Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

18. fundur
18. október 2023 kl. 08:30 - 11:35
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Oddviti lagði til að bætt verði við einum dagskrárlið, nr. 4, og aðrir dagskrárliðir færist til sem því nemur. Tillagan samþykkt samhljóða.
Dagskrá
1.
Fundargerð 266. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2309037
Lögð fram fundargerð 266. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslsufundar byggingarfulltrúa nr. 191.
Mál nr. 1; Kálfholt L1.b L208177; Skipting lóðar í 6 búgarða; Deiliskipulag - 2309073
Lögð er fram umsókn frá Skarphéðni Hilbert Ingasyni er varðar nýtt deiliskipulag fyrir jörðina Kálfholt L1.b L208177 í Ásahreppi. Gert er ráð fyrir að skipta upprunajörðinni upp í sex búgarða, 10 - 13 ha að stærð. Á hverjum búgarði verði heimild til að byggja íbúðar- og útihús.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagt deiliskipulag til kynningar og umsagnar í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Mælist hreppsnefndin til að staðföng skilgreindra lóða innan skipulagsins verði tekin til endurskoðunar, að leiðrétt verði að þetta landsvæði heyrir undir Brunavarnir Rangárvallasýslu, en ekki Brunavarna Árnessýslu. Einnig að skipuleggjendur kanni möguleika fyrir tengingu við Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps vegna kaldavatnsöflunar fyrir fyrirhugaðar lóðir og nýtingu þeirra.

Mál nr. 2; Lækjartún L165306; Lindarhóll; Stofnun lóðar - 2309080
Lögð er fram umsókn um stofnun nýrrar landeignar úr landi Lækjartúns L165306. Um er að ræða 12.056 fm lóð sem óskað er eftir að fái staðfangið Lindarhóll. Aðkoma að lóðinni er um Kálfholtsveg (288).
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar skv. fyrirliggjandi umsókn með fyrirvara um að leitað verði umsagnar Vegagerðarinnar vegna tengingar við Kálfholtsveg. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir erindið. Hreppsefndin bendir á að skilgreining byggingarheimilda innan lóðarinnar er ýmist háð gerð deiliskipulags eða breytinga á aðliggjandi deiliskipulagsáætlun.

Mál nr. 20; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 23-191 - 2309003F
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrua nr. 23-191.
2.
Fundargerð 267. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2310013
Lögð fram fundargerð 267. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð 192. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa.
Mál nr. 1; Sigöldustöð; Skipulagssvæði sameinuð; Deiliskipulag - 2212066
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til Sigöldustöðvar í Ásahreppi og Rangárþingi ytra eftir auglýsingu. Deiliskipulagið snýst um að staðfesta núverandi landnotkun og heimila stækkun stöðvarinnar. Í dag er virkjað rennsli 240 m3 /s og afl Sigöldustöðvar er 150 MW. Framkvæmdir við stöðina hófust árið 1973 og var hún gangsett í byrjun árs 1978. Landsvirkjun áformar nú að stækka stöðina með því að bæta við fjórðu vélinni og auka með því afl stöðvarinnar í allt að 215 MW. Auk þess verður stöðvarhús stækkað og frárennslisskurður breikkaður næst stöðvarhúsi. Unnin hefur verið mannvirkjaskráning fyrir stöðina og eru settir skilmálar í tengslum við hana. Þá voru fornminjar skráðar. Skipulagssvæði Sigöldustöðvar er um 108 ha að stærð. Gerðar voru breytingar á gögnum skipulagsins eftir auglýsingu, samantekt breytinga kemur fram í lið 6.5 innan greinargerðar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Nefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Hreppsnefnd Ásahrepps mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Mál nr. 24; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 23-192 - 2309005F
Lögð fram fundargerð 192. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa.
3.
Fundargerð 15. fundar stjórnar Odda bs.
