskipulag fyrir Hrauneyjafossstöð. Breytt afmörkun skipulagssvæðisins er 7543 ha.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða viðkomandi breyting á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingar á deiliskipulagi.
Mál nr. 2; Hrauneyjafossstöð og leitarmannahús Þóristungum; Skipulagssvæði sameinuð; Deiliskipulag - 2212067.
Lögð er fram deiliskipulagsáætlun sem tekur til Hrauneyjafossstöðvar og leitarmannahúss að Þóristungum. Deiliskipulagið snýst um að staðfesta núverandi landnotkun. Uppsett afl Hrauneyjafossstöðvar er allt að 210 MW og verður heimilt að stækka hana í 240 MW. Ef farið verður í þær framkvæmdir munu þær einungis felast í endurbótum á núverandi vélum og verða innanhúss. Unnin hefur verið mannvirkjaskráning fyrir stöðina og eru settir skilmálar í tengslum við hana. Þá voru fornminjar skráðar. Þóristungur L229271, mannvirki eru í Ásahreppi. Á staðnum er skáli og hesthús, gisting er fyrir 14 gesti. Mannvirki eru nýtt sem leitarmannahús og í langtímaleigu, einkum til veiðimanna. Heimilt er að byggja eitt hús til viðbótar og vera með gistingu fyrir allt að 40 gesti. Þóristungur er fjallasel skv. aðalskipulagi. Skipulagssvæðið er tvískipt og er um 173 ha að stærð.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að deiliskipulagið verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.
Mál nr. 3; Sigöldustöð; Skipulagssvæði sameinuð; Deiliskipulag - 2212066.
Lögð er fram deiliskipulagsáætlun sem tekur til Sigöldustöðvar í Ásahreppi og Rangárþingi ytra. Deiliskipulagið snýst um að staðfesta núverandi landnotkun og heimila stækkun stöðvarinnar. Í dag er virkjað rennsli 240 m3 /s og afl Sigöldustöðvar er 150 MW. Framkvæmdir við stöðina hófust árið 1973 og var hún gangsett í byrjun árs 1978. Landsvirkjun áformar nú að stækka stöðina með því að bæta við fjórðu vélinni og auka með því afl stöðvarinnar í allt að 215 MW. Auk þess verður stöðvarhús stækkað og frárennslisskurður breikkaður næst stöðvarhúsi. Unnin hefur verið mannvirkjaskráning fyrir stöðina og eru settir skilmálar í tengslum við hana. Þá voru fornminjar skráðar. Skipulagssvæði Sigöldustöðvar er um 108 ha að stærð.

Mál nr. 4; Vatnsfellsstöð L193783 og Vatnsfellsveita Þórisvatns; Deiliskipulag - 2212065.
Lögð er fram tillaga deiliskipulags sem tekur til Vatnsfellsstöðvar og Vatnsfellsveitna í Ásahreppi. Deiliskipulagið snýst um að staðfesta núverandi landnotkun. Uppsett afl Vatnsfellsstöðvar er allt að 90 MW og verður heimilt að stækka hana í 110 MW. Framkvæmdir felast í endurbótum á núverandi vélum. Um er að ræða framkvæmd innanhúss. Unnin hefur verið mannvirkjaskráning fyrir stöðina og eru settir skilmálar í tengslum við hana. Þá voru fornminjar skráðar. Skipulagssvæði Vatnsfellsstöðvar er um 60 ha að stærð og skipulagssvæði Vatnsfellsveitu um 5 ha.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir að deiliskipulagið verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.
Bókun RÖP: Ég tel að ekki sé tímabært að taka þessa ákvörðun og hefði viljað að ítarlegri upplýsingar lægju fyrir um framvindu lagabreytinga og stefnumörkun ríkisins um réttlátari skiptingu skatttekna og arðs af orkumannvirkjum.

18.
