Hreppsnefnd Ásahrepps
2. fundur
29. júní 2026
kl.
08:30
-
10:30
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson
hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Gréta Vilborg Guðmundsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Emil Þórðarson
hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Guðmundur Einarsson
Fundargerð ritaði:
Guðmundur Einarsson
skrifstofustjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 1. fundar Viðburðanefndar Ásahrepps
Lögð fram fundargerð 1. fundar Viðburðarnefndar Ásahrepps.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir fundargerðina.
2.
Fjallskiladeild Holtamannaafréttar - 1
Lögð fram fundargerð 1. fundar fjallskiladeildar Holtmannaafréttar, kjörtímablið 2026-2030.
3.
Fjallskiladeild Holtamannaafréttar - 2
Lögð fram fundargerð 2. fundar fjallskiladeildar Holtamannaafréttar
4.
Fundargerð 327. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 327. fundar skipulagsnefndar UTU:
Mál 1. Sigöldustöð; Breyttir þættir og útfærsla mannvirkja; Deiliskipulagsbreyting - 2606011
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Sigöldustöðvar í Ásahreppi. Gerð er breyting á ýmsum þáttum vegna nákvæmari útfærslu mannvirkja en þær helstu eru að bætt er við texta um frágang svæðis og bætt er við byggingarreitum fyrir skemmu, vatnstanka og þjónustuhús við vatnsból. Nokkrum aðkomuvegum er hnikað til á uppdrætti, s.s. að stöðvarhúsgrunni. Þá er aðkomuvegi bætt við aðrennslisskurð og hreinsivirki á byggingarreit B1. Fallpípum er bætt á uppdrátt sem og bætt er við vatnsbólum og sýndar lagnir frá þeim að vatnstanki og vatnsverndarsvæði stækkað.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir deiliskipulagið til kynningar og umsagna í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál 22. Afgreiðslur byggingarfulltrúa dags. 03.06.2026 - 26-252 - 2605004F
Til kynningar.

5.
Fundargerð 328. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 328. fundar skipulagsnefndar UTU:
Mál 1. Sumarliðabær lóð L165330; Sumarhlíð; Breytt heiti lóðar - 2606012
Lögð er fram umsókn um breytingu á skráningu lóðarinnar Sumarliðabær lóð, L165330, í Ásahreppi. Óskað er eftir því að Sumarliðabær lóð fái nafnið Sumarhlíð.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við nafna breytingu og skráningu skv. fyrirliggjandi umsókn.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir erindið.
Mál 2. Miðás L211096; Byggingarreitur stækkaður og aukin byggingarheimild; Deiliskipulagsbreyting - 2606060
Lögð er fram tillaga óverulegrar deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Miðáss, L211096, í Ásahreppi. Breytingin felst í því að byggingarreitur sem auðkenndur er Ú1 á uppdrætti stækkar. Norðurmörk reitsins hliðrast um 15 metra í áttina að Kálfholtsvegi. Skilmálar sem gilda um reitinn eru rýmkaðir.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir viðkomandi breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi. Þar sem engir aðrir hagsmunaaðilar eru innan svæðisins en umsækjandi er ekki talin þörf á grenndarkynningu.
Mál 20. Afgreiðslur byggingarfulltrúa dags. 10.06.2026 - 26-253 - 2606002F.
Til kynningar.
Mál 21. Afgreiðslur byggingarfulltrúa dags. 18.06.2026 - 26-254 - 2606003F.

6.
Fundargerð 1. fundar stjórnar byggðasamlags UTU
Lögð fram fundargerð 1. fundar stjórnar byggðasamlags UTU.
Til kynningar.
7.
Fundargerð 2. fundar stjórnar byggðasamlags UTU
Lögð fram fundargerð 2. fundar stjórnar byggðarsamlags UTU.
Til kynningar.
8.
Fundargerð 256. fundar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Lögð fram fundargerð 256. fundar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Til kynningar.
9.
Fundargerð aðalfundar Eignarhaldsfélags Suðurlands ehf, ásamt ársreikningi fyrir árið 2025
Lögð fram fundargerð aðalfundar Eignarhaldsfélags Suðurlands ehf, ásamt árituðum ársreikningi fyrir árið 2025. Jafnframt gögn vegna aukaaðalfundar sem haldinn verður 3. júlí.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 94. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Lögð fram fundargerð 94. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
11.
