Hreppsnefnd Ásahrepps
24. fundur
20. mars 2024
kl.
08:30
-
13:00
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson
hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson
hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 275. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 275. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð 199. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU.
Mál nr. 18; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 24-199 - 2402003F.
Lögð fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 24-199.
Lögð fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 24-199.
2.
Fundargerð 276. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 276. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU nr. 24-200.
Mál nr. 1; Ásmunarstaðir 3 (L217812); byggingarheimild; hesthús - 2403034.
Nanna Jónsdóttir vék af fundi undir þessum dagskrárlið.
Móttekin er umsókn 03.03.2024 um byggingarheimild fyrir 154,1 m2 hesthúsi í landi Ásmundarstaða 3 L217812 í Ásahreppi.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að málið fái málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna útgáfu framkvæmda- eða byggingarleyfis þar sem segir að sveitarstjórn sé heimilað að vikið sé frá kröfum 2. mgr. um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu þegar um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Mál nr. 2; Ásmúlasel L224543; Verslunar- og þjónustusvæði; Fyrirspurn - 2403035
Lögð er fram fyrirspurn til skipulagsnefndar er varðar heimild fyrir gerð skipulagslýsingar vegna breytingar á aðalskipulagi Ásahrepps. Í breytingunni felst að landbúnaðarlandi yrði breytt í verslunar- og þjónustusvæði þar sem gert væri ráð fyrir uppbyggingu á gistiþjónustu.
Hreppsnefnd gerir ekki athugasemdir við framlagða fyrirspurn og samþykkir samhljóða að unnin verði skipulags- og matslýsing sem tekur til verkefnsins þar sem ítarlegar verði gert grein fyrir umfangi verkefnisins. Hreppsnefnd bendir á að samkvæmt framlagðri kynningu verkefnisins er um verulega umfangsmikla uppbyggingu að ræða þar sem horfa þarf til ýmissa mismunandi þátta við endanlega ákvörðun um hvort unnin verði tillaga aðalskipulagsbreytingar sem tekur til málsins. Við vinnslu skipulags- og matslýsingar mælist hreppsnefndin til þess að sérstaklega verði horft til grenndaráhrifa vegna uppbyggingar og aukinnar umferðar, samfélagslegra áhrifa og hugsanlegra umhverfisáhrifa. Hreppsnefnd Ásahrepps fer fram á að mörkuð verði stefna um samráð og kynningu skipulagsáætlunar gagnvart íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum. Að þeirri vinnu kæmi hreppsnefnd Ásahrepps, skipulagsembætti Uppsveita og fyrirspurnaraðili.
Mál nr. 22; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 24-200 - 2402005F
Lögð fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 24-200.

3.
Nefnd um göngu-, reiðhjóla- og reiðleiðir í Ásahreppi - 6
Lögð fram fundargerð 6. fundar nefndar um gögnu-, reiðhjóla- og reiðleiðir í Ásahreppi.
4.
Fundargerð 106. fundar stjórnar UTU
Lögð fram fundargerð 106. fundar stjórnar UTU.Dagskrárliður nr. 1 þarnast afgreiðslu aðildarsveitarfélaga.
Nanna Jónsdóttir tók ekki þátt í afgreiðslu þessa dagskrárliðar.
Hreppsnefnd Ásahrepps ræddi framlagðar endurskoðaðar samþykktir fyrir byggðasamlagið Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að vísa málinu til annarrar umræðu og lokaafgreiðslu á næsta fundi hreppsnefndar Ásahrepps.

5.
Fundargerð faghóps og kostnaður við kortaútgáfu
Lögð fram fundargerð faghóps Markaðsstofu Suðurlands ásamt yfirliti yfir kostnað vegna prentunar og uppfærslu á Golden Cirkcle og Geopark kortunum.
Kostnaður Ásahrepps verður kr. 31.512 fyrir prentun á Katla Geopark kortinu, kr. 3.221 fyrir hönnun, umbrot og kortagerð á Katla Geopark og Golden Circle kortunum. Samtals kostnaður Ásahrepps kr. 34.733.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að greiða sinn hluta sbr. yfirlit, enda gert ráð fyrir þeim kostnaði innan fjárhagsáætlunar 2024.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að greiða sinn hluta sbr. yfirlit, enda gert ráð fyrir þeim kostnaði innan fjárhagsáætlunar 2024.