Styrkbeiðni skólablaðsins Ýmis, Grunnskólinn Hellu
Lagt fram tölvuskeyti frá umsjónarkennara 10. bekkjar, Grunnskólanum Hellu, þar sem óskað er eftir að Ásahreppur kaupi auglýsingu í skólablaðið Ýmir.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að kaupa heilsíðu auglýsingu á kr. 12.000, enda gert ráð fyrir þeim útgjöldum í fjárhagsáætlun Ásahrepps 2023.
19.
Skipulag skógræktar á Íslandi
Lagt fram bréf VÍN, vina íslenskrar náttúru, til Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 14. apríl 2023. Efni bréfsins er skipulags skógræktar á Íslandi. Óskað er eftir að sveitarstjórnir landsins taki erindið fyrir til umfjöllunar.
Lagt fram til kynningar.
20.
Endurskoðun siðareglna kjörinna fulltrúa í Ásahreppi
Lögð fram drög að endurskoðuðum siðareglum kjörinna fulltrúa í Ásahreppi. Samkvæmt lögum ber hreppsnefnd að taka þessar reglur til endurskoðunar með reglulegu millibili.
Ekki eru gerðar tillögur um breytingu á núgildandi reglum og samþykkir hreppsnefnd Ásahrepps að halda þeim óbreyttum frá því sem verið hefur.
21.
Skýrsla; Vindorka, valkostir og greining
Lögð fram skýrsla á vegum Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins um vindorkumál, "Vindorka, valkostir og greining". Einnig lögð fram umsögn stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga um skýrsluna.
Hreppsnefnd Ásahrepps tekur undir umsögn stórnar Samtaka orkusveitarfélaga og styður hana.
22.
Svæðisskipulagsgerð fyrir Suðurhálendið; tillaga til afgreiðslu
Lögð fram greinargerð fyrir svæðisskipulag Suðurhálendis ásamt Umhverfisskýrslu og greinargerð um flokkun landslags.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti að tillagan verði send Skipulagsstofnun til athugunar skv. 3 mgr. 23. greinar skipulagslaga nr. 123/2010, og 15. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Ef Skipulagsstofnun gerir engar athugasemdir innan fjögura vikna þá samþykkir hreppsnefnd Ásahrepps samhljóða að tillagan verði auglýst sbr. 24. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
23.
Tölvuskeyti Reynis Arnar Pálmasonar; deiliskipulag Lækjartúni 2
Lagt fram tölvuskeyti Reynis Arnar Pálmasonar, dags. 12. maí, þar sem óskað er eftir að fresta auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda deilsiskipulags iðnaðarsvæðis í landi Lækjartúns 2, þar til að málið hafi verið skoðað betur með tilliti til uppbyggingaráforma á lóðunum.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhjóða að fresta auglýsingu deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda. Hreppsnefnd telur mikilvægt að umrætt deiliskipulag verði kynnt betur fyrir íbúum sveitarfélagsins. Óskað er eftir aðstoð skipulagsfulltrúa við úrvinnslu málsins.
24.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Lagt fram rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps fyrir tímabilið janúar - apríl 2023, ásamt drögum að fréttapunktum af vettvangi Ásahrepps.
Til kynningar.
25.
Ársskýrsla Íþróttafélagsins Garps 2022
Lögð fram ársskýrsla Íþróttafélagsins Garps 2022 ásamt ársreikningi.
Til kynningar.
26.
Ársreikningur Samtaka orkusveitarfélaga 2022
Lagður fram ársreikningur Samtaka orkusveitarfélaga fyrir rekstrarárið 2022.
Til kynningar.
27.
Deiliskipulög fyrir skála á Holtamannaafrétti
Lagðar fram umsagnir um tillögur að deiliskipulagi skálasvæða á Holtamannaafrétti sem sendar hafa verið til skipulagsfulltrúa.
Til kynningar.
28.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi þann 21. júní 2023. Fundur hefst klukkan 8:30.
Til kynningar.