Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

15. fundur
21. júní 2023 kl. 08:30 - 11:00
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson hreppsnefndarfulltrúi
Reynir Örn Pálmason hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 261. fundar skipulagsnefnar UTU
Málsnúmer 2306003
Lögð fram fundargerð 261. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 23-185.
Mál nr. 1; Versalir (Stóraver L165351) á Holtamannaafrétti; fjallasel; Deiliskipulag - 211042.
Lögð er fram tillaga deiliskipulags sem tekur til fjallaselsins Versala á Holtamannaafrétt eftir auglýsingu. Með deiliskipulaginu er verið staðfesta núverandi landnotkun svæðisins. Í Versölum eru þrír skálar, tveir gistiskálar og hesthús með hestagerði. Annar gistiskálinn og hesthúsið er í eigu Ásahrepps og Rangárþings ytra, hinn gistiskálinn er í einkaeigu. Gisting getur verið fyrir allt að 45 gesti. Skipulagssvæðið er um 5,6 ha. Umsagnir bárust á auglýsingatíma skipulagsins og eru þær lagðar fram við afgreiðslu tillögunnar.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að allar lóðir á Holtamannaafrétti (innan þjóðlendu) með einkaskálum verði auglýstar í samræmi við verklag sem gefið hefur verið út af forsætisráðuneytinu. Brugðist hefur verið við umsögn forsætisráðuneytisins og gögn uppfærð. Hreppsnefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 23/2010 með fyrirvara um uppfærð gögn.

