Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

16. fundur
23. ágúst 2023 kl. 08:30 - 11:45
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson hreppsnefndarfulltrúi
Reynir Örn Pálmason hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Lögð fram tillaga um að bæta við einum dagskrárlið, nr. 20 og aðrir dagskrárliðir færist til sem því nemur. Samþykkt samhljóða.
Dagskrá
1.
Fundargerð 263. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2308008
Lögð fram fundargerð 263. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt afgreiðslufundi byggingarfulltrúa nr. 23-187.
Mál nr. 1; Syðri-Hamrar 3 (L200445); byggingarheimild; vélasekmma - 2306064.
Helga Björg Helgadóttir víkur af fundi við afgreiðslu þessa dagskrárliðar.
Fyrir liggur umsókn Helgu B. Helgadóttur, móttekin 15.06.2023, um byggingarheimild fyrir 227 m2 vélaskemmu á jörðinni Syðri-Hamrar 3 L200445 í Ásahreppi. Fyrir liggur samþykki lóðarhafa aðliggjandi lóða vegna framlagðrar umsóknar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að málið fái málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ekki verði gerð krafa um grenndarkynningu þar sem skriflegt samþykki nágranna liggi fyrir vegna málsins.

Mál nr. 2; Gásagustur í Holtamannaafrétti; Fjallasel; Deiliskipulag - 2203063.
Lögð er fram tillaga deiliskipulags sem tekur til fjallaselsins Gásagustar á Holtamannaafrétt eftir auglýsingu. Í deiliskipulaginu er afmörkuð ein lóð fyrir mannvirki. Heimilt er að byggja 3 hús og getur heildarbyggingarmagn verið allt að 300 m2. Gert er ráð fyrir gistingu í 2-3 skálum og að heimilt sé að vera með aðstöðu fyrir landvörð, upplýsingar og fræðslu um Friðland Þjórsárvera. Gisting getur verið fyrir 30 gesti. Heimilt er að nýta mannvirki allt árið. Núverandi mannvirki verða fjarlægð. Skipulagssvæðið er um 3,7 ha. Umsagnir bárust á auglýsingatíma skipulagsins og eru þær lagðar fram ásamt samantekt athugasemda og viðbragða.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Hreppsnefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna og í framlagðri samantekt viðbragða við umsögnum og athugasemdum. Hreppsnefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Mál nr. 32; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 23-187 - 2306005F.
Lögð fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 23-187.
2.
5. fundur fjallskiladeildar Holtamannaafréttar
Málsnúmer 2308027
Lögð fram fundargerð 5. fundar fjallskiladeildar Holtamannaafréttar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagða fundargerð fyrir sitt leyti.
3.
Fundargerð 74. fundar Félags- og skólaþjónustu
Málsnúmer 2308020
Lögð fram fundargerð 74. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.Dagskrárliðir 2 - 6 þarfnast staðfestingu aðildarsveitarfélaganna.
2. Reglur um fjárhagsaðstoð.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti.

3. Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti.

4. Stuðningsþjónusta 18 ára og eldri.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti.

5. Reglur fyrir starfsmenn í stoð- og stuðningsþjónustu.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti.

6. Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti.

