Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

23. fundur
21. febrúar 2024 kl. 08:30 - 11:45
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 273. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2402001
Lögð fram fundargerð 273. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð 197. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa UTU.
Mál nr. 1; Ás 2 L165258; Ás 2 lóð I-1; Stofnun lóðar - 2401023.
Lögð er fram umsókn um stofnun lóðar umhverfis útihús í landi Áss 2 L165258. Um er að ræða 4.681,6 fm lóð.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar skv. fyrirliggjandi umsókn og samþykkir samhljóða erindið með fyrirvara um lagfærð gögn meðal annars m.t.t. staðfangs lóðarinnar.

Mál nr. 2; Dvergabakki L165303; Dvergabakki A; Stofnun lóðar - 2401058.
Lögð er fram umsókn um stofnun 5 ha lóðar, Dvergabakki A, úr landi Dvergabakka 165303. Kvöð er um aðkomu að lóðinni um heimreið í gegnum land Röðuls L198895.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar skv. fyrirliggjandi umsókn. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða erindið með fyrirvara um að gögn málsins séu fullnægjandi.

Mál nr. 3; Holtamannaafréttur L221893; Viðgerðir á Vatnsfellsskurði; Framkvæmdarleyfi - 2401053
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi vegna viðgerða á Vatnsfellsskurði neðan lokuvirkis. Markmið framkvæmdarinnar er að tryggja flutningsgetu skurðarins og öryggi mannvirkja. Helstu verkþættir framkvæmdarinnar eru:
- Laust efni á skurðbökkum fjarlægt niður að klapparyfirborði á um 200 m kafla og mynduð 8- 12 m berma (sylla). Áætlað magn skeringa er 35.000 m3 sem haugsett verður norðan skurðarins.
- Laust berg í skurðfláum hreinsað í burtu eins og aðstæður leyfa.
- Laust efni í skurðbotni hreinsað í burtu, m.a. áðurnefnt hrunefni.
- Steypt í rofholur sem eru 30 m eða nær lokuvirkinu, aðrar holur fylltar með grjóti.
- Steypt plata í skurðbotn sem nær um 30 m niður fyrir lokuvirkið.
- Set sem sest hefur fyrir í skurðinum hreinsað í burtu. Mest af þessu seti er í útvíkkun skurðar neðar en 200 m frá lokuvirki. Áætlað magn er 14.000 m3 sem haugsett verður norðan skurðarins.

Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemd við útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 5. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem engir aðrir hagsmunaaðilar eru innan svæðisins sem framkvæmdin tekur til en umsækjandi er ekki talin þörf á grenndarkynningu.

Mál nr. 4; Búðarhálsstöð; Hald gangnamannahús L224163; Deiliskipulagsbretying - 2311090.
Lögð er fram óveruleg breyting á deiliskipulagi Búðarhálsstöðvar er varðar Hald gangnamannahúss. Í breytingunni felst að á uppdrætti er fellt út svæðið umhverfis skálann Hald í Ásahreppi og aðkomuveg að honum. Nýtt deiliskipulag fyrir skálann hefur tekið gildi nú þegar.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða viðkomandi breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi. Þar sem engir aðrir hagsmunaaðilar eru innan svæðisins en umsækjandi er ekki talin þörf á grenndarkynningu.

Mál nr. 28; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 24-197 - 2401001F.
Lögð fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 24-197.
2.
Fundargerð 274. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2402027
Lögð fram fundargerð 274. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU nr. 24-198.
Mál nr. 20; Afgreiðslur Byggingarfulltrúa - 24-198 - 2402001F.
Lögð fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 24-198.
3.
Fundargerð 64. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Málsnúmer 2402003
Lögð fram fundargerð 64. fundar stjórnar Bergrisans bs. 4. dagskrárliður þarfnast afgreiðslu aðildarsveitarfélaganna, sem lýtur að reglum um stoðþjónustu. Lagðar eru fram reglur Bergrisans um stoðþjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Hreppsnefnd Ásarhepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti fram lagðar reglur Bergrisans um stoðþjónustu við fatlað fólk.
