Hreppsnefnd Ásahrepps
29. fundur
21. ágúst 2024
kl.
08:30
-
11:15
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson
hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson
hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 283. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 283. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU nr. 24-207.
Mál nr. 1; Kálfholt L1.b L208177; skipting lóðar í 6 búgarða; Deiliskipulag - 2309073.
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags fyrir jörðina Kálfholt L1.b L208177 í Ásahreppi eftir kynningu. Gert er ráð fyrir að skipta upprunajörðinni upp í sex búgarða, 10 - 13 ha að stærð. Á hverjum búgarði verði heimild til að byggja íbúðar- og útihús. Umsagnir bárust á kynningartíma skipulagsins og eru þær lagðar fram við fyrirtöku málsins ásamt fornleifaskráningu og uppfærðum gögnum.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir deiliskipulagið og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins. Að mati hreppsnefndar hefur verið brugðist við þeim umsögnum sem bárust á kynningartíma tillögunnar með fullnægjandi hætti innan tillögunnar þar sem m.a. hefur verið gert grein fyrir greiningu á gerð lands og fornleifaskráningu.
Mál nr. 27; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 24-207 - 2406002F.
Lögð fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 24-207.

2.
Fundargerð 284. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 284. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU nr. 24-208.
Mál nr. 1; Ás 3 II-3land L204644; Skilgreining lóðar; Deiliskipulag - 2405084.
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til lands Áss 3 II-3land L204644. Tillagan tekur til um 2,3 ha lands þar sem gert er ráð fyrir uppbyggingu íbúðarhúss, gestahúss, bílskúrs og geymsluskúrs. Málinu var frestað á fundi hreppsnefndar Ásahrepps 26.6.24. Uppfærð tillaga lögð fram.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða deiliskipulagið og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, en skipulagsgögn hafa verið lagfærð skv. ábendingum skipulagsnefndar og skipulagsfulltrúa.
Mál nr. 41; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 24-208 - 2407001F.
Lögð fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 24-208.

3.
Fundargerð 285. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 285. fundar skipulagsnefndar UTU.
Mál nr. 1; Holtamannaafréttur L221893; Sigöldustöð; Efnistökusvæði; Aðalskipulagsbreyting - 2405114.
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar sem tekur til breytingar á aðalskipulagi Ásahrepps 2020-2032. Með breytingunni felst að skilgreint verði nýtt efnistökusvæði við aðrennslisskurð Sigöldustöðvar. Efni hefur verið tekið af svæðinu við framkvæmdir tengdar virkjunum og vatnsmiðlun, en náman er ekki á skipulagi. Efni úr námunni verður einkum nýtt við framkvæmdir í tengslum við fyrirhugaða stækkun Sigöldustöðvar. Stærð efnistökusvæðis verður um 1 ha og heimilt verður að vinna allt að 49.000 m3 af efni. Umsagnir bárust við kynningu skipulagslýsingar og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða tillögu um aðalskipulagsbreytingu til kynningar í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 2; Einholt (L180119); byggingarleyfi; einbýlishús - 2408005.
Móttekin var umsókn, þann 17.07.2024, um byggingarleyfi fyrir 74,5 m2 einbýlishús á jörðinni Einholt L180119 í Ásahreppi.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að málið fái málsmeðferð á grundvelli 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar og með fyrirvara um lagfærð gögn. Berist engar athugasemdir vegna grenndarkynningar skal málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

4.
Fjallskiladeild Holtamannaafréttar - 7
5.
Fundargerð 25. fundar stjórnar Odda bs. - vorfundur
Lögð fram fundargerð vorfundar Odda bs., 25. fundar stjórnar.
Til kynningar.
6.
Fundargerð 26. fundar stjórnar Odda bs.
Lögð fram fundargerð 26. fundar stjórnar Odda bs.
Til kynningar.
7.
Fundargerð 83. fundar stjórnar Brunavarna Rangárvallasýslu bs.
Lögð fram fundargerð 83. fundar stjórnar Brunavarna Rangárvallasýslu bs.
Hreppsnefnd Ásahrepps lýsir yfir ánægju sinni með þessum kaupum á slökkvibifreið sem styrkja mun mikið viðbragðsgetu Brunavarna Rangárvallasýslu bs.
Til kynningar.
Til kynningar.
8.
Fundargerð 14. fundar stjórnar Arnardrangs hses.