Að öðru leyti er fundargerðin til kynningar.
4.
Fundargerð fundar sveitarstjóra með fulltrúum Vegagerðarinnar, 22. júní 2023
Málsnúmer 2308004
Lögð fram fundargerð fundar sveitarstjóra og oddvita með fulltrúum Vegagerðarinnar, sem haldinn var 22. júní 2023, þar sem framkvæmdum á vegum innan Ásahrepps sumarið 2023 er útlistað. Einnig löögð fram gögn um girðingarhugmyndir með Sumarliðabæjarvegi, um land Áshóls.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að semja við Þráinn Ingólfsson um að setja upp umræddar girðingar með Sumarliðabæjarvegi á grundvelli fjárframlags frá Vegagerðinni sem samþykkt hefur verið.
5.
Fundargerð 13. fundar stjórnar Odda bs
Málsnúmer 2308021
Lögð fram fundargerð 13. fundar stjórnar Odda bs.
Til kynningar.
6.
Fundargerð 4. fundar stjórnar Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps
Málsnúmer 2308016
Lögð fram fundargerð 4. fundar stjórnar Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps.
Til kynningar.
7.
Fundargerð 229. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs
Málsnúmer 2308005
Lögð fram fundargerð 229. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Til kynningar.
8.
Fundargerð stjórnar Skógasafns, 1. febrúar 2023
Málsnúmer 2308018
Lögð fram fundargerð stjórnar Skógasafns, dags. 1. febrúar 2023.
Til kynningar.
9.
Fundargerð aðalfundar Skógasafns, 30. júní 2023
Málsnúmer 2308019
Lögð fram fundargerð aðalfundar Skógasafns, dags. 30. júní 2023, ásamt ársreikningi 2022 og endurskoðunarskýrslu.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 229. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Málsnúmer 2308001
Lögð fram fundargerð 229. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands.
Til kynningar.
11.
Aukaaðalfundur Bergrisans bs, 15. júní 2023
Málsnúmer 2308017
Lögð fram fundargerð auka aðalfundar Bergrisans bs, sem haldinn var 15. júní 2023. Einnig lagðar fram samþykktir Bergrisans bs sem birtar hafa verið í B-deild Stjórnartíðinda.
Til kynningar.
12.
Fundargerð 597. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2308013
Lögð fram fundargerð 597. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
13.
Fundargerð 65. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 2308010
Lögð fram fundargerð 65. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
14.
Fundargerð 929. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2308002
Lögð fram fundargerð 929. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
15.
Fundargerð 930. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2308003
Lögð fram fundargerð 930. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
16.
Fundargerð 931. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2308006
Lögð fram fundargerð 931. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
17.
Skipun starfshóps um skattalegt umhverfi orkuvinnslu
Málsnúmer 2308009
Lögð fram tilkynningar, sem birtst hefur í samráðsgátt stjórnvalda, um skipun starfshóps á vegum fjármála- og efnahagsráðuneytis um endurskoðun á skattalegu umhverfi orkumannvirkja. Aðildarsveitarfélög eru hvött til að senda inn ábendingar og/eða tillögur til starfshópsins.
Lögð fram drög að umsögn fyrir Ásahrepp og sveitarstjóra falið að ganga endanlega frá umsögninni og senda hana inn á samráðsgátt stjórnvalda.
18.
Samþykkt um fráveitur; vinnuskjal
Málsnúmer 2308012
Lagt fram vinnuskjal sem eru drög að samþykkt um fráveitur, sem unnið hefur verið á vettvangi seyruverkefnisins.
Lagt fram til kynningar.
19.
Umsókn um uppsetningu ljósastaura, lagningu slitlag á héraðsveg og styrk vegna nýrrar hitaveitutengingar og rotþróarhreinsistöðvar
Málsnúmer 2308014
Lagt fram tölvuskeyti Ástu Beggu Ólafsdóttur, dags. 12. júlí 2023, þar sem hún sækir um uppsetningu ljósastaura og lagningu slitlags að íbúðarhúsi að Viðarási, en hún hefur lögheimili þar. Einnig óskar hún eftir styrk vegna kaupa á rotþró/hreinsistöð svo og styrk vegna tengingar íbúðarhússins við dreifikerfi Veitna.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að tveir ljósastaurar verði settir upp við Viðarás og að heimreið að húsinu verði klædd bundnu slitlagi þegar Vegagerðin hefur samþykkt aðkomuveginn sem héraðsveg og tilbúinn til lagningar slitlags. Einnig samþykkir hreppsnefnd samhljóða að veita styrk vegna kaupa á rotþró/hreinsistöð í samræmi við reglur sveitarfélagsins. Vegna tengingar við dreifikerfi Veitna er vísað til samþykktar reglur Ásahrepps þar um. Sveitarstjóra falið að ræða við aðila og kanna hvort tengingin kalli á framlag frá sveitarfélaginu.
20.
Heilsueflandi haust í Rangárþingi
Málsnúmer 2308028