Málsnúmer 2310009
Lögð fram fundargerð 15. fundar stjórnar Odda bs.2. dagskrárliður fundargerðar þarfnast staðfestingar hreppsnefndar Ásahrepps.2. Fjárhagsáætlun Odda bs. 2023 Viðaukar - 2309065Viðauki 1 við fjárhagsáætlun odda bs. 2023.Lögð fram beiðni frá Grunnskólanum á Hellu vegna aukins stöðugildis stuðningsfulltrúa vegna þrifa í nýbyggingu og gæslu utanhúss og 60% starf vegna aukins stuðnings. Klara Viðarsdóttir fjármálastjóri fór síðan yfir tillögu að viðauka 1 fyrir Odda bs. Lagður fram viðauki 1 við rekstraráætlun Odda bs 2023. Greinargerð fylgir viðaukanum. Viðaukinn gerir ráð fyrir auknum rekstarkostnaði að fjárhæð kr. 63.160.000 sem stafar að langmestu leyti af hækkun á launakostnaði vegna áhrifa kjarasamninga. Nemur sú fjárhæð kr. 46.000.000 en gert var ráð fyrir 5% launhækkun en meðaltalshækkun varð 8,8%. Óskað er eftir að viðaukanum verði mætt með hækkun á framlögum sveitarfélaganna frá Ásahreppi kr. 8.724.000 kr. og Rangárþingi ytra kr. 54.436.000. Stjórn Odda samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til sveitarfélaganna til endanlegrar afgreiðslu. Ljóst er að útgjöld vegna reksturs Laugalandsskóla er talsvert umfram það sem fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Stjórn leggur áherslu á að forstöðumenn fylgi samþykktum fjárhagsáætlunum eins og kostur er, öll frávik frá áætlunum þurfa að koma til umfjöllunar stjórnar áður en til þeirra er stofnað. Sveitarstjóra og formanni stjórnar Odda falið að ræða við skólastjórnendur um leiðir til úrbóta.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fyrir sitt leyti framlagðan viðauka 1 við fjárhagsáætlun Odda bs. Þessum auknu fjárútlátum til Odda bs. verður mætt með viðauka við fjárhagsáætlun Ásahrepps fyrir rekstrarárið 2023. Útgjöldum verður mætt með að ganga á handbært fé sveitarsjóðs Ásahrepps.

Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.
4.
Fundargerð aðalfundar Foreldrafélags Laugalandsskóla, 4. október 2023
Málsnúmer 2310018
Lögð fram fundargerð aðalfundar Foreldrafélags Laugalandsskóla, dags. 4. október 2023 ásamt bókun fundarins sem vísað var til sveitarstjórna aðildarsveitarfélaga Laugalandsskóla.
Hreppsnefnd tekur undir áhyggjur Foreldrafélagsins og mun leggja áherslu á að þessum verkþáttum verði sinnt á komandi misserum. Þegar er byrjað að vinna þarfagreiningu og arkitektar hafa þegar komið í vettvangsheimsókn í tengslum við þá vinnu. Hreppsnefnd Ásahrepps leggur áherslu á að þessari vinnu verði flýtt eins og kostur er.
5.
Fundargerð 16. fundar stjórnar Odda bs, haustfundur
Málsnúmer 2310012
Lögð fram fundargerð 16. fundar stjórnar Odda bs. sem jafnframt var haustfundur með skólastjórnendum og áheyrnarfulltrúum.
Til kynningar.
6.
Fundargerrð 6. fundar stjórnar Lundar
Málsnúmer 2310002
Lögð fram fundargerð 5. fundar stjórnar Lundar.
Til kynningar.
7.
Fundargerð 231. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Málsnúmer 2309035
Lögð fram fundargerð 231. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Til kynningar.
8.
Fundargerð 103. fundar stjórnar UTU
Málsnúmer 2310014
Lögð fram fundargerð 103. fundar stjórnar UTU.
Til kynningar.
9.
Fundargerð aðalfundar UTU 2023, 11. október 2023
Málsnúmer 2310015
Lögð fram fundargerð aðalfundar UTU, dags. 11. október 2023, ásamt ársskýrslu 2022.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 110. fundar svæðisráðs vestursvæðis VJÞ
Málsnúmer 2309029
Lögð fram fundargerð 110. fundar svæðisráðs vestursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs.
Til kynningar.
11.
Fundargerð 62. fundar stjórnar Bergrisans
Málsnúmer 2310007
Lögð fram fundargerð 62. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
12.
Fundargerð 63. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Málsnúmer 2310008
Lögð fram fundargerð 63. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
13.
Fundargerð 320. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Málsnúmer 2310004
Lögð fram fundargerð 320. fundar stjórnar Sorpsstöðvar Suðurlands.
Til kynningar.
14.
Fundargerð 598. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2309030
Lögð fram fundartgerð 598. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
15.
Fudnargerð 599. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2309031
Lögð fram fundargerð 599. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
16.
Fundargerð 600. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2309032
Lögð fram fundargerð 600. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
17.
Fundargerð aukaaðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga, 19. september 2023
Málsnúmer 2309034
Lögð fram fundargerð aukaaðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga sem haldinn var 19. september 2023.
Til kynningar.
18.
Fundargerð 933. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2309033
Lögð fram fundargerð 933. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
19.
Fundargerð 934. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2310006
Lögð fram fundargerð 934. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
20.
Fjárhagsáætlun Ásahrepps 2024-2027
Málsnúmer 2310017
Umræða um forsendur fjárhagsáætlunar 2024 - 2027.