Fundargerðir 636. og 637. funda stjórnar SASS
Lagðar fram fundargerðir 636. og 637. funda stjórnar SASS.
Til kynningar.
12.
Fundargerðir 999. og 1000. funda Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lagðar fram fundargerðir 999. og 1000. fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
13.
Starf oddvita Ásahrepps
Lögð fram drög að ráðningarsamningi við Ísleif Jónasson oddvita Ásahrepps, sem starfandi oddvita kjörtímabilið 2026-2030, í samræmi við bókun síðasta fundar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagðan samning.
14.
Fundaráætlun hreppsnefndar Ásahrepps fyrir árið 2026
Á síðasta fundi hreppsnefndar var samþykkt að fjölga fundum hennar úr einum í tvo í mánuði. Því er lögð fram útfærð tillaga að fundardögum fyrir árið 2026.
Hreppsnefnd Ásahrepps...
15.
Kosning í nefndir, stjórnir og ráð samkvæmt samþykkt um stjórn og fundarsköp
Taka þarf upp kosningar frá síðasta fundi hreppsnefndar í tveimur tilfellum og kjósa að nýju. Annars vegar nefndarmenn í Fjallskiladeild Holtamannaafréttar og hins vegar fulltrúa á Aðalfund Heilbrigðiseftirlits Suðurlands.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að Karl Ölvisson verði aðalmaður í Fjallskiladeild Holtamannaafréttar og Emil Þórðarson varamaður.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að Ísleifur Jónasson verði aðalfulltrúi á aðalfundi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og Kristín Hreinsdóttir til vara.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að Ísleifur Jónasson verði aðalfulltrúi á aðalfundi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og Kristín Hreinsdóttir til vara.
16.
Umsókn um styrk vegna keppnis- og æfingarferðar
Bæring J.B. Guðmundsson sækir um styrk fyrir Sóldísi Lilju Sveinbjörnsdóttur vegna kostnaðar við keppnis og æfingarferð sem hún fór með unglingalandsliðinu í borðtennis.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að þar sem um landsliðsverkefni er að ræða verði Sóldís styrkt um 100.000 kr.
Hreppsnefnd er stolt af framúrskarandi árangri ungmenna í sveitarfélaginu.
Hreppsnefnd er stolt af framúrskarandi árangri ungmenna í sveitarfélaginu.
17.
SÍBS blaðið, styrkumsókn
SÍBS blaðið óskar eftir styrk við útgáfuna.
Hreppsnefnd Áshrepps samþykkir samhljóða styrka að upphæð 10.000 kr til SÍBS.
18.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps 2022-2026
Lagt fram rekstraryfirlit fyrir tímabilið janúar-maí 2026.
Til kynningar.
19.
Samtök orkusveitarfélaga, ársreikningur fyrir 2025
Lagður fram ársreikningur Samtaka orkusveitarfélaga fyrir árið 2025. Sveitarfélögum gefst kostur á athugasemdum við hann áður en hann verður undirritaður.
Til kynningar.
20.
Skýrsla vinnuhóps Öruggara Suðurlands
Lögð fram skýrsla vinnuhóps Öruggara Suðurlands um úti- og bæjarhátíðir í umdæmi lögreglustjórans á Suðurlandi.
Til kynningar.
21.
Vegagerðin, hraði á Ásvegi (275)
Lagt fram bréf frá Vegagerðinni, þar sem kynnt er fyrirhuguð breyting á hámarkshraða á Ásvegi (275), á um 740m kafla við Áshverfið.
Til kynningar.
22.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Ákvörðun um næsta fund hreppsnefndar og sumarlokun skrifstofu Ásahrepps.
Næsti fundur hreppsnefndar verður haldinn mánudaginn 14. júlí, klukkan 8:30 á skrifstofu hreppsins á Laugalandi.
Einnig er ákveðið að skrifstofa Ásahrepps verði lokuð frá og með þriðjudeginum 14. júlí til og með föstudagsins 14. ágúst.
Einnig er ákveðið að skrifstofa Ásahrepps verði lokuð frá og með þriðjudeginum 14. júlí til og með föstudagsins 14. ágúst.