Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

28. fundur
26. júní 2024 kl. 08:30 - 11:30
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir hreppsnefndarfulltrúi
Reynir Örn Pálmason varamaður í hreppsnefnd
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Oddviti gerði tillögu um dagskrárbreytingu, að inn komi nýr dagskrárliður nr. 5 og aðrir síðari dagskrárliðir færist til sem því nemur. Samþykkt samhljóða.
Dagskrá
1.
Fundargerð 281. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2406021
Lögð fram fundargerð 281. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð 205. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU.
Mál nr. 1; Ásmúlasel L224543, Ásmúli 1B L224541 og 1C L224542; Verslunar- og þjónustusvæði; Aðalskipulagsbreyting - 2405053
Lögð er fram skipulagslýsing sem tekur til breytinga á aðalskipulagi og nýju deiliskipulagi fyrir Ásmúlasel, Ásmúla 1B og Ásmúla 1C í Ásahreppi. Landeigandi fyrirhugar að byggja upp ferðaþjónustu á svæðinu þar sem boðið er upp á fjölbreytt gistirými, veitingaþjónustu og baðtengda afþreyingu. Mikil eftirspurn er eftir gistimöguleikum í sveitarfélaginu og framkvæmdarsvæðið er vel staðsett m.t.t ferðamannastaða á Suðurlandi. Stefnt er að byggja upp um 220 herbergja hótel, allt að 165 stakstæð smáhýsi og allt að 55 starfsmannaíbúðir innan lóðarinnar.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir skipulagslýsingu til kynningar og umsagna í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nauðsynlegt að kynna framlagða skipulagslýsingu sérstaklega fyrir íbúum sveitarfélagsins og Rangárþingi ytra sem eiga aðkoma frá Ásvegi nr. 275. Um afar umfangsmikla atvinnuuppbyggingu er að ræða sem hefur töluverð áhrif á íbúafjölda sveitarfélagsins, mælist skipulagsnefndin til þess að hreppsnefnd meti samhliða getu innviða sveitarfélagsins til að takast á við svo umfangsmikla uppbyggingu. Hreppsnefnd telur einnig nauðsynlegt að kynna þessi mál sveitarstjórn Rangárþings ytra, þar sem þjónustustofnanir s.s. skólar eru samreknir.
Skipulagsnefnd mælist jafnframt til þess við hreppsnefnd að boðað verði til opins íbúafundar í samráði við umsækjanda til að kynna þau áform sem tiltekið er um innan skipulagslýsingar fyrir íbúum og öðrum hagsmunaaðilum. Hreppsnefnd leggur mikla áherslu á að gott samstarf og samtal verði við íbúa og hagsmunaaðila á svæðinu. Samþykkt samhljóða.

Mál nr. 40; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 24-205 - 2405001F.
Lögð fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 24-205.
2.
Fundargerð 282. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2406035
Lögð fram fundargerð 282. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð 206. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU.
Mál nr. 1; Ás 3 II-3land L204644; Skilgreining lóðar; Deiliskipulag - 2405084.
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til lands Ás 3 II-3land L204644. Tillagan tekur til um 2,3 ha lands þar sem gert er ráð fyrir uppbyggingu íbúðarhúss, skemmu/hesthúss og gestahúss.
Að mati skipulagsnefndar UTU er þörf á að leggja fram ítarlegri skilmála um byggingarheimildir innan deiliskipulagsáætlunar. Að mati nefndarinnar er þörf á að tiltaka fjölda og gerð húsa, auk hámarksbyggingarmagns hvers húss innan skilgreinds nýtingarhlutfalls og heimilda aðalskipulags. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að afgreiðslu málsins verði frestað.

Mál nr. 2; Ás 1 spilda 1 (L220759); byggingarleyfi; íbúðarhús - 2406007.
Móttekin er umsókn þ. 03.06.2024 um byggingarleyfi fyrir 88,5 m2 íbúðarhús á landinu Ás 1 spilda 1 L220759 í Ásahreppi.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að málið fái málsmeðferð á grundvelli 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar. Berist engar athugasemdir vegna grenndarkynningar skal málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

Mál nr. 3; Holtamannaafréttur L221893; Sigöldustöð; Efnistökusvæði; Aðalskipulagsmál - 2405114.
