Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

17. fundur
20. september 2023 kl. 08:30 - 11:30
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 264. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2309002
Mál nr. 49; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 23-189 - 2308001F.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU nr. 23-189.
2.
Fundargerð 265. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2309024
Mál nr. 1; Lækjartún II L215415; Lækjartún II tengivirki L230714 og Lónsheiði 1, 2, 3, 5 og 7; Fjölgun iðnaðarlóða; Deiliskipulagsbreyting - 2209081.
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar vegna tengivirkis í landi Lækjartúns II L215145 eftir auglýsingu og kynningar. Með deiliskipulagsbreytingunni er bætt við 5 lóðum austan við lóð tengivirkis. Á nýjum lóðum er heimilt að byggja upp hreinlegan orkufrekan iðnað. Með breytingunni stækkar skipulagssvæðið úr ríflega 2 ha í um 8 ha. Hreppsnefnd óskaði sérstaklega eftir ítarlegri kynningu á skipulagstillögunni eftir auglýsingu. Athugasemdir bárust eftir kynningu og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins.
SHreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu með fyrirvara um uppfærslu á gögnum í takt við framlagða samantekt athugasemda. Ákveðnum liðum athugasemda vísaði skipulagsnefnd til umræðu og viðbragða í hreppsnefnd Ásahrepps. Varðandi vatnsöflun fyrir þessar iðnaðarlóðir þá er nauðsynlegt að fá úr því skorið hjá Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps hvort möguleiki er á að tengja væntanlegar byggingar á þessum lóðum við samveituna. Gera verður ráð fyrir öðrum lausnum við vatnsöflun ef Vatnsveita Rangárþings ytra og Ásahrepps hefur ekki burðargetu til afhendingar. Nauðsynlegt er að bæta þessum fyrirvara inn í greinargerð deiliskipulagsins. Með fyrirvara um uppfærð gögn mælist hreppsnefnd Ásahrepps til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Mál nr. 2; Vatnsfellsstöð L193783 og Vatnsfellsveita Þórisvatns; Deiliskipulag - 2212065.
Lögð er fram tillaga deiliskipulags sem tekur til Vatnsfellsstöðvar og Vatnsfellsveitna í Ásahreppi eftir auglýsingu. Deiliskipulagið snýst um að staðfesta núverandi landnotkun. Uppsett afl Vatnsfellsstöðvar er allt að 90 MW og verður heimilt að stækka hana í 110 MW. Framkvæmdir felast í endurbótum á núverandi vélum. Um er að ræða framkvæmd innanhúss. Unnin hefur verið mannvirkjaskráning fyrir stöðina og eru settir skilmálar í tengslum við hana. Þá voru fornminjar skráðar. Skipulagssvæði Vatnsfellsstöðvar er um 60 ha að stærð og skipulagssvæði Vatnsfellsveitu um 5 ha. Umsagnir bárust á auglýsingatíma skipulagsins og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Hreppsnefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Hreppsnefnd Ásahrepps mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Mál nr. 3; Vallarás (Ásmúli lóð 3) L192728; Sameining lóða og leiðrétt lóðamörk; Deiliskipulagsbreyting - 2308005.
Lögð er fram tillaga óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Vallaráss í Ásahreppi. í breytingunum felst leiðrétting á mörkum lóða í takt við þinglýst skjöl auk þess sem gert er ráð fyrir sameiningu 2.5 ha landsvæðis við upprunaland svæðisins, L192728.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir viðkomandi breytingar á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi. Þar sem engir aðrir hagsmunaaðilar eru innan svæðisins en umsækjandi er ekki talin þörf á grenndarkynningu.

Mál nr. 4; Ásmúli Ássel L165327; Ás-Sel; Deiliskipulag - 2303058.
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til Ás-Sels L165327 í Ásahreppi eftir auglýsingu. Skipulagið tekur til afmörkunar lóðar auk byggingarreita fyrir íbúðarhús, bílskúr, skemmu/hesthús og tveggja gestahúsa. Innan svæðis er heimilt að byggja upp að hámarki 1.500 m2. Gert er ráð fyrir að núverandi aðkomuvegur víki fyrir nýjum aðkomuvegi. Umsagnir bárust á auglýsingatíma skipulagsins og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Hreppsnefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Hreppsnefnd Ásahrepps mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Mál nr. 5; Hrauneyjafossstöð og leitarmannahús Þóristungum; Skipulagssvæði sameinuð; Deiliskipulag - 2212067.
