Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

25. fundur
17. apríl 2024 kl. 08:30 - 12:10
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 277. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2404015
Lögð fram fundargerð 277. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 24-201.
Mál nr. 1; Dvergabakki L165303; Dvergabakki A; Ný lóð; Reisa 6 smáhýsi; Deiliskipulag - 2403006
Lögð er fram tillaga deiliskipulags sem tekur til lóðar Dvergabakka L1653030 í Ásahreppi. Í skipulaginu felst skilgreining byggingarreita og byggingarheimilda fyrir gestahús innan jarðarinnar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að deiliskipulagið verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.

Mál nr. 2; Lækjarás L206942; Ný íbúðarhúsalóð; Deiliskipulagsbreyting - 2403056
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar er varðar Lækjarás L206942. í breytingunni felst skilgreining nýs byggingarreits og lóðar innan lóðar Lækjaráss L206942.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða viðkomandi breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingar á deiliskipulagi.

Mál nr. 32; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 24-201 - 2403002F
Lögð fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 24-201.
2.
Fundargerð 278. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2404022
Lögð fram fundargerð 278. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð 202. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU.
Mál nr. 25; Afgreiðslur byggingarfulltrúa 24-202 - 2403004F
Lög fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 24-202.
3.
Fundargerð 22. fundar stjórnar Odda bs.
Málsnúmer 2404009
Lögð fram fundargerð 22. fundar stjórnar Odda bs. ásamt ársreikningi Odda bs fyrir rekstrarárið 2023, tillögu að breytingu á gjaldskrá Odda bs 2024 og skýrslu Skólastofunnar um mat á starfi Grunnskólans Hellu og Laugalandsskóla.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir fyrir sitt leyti ársreikning Odda bs. fyrir rekstrarárið 2023 og einnig tillögu að breytingu gjaldskrár Odda bs 2024, sem taki gildi frá og með 1. júlí 2024.
Varðandi 5. lið fundargerðar, skýrsla Skólastofunnar um mat á skólastarfi Grunnskólans Hellu og Laugalandsskóla, þá vill hreppsnefnd Ásahrepps beina til stjórnar Odda bs áhyggjum sínum um starfsemi Skólaþjónustunnar. Fram koma ábendingar um veikleika í þjónustu Skólaþjónusstunnar.
Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.
4.
Fundargerð 8. fundar stjórnar Húsakynna bs.
Málsnúmer 2404023
Lögð fram fundargerð 8. stjórnarfundar Húsakynna bs.
Mál nr. 1; Húsrýmisáætlun - Frumdrög (2310065)
Stjórn Húsakynna bs bókaði:
Birgir Teitsson kynnti vinnu sem þau Eyrún Stefánsdóttir hafa unnið með stjórnendum skóla og leikskóla varðandi nýtingu húsnæðis ásamt að áætla stækkun sem ætlað er að þurfi til að skóla- og leikskólastarf geti þróast til framtíðar.
Kallar þetta á tilfærslu á þjónustu sem nú er til staðar í húsnæði og framkvæmdir til að bæta við einni deild á Leikskólanum Laugalandi og til að bæta við kennslurými fyrir Grunnskólann Laugalandi. Lagt er til að farið verði í nauðsynlegan undirbúning og framkvæmdir til að skóla- og leikskólastarf megi vera með eðlilegum hætti næsta haust. Lagt er upp með að nýta bókasafnsrými fyrir kennslurými. Skrifstofuaðstaða Ásahrepps undir nýja deild leikskóla. Jafnframt verður unnið að breytingu á skólastjórabústað svo hann nýtist sem skrifstofu og fundaraðstaða. Einnig skal aðlaga efstu hæð gömlu skólabyggingar að skólastarfi. Sveitarstjórum er falið að ræða við FSRE um eignarhald þeirra eigna sem ekki er komið í eigu Húsakynna.
Fostöðumanni Eigna- og framkvæmdasviðs er falið að halda áfram undirbúningsvinnu með áætlun um tímalínu og kostnað á annarsvegar 1. áfanga ásamt heildarverkefni. Stefnt er að því að halda kynningarfund fyrir íbúa þegar þessari vinnu er lokið. Samþykkt samhljóða.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir afgreiðslu stjórnar Húsakynna bs. fyrir sitt leyti.

Mál nr. 2; Ársreikingur Húsakynna
Stjórn Húsakynna bókaði:
Kynntur var endurskoðaður ársreikningur Húsakynna bs. fyrir árið 2023.
Fjárfesting ársins var um 4,8 mkr.
Ársreikningurinn var samþykktur samhljóða.

Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir samhljóða fyrir sitt leyti fyrirliggjandi ársreikning Húsakynna bs fyrir rekstrarárið 2023.
5.
Fundargerð 81. fundar stjórnar Brunavarna Rangárvallasýslu bs.
Málsnúmer 2404018
Lögð fram fundargerð 81. fundar stjórnar Brunavarna Rangárvallasýslu bs. ásamt ársreikningi fyrir rekstrarárið 2023.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir samhljóða fyrir sitt leyti framlagðan ársreikning Brunavarna Rangárvallasýslu bs. fyrir rekstrarárið 2023.
Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.
6.
Fundargerð 235. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Málsnúmer 2404024
Lögð fram fundargerð 235. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs ásamt ársreikningi fyrir rekstrarárið 2023.
Lögð fram til kynningar.
7.
Fundargerð 32. fundar stjórnar Tónlistarskóla Rangæinga
Málsnúmer 2404014
Lögð fram fundargerð 32. fundar stjórnar Tónlistarskóla Rangæinga ásamt ársreikningi Tónlistarskólans fyrir rekstrarárið 2023.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir samhljóða fyrir sitt leyti ársreikning Tónlistarskólans 2023.
Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.
8.
Fundargerð 80. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu
Málsnúmer 2404003
Lögð fram fundargerð 80. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu (FSRV), ásamt ársreikningi byggðasamlagsins fyrir rekstrarárið 2023.
Varðandi dagskrár lið nr. 1 í fundargerð, þá staðfestir hreppsnefnd Ásahrepps samhljóða fyrir sitt leyti framlagðan ársreikning byggðasamlagsins 2023.
Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.
9.
Fundargerð 70. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Málsnúmer 2404001
Lögð fram fundargerð 70. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Varðandi 4. dagskrárlið fundargerðar, þá staðfestir hreppsnefnd Ásahrepps samhljóða fyrir sitt leyti gjaldskrá vegna stuðningsfjölskyldna og notendasamninga.
Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.
10.
Fundargerð 21. fundar stjórnar Odda bs.
Málsnúmer 2404008
Lögð fram fundargerð 21. fundar stjórnar Odda bs.
Til kynningar.
11.
Fundargerð 234. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Málsnúmer 2404011
Lögð fram fundargerð 234. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Til kynningar.
12.
Fundargerð 107. fundar stjórnar UTU
Málsnúmer 2404010
Lögð fram fundargerð 107. fundar stjórnar UTU.
Til kynningar.
13.
Fundargerð 234. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Málsnúmer 2404007
Lögð fram fundargerð 234. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands, ásamt ársreikningi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands fyrir rekstrarárið 2023.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir samhljóða fyrir sitt leyti framlagðan ársreikning en fundargerð er lögð fram til kynningar.
14.
Fundargerð 6. fundar stjórnar Markaðsstofu Suðurlands
Málsnúmer 2404013
Lögð fram fundargerð 6. fundar stjórnar Markaðsstofu Suðurlands.
Til kynningar.
15.
Fundargerð 7. fundar stjórnar Markaðsstofu Suðurlands
Málsnúmer 2404012
Lögð fram fundargerð 7. fundar stjórnar Markaðsstofu Suðurlands.
Til kynningar.
16.
Fundargerð 945. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2404000
Lögð fram fundargerð 945. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
17.
Fundargerð 946. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2404002
Lögð fram fundargerð 946. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
18.
Ársreikningur Ásaljóss fyrir rekstrarárið 2023
Málsnúmer 2404025
Lagður fram Ársreikningur Ásaljóss fyrir rekstrarárið 2023.
Ársreikningurinn er kynntur af endurskoðanda og sveitarstjóra og fyrirspurnum svarað.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi ársreikning Ásaljóss 2023 og áritar hann.

Helstu kennitölur ársreikingsins eru:
Rekstrartekjur: kr. 6.412.850
Rekstrarkostnaður: kr. 2.758.994
Afskriftir: kr. 3.810.835
Fjármagnsgjöld: kr. 54.335
Rekstrarniðurstaða: kr. -211.314

Eignir samtals: kr. 75.934.853
Skuldir samtals: kr. 3.779.986
Eigið fé samtals: kr. 72.154.867
Eigið fé og skuldir samtals: kr. 75.934.853

Handbært fé: kr. 7.791.205
19.
Ársreikningur Ásahepps fyrir árið 2023; fyrri umræða
Málsnúmer 2404026
Lagður fram til fyrri umræðu ársreikningur sveitarsjóðs Ásahrepps fyrir rekstrarárið 2023 ásamt sundurliðun og samstæðuyfirliti.
Lagður fram til fyrri umræðu ársreikningur sveitarsjóðs Ásahrepps fyrir rekstrarárið 2023 ásamt sundurliðun og samstæðuyfirliti.

Endurskoðandi og sveitarstjóri fóru yfir ársreiking og skýrðu ýmsa liði, ásamt því að svara fram komnum fyrirspurnum.