Lögð fram fundargerð 14. fundar stjórnar Arnardrangs hses. ásamt ársreikningi fyrir árið 2023.
Til kynningar.
9.
Fundargerð 74. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Lögð fram fundargerð 74. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 1. fundar nýrrar stjórnar Markaðsstofu Suðurlands
Lögð fram fundargerð 1. fundar nýrrar stjórnar Makaðsstofu Suðurlands.
Til kynningar.
11.
Fundargerð 2. fundar stjórnar Markaðsstofu Suðurlands
Lögð fram fundargerð 2. fundar stjórnar Markaðsstofu Suðurlands.
Til kynningar.
12.
Fundargerð aukaaðalfundar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, 7. júní 2024
Lögð fram fundargerð aukaaðalfundar SASS sem haldinn var þann 7. júní 2024.
Til kynningar.
13.
Fundargerð 611. fundar stjórnar SASS
Lögð fram fundargerð 611. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
14.
Fundargerð 73. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 73. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
15.
Fundargerð 949. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 949. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
16.
Fundargerð 950. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 950. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
17.
Minnisblað um skipulagsmál hjá UTU
Lagt fram minnisblað, dags. 16. maí 2024, vegna mögulegra breytinga á samþykktum UTU sem unnið var af GB Stjórnsýsluráðgjöf. Einnig lagt fram tölvuskeyti sveitarstjóra Hrunamannahrepps og sveitarstjóra Grímsnes- og Grafningshrepps sem varða efni minnisblaðsins.
Hreppsnefnd Ásahrepps ræddi innihald minnisblaðsins. Hreppsnefnd er sátt við núverandi stöðu skipulagsmála og sér ekki ástæðu fyrir sitt leyti að breyta samþykktum byggðasamlagsins.
18.
Húsnæðisreglur í málefnum fatlaðs fólks á þjónustusvæði Bergrisans
Lagt fram tölvuskeyti Bergrisans bs, dags. 26. júní 2024, þar sem óskað er eftir því, við aðildarsveitarfélög Bergrisans bs, að sveitarstjórnir taki meðfylgjandi húsnæðisreglur til afgreiðslu. Jafnframt eru lagðar fram Reglur Bergrisans um húsnæði fyrir fatlað fók ásamt vinnublaði ráðgjafa um mat á stuðningsþörfum.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fyrir sitt leyti framlagðar reglur Bergrisans um húsnæði fyrir fatlað fólk.
19.
Framtíð félagsheimilisins Ásgarðs
Komið hafa í leitirnar fundargerðabækur m.m. Ungmennafélags Ásarhepps, en þær fundust í kjallara bókasafnsins að Laugalandi. Í fundargerðabókum kemur fram saga byggingar félagsheimilisins Ásgarðs þannig að ekki ætti neitt að standa í vegi fyrir að þinglýsa lóðarleigusamningi landeigenda við Ungmennafélag Ásahrepps. Beðið er eftir því að Sýslumaðurinn á Suðurlandi ljúki þinglýsingu samningsins.Vandamál hefur komið upp vegna kostnaðar við hita og rafmagn félagsheimilisins, en Ungmennafélag Ásahrepps hefur ekkert fjármagn til að standa straum af þeim kostnaði. Tekjur Umf Ásahrepps af húsinu hefur verið leiga sem sveitarfélagið hefur greitt vegna kjörfunda sem þar hafa verið haldnir. Forsetakosningarnar voru í ár haldnar í Laugalandsskóla og því engar tekjur til að greiða fyrir hita og rafmagn félagsheimilisins. Fyrir liggur að ef þeir reikningar verði ekki greiddir þá muni verða lokað bæði fyrir hita og rafmagn hússins. Lagt var fram yfirlit yfir áfallinn og ógreiddan kostnað Ásgarðs vegna hita og rafmagns.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að greiða fyrir hita og rafmagn félagsheimilisins þar til niðurstaða hefur fengist um framtím félagsheimilisins Ásgarðs og felur sveitarstjóra að ganga í málið og gera upp skuldir fyrir heitt vatn og rafmagn hússins.
20.
Uppfærsla á heimasíðu Ásahrepps
Lagt fram töluskeyti Stefnu, dags. 9. júlí 2024, ásamt tilboði í gerð nýrrar heimasíðu fyrir Ásahrepp ásamt lýsingu á verkþáttum. Gera má ráð fyrir að kostnaður verði rúmlega 1,5 mkr án VSK, en endanlegt verð verður háð því hve hve mikinn tíma flutningur á efni úr eldri síðu tekur. Rekstrarkostnaður eða mánaðarlegt gjald verði síðan kr. 14.900 án VSK.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að ganga til samninga við Stefnu um gerð nýrrar heimasíðu fyrir Ásahrepp, á grundvelli tilboðsins.