Lögð er fram deiliskipulagsáætlun sem tekur til Hrauneyjafossstöðvar og leitarmannahúss að Þóristungum eftir auglýsingu. Deiliskipulagið snýst um að staðfesta núverandi landnotkun. Uppsett afl Hrauneyjafossstöðvar er allt að 210 MW og verður heimilt að stækka hana í 240 MW. Ef farið verður í þær framkvæmdir munu þær einungis felast í endurbótum á núverandi vélum og verða innanhúss. Unnin hefur verið mannvirkjaskráning fyrir stöðina og eru settir skilmálar í tengslum við hana. Þá voru fornminjar skráðar. Auk þess er fjallað um Þóristungur L229271 inn breytingarinnar, mannvirki eru í Ásahreppi. Á staðnum er skáli og hesthús, gisting er fyrir 14 gesti. Mannvirki eru nýtt sem leitarmannahús og í langtímaleigu, einkum til veiðimanna. Heimilt er að byggja eitt hús til viðbótar og vera með gistingu fyrir allt að 40 gesti. Þóristungur er fjallasel skv. aðalskipulagi. Skipulagssvæðið er tvískipt og er um 173 ha að stærð.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkjir samhljóða framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Hreppsnefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Hreppsnefnd Ásahrepps mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.


Mál nr. 46; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 23-190 - 2308003F.
Lögð er fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 23-190.
3.
Nefnd um göngu-, reiðhjóla- og reiðleiðir í Ásahreppi - 5
Málsnúmer 2309001F
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
4.
Fundargerð 5. fundar stjórnar Húsakynna bs.
Málsnúmer 2309013
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fyrir sitt leyti að samið verði við Fish Partners um framkvæmd nauðsynlegra lagfæringa á húsinu í Þóristungum til að verja það skemmdum.
Jafnframt fellst hreppsnefnd Ásahrepps á þá hugmynd að semja um lengri leigutíma til að mæta kostnaði við lagfæringar hússins, og felur stjórn Húsakynna bs. að semja um þá þætti fyrir hönd sveitarfélaganna.
5.
Fundargerð 3. fundar almannavarnarnefndar
Málsnúmer 2309019
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fyrir sitt leyti að framlag til almannavarna verði kr. 350 á hvern íbúa fyrir árið 2024.
Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.
6.
Fundargerð 11. fundar seyrustjórnar
Málsnúmer 2309026
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að fela seyrustjórn að finna út heppilegasta rekstrarform fyrir þessa starfsemi, með tilliti til þeirra gagna sem lögð voru fram með fundargerðinni.
7.
Fundargerð 14. fundar stjórnar Odda bs.
Málsnúmer 2309011
Til kynningar.
8.
Fundargerrð 230. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Málsnúmer 2309015
Til kynningar.
9.
Fundargerð 319. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Málsnúmer 2309014
Til kynningar.
10.
Fundargerð 102. fundar stjórnar UTU
Málsnúmer 2309025
Til kynningar.
11.
Fundargerð 59. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Málsnúmer 2309003
Til kynningar.
12.
Fundargerð 60. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Málsnúmer 2309004
Til kynningar.
13.
Fundargerð 61. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Málsnúmer 2309005
Til kynningar.
14.
Fundargerð 932. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2309018
Til kynningar.
15.
Breyting á legu lóðarmarka, Gásagustur - 2203063
Málsnúmer 2309012
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu með fyrrgreindum lagfæringum. Að mati hreppsnefndar er um óverulega breytingu á skipulagstillögunni eftir auglýsingu. Jafnframt telur hreppsnefnd að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna og í framlagðri samantekt viðbragða við umsögnum og athugasemdum. Mælst er til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
16.