Hreppsnefnd Ásahrepps þakkar endurskoðanda fyrir greinagóða yfirferð og vísar ársreikingi Ásahrepps til síðari og loka umræðu á næsta reglubundna fundi hreppsnefndar þann 15. maí 2024.
20.
Ný gjaldskrá Brunavarna Rangárvallasýslu bs.
Málsnúmer 2404006
Lögð fram tillaga að nýrri og endurskoðaðri gjaldskrá Brunavarna Rangárvallasýslu bs. en gildandi gjaldskrá er 216/2023. Í tillögunni eru sérstaklega dregnir fram þeir þættir sem gerð er tillaga um sem breytingar á gildandi gjaldskrá.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fyrir sitt leyti fram lagða gjaldskrá Brunavarna Rangárvallasýslu bs. með þeirri ábendingu að nauðsynlegt er að tilgreina við hvaða vísitölu gjaldskráin er tengd.
21.
Aðalskipulagsbreyting; Skeiða- og Gnúpverjahreppur, áhrifasvæði Búrfellslundar og nýtt afþreyingar og ferðamannasvæði; lýsing
Málsnúmer 2404016
Lagt fram tölvuskeyti Skipulagsgáttarinnar, dags. 27. mars 2024, ásamt skipulagslýsingu á breytingu aðalskipulags Skeiða- og Gnúpverjahrepps sem lýtur að stefnu fyrir áhrifasvæði Búrfellslundar og nýtt afþreyingar- og ferðamannasvæði. Umsagnaraðilum er veittur frestur til 19. apríl n.k. til að veita umsögn um lýsinguna.
Hreppsnefnd Ásarhrepps gerir engar athugasemdir á þessu stigi málsins.
22.
Öruggara Suðurlands - svæðisbundið samráð
Málsnúmer 2404017
Lögð fram tölvuskeyti, annars vegar frá Lögreglustjóranum á Suðurlandi og hins vegar frá Félags- og skólaþjónustu vegna vinnustofu sem boðað hefur verið til þann 18. apríl 2024 í Þorlákshöfn. Þar stendur til að undirrita samstarfsyfirlýsingu um svæðisbundið samráð og aðgerðir gegn ofbeldi og öðrum afbrotum undir yfirskriftinni "Öruggara Suðurland". Einnig mun við þetta tilefni verða tilnefnt í framkvæmdateymi í tengslum við samstarfsyfirlýsinguna.
Hreppsnefnd Ásahrepps lýst vel á þessa hugmynd um samstarf á þessu sviði og felur sveitarstjóra að mæta fyrir hönd Ásahrepps á umrædda vinnustofu og felur honum jafnframt að undirrita samstarfsyfirlýsinguna fyrir hönd Ásahrepps. Jafnframt samþykkir hreppsnefnd Ásahrepps samhljóða að tilnefna Svövu Davíðsdóttur og Ingu Jöru Jónsdóttur í framkvæmdateymi fyrir hönd sveitarfélagsins.
23.
Styrkbeiðni; Kraftur stuðningsfélag
Málsnúmer 2404019
Lagt fram tölvuskeyti Krafts stuðningsfélags, dags. 5. apríl 2024, þar sem óskað er eftir fjárstyrk vegna útgáfu Kraft-blaðsins.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita félaginu styrk að upphæð kr. 10.000.
24.
Styrkbeiðni; Hjálparstarf kirkjunnar - stuðningur til efnaminni fjölskyldna
Málsnúmer 2404020
Lagt fram tölvuskeyti Hjálparstarfs kirkjunnar, dags. 20. mars 2024, þar sem óskað er eftir fjárstyrk til útgáfu fréttablaðs Hjálparstarfsins, sem er ein af fjármögnunarleiðum í stuðningi við efnaminni fjölskyldur.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita styrk að upphæð kr. 10.000.
25.
Endurskoðun samþykkta fyrir Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita bs; síðari umræða
Málsnúmer 2404021
Lögð fram til síðari umræðu tillaga að endurskoðaðri samþykkt fyrir Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita bs. Fyrri umræða var tekin á 24. fundi hreppsnefndar Ásahrepps.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu.
26.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Málsnúmer 2101011
Lagt fram rekstraryfirlit fyrir sveitarstjóð Ásahrepps yfir tímabilið 1. janúar 2024 - 31. mars 2024.
Til kynningar.
27.
Samtök orkusveitarfélaga; ársreikningur 2023
Málsnúmer 2404004
Lagður fram ársreikningur Samtaka orkusveitarfélaga fyrir rekstrarárið 2023.
Til kynningar.
28.
Saman gegn sóun; ný stefna í úrgangsmálum
Málsnúmer 2404005
Lagt fram tölvuskeyti Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags 27. mars 2024, þar sem sveitarfélögum er gefinn kostur að að hafa áhrif á nýja stefnu í úrgangsmálum, "Saman gegn sóun".
Til kynningar.
29.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar verður haldinn 15. maí 2024. Fundurinn verður haldinn á skrifstofu Ásahrepps og hefst klukkan 8:30.
Til kynningar.