21.
Tillaga um vinnuhóp vegna dagdvalar fyrir fólk með heilabilun og tengda sjúkdóma
Lagt fram tölvuskeyti sveitarstjóra Rangárþings ytra, dags. 10. júlí 2024, þar sem kynnt er bókun byggðaráðs Rangárþings ytra varðandi tillögu um skipan vinnuhóps til að vinna með stjórn hjúkrunarheimilisins Lundar á hellu vegna dagdvalarúrræði fyrir fólk með heilabilun og tenda sjúkdóma.Tillaga byggðaráðs Rangárþings ytra er að sveitarstjórar sveitarfélaganna Rangárþings ytra og Ásahrepps myndu mynda vinnuhópinn með einum fulltrúa heilsugæslunnar og félagsþjónustunni.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða tillögu byggðaráðs Rangárþings ytra.
22.
Farsældarráð á Suðurlandi
Lagt fram tölvuskeyti SASS þar sem óskað er eftir afstöðu hreppsnefndar Ásahrepps til að SASS, fyrir hönd landshlutans, geri viðaukasamning við sóknaráætlanir landshluta um að landshlutinn fái fjárhagslegan stuðning til þess að ráða verkefnastjóra í tvö ár til þess að útfæra starfsemi farsældarráða og þá í nánu samráði við aðildarsveitarfélögin.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti að gerður verði umræddur viðaukasamningur enda felur hann ekki í sér fjárhagslegar skuldbindingar fyrir sveitarfélagið.
23.
Ársfundur Arnardrangs, tilnefning fulltrúa Ásarhepps
Lagt fram tölvuskeyti Arnardrangs hses, dags. 14. ágúst 2024, þar sem boðaður er ársfundur félagsins sem haldinn verður á Teams þann 29. ágúst 2024. Jafnframt eru lögð fram útsend fundargögn vegna fundarins. Fram kemur í skeyti Arnardrangs hses að óskað er eftir því að hreppsnefnd Ásahrepps að tilnefnda aðila úr hreppsnefnd sem fer með atkvæðisrétt á fundinum.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að Kristín Hreinsdóttir fari með atkvæðisrétt á fundinum fyrir hönd Ásahrepps.
24.
Námugjöld vegna efnistöku innan þjóðlendna
Lagt fram tölvuskeyti forsætisráðuneytis sem er svar við fyrirpurn Ásahrepps, dags. 13. júní 2024, um forsendur þess að námugjöld sem tengjast virkjanaframkvæmdum skuli ekki vera greidd til sveitarfélaga með sama hætti og önnur efnistaka. Einnig lögð fram lög um þjóðlendur og samningur um námuréttindi milli forsætisráðuneytis og Landsvirkjunar.
Hreppsnefnd Ásahrepps vill skoða málið betur varðandi efnistöku innan þjóðlendna og felur sveitarstjóra að finna ráðgjafa til aðstoðar.
25.
Samráðshópur um stöðu launafólks í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu
Lagt fram bréf Verkalýðsfélags Suðurlands, dags. 14. ágúst 2024, þar sem óskað er eftir að stofnaður verði samráðshópur um stöðu og málefni launafólks í Ranárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
Hreppsnefnd Ásahrepps tekur vel í hugmyndina og felur Kristínu Hreinsdóttur að vera fulltrúi Ásahrepps í samráðshópnum.
26.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Lagt fram málaflokkayfirlit fyrir sveitarsjóð Ásahrepps fyrir tímabilið 1. janúar - 31. júlí 2024.
Til kynningar.
27.
Minnisblað vegna gjaldfrjálsra skólamáltíða
Lagt fram minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 4. júlí 2024, um gjaldfrjálsar skólamáltíðir ásamt viðauka I, framlög vegna gjaldfrjálsra skólamáltíða ágúst - desember 2024. Í viðauka I kemur fram að framlög til Ásahrepps tímabilið ágúst - desember 2024 verði kr. 1.408.517.
Til kynningar
28.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar Ásarhepps verður haldinn 18. september 2024 á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi. Fundur hefst klukkan 8:30.
Til kynningar.