Hreppsnefnd Ásahrepps
21. fundur
20. desember 2023
kl.
08:30
-
11:45
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson
hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson
hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 270 fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 270. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð 195 afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU.
Mál nr. 1; Miðás L211096 og Miðás a2 L220069; Breytt fmörkun og stærð landeigna - 2311082.
Lögð er fram umsókn er varðar innbyrðis breytingu á afmörkun milli jarðarinnar Miðás L211096 og landeignarinnar Miðás 2 L220069. Miðás minnkar úr 53,9 ha í 1 ha og Miðás 2 stækkar úr 5,6 ha í 58,4 ha skv. meðfylgjandi lóðablöðum. Við breytinguna færist skráning reiðhallar (mhl 02) yfir á Miðás 2 en aðrar fasteignir verða áfram skráðar á Miðás.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemd við innbyrðis skiptingu og breytingu á stærð viðkomandi landeigna skv. fyrirliggjandi umsókn. Hreppsnefnd Ásahrepps m samþykkir erindið með fyrirvara um lagfærð gögn. Hreppsnefnd bendir á að í gildi er deiliskipulag sem tekur til uppbyggingar á svæðinu, að mati hreppsnefndarinnar er þörf á endurskoðun deiliskipulagsins í tengslum við breytta afmörkun landeigna á svæðinu.
Mál nr. 29; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 23-195 - 2311002F
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 23-195.

2.
Fundargerð 271. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 271. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð 196. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU.
Mál nr. 1; Köldukvíslarjökull í Ásahreppi (hluti af Vantajökli); Stofnun þjóðlendu - 2312027.
Lögð er fram umsókn Regínu Sigurðardóttur, f.h. forsætisráðuneytisins, um stofnun þjóðlendu. Um er að ræða 218 km2 landsvæði, Köldukvíslarjökull í Ásahreppi (hluti Vatnajökuls), skv. úrskurði óbyggðanefndar í máli nr. 1/2003, dags. 10.12.2004. Um stofnun þjóðlenda gilda ákvæði laga um þjóðlendur og ákvörðun eignarlanda, þjóðlendna og afrétta nr. 58/1998 með síðari breytingu. Landeigandi er Íslenska ríkið skv. 2. gr. laga nr. 58/1998. Afmörkun þjóðlendunnar er sýnd á meðfylgjandi mæliblaði dags. 07.11.2023.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við stofnun þjóðlendunnar skv. fyrirliggjandi umsókn. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir erindið.
Mál nr. 2; Ásmúli 1C L224542; Fyrirspurn - 2312031
Lögð er fram fyrirspurn frá Eflu, f.h. landeigenda Ásmúlasels, Ásmúla 1B og Ásmúla 1C er varðar heimild til deiliskipulagsgerðar á viðkomandi landeignum fyrir allt að 15 lóðir í takt við framlögð gögn.
Að mati hreppsnefndar Ásahrepps eru framlagðar hugmyndir ekki í samræmi við stefnumörkun aðalskipulags er varðar uppbyggingu á landbúnaðarlandi L1 þar sem að jafnaði er ekki gert ráð fyrir uppbyggingu nema í tengslum við núverandi bæjartorfur eða í jaðri L1 svæða. Að mati hreppsnefndarinnar væri eðlilegt að á úrvals landbúnaðarlandi væri áfram miðað við núverandi skipan landsins og gert sé ráð fyrir byggingarreitum á jaðri landeignar L224541 og L224542. Nefndin gerir ekki athugasemd við að lóðir á L3 svæði teygi sig inn á L1 svo framarlega sem byggingarreitir eru skilgreindir á L3 svæði.
Mál nr. 31; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 23-196 - 2311004F
Fundargerð byggingarfulltrúa nr. 23-196 lögð fram til kynningar.

3.
Fjallskiladeild Holtamannaafréttar - 6
Fundargerð 6. fundar fjallskiladeildar Holtamannaafréttar lögð fram.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti tillögu fjallskiladeildar Holtamannaafréttar um útjöfnun fjallskila fyrir árið 2023
4.
Fundargerð 13. fundar seyrustjórnar
Lögð fram fundargerð 13. fundar seyrustjórnar.Dagskrárliður nr. 1 þarfnast staðfestingar aðildarsveitarfélaganna.
Mál nr. 1; Fjárhagsáætlun 2024.
Fjárhagsáætlun fyrir árið 2024 lögð fram til samþykktar. Fyrir liggur að stefnt er að yfirfærslu á verkefninu til UTU um áramótin 2023/2024 og þá færist rekstur seyrustaða inní rekstur UTU bs. Ljóst er að forsendur fjárhagsáætlunnar geta breyst á árinu 2024 við flutning starfseminnar.