Mál nr. 24; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 23-285 - 2305001F.
Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa nr. 23-185.
2.
Fundargerð 262. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2306029
Lögð fram fundargerð 262. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 23-186.
Mál nr. 1; Hald á Holtamannaafrétti; Fjallasel; Deiliskipulag - 2211044.
Lögð er fram tillaga deiliskipulags sem tekur til fjallaselsins Halds á Holtamannaafrétt eftir auglýsingu. Með deiliskipulaginu er staðfest núverandi landnotkun svæðisins, auk þess sem gert er ráð fyrir byggingu tveggja nýrra skála. Annar er ætlaður fyrir gistingu og hinn getur verið skemma/hesthús. Gisting getur verið fyrir allt að 40 gesti. Skipulagssvæðið er um 3,9 ha. Umsagnir bárust á auglýsingatíma skipulagsins og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Hreppsnefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Hreppsnefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Mál nr. 2; Hvanngiljahöll á Holtamnnaafrétti;Fjallasel, Deiliskipulag - 2211043.
Lögð er fram tillaga deiliskipulags sem tekur til fjallaselsins Hvanngiljahallar á Holtamannaafrétt eftir auglýsingu. Með deiliskipulaginu er staðfesta núverandi landnotkun svæðisins, auk þess sem gert er ráð fyrir byggingu nýrra skála í stað þeirra sem fyrir eru. Gisting getur verið fyrir allt að 30 gesti. Skipulagssvæðið er um 4,9 ha. Umsagnir bárust á auglýsingatíma skipulagsins og eru þær lagðar fram við afgreiðslu þess ásamt uppfærðum gögnum.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Hreppsefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Hreppsnefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Mál nr. 48; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 23-186 - 2306001F.
Lögð fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 23-186.
3.
Fjallskiladeild Holtamannaafréttar - 4
Málsnúmer 2306001F
Lögð fram fundargerð 4. fundar fjallskilanefndar Holtamannaafréttar.
Hreppsnefnd samþykkir fundargerina fyrir sitt leyti.
4.
Fundargerð 11. fundar stjórnar Odda bs.
Málsnúmer 2306026
Lögð fram fundargerð 11. fundar stjórnar Odda bs.
Til kynningar.
5.
Fundargerð 12 fundar stjórnara Odda bs.
Málsnúmer 2306022
Lögð fram fundargerð 12. fundar stjórnar Odda bs.
Til kynningar.
6.
Fundargerð 73. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu
Málsnúmer 2306012
Lögð fram fundargerð 73. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu bs.
Til kynningar.
7.
Fundargerð aðalfundar Félags og skólaþjónustu 2023
Málsnúmer 2306013
Til kynningar.
8.
Fundargerð Héraðsnefndar Rangæinga, 23. maí 2023
Málsnúmer 2306014
Lögð fram fundargerð Héraðsnefndar, dags. 23. maí 2023.
Til kynningar.
9.
Fundargerð 101. fundar stjórnar UTU
Málsnúmer 2306018
Lögð fram fundargerð 101. fundar stjórnar UTU.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 9. fundar seyrustjórnar
Málsnúmer 2306027
Lögð fram fundargerð 9. fundar seyrustjórnar.
Til kynningar.
11.
Fundargerð 10. fundar seyrustjórnar
Málsnúmer 2306024
Lögð fram fundargerð 10. fundar seyrustjórnar.
Til kynningar.
12.
Fundargerð 228. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Málsnúmer 2306025
Lögð fram fundargerð 228. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands.
Til kynningar.
13.
Fundargerð 55. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Málsnúmer 2306006
Lögð fram fundargerð 55. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
14.
Fundargerð 56. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Málsnúmer 2306009
Lögð fram fundargerð 56. fundar stjórnar Bergrisans bs. ásamt ársreikningi 2022 og starfsreglum þjónusturáðs.
Til kynningar.
15.
Fundargerð 57. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Málsnúmer 2306010
Lögð fram fundargerð 57. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
16.
Fundargerð 58. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Málsnúmer 2306019
Lögð fram fundargerð 58. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
17.
Fundargerð 5. fundar stjórnar Arnardrangs hses.
Málsnúmer 2306020
Lögð fram fundargerð 5. fundar stjórnar Arnardrangs hses.
Til kynningar.
18.
Fundargerð 6. fundar stjórnar Arnardrangs hses.
Málsnúmer 2306021
Lögð fram fundargerð 6. fundar stjórnar Arnardrangs hses.
Til kynningar.
19.
Fundaragerð 596. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2306023
Lögð fram fundargerð 596. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
20.
Fundargerð 64. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 2306005
Lögð fram fundargerð 64. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
21.
Fundargerð 926. fundara stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2306008
Lögð fram fundargerð 926. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
22.
Fundargerð 927. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2306011
Lögð fram fundargerð 927. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
23.
Fundargerð 928. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2306016
Lögð fram fundargerð 928. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
24.
Spurningar frá samgöngunefnd SASS
Málsnúmer 2306017
Lagt fram tölvuskeyti SASS, dags. 5. júní 2023, þar sem fram koma 5 spurningar til aðildarsveitarfélaga SASS frá samgöngunefnd samtakanna. Þetta er liður í endurskoðun nefndarinnar á samgönguáætlun fyrir árið 2023-2032.
Hreppsnefnd Ásahrepps átti áhugaverða umfjöllun um spurningar samgöngunefndar SASS. Sveitarstjóra falið að svara erindinu í takt við þær umræður sem áttu sér stað.
25.
Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis gististaðar í flokki IV-Hótel; Fremstutungu
Málsnúmer 2303029
Lagt fram bréf Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 23. mars 2023, þar sem óskað er eftir umsögn hreppsnefndar Ásahrepps vegna umsóknar um rekstrarleyfi til reksturs gististaðar í flokki iV-A Hótel. Um er að ræða Hótel Háland, sem staðsett er að Frestutungu á Holtamannaafrétti, fasteignanúmer: 250-0912. Umsækjandi er Hálendið ehf, kt. 600421-1310. Fyrir liggur jákvæð afgreiðsla byggingarfulltrúa, dags. 15. júní 2023, sem einnig er lögð fram.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að ekki eru gerðar neinar athugasemdir við að umrætt rekstrarleyfi verði veitt.
26.
Erindi Golfklúbbsins Hellu, sameining GHR og Strandarvallar ehf
Málsnúmer 2306028
Lagt fram bréf Golfklúbbsins Hellu, dags. 6. júní 2023, þar sem óskað er eftir samþykki sveitarstjórna sveitarfélaganna í Rangárvallasýslu um að sameina Strandarvöll ehf við Golfklúbbinn Hellu. Ekki er gert ráð fyrir því að endurgjald komi fyrir eignarhlut sveitarfélaganna í félaginu. Eignarhlutur Ásahrepps er 0,8% og er metinn í ársreikningi 2022 á kr. 634.000.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að eignarhlutur Ásahrepps í Strandarvelli ehf. renni til Golfklúbbsins Hellu án endurgjalds.
Hreppsnefndin lítur svo á að þessi eignarhluti sé sem framlag til klúbbsins.
27.
Styrkbeiðni Íþróttasambands fatlaðra vegna útgáfu Hvata
Málsnúmer 2306030
Lagt fram tölvuskeyti Íþróttasambands fatlaðra, dags. 25. maí 2023, þar sem óskað er eftir fjárstyrk vegna útgáfum blaðsins Hvata.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita styrk að upphæð kr. 9.000.
28.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Málsnúmer 2101011
Lagt fram rekstraryfirlit fyrir sveitarsjóð Ásahrepps frá 1. janúar - 31. maí 2023.
Til kynningar.
29.
Skýrsla Orlofsnefndar húsmæðra ásamt ársreikningi 2022
Málsnúmer 2306004
Lagt fram bréf frá orlofi húsmæðra í Árnes- og Rangárvallasýslu, dags 15. maí 2023 ásamt skýrslu og ársreikningi fyrir árið 2022.
Til kynningar.
30.
Erindi Skógræktarfélags Íslands til sveitarfélaga
Málsnúmer 2306007
Lagt fram erindi Skógræktarfélags Íslands, dags. 22. maí 2023, þar sem varað er við neikvæðum málflutningi andstæðinga skógræktar.
Til kynningar.
31.
Andmæli við minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga um ágang búfjár
Málsnúmer 2306015
Lagt fram bréf umræðuhóps um lausagöngu sauðfjár til Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 4. mars 2023. Í bréfinu koma fram athugasemdir við minnisblað sambandsins um réttarstöðu sveitarfélaga vegna ágangs búfjár.
Til kynningar.
32.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi 16. ágúst 2023. Fundurinn hefst klukkan 8:30.

Sumarleyfi hreppsnefndar Ásahrepps er í júlí og jafnframt verður sumarleyfi skrifstofu og henni lokað frá og með 3. júlí til og með 11. ágúst n.k.
Samþykkt samhljóða.