Hreppsnefnd Ásahrepps
22. fundur
24. janúar 2024
kl.
08:30
-
10:00
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson
hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson
hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 272. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 272. fundar skipulagsnefndar UTU.
Mál nr. 1; Sumarliðabær 1 L165276; Efri-Sumarliðabær; Breytt heiti jarðar - 2312047.
Lögð er fram umsókn um breytt staðfang jarðar. Í breytingunni felst að heiti jarðarinnar breytist úr Sumarliðabær 1 í Efri-Sumarliðabær.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að ekki verði gerð athugasemd við breytt staðfang jarðarinnar.
Mál nr. 2; Hlíð L208423 úr landi Króks II L174663; Skilgreining frístundalóðar; Hlíðarkot; Deiliskipulagsbreyting - 2312063.
Lögð er fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem tekur til lands Hlíðar L208423 úr landi Króks II. Markmið breytingarinnar er skilgreining nýrrar lóðar út frá lóðinni Hlíð L208423 fyrir sumarhús. Skilgreindur er byggingarreitur fyrir sumarhús. Heildarbyggingarmagn skipulagssvæðis eykst úr 1.100 fm í 1.220 fm.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins með fyrirvara um að byggingarreitur hinnar nýju lóðar verði skilgreindur í 100 metrar fjarlægð frá vegi í samræmi við kröfur 5.3.2.5. gr. skipulagsreglugerðar lið d. Jafnframt mælist hreppsnefndin til þess að tekin verði afstaða til staðfangs landsins, þ.e. hvort um Miklagarð eða Hlíð er að ræða. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi og verði grenndakynnt aðliggjandi jörðum.
Mál nr. 3; Litlaland lóð L204654 og Litlaland L172908; Byggingarreitir og aðkoma; Deiliskipulag - 2310030.
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags fyrir Litlaland lóð L204654 og Litlaland L172908. Í deiliskipulaginu felst m.a. skilgreining byggingarheimilda fyrir íbúðarhús, hesthús, reiðhöll og gestahús. Tveir byggingarreitir eru skilgreindir og þar standa fyrir tvö hús. Skipulagssvæðið er um 2 ha að stærð og fyrirhugað að stækka lóð Litlalands lóð L204654 úr 7.688 fm í 10.000 fm. Heildarbyggingarmagn er skilgreint 1.500 fm fyrir Litlaland lóð og 550 fm fyrir Litlaland. Ný tenging að frístundahúsi Arnkötlustaða lóð L165183 sem var gert grein fyrir innan auglýstrar tillögu hefur verið felld út úr skipulaginu. Athugasemdir og umsagnir bárust við auglýsingu tillögunnar og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins.
Athugasemdir sem bárust vegna tillögunnar snúa að vegtenginu að frístundahúsi á lóð Arnkötlustaða lóð 165183. Á auglýsingatíma skipulagstillögunnar var tekin ákvörðun um að fjarlægja tillögu að nýrri tengingu að lóðinni úr skipulaginu. Landeigandi Litlalands telur ekki forsvaranlegt að færa tenginguna með þeim hætti sem gerð er tillaga að í athugasemdum lóðarhafa L165183 þar sem sú tenging þverar núverandi gerði sem er mikilvægt starfsemi svæðisins. Að mati hreppsnefndar telst því núverandi tenging að lóðinni óbreytt m.v. núverandi forsendur.
Eftir fund skipulagsnefndar 10. janúar 2024 bárust athugasemdir frá Minjastofnun, dags. 11. janúar 2024, sem lýtur að landamerkjagarði (RA-367:056) á mörkum Arnkötlustaða og Berustaða. 20 metra langur bútur þessa garðs liggur innan skipulagssvæðis og lendir innan byggingarreits B1. Brugðist hefur verið við þessari athugasemd Minjastofnunar. Lagt er fram uppfært deiliskipulag að teknu tilliti til þessarar athugasemdar Minjastofnunar.
Engar athugasemdir eru gerðar við uppbyggingu á grundvelli skipulagsins og telur hreppsnefndin því ekki ástæðu til að auglýsa eða kynna skipulagið að nýju þrátt fyrir breytingar á tillögunni eftir auglýsingu. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að framlagt deiliskipulag verði samþykkt eftir auglýsingu. Nefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum og athugasemdum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan framlagðra gagna. Hreppsnefnd Ásahrepps mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

2.