Fjárhagsáætlun samþykkt.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti fram lagða fjárhagsáætlun seyruverkefnisins fyrir rekstrarárið 2024.

5.
Fundargerð 104. fundar stjórnar UTU
Lögð fram fundargerð 104. fundar stjórnar UTU.Dagskrárliðir nr. 2 og 3 þurfa staðfestingu sveitarstjórna aðildarsveitarfélaganna.
Nanna Jónsdóttir tekur ekki þátt í afgreiðslu þessa dagskrárliðar.
Í dagskrárlið 2 samþykkti stjórn UTU að færa seyruverkefnið undir UTU með fyrirvara um samþykki aðildarsveitarfélaganna.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti að seyruverkefnið verði fært undir UTU.
Í dagskrárlið 3 samþykkti stjórn UTU framlagða fjárhagsáætlun UTU fyrir árið 2024. Fjárhagsáætlun ásamt yfirliti um framlög aðildarsveitarfélaganna lögð fram.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti fram lagða fjárhagsáæltun UTU fyrir rekstrarárið 2024.
Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.

6.
76. fundur Félags- og skólaþjónustu
Lögð fram fundargerð 76. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fjárhagsáætlun byggðasamlagsins skv. 1. dagskrárlið fundargerðar.
Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.
Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.
7.
Fundargerð 6. fundar stjórnar Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps bs.
Lögð fram fundargerð 6. fundar stjórnar Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps.Á fundinum voru drög að gjaldskrá vatnsveitu lögð fram. Eftirfarandi var bókað:Farið yfir drög að fyrirliggjandi uppfærðri gjaldskrá Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps. Lagt er upp með að stuðla að jafnræði í innheimtu vatnsgjalds.Stjórn Vatnsveitu leggur til að hefja mælavæðingu á inntökum stærri notenda, það er rekstaraðilum gisti- og veitingastaða, vatnskrefjandi búrekstrar ásamt öðrum vatnskrefjandi rekstri.Eins leggur stjórn til að gerð verði greining á því samhliða mælauppsetningu með hvaða hætti er möguleiki á að ná sem mestu jafnræði í innheimtu aukavatnsgjalds.Lagt til að gjaldská Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps hækki í samræmi við byggingarvísitölu um 5,63% að undanskildu aukavatnsgjaldi sem helst óbreytt.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti umrædda gjaldskrá fyrir Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps bs. 2024.
8.
Fundargerð 18. fundar stjórnar Odda bs.
Lögð fram fundargerð 18. fundar stjórnar Odda bs.
Til kynningar.
9.
Fundargerð 7. fundar stjórnar Húsakynna bs
Lögð fram fundargerð 7. fundar stjórnar Húsakynna bs.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 7. fundar stjórnar Lundar
Lögð fram fundargerð 7. fundar Lundar.
Til kynningar.
11.
Fundargerð 233. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Lögð fram fundargerð 233. fundar stjórnar Odda bs.
Til kynningar.
12.
Fundargerð 75. fundar Félags- og skólaþjónustu
Lögð fram fundargerð 75. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
Til kynningar.
13.
Fundargerð 77. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu
Lögð fram fundargerð 77. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
Til kynningar.
14.
Fundargerð Héraðsnefndar Rangæinga, 2. nóvember 2023
Lögð fram fundargerð Héraðsnefndar Rangæinga, dags. 2. nóvember 2023.
Til kynningar.
15.
Fundargerð aðalfundar Sorpstöðvar Suðurlands bs 2023
Lögð fram fundargerð aðalfundar Sorpstöðvar Suðurlands 2023.
Til kynningar.
16.
Fundargerð 322. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Lögð fram fundargerð 322. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Til kynningar.
17.
Fundargerð 323. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Lögð fram fundargerð 323. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Til kynningar.
18.
Fundargerð aðalfundar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands bs, 27. október 2023
Lögð fram fundargerð aðalfundar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands 2023.
Til kynningar.
19.
Fundargerð 232. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Lögð fram fundargerð 232. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands.
Til kynningar.
20.
Fundargerð 111. fundar svæðisráðs vestursvæðis VJÞ
Lögð fram fundargerð 111. fundar svæðisráðs vestursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs.
Til kynningar.
21.
Fundargerð 112. fundar svæðisráðs vestursvæðis VJÞ
Lögð fram fundargerð 112. fundar svæðisráðs vestursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs.
Til kynningar.
22.
Fundargerð 3. fundar Markaðsstofu Suðurlands
Lögð fram fundargerð 3. fundar stjórnar Markaðsstofu Suðurlands.
Til kynningar.
23.
Fundargerð 4. fundar stjórnar Markaðsstofu Suðurlands
Lögð fram fundargerð 4. fundar stjórnar Markaðsstofu Suðurlands.