6.
Fundargerð sameiginlegs fundar sveitarstjórna í Rangárvallasýslu; sameiningarmál
Lögð fram fundargerð fundar sveitarstjórna í Rangárvallasýslu þar sem til umræðu voru möguleikar sameininga sveitarfélaga í Rangárvallasýslu.
Til kynningar.
7.
Fundargerð 2. fundar viðræðunefndar samráðsnefndar Ásahrepps og Rngárþings ytra
Lögð fram fundargerð 2. fundar viðræðunefndar samráðsnefndar Ásahrepps og Rangárþings ytra.
Til kynningar.
8.
Fundargerð 20. fundar stjórnar Odda bs
Lögð fram fundargerð 20. fundar stjórnar Odda bs.
Til kynningar.
9.
Fundargerð 3. fundar öldungaráðs Rangárvallasýslu
Lögð fram fundargerð 3. fundar öldungaráðs Rangárvallasýslu.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 4. fundar öldungaráðs Rangárvallasýslu
Lögð fram fundargerð 4. fundar öldungaráðs Rangárvallasýslu.
Til kynningar.
11.
Fundargerð 105. fundar stjórnar UTU ásamt fjárhagsáætlun UTU og Seyru 2024
Lögð fram fundargerð 105. fundar stjórnar UTU ásamt fjárhagsáætlun UTU og Seyru fyrir 2024.
Til kynningar.
12.
Fundargerð 8. fundar stjórnar Lundar
Lögð fram fundargerð 8. fundar stjórnar Lundar, Hjúkrunar- og dvalarheimilis.
Til kynningar.
13.
Fundargerð 234. fundar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu
Lögð fram fundargerð 234. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu.
Til kynningar.
14.
Fundargerð 79. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu
Lögð fram fundargerð 79. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fyrir sitt leyti reglur um akstursþjónustu, annars vegar fyrir fatlað fólk og hins vegar fyrir eldri borgara, sbr. dagskrárliði 1 og 2.
Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.
Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.
15.
Fundargerð 69. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 69. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
16.
Fundargerð 943. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 943. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
17.
Fundargerð 944. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 944. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
18.
Sameining sveitarfélaga
Umræða um næstu skref er varðar hugmyndir um sameiningu sveietarfélaga í Rangárvallasýslu. Lagt fram minnisblað sveitarstjóra um sambanburð á fjárhag sveitarfélaganna í Rangárvallasýslu.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að haldinn verði íbúafundur um þetta málefni og einnig að hreppsnefnd haldi vinnufund til að undirbúa hann. Undirbúningsfundur hreppsnefndar verður haldinn sama dag og fulltrúar Steinar Resort ehf koma á kynningarfund 5. mars n.k. Oddvita og sveitarstjóra falið að ræða við fulltrúa KPMG að koma að undirbúnigi íbúafundar í Ásahreppi.
19.
Kynning á BPO Innheimtu ehf.
Lagt fram tölvuskeyti BPO Innheimtu ehf. þar sem þjónusta þeirra er kynnt. Hreppsnefnd Ásahrepps þarf að taka afstöðu til þess hvort bjóða eigi út þessa þjónustu, en samningur við Motus er laus um næstu áramót ef þjónustunni er sagt upp fyrir lok júnímánaðar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að halda áfram að nýta þjónustu Mótus.
20.
Erindi Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suðurlands; styrktaraðilar
Lagt fram bréf Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suðurlands, dags. febrúar 2024, þar sem Ásaheppi er boðið að gerast styrktaraðili að sjóðnum til að styrkja það verkefni að veita árlega styrk úr sjóðnum til námsmanna í masters- og doktorsnámi.
Hreppsnefnd Ásahepps samþykkir að gerast styrktaraðili og greiða styrk kr. 50.000 á ári næstu þrjú árin.
21.
