Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

2. fundur
29. júní 2022 kl. 08:30 - 11:30
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson
Dagskrá
1.
Fundargerð 240. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2206005
Lögð fram fundargerð 240. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð 164. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa.
Mál nr. 1; Áskot L165263; Deiliskipulag - 2204011
Lögð er fram tillaga er varðar nýtt deiliskipulag innan jarðar Áskots í Ásahreppi eftir kynningu. Í deiliskipulaginu felst skilgreining byggingarreita og byggingarheimilda sem taka m.a. til vélaskemmu, reiðhallar og hesthúss, viðbyggingar við núverandi skemmu og reitar fyrir gistihús og tækjaskúr. Engar athugasemdir bárust við kynningu tillögunnar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir deiliskipulagið samhljóða, með fyrirvara um lagfærð gögn,að og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.

Mál nr. 32; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 22-164 - 2205002F
Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 22-264 lögð fram til kynningar.
2.
Fundargerð 241. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2206009
Lögð fram fundargerð 241. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð 22-165. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU.
Mál nr. 30; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 22-165 - 2205005F.
Lögð fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 22-165.
3.
Fundargerð 242. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2206024
Lögð fram fundargerð 242. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 22-166.
Mál nr. 1; Umsagnarbeiðni vegna matsáætlunar; Stækkun Sigöldustöðvar - 2206027.
Þetta mál verður tekið sérstaklega fyrir á þessum fundi og bókun færð inn undir dagskrárlið nr. 16.

Mál nr. 2; Áshamrar L165337; Áshamrar 2, skilgreining lóðar (B2); Deiliskipulagsbreyting - 2206041.
Lögð er fram umsókn frá Óðni Erni Jónssyni er varðar breytingu á deiliskipulagi Áshamra. Í breytingunni felst heimild fyrir stofnun lóðar á grunni skilgreinds byggingarreits innan deiliskipulagsins.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir viðkomandi breytingar á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi. Þar sem engir aðrir hagsmunaaðilar eru innan svæðisins en umsækjandi er ekki talin þörf á grenndarkynningu.

Mál nr. 3; Skálar á Holtamannaafrétt; Skipulagslýsing; Deiliskipulag - 2206044.
Lögð er fram skipulagslýsing sem tekur til deiliskipulagningar 4 skálasvæða á Holtamannaafrétti. Með gerð deiliskipulags verður settur rammi um starfsemi í hverjum skála og framkvæmdir verða í samræmi við samþykkt deiliskipulag. Gerð skipulagslýsingar er ætlað að tryggja aðkomu almennings og hagsmunaaðila að skipulagsferlinu á fyrstu stigum þess, auka gagnsæi, tryggja betra upplýsingaflæði, skila betri og markvissari skipulagsvinnu og gefa sveitarstjórn og öðrum sem koma að ferlinu betri yfirsýn allt frá fyrstu skrefum.
Hreppsnefnd Ásahrepps að samþykkir skipulagslýsingu til kynningar og umsagna í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Mál nr. 31; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 22-166 - 2206003F.
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 22-166.
4.
Fundargerð 1. fundar Odda bs.
Málsnúmer 2206017
Lögð fram fundargerð 1. fundar stjórnar Odda bs kjörtímabilið 2022-2026.
2. dagskrárliður fundargerðar krefst staðfestingar hreppsnefndar Ásahrepps. Stjórn Odda bs. leggur til að aukinn verði stuðningur við nemendur á yngsta stigi Grunnskólans á Hellu, að bætt verði við stöðugildi sérkennara/þroskaþjálfara skálaárið 2022/2023 til að mæta þörf á auknum stuðningi við nemendur.
Stjórn Odda bs. gerir tillögu til sveitarstjórna að gerður verði viðauki 2 við fjárhagsáætlun Odda bs 2022 að launakostnaður hækki um kr. 4,2 mkr árið 2022. Viðaukanum verði mætt með auknum framlögum sveitarfélaganna sem skiptiast þannig að framlög Rangárþings ytra hækka um 3.510 þús. og framlög Ásahrepps um 690 þús.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða tillöfu stjórnar Odda bs. og auknum útgjöldum Ásahrepps verði mætt með viðauka við fjárhagsáætlun Ásahrepps 2022. Auknum kostnaði verði mætt með lækkun á handbæru fé. Sveitarstjóra falið að útfæra viðauka í samráði við KPMG.
Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.
5.
Fundargerð 93. fundar stjórnar UTU
Málsnúmer 2206006
Lögð fram fundargerð 93. fundar stjórnar UTU.
Til kynningar.
6.
Fundargerð 94. fundar stjórnar UTU
Málsnúmer 2206010
Lögð fram fundargerð 94. fundar stjórnar UTU.
Til kynningar.
7.
Fundargerð 40. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Málsnúmer 2206007
Lögð fram fundargerð 40. fundar stjórnar Bergrisans bs ásamt fundargerðum þjónusturáðs nr. 153 og 154. Einnig lagður fram útreikningur á jafnaðartaxta NPA samninga frá 1. janúar 2022 til 31. desember 2022.
Til kynningar.
8.
Fundargerð 41. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Málsnúmer 2206008
Lögð fram fundargerð 41. fundar stjórnar Bergrisans bs. ásamt fundargerð matsnefndar um nýjan íbúðarkjarna, dags. 11. maí 2022.
Til kynningar.
9.
Fundargerð 582. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2206011
Lögð fram fundargerð 582. fundar stjórnar SASS ásamt skýrslu um almenningssamgöngur á Suðurlandi.
Til kynningar.
10.
Starf sveitarstjóra Ásahrepps kjörtímabilið 2022-2026
Málsnúmer 2205037
Valtýr Valtýsson vék af fundi undir þessum dagskrárlið.
Lagður fram ráðningarsamningur sem framlengir fyrri ráðningarsamning við Valtý um 4 ár. Sömu grunnlaun eru sbr. fyrri ráðningarsamning en starfshlutfall hækkað úr 50% í 60%. Ástæða þess að starfshlutfall er hækkað, er að Valtýr mun sjá um hluta þess starfs sem oddviti síðasta kjörtímabil sinnti, s.s. bakvakt síma, mæting á stjórnarfundi byggðasamlaga m.m. Valtýr fær ekki greidda fundarþóknun vegna fundarsetu hans í nefndum Ásahrepps, stjórnarfundum byggðasamlaga eða annarra félaga eða samtaka sem hann hefur seturétt á, enda telst sú vinna hluti þessa samnings. Önnur ákvæði til samræmis við ráðningarsamning kjörtímabilið 2018-2022.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samninginn og felur oddvita að ganga frá honum.
11.
Starf oddvita Ásahrepps kjörtímabilið 2022 - 2026.
Málsnúmer 2206020
Ísleifur Jónasson vék af fundi undir þessum dagskrárlið.
Rætt um að breyta þóknun fyrir nefndarstörf og annað starf oddvita í samræmi við samþykkt sem í gildi var til 12. september 2018 en þá var greitt fyrir önnur störf oddvita 25% af þingfararkaupi.
Gerð tillaga um að oddviti hreppsnefndar Ásahrepps fái greitt sem svarar til 25% af þingfararkaupi frá 1. júní 2022 til 24. maí 2026 vegna starfa hans sem oddviti hreppsnefndar Ásahrepps. Greiðsla fyrir þessi störf, sbr. þingfararkaup í dag, er kr. 321.353. Að auki fær oddviti greitt fyrir nefndarstetu skv. gildandi samþykkt um kjör fulltrúa í Ásahreppi og eru slíkar þóknanir ekki hluti af þessari þóknun. Hreppsnefnd samþykkir samhljóða að vinna að breytingu á samþykkt um kjör fulltrúa í Ásahreppi og greiðslur fyrir nefndarstörf, þar sem þóknunum verði breytt í hlutfall af þingfararkaupi. Endurskoðuð samþykkt verði lögð fyrir hreppsnefnd á ágústfundi.
12.
Kosning í skipulagsnefnd UTU og stjórn UTU bs.