Fundargerð að öðru leyti til kynningar.
4.
Fundargerð 1. fundar viðræðunefndar samráðsnefndar Ásarhepps og Rangárþings ytra
Málsnúmer 2402008
Lögð fram fundargerð 1. fundar viðræðunefndar samráðsnefndar Ásarhepps og Rangárþings ytra.
Til kynningar.
5.
Fundargerð 19. fundar stjórnar Odda bs.
Málsnúmer 2402013
Lögð fram fundargerð 19. fundar stjórnar Odda bs.
Til kynningar.
6.
Fundargerð 78. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu
Málsnúmer 2402002
Lögð fram fundargerð 78. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
Til kynningar.
7.
Fundargerð 233. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Málsnúmer 2402025
Lögð fram fundargerð 233. fundar Heilbrigðisnefnar Suðurlands.
Til kynningar.
8.
Fundargerð 65. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Málsnúmer 2402004
Lögð fram fundargerð 65. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
9.
Fundargerð 66. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Málsnúmer 2402005
Lögð fram fundargerð 66. fundar stjórnar Bergrisns bs.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 67. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Málsnúmer 2402006
Lögð fram fundargerð 67. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
11.
Fundargerð 68. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Málsnúmer 2402007
Lögð fram fundargerð 68. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
12.
Fundargerð 69. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Málsnúmer 2402009
Lögð fram fundargerð 69. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
13.
Fundargerð 606. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2402015
Lögð fram fundargerð 606. fundar stjórnar SASS ásamt tölvuskeyti framkvæmdastjóra SASS, dags. 2. febrúar 2024, vegna heimavistar FSu. Í tölvuskeyti er lögð áhersla á bókun stjórnar SASS vegna málefna heimafistar Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Hreppsnefnd Ásahrepps tekur samhljóða heilshugar undir bókun stjórnar SASS, dags. 2. febrúar 2024, og skorar á mennta- og barnamálaráðherra að eyða allri óvissu vegna heimavistar við FSu sem allra fyrst. Samningur um núverandi heimavist rennur út í lok vorannar 2024 og ekki hafa verið gerðar neinar ráðstafanir til að tryggja nemendum sem þess þurfa húsnæðisúrræði fyrir næsta skólaár. Þessi staða er algerlega óviðunandi og með engum hætti boðleg að teknu tilliti til jafnréttis til náms á starfssvæði skólans.
Fundargerð er til kynningar.
14.
Fundargerð 942. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2402018
Lögð fram fundargerð 942. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
15.
Umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi til reksturs gististaðar í flokki II að Sumarliðabæ 2
Málsnúmer 2402010
Lagt fram bréf Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 22. janúar 2023 (Málsnúmer: 2024-004194), þar sem óskað er eftir umsögn hreppsnefndar Ásahrepps vegna umsóknar Svarthöfða-Hrossarækt ehf kt. 590516-1120 um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II H, frístundahús. Jafnframt er lögð fram teikning af umræddri fasteign, Sumarliðabær 2, fasteignanúmer 219-8108, rýmisnúmer 03-0101 og hámarksfjöldi gesta 2. Fyrir liggur skeyti byggingarfulltrúa þar sem fram kemur að byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við að umrætt leyfi verði veitt.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemdir við að umrætt leyfi verði veitt. Samþykkt samhljóða.
16.
Umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi til sölu gistingar að Sumarliðabæ 2, milliloft
Málsnúmer 2402011
Lagt fram bréf Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 22. janúar 2023 (Málsnúmer: 2024-004198), þar sem óskað er eftir umsögn hreppsnefndar Ásahrepps vegna umsóknar Svarthöfða-Hrossarækt ehf kt. 590516-1120 um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II H. Jafnframt er lögð fram teikning af umræddri fasteign, Sumarliðabær 2, fasteignanúmer 219-8108, rýmisnúmer 26-0101 og hámarksfjöldi gesta 8. Fyrir liggur skeyti byggingarfulltrúa þar sem fram kemur að byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við að umrætt leyfi verði veitt.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemdir við að umrætt leyfi verði veitt. Samþykkt samhljóða.