Svæðisskipulag Suðurhálendis 2022-2042, til afgreiðslu
Lögð er fram tillaga að svæðisskipulagi Suðurhálendisins 2022-2042 eftir auglýsingu. Innan tillögunnar er mótuð framtíðarsýn fyrir Suðurhálendið um sterka innviði, umhyggju fyrir auðlindum, ábyrga nýtingu auðlinda, aðgerðir fyrir loftslagið og góða samvinnu. Tillögunni fylgir greinargerð um landslagsgreiningu fyrir Suðurhálendi, sem er fylgirit svæðisskipulagsins. Tillagan nær yfir hálendishluta sveitarfélaganna Skaftárhrepps, Mýrdalshrepps, Rangárþings eystra, Rangárþings ytra, Ásahrepps, Skeiða- og Gnúpverjahrepps, Hrunamannahrepps, Bláskógabyggðar, og Grímsnes- og Grafningshrepps. Auk þeirra hafa sveitarfélögin Flóahreppur og Árborg tekið þátt í verkefninu. Tillagan var auglýst frá 15. nóvember 2023 til og með 19. janúar 2024. Athugasemdir og umsagnir bárust við tillöguna og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins eftir auglýsingu auk samantektar á andsvörum og viðbrögðum svæðisskipulagsnefndar fyrir Suðurhálendið.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti uppfærða og fyrirliggjandi tillögu og greinargerðir að svæðisskipulagi fyrir Suðurhálendið.
22.
Beiðni um umsögn; Vonarskarð
Lagt fram bréf Vatnajökulsþjóðgarðs, dags. 29. febrúar 2024, þar sem stjórn VJÞ óskar eftir umsögn Ásahrepps um framtíðarskipulag náttúruverndar og innviða innan landslagsheildarinnar í Vonarskarði.
Hreppsnefnd Ásahrepps er reiðubúin að samþykkja haustumferð vélknúinna ökutækja til viðbótar við þær heimildir sem til staðar eru, til tilraunar til þriggja ára. Hreppsnefnd mun ekki breyta Aðalskipulagi Ásahepps nema að undangengnum tilraunatíma til að meta árangur og áhrif þessara haustopnunar á umhverfi svæðisins. Krafa er gerð er að útivistarfélögin muni vera tilbúin að taka ábyrgð á því að umrædd leið verði stikuð áður en til opnunar komi og jafnframt verja viðkvæm svæði s.s. Snapadali.
Hreppsnefnd Ásahrepps óskar eftir því að stjórn VJÞ skoði hvort þetta sé fær leið. Sé svo óskar hreppsnefnd einnig eftir að fá skýrslu frá VJÞ um árangur og áhrif þessarar ákvörðunar.
Hreppsnefnd Ásahrepps óskar eftir því að stjórn VJÞ skoði hvort þetta sé fær leið. Sé svo óskar hreppsnefnd einnig eftir að fá skýrslu frá VJÞ um árangur og áhrif þessarar ákvörðunar.
23.
Grunnsamkomulag um afnotarétt í þjóðlendu vegna skálasvæðanna; Illugaver, Sylgjufell, Þúfuvatnaskáli og Lindarkot
Lögð fram grunnsamkomulög milli Ásahrepps og forsætisráðuneyti ásam uppdráttum af skálasvæðunum: Illugaver, Sylgjufell - lóð, Þúfuvatnaskáli og Lindarkot.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi samkomulög þessara skálasvæða og felur sveitarstjóra að þinglýsa þessum skjölum.
24.
Ósk um viðræður vegna hugmynda um kaup á skála á Holtamannaafrétti
Lagt fram tölvuskeyti Ferðaklúbbsins 4x4 þar sem óskað er eftir viðræðum við hreppsnefnd Ásarhepps um möguleika á kaupum á skála eða lóð á Holtamannaafrétti norðan við Þórisvatn.
Hreppsnefnd Ásahrepps bendir bréfriturum á að fljótlega verða samningar um nýtingarétt sveitarfélagsins á lóðum skálasvæða á Holtamannaafrétti þinglýstir. Þegar því er lokið verður þessum lóðum s.s. Illugaver auglýst laus til umsóknar og skálinn auglýstur til leigu samhliða.
25.