Farið var yfir forsendur skatttekna og gjalda fyrir fjrárhagsáætlun Ásahrepps 2024-2027 sem sveitarstjóri leggur til grundvallar við framlagningu fyrstu draga að fjárhagsáætlun sveitarfélagsins, sem verður á næsta reglubundna fundi þann 15. nóvember n.k.
21.
Bréf umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis um innviði fyrir orkuskipti
Málsnúmer 2309036
Lagt fram bréf umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis, dags. 26. september 2023, þar ráðuneytið hvetur sveitarfélög að leita leiðbeininga um uppbyggingu innviða vegna orkuskipta.
Hreppsnefnd Ásahrepps bendir á að sveitarféalagið á ekkert land eða lóðir til úthlutunar til verkefna sem umrætt erindi ráðuneytisins fjallar um. Jafnframt hvetur hreppsnefnd landeigendur að líta til allra möguleika er varðar uppbyggingu innviða vegna orkuskipta og er reiðubúin til að taka umræðu um slíka hluti.
22.
Þjónustustefna í byggðum og byggðarlögum sveitarfélaga
Málsnúmer 2310001
Lagt fram tölvuskeyti innviðaráðuneytis, dags. 29. september 2023, þar sem sveitarfélög eru hvött til að móta þjónustustefnu. Einnig lagðar fram leiðbeiningar um mótun þjónustustefnu sem unnin hvefur verið af Byggðastofnun.
Hreppsnefnd Ásahrepps felur sveitarstjóra að vinna að drögum um stefnu Ásahrepps um þjónsutu í sínu byggðarlagi. Þegar drög liggja fyrir verður umræða tekin hjá hreppsnefnd Ásahrepps.
23.
Beiðni um samþykki fyrir stofnun fjallaskálalóða, Illugaver, Sylgjufell, Lindarkot og Þúfuvatnsskáli
Málsnúmer 2310003
Lagðar fram umsóknir um stofnun lóða fyrir fjallaskálana Illugaver, Sylgjufell, Lindarkot og Þúfuvatnsskála.Einnig lögð fram drög að samkomulagi um afnotarétt í þjóðlendu fyrir umrædda fjallaskála.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fyrir sitt leyti framlögð samkomulög um afnotarétt í þjóðlendu fyrir þessa fjóra fjallaskála. Sveitarstjóra falið að fullmóta þessi samkomulög í samstarfi við forsætisráðuneytið. Þegar umræddar lóðir hafa verið stofnaðar og búið er að þinglýsa framlögðum samkomulögum um afnotarétt, verður haft samband við eigendur umræddra skála og í kjölfar þess verða lóðir auglýstar lausar til umsóknar með almennum hætti. Verkferlar við þá auglýsingu verða lagðir fram á fundi hreppsnefndar þegar þeir eru fullmótaðir.
24.
Styrkbeiðni vegna aðventuhátíðar að Laugalandi 2023
Málsnúmer 2310010
Lagt fram bréf Kvenfélagins Einingar, dags. 10. október 2023, þar sem óskað er eftir styrk vegna hátiðarinnar með sama hætti og undanfarin ár. Aðventuhátíðin verður haldin sunnudaginn 3. desember 2023 að Laugalandi.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita styrk að upphæð kr. 30.000.
25.
Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga
Málsnúmer 2310011
Lagt fram tölvuskeyti frá nefnda- g greiningarsviði Alþingis, dags. 29. september 2023, þar sem sveitarfélögum er gefinn kostur á að skila inn umsögn um tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024-2038 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2024-2028 (þingmál 182).
Hreppsnefnd Ásahrepps bendir á að umsagnarfrestur er skammur fyrir þingmál sem þessi og umsagnarfrestsur er þegar liðinn.
26.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Málsnúmer 2101011
Lagt fram rekstraryfirlit fyrir sveitarsjóð Ásahrepps, janúar - september 2023.
Til kynningar.
27.
Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa 2023
Málsnúmer 2310005
Lagt fram bréf innviðaráðuneytis, dags. 29. september 2023, um minningardag um fórnarlömb umferðarslysa 2023.Um er að ræða alþjóðlegan minningardag sem verður haldinn 19. nóvember 2023.
Til kynningar.
28.
Fyrirhugaðar breytingar á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits
Málsnúmer 2310016
Lagt fram tölvuskeyti Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, dags. 12. október 2023, þar sem kynnt er innihald óbirtrar skýrslu um breytingar á fyrirkomulagi heilb igðiseftirlits. Einnig lagðar fram kynningarglærur um málið.
Til kynningar.
29.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn 15. nóvember 2023 á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi. Fundur hefst kl. 8:30.
Til kynningar.