Fundargerð 4. fundar almannavarnarnefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu
Lögð fram fundargerð 4. fundar almannavarnarnefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
Til kynningar.
3.
Fundargerð 113. fundar svæðisráðs vestursvæðis VJÞ
Lögð fram fundargerð 113. fundar svæðisráðs vestursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs.
Til kynningar.
4.
Fundargerð 604. fundar stjórnar SASS
Lögð fram fundargerð 604. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
5.
Fundargerð 68. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 68. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
6.
Fundargerð 605. fundar stjórnar SASS
Lögð fram fundargerð 605. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
7.
Fundargerð 940. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 940. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
8.
Fundargerð 941. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 941. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
9.
Ársskýrsla Seyruverkefisins 2023
Lögð fram Ársskýrsla Seyruverkefnisins 2023.
Hreppsnefnd þakkar fyrir vel unna skýrslu og þakkar jafnframt Halldóru Hjörleifsdóttur fyrir gott starf í þágu verkefnisins.
Til kynningar.
Til kynningar.
10.
Beiðni vegna slita á ljósleiðarastreng
Lagt fram tölvuskeyti Grétu V Guðmudnsdóttur, dags. 15. janúar 2024, þar sem hún óskar eftir aðkomu Ásahrepps vegna kostnaðar á slita ljósleiðarastrengs á grundvelli þess að hann hafi ekki legið nákvæmlega á þeim stað sem gefinn er upp á landupplýsingakerfi Ásaljóss. Ekki kemur fram í erindinu að strengurinn hafi verið sónaður fyrir framkvæmdir.
Hreppsnefnd Ásahrepps hafnar þessari beiðni, og telur ekki mögulegt að koma að slíkum málum. Rétt væri fyrir framkvæmdaaðila að kanna með tryggingar vinnuvélar sem nýtt var við framkvæmdirnar. Mikilvægt er að hafa varann á þegar framkvæmdir eru nærri innviðum veitna, t.d. með því að sóna lagnir.
11.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Lagt fram rekstraryfirlit fyrir sveitarsjóð Ásahrepps fyrir tímabilið 1. janúar - 31. desember 2023 skv. stöðu bókhalds á þeim tíma.
Til kynningar.
12.
Mótvægisaðgerðir vegna Sporðöldulóns, aðgerðir 2023
Lagt fram minnisblað Landgræðslunnar, dags. 21. desember 2023, um mótvægisaðgerðir 2023 vegna Sporðöldulóns.
Til kynningar.
13.
Akvörðun Persónuverndar um notkun Google Workspace í skólastarfi
Lagt fram bréf Persónuverndar, dags. 11. janúar 2024, þar sem kynnt er ákvörðun Persónuverndar um noktkun Gookle Workspace for Education í grunnskólastarfi.
Til kynningar.
14.
Umsögn Samtaka orkusveitarfélaga um frumvarp til laga um breyting á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun
Lögð fram umsögn stórnar Samtaka orkusveitarfélaga um frumvarp til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun.
Til kynningar.
15.
Umsögn Samtaka orkusveitarfélaga um tillögu til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu vindorku
Lögð fram umsögn stjórnar Orkusveitarfélaga um tillögu til þingályktunar um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu vindorku.
Hreppsnefnd Ásahrepps tekur undir umsögn stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
Til kynningar.
16.
Reglugerð um sjálfbæra landnýtingu - boð um þátttöku
Lagt fram tölvuskeyti matvælaráðuneytis, dags. 22. janúar 2024, þar sem boðin er þátttaka í samráði um nýja reglugerð um sjálfbæra landnýtingu.
Til kynningar.
17.
Aðalskipulag Þingeyjarsveitar, nr. 08812023 - Kynnig tillögu á vinnslustigi
Lagt fram tölvuskeyti Skipulagsstofnunar, dags. 17. janúar 2024, þar sem kynnt er tillaga á vinnslustigi um Aðalskipulag Þingeyjarsveitar.
Til kynningar.
18.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn 21. febrúar 2024 á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi. Fundur hefst klukkan 8:30.
Til kynningar.