Hreppsnefnd Ásahrepps
26. fundur
15. maí 2024
kl.
08:30
-
13:40
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson
hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson
hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Reynir Örn Pálmason
varamaður í hreppsnefnd
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Oddviti gerði tillögu um dagskrárbreytingu að inn komi nýr dagskrárliður nr. 32 og aðrir liðir færist til sem því nemur. Samþykkt samhljóða.
Dagskrá
1.
Fundargerð 279. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 279. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð 203. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa UTU.
Mál nr. 1; Sigöldustöð; Sigölduvirkjun L165348; Aðstöðuhús; Deiliskipulagsbreyting - 2404050.
Óskað er eftir heimild til að breyta deiliskipulagi Sigöldustöðvar, breytingin nær til Ásahrepps og Rangárþings ytra. Vegna fyrirhugaðrar stækkunar virkjunarinnar þarf að gera ráð fyrir ýmiss konar aðstöðu fyrir starfsfólk og verktaka. Í Ásahreppi er reiknað með að vera með sprengiefnageymslu. Líkleg staðsetning er á steyptum grunni sem er til staðar norðan við inntak virkjunar, skammt frá Krókslóni. Aðkoma yrði um veg sem liggur með inntaksskurði. Svæðið er nokkuð afskekkt og ólíklegt að fólk verði þar á ferli því fara þyrfti í gegnum framkvæmdasvæðið. Aðstaða starfsfólks, steypustöð, verkstæði, lagersvæði, vatnsból og haugsvæði verður sunnan Tungnaár, í Rangárþingi ytra. Reiknað er með umferð stórra bíla um vað á Tungnaá, skammt fyrir ofan Sigöldufoss. Vaðið hefur áður verið notað vegna viðhalds mannvirkja í Ásahreppi. Með því að umferð stórra bíla fari um vaðið minnkar þörf fyrir akstur um Fjallabaksleið nyrðri.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemd við að heimild verði veitt fyrir vinnslu deiliskipulagsbreytingar á grundvelli framlagðrar beiðni.
Mál nr. 20; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 24-203 - 2404002F.
Lögð fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 24-203.

2.
Fundargerð 280. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 280. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU nr. 24-204.
Mál nr. 1; Holtamannaafréttur; Skilgreining efnistökusvæðis; Aðalskipulagsbreytig - 2405016.
Lögð er fram beiðni frá Landsvirkjun er varðar skilgreiningu efnistökusvæði á austanverðum Búðarhálsi, milli Tungnaár og vegarins að Sporðöldustíflu innan aðalskipulags Ásahrepps. Efnistökusvæðið er á gildandi deiliskipulagi Búðarhálsvirkjunar, merkt E3. Stærð námu verði 2,3 ha og heimiluð efnistaka 33 þús m3.
Hreppsnefnd Ásahrepps bendir á að innan aðalskipulags Ásahrepps er skilgreint efnistökusvæði E8 á umræddu svæði. Er svæðið skilgreint sem náma vegna vegagerðar, 1 ha að stærð með efnismagni allt að 10.000 m3. Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemd við að unnin verði breyting á aðalskipulagi þar sem stærð og efnismagn svæðisins verði aukið í takt við framlagða umsókn. Mælist hreppsnefndin til þess að leitað verði álits Skipulagsstofnunar á því hvort umrædd breyting gæti talist óveruleg breyting á aðalskipulagi í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Mál nr. 26; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 24-204 - 2404004F.
Lögð fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 24-204.

3.
Fundargerð kjörstjórnar Ásahrepps, dags. 7. maí 2024
Lögð fram fundargerð kjörstjórnar Ásarhepps, dags. 7. maí 2024. Kjörstjórn samþykkir samhljóða að kjörfundur vegna forsetakosninga þann 1. júní 2024 verði frá klukkan 10:00 til 18:00. Einnig kemur fram ábending frá kjörstjórn um ófullnægjandi aðstæður til að halda kjörfund í félagsheimilinu Ásgarði, að teknu tilliti til forskrift arLandskjörstjórnar um aðgengi á kjörstað.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að taka undir með kjörstjórn, að Ásgarður sé ekki ásættanlegur kjörstaður vegna aðstæðna og ástands hússins. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að kjörfundur Ásahrepps verði haldinn að Laugalandi og sveitarstjóra ásamt formanni kjörstjórnar falið að útfæra skipulag og framkvæmd kjörfundar og að þessi breyting verði kynnt vel og leiðbeiningar þar um settar upp.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi fundargerð.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi fundargerð.
4.
Nefnd um göngu-, reiðhjóla- og reiðleiðir í Ásahreppi - 7
Lögð fram fundargerð 7. fundar nefndar um göngu-, reiðhjóla- og reiðstíga í Ásahreppi.