17.
Árlegur stöðufundur með fulltrúum Landsvirkjunar, reksturs vatnsafls
Málsnúmer 2402016
Lagt fram tölvuskeyti Guðmundar Finnbogasonar, hjá Landsvirkjun, dags. 7. febrúar 2024, þar sem óskað er eftir að árlegur upplýsingafundur fari fram að Búrfelli. Hugmynd að fundardegi er 7. eða 8. mars n.k.
Hreppsnefnd Ásahrepps tekur vel í að hitta fulltrúa Landsvirkjunar að Búrfelli. Nefndir dagar henta ekki vel en þriðjudagurinn 12. mars væri heppilegur fyrir hreppsnefnd Ásahrepps.
18.
Fyrirspurn Félags- og skólaþjónustu um mögulegt samstarf við Tröppu
Málsnúmer 2402017
Lagt fram tölvuskeyti Halldóru Guðlaugar, teymisstjóra Félags- og skólaþjónustunnar, dags. 7. febrúar 2024, þar sem hún óskar eftir afstöðu aðildarsveitarfélaga til samstarfs við Tröppu vegna talþjálfunar barna.Einnig lögð fram kynning á verkefninu og gjaldskrá.
Hreppsnefnd Ásahrepps vísar erindinu til stjórnar Félags- og skólaþjónustu, Odda bs og skólastjórnenda til úrvinnslu og kannað verði hvort rými sé fyrir hendi innan gildandi fjárhagsáætlunar stofnananna og skólanna. Einnig þarf að liggja fyrir hvort Félags- og skólaþjónustan ætli að standa að kostnaði við sameiginlegt umsýslugjald og hvort það rúmist innan fjárheimilda byggðasamlagsins.
19.
Umferð um Vonarskarð á Holtamannaafrétti
Málsnúmer 2402019
Lögð fram greinargerð Ferðaklúbbsins 4x4 um sögulegt yfirlit ákvarðana um takmörkun aðgengis vélknúinna ökutækja um Vonarskarð. Einnig lög fram kynning með myndum sem klúbburinn hefur tekið saman í tengslum við hugmyndir um aðgengi fyrir vélknúin ökutæki að svæðinu.
Þessi gögn voru lögð fram á fundi sem fulltrúar Félags Útivistarfélaga og Ferðaklúbbsins 4x4 áttu með Ísleifi, Þráni og Valtý á skrifstofu Ásahrepps þann 29. janúar s.l.
Hreppsnefnd Ásahrepps hefur ákveðinn skilning á því vandamáli sem uppi hefur verið um umferð um Vonarskarð. Fyrir liggur að stjórn VJÞ mun senda sveitarfélaginu formlegt erindi varðandi þetta mál í næsta mánuði og mun hreppsnefnd taka afstöðu til þess þegar erindi hefur borist.
20.
Sameining sveitarfélaga
Málsnúmer 2402022
Umræða varð hjá hreppsnefnd Ásahrepps um sameiningu sveitarfélaga í ljósi breyttra laga. Jafnframt voru lögð fram ýmiss gögn frá síðustu vinnu við sameiningu sveitarfélaga í Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu ásamt lokaskýrslu Háskóla Íslands vegna skoðanakönnunar sem gerð var meðal íbúa Ásahrepps að afloknum kosningum um sameiningu sveitarfélaga haustið 2021.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir að óska eftir að eiga fund með sveitarstjórnum í Rangárvallasýslu til að ræða möguleika um sameiningar sveitarfélaga áður en að tekin verði ákvörðun um formlegar sameiningarviðræður. Hreppsnefnd Ásahrepps vill kynna þá möguleika sem til staðar eru á almennum íbúafundi áður en ákvörðun er tekin um formlegar viðræður.
21.