Lagt fram tölvuskeyti frá Rangárþingi eystra þar sem Ásaheppi er boðin þátttaka í verkefni um heilsueflingu í Rangárþingi, en Rangárþing eystra og Rangárþing ytra hafa ákveðið að vera með. Kostnaður Ásahrepps yrði 3-400 þús. kr. á þessu ári.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að taka þátt í verkefninu og greiða 350.000 kr. í þetta verkefni. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að tilnefna Nönnu Jónsdóttur sem fulltrúa Ásahrepps í starfshópinn.
21.
Jafnréttisáætlun Ásahrepps 2023-2026
Málsnúmer 2308023
Lögð fram drög að endurskoðaðri jafnréttisáæltun fyrir Ásahrepp, 2023 - 2026.
Umræða varð um framlögð drög. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagða jafnréttisáætlun og felur sveitarstjóra að birta hana á heimasíðu sveitarfélagsins.
22.
Umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi til sölu gistingar í Kálfholti
Málsnúmer 2308024
Ísleifur Jónasson víkur af fundi við afgreiðslu þessa dagskrárliðar.Lagt fram bréf Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 11. október 2022, þar sem óskað er eftir umsögn Ásahrepps vegna umsóknar um rekstrarleyfi til rekssturs gististaðar í flokki II-C, minna gistiheimili. Staðsetning er Kálfholt og fnr. 219-8029, heiti staðar er Inga Guesthouse og umsækjandi Ísleifur Jónasson, kt. 120575-4309. Hámarksfjöldi gesta er 6 gestir.Fyrir liggur að byggingarfulltrúi UTU gerir engar athugasemdir við að umrætt leyfi verði veitt.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir engar athugasemdir við að umrætt leyfi verði veitt.
23.
Umsókn um nýtt rekstrarleyfi; Þóristungur
Málsnúmer 1911001
Lagt fram bréf Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 12. júní 2019, þar sem óskað er eftir umsögn varðandi umsókn um rekstrarleyfi í skv. lögum um veitingastaði og gististaði flokki II í Þóristungum fnr. 219-8247 mhl 01 0101. Umsækjandi er Fish Partner efh kt. 590913-0570. Byggingarfulltrúi UTU hefur veitt jákvæða umsögn.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir engar athugasemdir við að umrætt leyfi verði veitt.
24.
Reiðleið milli Ásmundarstaða og Ásvegar, um Faxatröð
Málsnúmer 2308026
Miðvikudaginn 16. ágúst hittust við Faxatröð Ísleifur, Nanna og Valtýr fyrir hönd Ásahrepps og Guðjón Ingi Hauksson og Eydís Indriðadóttir sem landeigendur aðliggjandi lands við Faxatröð. Tilgangur fundarins var að ákvarða girðingarstæði og staðsetningu ræsis vegna leiðarinnar um Faxatröð. Urðu allir aðilar sáttir um legu girðinga og reiðvegar / vegslóða um Faxatröð og tengingar við gamla reiðveginn að Ásmundarstöðum. Settir voru niður hælar til að merkja hvar girðing, skurðir og ræsi eiga að vera. Niðurstaðan var sú að grafið verði í mörkum Faxatraðar sem snýr að landi Áss 3 (3-6 og 3-7)sem er í eigu Guðjóns Inga Haukssonar og Helga Tómassonar. Þannig verði skurðir á báða vegu vegslóða / reiðstígs um Faxatröð. Sett verði ræsi vestast í markaskurði Faxatraðar og Ásborgar, lands Eydísar Indriðadóttur og farið þar með mörkum þar til hægt er að komast í land Ásmundarstaða 2 og þaðan upp á gamla reiðveginn að Ásmundarsstðum.
Hreppsnefnd Ásahrepps felur nefnd um göngu-, hjólreiða- og reiðleiða ásamt sveitarstjóra að sjá um undirbúning, samningagerð og framkvæmd verkefnisins. Mikilvægt er að koma verkefninu af stað og það verði unnið í samræmi við áætlanir sveitarfélagsins um fjármögnun verkefnisins.
25.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Málsnúmer 2101011
Lagt fram rekstraryfirlit fyrir sveitarsjóð Ásahrepps frá 1. janúar - 31. júlí 2023.
Til kynningar.
26.
Þakkarbréf starfsmanna Leikskólans Laugarlandi
Málsnúmer 2308007
Lagt fram bréf starfsmanna Leikskólans Laugarlandi, dags. 29. júní 2023, þar sem sveitarstjórnum Rangárþings ytra og Ásahrepps og stjórn Odda bs er þakkað fyrir þá ákvörðun að loka leikskólanum milli jóla og nýárs.
Til kynningar.
27.
Bréf Bændasamtaka Íslands um lausagöngu búfjár
Málsnúmer 2308011
Lagt fram bréf Bændasamtaka Íslands, dags. 6. júlí 2023, sem sent var til Sambands íslenskra sveitarfélaga og allra sveitarfélaga. Efni bréfsins eru ýmis álitamál er varðar lausagögnu búfjár og þá umræðu sem skapast hefur að undanförnu í samfélaginu. Fjallskiladeild Holtamannaafréttar hefur fjallað um erindið á síðasta fundi sínum.
Til kynningar.
28.
Deiliskipulag fyrir Hvanngiljahöll
Málsnúmer 2308022
Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar, dags. 21. júlí 2023, er varðar afstöðu stofnunarinnar til tillögu um deiliskipulag Hvanngiljahallar. Einnig lögð fram skipulagsgögn og tölvuskeyti frá Eflu er varðar sama mál.
Til kynningar.
29.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn 20. september 2023 á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi. Fundur hefst klukkan 8:30.
Til kynningar.