Til kynningar.
24.
Fundargerð Ársþings SASS 2023
Lögð fram fundargerð Ársþings SASS 2023.
Til kynningar.
25.
Fundargerð 603. fundar stjórnar SASS
Lögð fram fundargerð 603. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
26.
Fundargerð 67. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 67. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
27.
Fundargerð 937. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 937. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
28.
Fundargerð 938. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 938. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
29.
Fundargerð 939. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 939. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
30.
Ákvörðun um álagningu útsvars árið 2024
Lagt fram tölvuskeyti Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 16. desember 2023, þar sem kynnt er að Alþingi samþykkti lagabreytingu þann 15. desember 2023 sem kveður á um lækkun tekjuskatts um 0,23% og jafnframt heimilaði hækkun hámarksútsvars um sama hlutfall. Hámarksútsvar sveitarfélaga verður því 14,97%. Um er að ræða tilflutning á skatttekjum frá ríki til sveitarfélaga til fjármögnunar þjónustu við fatlað fólk. Sveitarfélögunum er því heimilt að hafa álagningarhlutfall útsvars 14,97%.
Fyrir liggur samkomulag á milli ríkis og sveitarfélaga, dags. 15. desember 2023, varðandi fjármögnun þjónustu við fatlað fólk og hækkun útsvarsálagningar. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að álagningarhlutfall útsvars fyrir árið 2024 skuli vera 14,97% með vísan til ákvæða varðandi breytingu á fjármögnun á þjónustu við fatlað fók í fyrrgreindu samkomulagi og breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga sem samþykkt var á Alþingi 15. desember 2023.
31.
Ósk um staðfestingu á nýjum samþykktum Sorpstöðvar Suðurlands
Lögð fram tillaga að nýjum samþykktum Sorpstöðvar Suðurlands bs, til annarrar og lokaumræðu.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða nýjar samþykktir fyrir Sorpstöð Suðurlands bs fyrir sitt leyti.
32.
Girðingargjald fyrir áningarhólf á Holtamannaafrétti
Taka þarf til endurskoðunar girðargjald fyrir áningarhólf á Holtamannaafrétti.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að hækka girðingargjald / aðstöðugjald fyrir hesta í áningarhólfum á Holtamannaafrétti. Gjaldið hefur verið 350 kr á hvern hest sem nýtir aðstöðu sveitarfélagsins í áningarhólfum fyrir hverja nótt. Gjaldið verður kr. 450 fyrir einn hest, eina nótt. Nýtt gjald tekur gildi frá 1. janúar 2024.
33.
Fundaráætlun hreppsnefndar Ásahrepps 2024
Lögð fram fundaráætlun hreppsnefndar Ásahrepps fyrir árið 2024.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir framlagða fundaráætlun og felur sveitarstjóra að birta hana á heimasíðu Ásahrepps.
34.
Íþrótta- og tómstundafulltrúi og verkefnisstjóri Heilsueflandi samfélags í Rangárvallasýslu
Lögð fram drög að starfslýsingu íþrótta- og tómstundafulltrúa og verkefnisstjóra Heilsueflandi samfélags í Rangárvallasýslu.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að starfslýsingu. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að sveitarfélagið verði þátttakandi í verkefninu að því gefnu að sveitarfélögin Rangárþing ytra og Rangárþing eystra verði þátttakendur einnig með fyrirvara um að samningur verði endurskoðaður um þjónustu Rangárþings ytra gagnvart Ásahreppi um verkefni sem eru skilgreind þar og einnig innan þessa verkefnis.
35.
Hvatastyrkur til eldri borgara í Ásahreppi
Lögð fram drög að reglum um greiðslu hvatastyrkja til eldriborgara í Ásahreppi, sbr. bókun á 19. fundi hreppsnefndar, dagskrárlið 30, lið 9. Einnig lögð fram tillaga að umsóknareyðublaði.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fram lagðar reglur um þessa hvatastyrki og felur sveitarstjóra að senda þeim íbúum sem falla undir umrætt aldursbil kynningarbréf og hvatningu til nýtingar þessara hvatastyrkja.
36.
Beiðni um samstarfssamning og fjárstyrk vegna íþróttastarfs Skotíþróttafélagsins Skyttna
Lagt fram tölvuskeyti Skotíþróttafélagsins Skyttna þar sem fram kemur að unnið hefur verið að samstarfssamningi við sveitarfélögin í Rangárvallasýslu, en þeirri vinnu er ekki lokið. Rangárþing ytra og Rangárþing eystra hafa þó greitt félaginu styrk í ár. Óskað er eftir að Ásahreppur greiði félaginu áður umbeðinn styrk fyrir þetta ár, þrátt fyrir að samstarfssamningur sé ekki tílbúinn.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að greiða félaginu rekstrarstyrk fyrir árið 2023 að upphæð kr. 250.000, en leggur áherslu á að lokið verði gerð samstarfssamnings sem fyrst með tilliti áframhaldandi styrkveitinga.