Framtíð félagsheimilisins Ásgarðs
Málsnúmer 2110025
Hreppsnefnd Ásahrepps hvetur Ungmennafélag Ásahrepps að halda aðalfund sem fyrst eftir að framlögðum lóðarsamningi hefur verið þinglýst, svo félagið geti tekið ákvörðun um framtíð Ásgarðs.
17.
Tölvuskeyti Rangárþings ytra um sameiginlegan viðburð, jólahlaðborð
Málsnúmer 2309006
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að taka þátt í þessu verkefni.
18.
Dagur sauðkindarinnar, styrkbeiðni
Málsnúmer 2309028
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að styrkja verkefnið að upphæð kr. 50.000.
19.
Ársþing SASS 2023, haldið í Vík dagana 26.-27. október 2023
Málsnúmer 2309007
Sveitarstjóri hefur sent inn kjörbréf fyrir fulltrúa Ásahrepps, aðal- og varamenn, skv. kjöri á fyrsta fundi hreppsnefndar Ásahrepps kjörtímabilið 2022-2026.
Sveitarstjóra falið að panta gistingu fyrir fulltrúa Ásahrepps á ársþinginu á Hóteli Vík.
20.
Samstarfssamningur milli KFR og Ásahrepps
Málsnúmer 2309027
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagðan samning milli KFR og Ásahrepps og felur sveitarstjóra að undirrita hann fyrir hönd Ásahrepps. Jafnframt samþykkir hreppsnefnd Ásahrepps viðauka við fjárhagsáætlun Ásahrepps 2023 að upphæð 500.000 sem færist á bókhaldslykil 0689-4120 "Íþróttafélög og samtök". Þessi auknu útgjöld gangi á handbært fé.
Hreppsnefnd Ásahrepps leggur áherslu á að sköpuð séu jöfn tækifæri fyrir íbúa sveitarfélaganna þriggja.
21.
Drög að samstarfssamningi vegna Sportabler, Hvata og Shop kerfið
Málsnúmer 2309008
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að taka ekki upp samstarf á þessum forsendum.
22.
Áherslulisti í áfangastaðaáætlun ásamt upplýsingum til landeigenda
Málsnúmer 2309009
Hreppsnefnd Ásahrepps vísar þessu erindi til atvinnu- og ferðamálanefndar Ásahrepps.
23.
Styrkbeiðni Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna
Málsnúmer 2309017
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita stsyrk að upphæð kr. 15.000.
24.
Sameiginlegur heilsu-, íþrótta- og tómstundafulltrúi í Rangárþingi
Málsnúmer 2309020
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að taka þátt í þessu samtali og samþykkir einnig að Nanna Jónsdóttir verði fulltrúi Ásahrepps í þessu samtali.
25.
Bréf Mennta- og barnamálaráðuneytis, úthlutun og ráðstöfun fjármagns til grunnskóla
Málsnúmer 2309022
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að fulltrúar Ásahrepps á fundi sem haldinn verður 4. október 2023 á Hellu eru Ísleifur Jónasson og Kristín Hreinsdóttir.
26.
Endurskipun fulltrúa Ásahrepps í seyrustjórn
Málsnúmer 2309023
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita Nönnu lausn frá störfum í seyrustjórn og samþykkir samhljóða að Valtýr Valtýsson taki sæti hennar sem aðalmaður fyrir hönd Ásahrepps í seyrustjórninni, þ.e. stjórn sameiginlegs seyruverkefnis sveitarfélaganna Bláskógabyggð, Hrunamannahrepps, Skeiða- og Gnúpverjahrepps, Grímsnes og Grafningshrepps, Flóahrepps og Ásahrepps.
27.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Málsnúmer 2101011
Til kynningar.
28.
Hvatning til sveitarstjórna um mótun málstefnu
Málsnúmer 2309010
Sveitarstjóra falið að ræða við önnur sveitarfélög sem Ásahreppur hefur samstarf við í gegnum byggðasamlög.
29.
Aðalfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2023
Málsnúmer 2309016
Ísleifur Jónasson verður fulltrúi Ásahrepps á fundinum.
Til kynningar.
30.
Ályktun aðalfundar Skógræktarfélags Íslands um skógarreiti og græn svæði innan byggðar
Málsnúmer 2309021
Til kynningar.
31.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Til kynningar.