Málsnúmer 2206019
Endurkjósa þarf í skipulagsnefnd UTU og stjórn Umhverfis- og tæknisvið uppsveita bs, þar sem nýar samþykktir byggðasamlagsins gerir ráð fyrir að sami aðili sé aðalmaður í skipulagsnefnd og stjórn UTU bs. svo og varamaður.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að aðalmaður Ásahrepps í skipulagsnefnd og stjórn UTU bs verði Nanna Jónsdóttir og varamaður Ísleifur Jónasson.
13.
Söluumboð vegna Giljatanga 7
Málsnúmer 2110032
Komið er að því að undirrita afsal vegna sölu eignarinnar Giljatanga 7 að Laugalandi.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að fela oddvita hreppsnefndar, Ísleifi Jónassyni, að undirrita afsal fyrir eigninni fyrir hönd Ásahrepps.
14.
Beiðni um leikskólavist utan lögheimilissveitarfélags
Málsnúmer 2206023
Lagt fram tölvuskeyti Karenar Kristjánsdóttur og Þórðar Atla Guðnýjarsonar, dags. 23. júní 2022.
Óskað er eftir afstöðu hreppsnefndar Ásahrepps varðandi leikskólavist fyrir barn á Selfossi þar sem það er núna. Barnið þarf á sérstöku úrræði að halda sem er í góðu ferli á Selfossi núna og næsta skólaár. Sótt verði síðan um skólavist hjá Leikskólanum Laugalandi haustið 2023.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti að skólakostnaður verði greiddur af sveitarsjóði Ásahrepps.
15.
Dreifing á kortaseríu Suðurlands
Málsnúmer 2206002
Lagt fram tölvuskeyti Markaðsstofu Suðurlands, dags. 30. maí 2022, þar sem gerð er grein fyrir áætlun um bæklingadreifingu árið 2022 ásamt kostnaðaryfirliti. Kostnaður Ásahrepps verður kr. 85.733 árið 2022.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að taka þátt í þessu verkefni líkt og önnur sveitarfélög á Suðurlandi.
16.
Stækkun Sigöldustöðvar um allt að 65 MW, matsáætlun
Málsnúmer 2205025
Lagt fram tölvuskeyti Skipulagsstofnunar, dags. 7. júní 2022, þar sem óskað er eftir umsögn Ásahrepps fyrir 7. júlí 2022. Málið hefur verið sent til embættis skipulagsfulltrúa UTU og hefur skipulagsnefnd UTU tekið málið fyrir á fundi sínum.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemd við framlagða matsáætlun sem tekur til stækkunar á Sigöldustöð. Nefndin telur að innan matsáætlunar sé á fullnægjandi hátt gert grein fyrir valkostum, gagnaöflun, úrvinnslu gagna, umhverfismati og framsetningu umhverfismatsskýrslu. Framkvæmdir innan svæðisins eru háðar útgáfu framkvæmdaleyfis af hálfu sveitarfélagsins og eftir atvikum byggingarleyfa.
17.
Boð um uppfærslu Street View í Ásahreppi
Málsnúmer 2206012
Lagt fram tölvuskeyti Eysteins Guðna Guðnasonar, Sýndarferð, dags. 13. júní 2022. Í erindinu er Ásahreppi boðið að uppfæra Street View myndir á Google. Ef áhugi er fyrir hendi þá mun hann gera verðtilboð.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti samhljóða að hafna erindinu.
18.
Ósk um að nýta Ásgarð tímabundið sem vinnustofu
Málsnúmer 2206015
Lagt fram tölvuskeyti frá Sigríði Þóru Árdal og Grétu Guðmundsdóttur, dags. 17. júní 2022, þar sem óskað er eftir að fá að nýta félagsheimilið Ásgarð tímabundið sem vinnustofu hönnuða.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemdir við að húsið verði nýtt tímabundið sem vinnustofa hönnuða, en húsið er í meirihlutaeigu Ungmennafélags Ásahrepps.
19.