37.
Umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi til sölu gistingar að Sumarliðabæ 2
Lagt fram bréf Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 21. nóvember 2023, þar sem óskað er eftir umsögn hreppsnefndar Ásahrepps vegna umsóknar Svarthöfða-Hrossarækt ehf kt. 590516-1120 um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II H, frístundahús. Jafnframt er lögð fram teikning af umræddri fasteign, Sumarliðabær 2, fasteignanúmer 219-8108, rýmisnúmer 02-0101 og hámarksfjöldi gesta 2. Fyrir liggur skeyti byggingarfulltrúa þar sem fram kemur að byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við að umrætt leyfi verði veitt.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemdir við að umrætt leyfi verði veitt. Samþykkt samhljóða.
38.
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tækifærisleyfis vegna þorrablóts Áshreppinga
Lagt fram bréf Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 4. desember 2023, þar sem óskað er eftir umsögn Ásahrepps vegna umsóknar um tækifærisleyfis fyrir Þorrablót Ásahrepps 10. febrúar 2024.
Hreppsnefnd gerir engar athugasemdir við að umbeðið tækifærisleyfi sé veitt, en bendir á að umrætt húsnæði er í Rangárþingi ytra og ber því sveitarfélagi að gefa umsögn um framlagða umsókn.
39.
Beiðni um endurnýjun á þjónustusamningi við Hestamannafélagið Geysi
Lagt fram tölvuskeyti Hestamannafélagsins Geysis, dags. 12. desember 2023, þar sem óskað er eftir endurnýju á þjóustusamningi við Ásahrepp, en gildandi samningur rennur úr gildi um næstu áramót.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða af framlengja umræddan samning að því gefnu að aukið verði framboð námskeiða fyrir ungmenni á starfssvæði félagsins og að námskeiðshald haldist í hendur við starfstíma grunn- og framhaldsskóla.
40.
Hugmyndir um nýtingu húsnæðis að Laugalandi
Birgir Teitsson, frá Arkís arkitektum, mætir á fundinn og gerir grein fyrir hugmyndum þeirra er varðar nýtingu húsnæðis að Laugalandi.
Birgir gerði grein fyrir hugmyndum Arkís varðandi framtíðarnýtingu á húsnæðinu að Laugalandi. Hreppsnefnd Ásahrepps tekur vel í að þessar hugmyndir verði unnar áfram.
41.
Bréf HSK, beiðni um fjárstuðning árið 2024
Lagt fram bréf Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK), dags. 14. desember 2023, þar sem óskað er eftir fjárstyrk til reksturs sambandsins árið 2024. Óskað er eftir framlagi að upphæð kr. 280 á hvern íbúa hreppsins.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita umbeðið rekstrarframlag, enda er gert ráð fyrir því í fjárhagsáætlun Ásahrepps fyrir árið 2024.
42.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Lagt fram rekstraryfirlit fyrir sveitarsjóð Ásahrepps fyrir tímabilið 1. janúar - 30. nóvember 2023.
Til kynningar.
43.
Ábending Jafnréttisstofu um mikilvægi kynja- og jafnréttissjónarmiða
Lagt fram bréf Jafnréttisstofu, dags. 10. nóvember 2023, þar sem fram kemur ábending til sveitarfélaga um mikilvægi kynja- og jafnréttissjónarmiða við stefnumótun og ákvarðanatöku í breytingum á fyrirkomulagi leikskóla.
Til kynningar.
44.
Stofnun þjóðlendu, Köldukvíslarjökull
Lagt fram bréf forsætisráðuneytis, dags. 7. nóvember 2023, þar sem sótt er um stofnun fasteignar (þjóðlendu), sbr. 14. gr. laga um skráningu og mat fasteigna.
Til kynningar.
45.
Minnisblað um skattlagningu á vindorkuver í Noregi
Lagt fram tölvuskeyti stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga, dags. 24. nóvember 2023 ásamt minnisblaði sem unnið er af Guðjónu Bragasyni. Efni skeytis og minnisblað er skattlagning á vindorkuver í Noregi.
Til kynningar.
46.
Fréttatilkynning frá stjórn Samtaka orkusveitarfélaga
Lögð fram fréttatilkynning frá stjórn Samtaka orkusveitarfélaga í tengslum við kynningu á tillögum starfshóps ráðuneytis orkumála um vindorku.
Til kynningar.
47.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn 24. janúar 2024 á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi. Fundur hefst klukkan 8:30.
Til kynningar.