Sveitarstjórn Ásahrepps staðfestir fyrirliggjani funargerð samhljóða.
5.
Fundargerð 236. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Lögð fram fundargerð 236. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs. ásamt ársreikningi 2023.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir ársreikninginn fyrir sitt leyti.
Fundargerð að öðru leyti til kynningar.
Fundargerð að öðru leyti til kynningar.
6.
Fundargerð 23. fundar stjórnar Odda bs.
Lögð fram fundargerð 23. fundar stjórnar Odda bs.
Til kynningar.
7.
Fundargerð 24. fundar stjórnar Odda bs.
Lögð fram fundargerð 24. fundar stjórnar Odda bs.
Til kynningar.
8.
Minnisblað vegna fundar Landsvirkjunar með fulltrúum sveitarstjórna Rangárþings ytra og Ásahrepps
Lagt fram minnisblað vegna fundar fulltrúa sveitarstjórna Rangárþings ytra og Ásarhepps með fulltrúum Landsvirkjunar sem haldinn var 15. apríl 2024.
Til kynningar.
9.
Fundargerð fundar Héraðsráðs Héraðsnefndar Rangæinga, 18. apríl 2024
Lögð fram fundargerð héraðsráðs Héraðsnefndar Rangæinga, dags. 18. apríl 2024.
Til kynningar.
10.
Fundargerð stjórnar Skógasafns, dags. 12. mars 2024
Lögð fram fundargerð stjórnar Skógasafns, dags. 12. mars 2024.
Til kynningar.
11.
Fundargerð aðalfundar Skógasafns, 22. apríl 2024.
Lögð fram fundargerð aðalfundar Skógasafns, dags. 22. apríl 2024, ásamt ársreikningi 2023 og endurskoðunarskýrslu.
Til kynningar.
12.
Fundargerð 108. fundar stjórnar UTU
Lögð fram fundargerð 108. fundar stjórnar Umhverfis- og tæknisviðs Uppsveita bs.
Til kynningar.
13.
Fundargerð 109. fundar stjórnar UTU
Lögð fram fundargerð 109. fundar stjórnar Umhverfis- og tæknisviðs Uppsveita bs. ásamt ársreikningi fyrir rekstrarárið 2023.
Til kynningar.
14.
Fundargerð 114. fundar svæðisráðs vestursvæðis VJÞ
Lögð fram fundargerð 114. fundar svæðisráðs vestursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðar.
Til kynningar.
15.
Fundargerð 115. fundar svæðisráðs VJÞ
Lögð fram fundargerð 115. fundar svæðisráðs vestursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs.
Til kynningar.
16.
Fundargerð 71. fundar stjórnar Bergrisans bs
Lögð fram funargerð 71. fundar stjórnar Bergsisans bs.
Til kynningar.
17.
Fundargerð 72. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Lögð fram fundargerð 72. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
18.
Fundargerð 325. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Lögð fram fundargerð 325. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Til kynningar.
19.
Fundargerð 235. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Lögð fram fundargerð 235. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands.
Til kynningar.
20.
Fundargerð 70. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 70. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
21.
Fundargerð 71. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélga
Lögð fram fundargerð 71. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
22.
Fundargerð 947. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 947. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
23.
Ársreikningur Ásahepps fyrir árið 2023; síðari umræða
Lagður fram til síðari umræðu ársreikningur Ásahrepps fyrir rekstrarárið 2023 ásamt sundurliðunum.Helstu kennitölur samstæðureiknings eru eftirfarandi í þús. kr.:REKSTRARREIKNINGUR:Rekstrartekjur: 536.836Rekstrargjöld: -460.580Afskriftir: -24.413Fjármagnsgjöld: -3.741Rekstrarniðurstaða jákvæð: 48.102EFNAHAGSREIKNINGURFastafjármunir: 489.795Veltufjármunir: 312.173Eignir samtals: 801.967Eigið fé: 617.054Skuldbindingar: 7.064Langtímaskuldir: 89.271Skammtímaskuldir: 88.577Eigið fé og skuldir samtals: 801.967Handbært fé í árslok: 210.879Veltufjárhlutfall: 3,52Eiginfjárhlutfall: 76,9%Skuldahlutfall: 34,4%Jafnvægisregla - rekstrarjöfnuður: 57.055
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi ársreikning og staðfestir hann með áritun sinni.
24.