Lögð er fram skipulagslýsing sem tekur til breytingar á aðalskipulagi Ásahrepps 2020-2032. Með breytingunni felst að skilgreint verði nýtt efnistökusvæði við aðrennslisskurð Sigöldustöðvar. Efni hefur verið tekið af svæðinu við framkvæmdir tengdar virkjunum og vatnsmiðlun, en náman er ekki á skipulagi. Efni úr námunni verður einkum nýtt við framkvæmdir í tengslum við fyrirhugaða stækkun Sigöldustöðvar. Stærð efnistökusvæðis verður um 1 ha og heimilt verður að vinna allt að 49.000 m3 af efni.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða þessa skipulagslýsingu til kynningar og umsagna í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Mál nr. 4; Ás 3 III-1 land L204646; Bygging tjaldhýsa; Deiliskipulagsbreyting - 2405108.
Lögð er fram tillaga deiliskipulags sem tekur til lands Vesturáss og Áss 3 land III-1. Innan svæðisins eru skilgreindar byggingarheimildir sem taka til uppbyggingar á íbúðarhúsi, hesthúsi og reiðskemmu auk kúlutjalda sem ætluð eru til útleigu.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að deiliskipulagið og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins. Mælist hreppsnefndin til þess að málið verði sérstaklega kynnt landeigendum aðliggjandi landeigna.

Mál nr. 5; Sigöldustöð; Sigölduvirkjun L165348; Aðstöðuhús; Deiliskipulagsbreyting - 2404050.
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til athafnasvæðis við Sigöldustöð. Afmarkað er svæði fyrir vinnubúðir starfsfólks, svæði fyrir sprengiefnageymslu, svæði fyrir steypustöð, skemmur/verkstæði og haugsvæði fyrir mögulega efnislosun. Vinnubúðir, steypustöð, skemmur og haugsvæði eru sunnan við Tungnaá, á svæði sem í aðalskipulagi er skilgreint sem efnistökusvæði E72 og skógræktar- og landgræðslusvæði SL26, skv. aðalskipulagi Rangárþings ytra. Sprengiefnageymsla er skammt frá Krókslóni og aðrennslisskurði Sigöldustöðvar, á óbyggðu svæði skv. aðalskipulagi Ásahrepps
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að viðkomandi breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingar á deiliskipulagi.

Mál nr. 36; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 24-206 - 2405003F.
Lögð fram till kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU nr. 24-206.
3.
Fundargerð 3. fundar samráðsnefndar Rangárþings ytra og Ásahrepps
Málsnúmer 2406031
Lögð fram fundargerð 3. fundar samráðsnefndar Rangárþings ytra og Ásahrepps.
Til kynningar.
4.
Fundargerð 10. fundar stjórnar Húsakynna bs.
Málsnúmer 2406017
Lögð fram fundargerð 10. fundar stjórnar Húsakynna bs. ásamt fundargögnum fyrsta dagskrárliðar.
Niðurstaða stjórnar Húsakynna skv. 1. dagskrárlið, húsrýmisáætlun, er samþykkt með fjórum (4) atkvæðum en einu mótatkvæði. Nanna lætur bóka:
Ég legg til að afgreiðslu verði frestað og haldinn verði íbúafundur/kynningarfundur fyrir íbúa í samræmi við bókun og umræður hreppsnefndar undir 25. fundi sveitarstjórnar liður, 4.fundargerð 8. fundar stjórnar Húsakynna bs. að það verði haldinn kynningarfundur fyrir íbúa áður en tekin verður ákvörðun um að hefja framkvæmdir. Finnst jafnframt nauðsynlegt að kostnaðargreina verkið í heild sinni en ekki einungis fyrsta áfanga í ljósi þeirra upplýsinga sem fram hafa komið að heildarframkvæmdakostnaður hlaupi á hundruðum milljóna króna.

Varðandi 2. dagskrárlið þá staðfestir hreppsnefnd Ásahrepps samhljóða ákvörðun stjórnar Húsakynna bs. fyrir sitt leyti.
5.