Skipulagsmál; land að Ásmundarstöðum
Málsnúmer 2402023
Lagt fram tölvuskeyti Einars Kristjánssonar fyrir hönd Marina Travel ehf, dags. 13. febrúar 2024, þar sem óskar eftir afstöðu hreppsnefndar Ásahrepps til þess að breyta umræddu landi úr landbúnaðarnotum í verslun og þjónustu. Ástæða þess er að fyrir liggur kauptilboð af þessu landi með þeim skilyrðum að uppbygging verslunar- og þjónustu verði heimuluð á þessu landi.
Hreppsnefnd Ásahrepps vísar til Aðalskipulags Ásahrepps 2020-2032, að þetta land er flokkað sem L1, landbúnaðarland í fyrsta flokki, sem setur ákveðnar skorður á breytingu á landnotkun. Þegar um er að ræða land í flokki L1 er að jafnaði ekki gert ráð fyrir uppbyggingu nema í tengslum við núverandi bæjartorfur eða í jaðri L1 svæða. Að mati hreppsnefndarinnar væri eðlilegt að á úrvals landbúnaðarlandi væri áfram miðað við núverandi skipan landsins. Hreppsnefnd getur því ekki fallist á að umræddu landi verði breytt úr landbúnaðarsvæði í verslun og þjónustu.
22.
Beiðni um tengingu við ljósleiðarakerfi Ásaljóss og styrk vegna hennar
Málsnúmer 2402026
Lagt fram tölvuskeyti Ástu Beggu Ólafsdóttur, dags. 14. janúar 2024, þar sem óskað er eftir ljósleiðaratengingu fyrir íbúðarhúsið Viðarás. Jafnframt er óskað eftir styrk frá sveitarfélaginu vegna þeirrar tengingar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að Viðarás verði tengt ljósleiðarakerfi Ásaljóss enda á umsækjandi lögheimili þar. Jafnframt samþykkir hreppsnefnd Ásahrepps samhljóða að veita styrk úr sveitarsjóði kr. 150.000 vegna tengingarinnar skv. samþykkt hreppsins um styrki vegna tenginga við ljósleiðarakerfi Ásaljóss.
23.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Málsnúmer 2101011
Lagt fram rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps fyrir tímabilið 1. - 31. janúar 2024.
Til kynningar.
24.
Framboð í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga
Málsnúmer 2402012
Lagt fram bréf Lánasjóðs sveitarfélaga, dags. 30. janúar 2024, þar sem auglýst er eftir framboðum í stjórn sjóðsins.
Til kynningar.
25.
Kynningarbréf um móttöku rafrænna gagna á vegum héraðsskjalasafna
Málsnúmer 2402014
Lagt fram kynningarbréf um móttöku rafrænna gagna á vegum héraðsskjalasafna og stofnun Miðstöðvar héraðsskjalasafna um rafræna skjalavörslu.
Til kynningar.
26.
Ársskýrsla og ársreikningur KFR 2022
Málsnúmer 2402020
Lögð fram ársskýrsla og ársreikningur Knattspyrnufélags Rangæinga 2022.
Til kynningar.
27.
Bréf mennta- og barnamálaráðuneytis, stefnumörkun tónlistarkennslu
Málsnúmer 2402021
Lagt fram bréf mennta- og barnamálaráðuneytis, dags. 7. febrúar 2024, þar sem kynnt er áform ráðuneytisins um stefnumörkun og heildarendurskoðun á tónlistarfræðslu á öllum skólastigum. Liður í þeirri vinnu er framkvæmd úttektar á starfsemi tónlistarskóla.
Til kynningar.
28.
Reglugerð um búfjárbeit; sjónarmið matvælaráðuneytis
Málsnúmer 2402024
Lagt fram minnisblað matvælaráðuneytis þar sem ráðuneytið vill koma á framfæri sjónarmiðum þess við sveitarfélög landsins. Minnisblaðið er eingöngu til upplýsinga.
Til kynningar.
29.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar verður haldinn 20. mars 2024 á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi. Fundur hefst klukkan 8:30.
Til kynningar.