Styrkbeiðni vegna auglýsingar; Kraftur
Málsnúmer 2206021
Lagt fram tölvuskeyti frá Krafti, stuðningsfélagi fyrir ungt fólk sem greins hefur með krabbamein, dags. 1. júní 2022. Óskað er eftir stuðningi vegna kostnaðar við birtingu auglýsingar í Fréttablaðinu.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita styrk að upphæð kr. 10.000.
20.
Styrkbeiðni SÍBS vegna útgáfu SÍBS blaðsins
Málsnúmer 2206022
Lagt fram tölvuskeyti SÍBS, dags. 9. júní 2022. Boðið er að birta stuðningskveðju í SÍBS blaðinu.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljoða að hafna erindinu.
21.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Málsnúmer 2101011
Lagt fram málaflokkayfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps, 1. janúar - 31. maí 2022.
Til kynningar.
22.
Staðfesting á samþykktum fyrir Húsakynni bs og Vatnsveitu bs.
Málsnúmer 2206013
Lögð fram bréf innviðaráðuneytis, dagsett 15.júní 2022, þar sem kynnt er staðfesting ráðuneytis á endurskoðuðum samþykktum fyrir byggðasamlögin Húsakynni bs. og Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps bs.
Til kynningar.
23.
Ritun bókar um landnámsöldina í Rangárvallasýslu
Málsnúmer 2206018
Gunnar Guðmundsson frá Heiðarbrún kom á skrifstofu Ásahrepps og kynnti bók sem er í ritun hjá honum sem er áætlað að komi út í ágúst á þessu ári. Efni bókarinnar er landnámsöldin í Rangárvallasýslu. Lögð fram til kynningar drög að efnisyfirliti og sýnishorn af einum kafla bókarinnar. Gunnar vildi kanna hug sveitarfélaganna í Rangárvallasýslu að kosta og gefa landakort í lit sem sýndi staðsetningu landnámsbýla og landamerki.
Hreppsnefnd Ásahrepps telur að verkefni sem þetta ætti best heima hjá Héraðsnefnd Rangárvallasýslu, en þar er sameiginlegur vettvangur sveitarfélaganna sem hefur sinnt menningu og sögu héraðsins.
24.
Áform um breytingu á kosningarlögum
Málsnúmer 2206001
Lagt fram tölvuskeyti landskjörstjórnar, dags. 30. maí 2022 ásamt yfirliti um áform um breytingu á kosningarlögum n.r 112/2021.
Til kynningar
25.
Ályktun stjórnar FA vegna fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði
Málsnúmer 2206003
Lögð fram ályktun stjórna Félags atvinnurekenda, dags. 31. maí 2022, þar sem félagið skorar á sveitarfélög að lækka álagningarprósentu fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði.
Til kynningar.
26.
Ytra mat á undirbúningi og innleiðingu Sigurhæðaverkefnisins
Málsnúmer 2206004
Lögð fram skýrsla um ytra mat á undirbúningi og innleiðingu Sigurhæðaverkefnisins, "Frá hugmynd til framkvæmdar", sem var birt 25. maí 2022.
Til kynningar.
27.
Ársreikningur Samtaka orkusveitarfélaga 2021
Málsnúmer 2206014
Lagður fram ársreikningur Samtaka orkusveitarfélaga fyrir starfsárið 2021.
Til kynningar.
28.
Stefnumótun stjórnvalda, innviðaráðuneytis, í þremur málaflokkum
Málsnúmer 2206016
Lagt fram tölvuskeyti innviðaráðneytis, dags. 20. júní 2022, þar sem kynn er vinna við endurskoðun þriggja málaflokka. Þ.e. stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga 2019-2033, Landsskipulagsstefna 2015-2026 og ný húsnæðisstefna.
Til kynningar.
29.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Hreppsnefnd Ásahrepps verður í sumarleyfi í júlí, þannig að næsti fundur hreppsnefndar verður haldinn 17. ágúst 2022 á skrifstofu sveitarfélagsins að Laugalandi. Fundur hefst klukkan 8:30.
Sumarleyfi hreppsnefndar Ásahrepps er í júlí og jafnframt verður sumarleyfi skrifstofu sveitarfélagsins frá og með 4. júlí til og með 5. ágúst n.k.
Samþykkt samhljóða.