Fundargerð 112. fundar stjórnar UTU
Málsnúmer 2406040
Lögð fram fundargerð 112. fundar stjórnar UTU ásamt gjaldskrá vegna mótttöku og hreinsunar á seyru, sem aðildarsveitarfélög þurfa að staðfesta. Nanna víkur af fundi við afgreiðslu þessa dagskrárliðar.
Dagskrárliður 1 þarfnast samþykki hreppsnefndar. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða gjaldskrá vegna móttöku og hreinsunar seyru fyrir árið 2024, fyrir sitt leyti.

Að öðru leyti er fundargerðin til kynningar.
6.
Fundargerð 9. fundar stjórnar Húsakynna bs.
Málsnúmer 2406016
Lögð fram fundargerð 9. fundar stjórnar Húsakynna bs. Dagskrárliður 1 þarfnast staðfestingar hreppsnefndar Ásahrepps.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir engar athugasemdir fyrir sitt leyti að Fishpartner staðsetji stöðuhýsi við skálann í Þóristungum, skv. bókun stjórnar Húsakynna við 1. dagskrárlið.
Fundargerð að öðru leyti til kynningar.
7.
Fundargerð 82. fundar stjórnar Brunavarna Rangárvallasýslu
Málsnúmer 2406018
Lögð fram fundargerð 82. fundar stjórnar Brunavarna Rangárvallasýslu bs.
Til kynningar.
8.
Fundargerð 237. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu
Málsnúmer 2406015
Lögð fram fundargerð 237. fundar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Til kynningar.
9.
Fundargerð 238 fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs
Málsnúmer 2406029
Lögð fram fundargerð 238. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 9. fundar stjórnar Lundar
Málsnúmer 2406023
Lögð fram fundargerð 9. fundar stjórnar Lundar ásamt ársreikningum 2023 fyrir Lund, byggingarsjóð Lundar og gjafasjóð Lundar.
Til kynningar.
11.
Fundargerð 111. fundar stjórnar UTU
Málsnúmer 2406037
Lögð fram fundargerð 111. fundar stjórnar UTU.
Til kynningar.
12.
Fundargerð 33. fundar stjórnar Tónlistarskóla Rangæinga bs.
Málsnúmer 2406022
Lögð fram fundargerð 33. fundar stjórnar Tónlistarskóla Rangæinga bs.
Til kynningar.
13.
5. fundur Héraðsnefndar Rangæinga
Málsnúmer 2406020
Lögð fram fundargerð 5. fundar Héraðsnefndar Rangæinga ásamt ársreikningi 2023.
Til kynningar.
14.
Fundargerð 82. fundar Félags- og skólaþjónustu
Málsnúmer 2406019
Lögð fram fundargerð 82. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu bs.
Til kynningar.
15.
Fundargerð 83. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu
Málsnúmer 2406036
Lögð fram fundargerð 83. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
Til kynningar.
16.
Aðalfundur Félags- og skólaþjónustu, 12. júní 2024
Málsnúmer 2406038
Lögð fram fundargerð aðalfundar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu, sem haldinn var 12. júní 2024. Einnig lagðar fram ársskýrsla félagsþjónustu 2023 og skýrsla um starfsemi skólaþjónustu 2023-2024.
Til kynningar.
17.
Fundargerð 7. fundar stjórnar Arnardrangs hses.
Málsnúmer 2406005
Lögð fram fundargerð 7. fundar stjórnar Arnardrangs hses.
Til kynningar.
18.
Fundargerð 8. fundar stjórnar Arnardrangs hses.
Málsnúmer 2406006
Lögð fram fundargerð 8. fundar stjórnar Arnardrangs hses.
Til kynningar.
19.
Fundargerð 9. fundar stjórnar Arnardrangs hses.
Málsnúmer 2406007
Lögð fram fundargerð 9. fundar stjórnar Arnardrangs hses.
Til kynningar.
20.
Fundargerð 10. fundar stjórnar Arnardrangs hses.
Málsnúmer 2406008
Lögð fram fundargerð 10. fundar stjórnar Arnardrangs hses.
Til kynningar.
21.
Fundargerð 11. fundar stjórnar Arnardrangs hses.
Málsnúmer 2406009
Lögð fram fundargerð 11. fundar stjórnar Arnardrangs hses.