Sameining sveitarfélaga
Hreppsnefnd Ásahrepps hélt íbúafund þann 22. apríl 2024 þar sem sameining sveitarfélaga var umræðuefni fundarins. Fulltrúar KPMG stýrðu fundi og kynntu ýmsar forsendur sameiningarmála. Lögð var fram niðurstaða þess fundar sem KPMG hefur unnið úr svörun fundarmanna á fundinum.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að vera með skoðanakönnun um sameiningu sveitarfélaga samhliða forsetakosningum 1. júní 2024. Þessi ákvörðun er tekin í ljósi þess að dræm þátttaka var á íbúafundi sem haldinn var um sameiningu sveitarfélaga þann 22. apríl 2024. Hreppsnefnd telur að nauðsynlegt sé að fá skýrari leiðbeiningar frá íbúum sveitarfélagsins áður en frekari ákvörðun er tekin um sameineingarviðræður.
25.
Uppfærsla á heimasíðu Ásahrepps
Lagt fram tölvuskeyti Tactica ehf, dags. 19. apríl 2024, þar sem farið er yfir möguleika á að uppfæra heimasíðu Ásahrepps úr Drupal 7 í Backdrop CMS. Vinna við uppfærsluna má áætla um 4 klst og kostnaður því um 125 þús. kr. með VSK.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að uppfæra heimasíðuna og fá Tactica til að sjá um það verk.
26.
Sameiginleg undirsíða fyrir frístundir í Rangárvallasýslu og Mýrdalshreppi
Lagt fram tölvuskeyti Stefáns Friðriks Friðrikssonar hjá Rangárþingi eystra, dags. 29. apríl 2024, sem varðar sameiginlega undirsíðu fyrir frístundir í Rangárvallasýslu og Mýrdalshreppi.
Hreppsnefnd Ásahrepps tekur jákvætt í þessa hugmynd og óskar eftir frekari upplýsingum um verkefnið og kostnað við uppsetningu og rekstur þess.
27.
Fyrirspurn Fishpartners um stöðuhýsi við skálann á Þóristungum
Lagt fram tölvuskeyti Fishpartners, dags. 19. apríl 2024, þar sem óskað er eftir afstöðu til þess að sett verði niður stöðuhýsi á Þóristungum, sem nýtt yrði sem starfsmannaaðstaða á staðnum.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að taka jákvætt í erindið.
28.
Þingmál 899 og 900; þingsályktunartillaga og frumvarp til laga sem lýtur að vindorku
Lögð fram tölvuskeyti frá nefndarsviði Alþingis þar sem sveitarfélaginu er gefinn kostur á að veita umsögn um þingmál 899 og 900. Um er að ræða:Þingmál 899; tillaga til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu vindorku á Íslandi.Þingmál 900; frumvarp til laga um verndar- og orkunýtingaráætlun.Einnig er lögð fram umsögn stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga um þessi þingmál.
Hreppsnefnd Ásahrepps tekur undir umsögn Samtaka orkusveitarfélaga.
29.
Endurskoðun samþykkta fyrir Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita bs; síðari umræða
Lagðar fram til seinni og lokaumræðu endurskoðaðar samþykktir fyrir byggðasamlagið Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita. Einnig lögð fram fundargerð 110. fundara stjórnar UTU.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti tillögu að endurskoðuðum samþykktum fyrir Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita bs.
30.
Bifreið utan þjóðvegar nr. 1 móts við Hárlaugsstaði
Lagt fram tölvuskeyti Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, dags. 17. apríl 2024, vegna bifreiðar utan Suðurlandsvegar á móts við Hárlaugsstaði. Heilbrigðiseftirlitið býðst til að sjá um að fjarlægja bifreiðina en kostnaðurinn yrði greiddur af Ásaheppi.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að fela Heilbrigðiseftirliti Suðurlands að fjarlægja umrædda bifreið fyrir hönd Ásahrepps.
31.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Lagt fram rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps fyrir tímabilið 1. janúar - 30. apríl 2024.
Til kynningar.
32.
Bréf Lögmanna Árbæ slf, dags. 17. apríl 2024, Reið- og útivistarstígur um Faxatröð
Lagt fram bréf Lögmanna Árbæ slf, dags. 17. apríl 2024, þar sem kynnt er að Grétar H. Guðmundsson hyggist kanna rétt sinn hjá kærunefnd útboðsmála varðandi verðkönnun Ásahrepps vegna lagningu reiðvegar um Faxatröð.
Til kynningar
33.
Bréf Orlofssjóðs húsmæðra ásamt skýrslu og ársreikningi 2023
Lagt fram bréf Orlofssjóðs húsmæðra í Árnes- og Rangárvallasýslu, dags. 3. maí 2024, ásamt ársskýrslu og ársreikningi 2023.
Til kynningar.
34.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn 26. júní 2024 á skrifstofu sveitarfélagsins að Laugalandi. Fundur hefst klukkan 8:30.
Til kynningar.