Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

20. fundur
6. desember 2023 kl. 16:00 - 17:00
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun Ásahrepps 2024-2027
Málsnúmer 2310017
Sveitarstjóri gerði grein fyrir fjárhagsáætluninni og skýrði ýmsa liði.

Helstu kennitölur áætlunarinnar fyrir samstæðureikning rekstrarárið 2024 eru (í þús. kr.):

Tekjur: 601.182
Gjöld: 500.593
Afskriftir: 25.978
Fármagnsgjöld: 91
Rekstrarniðurstaða jákvæð: 74.519

Fastafjármunir: 549.677
Veltufjármunir: 252.001
Eigir samtals: 801.678

Eigið fé: 653.118
Skuldbindingar: 6.035
Langtímaskuldir: 76.174
Skammtímaskuldir: 65.798
Eigið fé og skuldir samtals: 801.678

Gert er ráð fyrir eftirfarandi fjárfestingum á árinu 2024 (í þús. kr.):

Gatnagerð: 15.000
Götulýsing og plan: 1.000
Göngu-, reiðhjóla- og reiðstígagerð: 40.000
Eignir hjá Eignasjóði og Ásgarður: 15.000

Fjárfestingar samstarfsverkefna A-hluta:
Félags- og skólaþjónusta / UTU: 589
Brunavarnir Rangárvallasýslu bs: 562

Fjárfestingar samstarfsverkefna B-hluta:
Sorpstöðin / Vatnsveita: 8.269

Samtals fjárfesting: 80.420

Oddviti bar upp fyrirliggjandi tillögu að fjárhagsáætlun Ásahrepps fyrir árin 2024-2027 til samþykktar. Tillagan var samþykkt samhljóða og sveitarstjóra falið að senda lögbundnum aðilum afrit af samþykktri áætlun í samráði við KPMG endurskoðun.