Til kynningar.
22.
Fundargerð 12. fundar stjórnar Arnardrangs hses.
Málsnúmer 2406010
Lögð fram fundargerð 12. fundar stjórnar Arnardrangs hses.
Til kynningar.
23.
Fundargerð 13. fundar stjórnar Arnardrangs hses.
Málsnúmer 2406011
Lögð fram fundargerð 13. fundar stjórnar Arnardrangs hses.
Til kynningar.
24.
Fundargerð 326. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Málsnúmer 2406013
Lögð fram fundargerð 325. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Til kynningar.
25.
Fundargerð 73. fundar stjórnar Bergrisans
Málsnúmer 2406028
Lögð fram fundargerð 73. fundar stjórnar Bergrisans bs ásamt ársreikningi 2023.
Til kynningar.
26.
Fundargerð 72. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 2406014
Lögð fram fundargerð 72. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
27.
Fundargerð 609. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2406012
Lögð fram fundargerð 609. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
28.
Fundargerð 610. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2406030
Lögð fram fundargerð 610. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
29.
Fundargerð 236. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Málsnúmer 2406033
Lögð fram fundargerð 236. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands.
Til kynningar.
30.
Fundargerð 948. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2406034
Lögð fram fundargerð 948. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
31.
Margar hendur vinna létt verk; umsókn samþykkt
Málsnúmer 2406004
Lagt fram tölvuskeyti Guðmundar Finnbogasonar, hjá Landsvirkjun, dags 13. maí 2024 þar sem tilkynnt er að umsókn Ásahrepps um að fá vinnuflokk í eina viku til að fara með gönguleiðum á Holtamannaafrétti hafi verið samþykkt. Tekið er sérstaklega frma að Landsvirkjun leggur ekki fram vinnutæki eða verkfæri og sveitarfélagið verði að leggja til verkstjórn á staðnum.
Trausti Sigurðsson er tilbúinn að taka að sér verkstjórn þessa verkefnis og stefnt verður að því að framkvæmd verksins verði í fyrri hluta júlímánaðar. Ásahreppur mun greiða laun verkstjóra ásamt öðrum kostnaði við verkstjórn verksins s.s. aksturskostnað og áhöld.
Samþykkt samhljóða.
32.
Sæmundarstofa ses
Málsnúmer 2406024
Lagt fram erindi Oddafélagsins þar sem óskað er eftir þátttöku Ásahrepps í stofnun Sæmundarstofu ses. Einnig lögð fram drög að skipulagsskrá félagsins og drög að samningi Oddafélagsins við Mennta- og menningarmálaráðuneytið.
Hreppsnefnd Ásahrepps tekur jákvætt í að koma að stofnun Sæmundarstofu og felur sveitarstjóra og oddvita að vinna málið áfram.
33.
Sameiginleg undirsíða fyrir frístundir í Rangárvallasýslu og Mýrdalshreppi
Málsnúmer 2405018
Lagt fram tölvuskeyti Stefáns Friðriks Friðrikssonar byggðaþróunarfulltrúa Rangárþings, dags. 5. júní 2024, ásamt drögum að samningi milli sveitarfélaganna í sambandi við uppsetningu og rekstur á sameiginlegri frístunda og viðburðarsíðu. Einnig er lagður fram samningur við Stefnu ehf.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að standa að verkefninu að sínu leyti.
34.
Umsókn um nýtt rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II H, frístundahús á jörðinni Vetleifsholt 2
Málsnúmer 2406025
Lagt fram bréf Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 8. apríl 2024 (Málsnúmer 2024-026399), þar sem óskað er eftir umsögn hreppsnefndar Ásahrepps vegna umsóknar Ylfur ehf kt. 550405-1210 um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II H, frístundahús. Jafnframt er lög fram teikning af umræddri fasteign, Vetleifsholt 2, fasteignamúmer 219-8181, rýmisnúmer 16-0101 og hámarksfjöldi gesta 6. Fyrir liggur skeyti byggingarfulltrúa þar sem fram kemur að hann gerir ekki athugasemdir við að umrætt leyfi verði veitt.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemdir viða að umrætt leyfi verði veitt. Samþykkt samhljóða.