Beiðni um fund vegna hugmynda um dagdvöl að Lundi ásamt ráðningu iðjuþjálfa
Lagt fram tölvuskeyti Rangárþings ytra, dags. 13. mars 2024, þar sem óskað er eftir fundi til að ræða dagdvalarmál og ráðningu iðjuþjálfa hjá Lundi Hjúkrunar- og dvalarheimili. Einnig lögð fram tillaga fulltrúa D-lista Rangárþings ytra ásamt greinargerð.
Hreppsnefnd Ásahrepps tekur jákvætt í erindið og lýsir sig reiðubúna til að ræða þessi mál við fulltrúa sveitarstjórnar Rangárþings ytra. Oddvita og sveitarstjóra falið að ræða við fulltrúa Rangárþings ytra.
26.
Kynning hugmynda um beiðni um breytingu aðalskipulags Ásahrepps; Ásmúlasel (L224543)
Fulltrúar Steinar Resort ehf koma á fund hreppsnefndar Ásahrepps til að kynna sínar hugmyndir er varðar aðalskipulagsbreytingu á landinu Ásmúlasel (L224543) og Ásmúla 1C (L224542).
Fulltrúar Steinar Resort ehf höfðu hug á að kynnta hugmyndir sínar sem liggja að baki fyrirsprunar sem lögð var fram á fundi skipulagsnefndar UTU 13. mars s.l. Vísað er til dagskrárliðar 2 í þessari fundargerð, mál nr. 2.
Ekki reyndist unnt hjá þeim að mæta til fundar með hreppsnefnd í dag, en óska eftir aukafundi við fyrstu hentugleika. Samþykkt samhljóða að stefna að fundi þann 5. apríl n.k.
Ekki reyndist unnt hjá þeim að mæta til fundar með hreppsnefnd í dag, en óska eftir aukafundi við fyrstu hentugleika. Samþykkt samhljóða að stefna að fundi þann 5. apríl n.k.
27.
Yfirlýsing um stuðning ríkissjórnarinnar og Sambandsins vegna kjarasamninga
Lögð fram sameiginleg yfirlýsing ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga, mars 2024, sem hefur það markmið að greiða fyrir langtímakjarasamningi á vinnumarkaði.Einnig lögð fram áskorun Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 8. mars 2024, vegna framlagðrar yfirlýsingar.
Hreppsnefnd Ásahepps bendir á að ekki hafi orðið miklar breytingar á gjaldskrám sveitarfélagsins. Til að mynda er álagningarhlutfall A-hluta fasteignagjalda lækkað úr 0,20 í 0,15. Gjaldskrá sorphirðu er óbreytt frá síðasta ári. Rétt er að benda á að vegna barna 0-18 mánaða þá hefur sveitarfélagið samþykkt heimgreiðslur vegna barna sem ekki eru á leikskóla og ekki er innheimt gjald vegna skólamáltíða barna í Ásahreppi.
28.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Lagt fram rekstraryfirlit fyrir sveitarstjóð Ásahrepps fyrir tímabilið 1. janúar - 29. febrúar 2024.
Til kynningar.
29.
80 ára afmæli lýðveldisins
Lagt fram bréf forsætisráðuneytis, dags. 7. mars 2024, þar sem kynnt er skipun nefndar um 80 ára afmæli íslenska lýðveldisins og kynning á dagskrár af þessu tilefni. Óskað er eftir samstarfi við sveitarfélög landsins í tengslum við hátíðardagskrána með miðlun og hvatningu til þátttöku.
Til kynningar.
30.
Úthlutun úr Landbótasjóði 2024
Lagt fram bréf Lands og skógar, Landbótasjóði, dags. 8. mars 2024, þar sem kynnt er úthlutun úr Landbótasjóði fyrir árið 2024. Ásahreppur fékk úthlutað kr. 3.010.000 vegna verkefnanna á árinu 2024.
Sveitarstjóra falið að óska eftir tilboðum í áburðarkaup fyrir veitta styrkfjárhæð, svo og fyrir áburð sem Landsvirkjun greiðir fyrir skv. samkomulagi um mótvægisaðgerðir.
Til kynningar.
Til kynningar.
31.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn 17. apríl 2024 á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi. Fundur hefst klukkan 8:30.
Til kynningar.