35.
Umsókn um breytingu á gildandi rekstrarleyfi, Áskot
Málsnúmer 2406026
Lagt fram bréf Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 18. júní 2024 (Málsnúmer 2023-056413), þar sem óskað er eftir umsögn hreppsnefndar Ásahrepps vegna umsóknar um breytingu á gildandi rekstrarleyfi til stækkunar reksturs gististaðar í flokki II - H frístundahús. Jafnframt er lögð fram teikning af fumræddum fasteignum, Áskot, fasteignamúmer 219-7787 og rýmisnúmer 05-0101, 06-0101, 07-0101, 08-0101, 09-0101 og 10-0101. Hámarksfjöldi gesta er 4 í hverju húsi eða samtals 24 gestir. Fyrir liggur skeyti byggingarfulltrúa þar sem fram kemur að hann geir ekki athugasemdir við að umrætt leyfi verði veitt.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir engar athugasemdir við að umrætt leyfi verði veitt. Samþykkt samhljóða.
36.
Uppfærsla á heimasíðu Ásahrepps
Málsnúmer 2405017
Lagt fram tölvuskeyti Tactica, dags. 7. júní 2024, þar sem fram kemur að mun meiri vinna er fólgin í uppfærslu á heimasíðu Ásahrepps en gert var ráð fyrir. Gera má ráð fyrir að það taki allt að 40 vinnustundir að uppfæra síðuna eða um kr. 1.250.000 með VSK.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir að fresta málinu til næsta fundar og leitað verði verðhugmynda um gerð nýja heimasíðu fyrir Ásahrepps.
37.
Sameining sveitarfélaga
Málsnúmer 2402022
Lögð fram tölvuskeyti frá Rangárþingi ytra og Rangárþingi eystra, sem eru svör við erindi Ásahrepps um vilja til sameiningaviðræðna sveitarfélaga í Rangárvallasýslu.Fram kemur í skeytum Rangárþings ytra og Rangárþings eystra að þau hafna því að hefja sameiningaviðræður þessara þriggja sveitarfélaga.
Í ljósi afstöðu Rangárþings ytra og Rangárþings eystra þá eru hugmyndir um sameiningu þessara sveitarfélaga ekki á dagskrá á þessu kjörtímabili.
38.
Tillaga um vinnuhóp vegna dagdvalar fyrir fólk með heilabilun og tengda sjúkdóma
Málsnúmer 2406032
Lagt fram tölvuskeyti Rangárþings ytra, dags. 12. júní 2024, vegna hugmyndar um stofnun vinnuhóps um dagdvöl fyrir fólk með heilabilun og tengda sjúkdóma.
Hreppsnefnd Ásahrepps tekur jákvætt í erindið og er tilbúin að koma að þessari vinnu.
39.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Málsnúmer 2101011
Lagt fram rekstraryfirlit fyrir sveitarsjóð Ásahrepps tímabilið 1. janúar til 31. maí 2024.
Til kynningar.
40.
Skipun stýrihóps á vegum Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis og Matvælaráðuneytis.
Málsnúmer 2406027
Lagt fram bréf Samtaka heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi, dags. 6. júní 2024, þar sem kynnt er að Umhverfis-, orku- og laftslagsráðuneytið og Matvælaráðuneytið hafa sett á laggirnar stýrihóp til að vinna áfram með þær hugmyndir ráðuneytanna að heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga verði lagt niður í núverandi mynd og málaflokkurinn fluttur frá sveitarfélögum til ríkisins.
Til kynningar.
41.
Bréf Jafnréttisstofu, dags. 19. júní 2024
Málsnúmer 2406039
Lagt fram bréf Jafnréttisstofu, dags. 19. júní 2024, þar sem vakin er athygli á ábyrgð og hlutverk sveitarfélaga vegna bils milli fæðingarorlofs og inntöku barna í leikskóla.
Til kynningar.
42.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn 21. ágúst 2024 á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi. Fundur hefst klukkan 8:30.Sumarleyfi hreppsnefndar Ásahrepps er í júlí. Skrifstofu Ásahrepps verður lokað vegna sumarleyfa frá 8. júlí til og með 9. ágúst n.k.
Samþykkt samhljóða.