Hreppsnefnd Ásahrepps
3. fundur
17. ágúst 2022
kl.
08:30
-
11:52
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson
hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson
hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Gerð tillaga um að inn komi nýr dagskrárliður nr. 10 og aðrir dagskrárliður færist til sem því nemur. Samþykkt samhljóða.
Dagskrá
1.
Fundargerð 243. fundar skipulagsnefndar
Lögð fram fundargerð 243. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt afgreiðslufundi byggingarfulltrúa nr. 167.
Mál nr. 29; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 22-167 - 2206005F.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 22-167.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 22-167.
2.
Fundargerð aðalfundar Félags- og skólaþjónustu 2022
Lögð fram fundargerð aðalafundar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu bs. Einnig lögð fram fundargögn sem lágu fyrir aðalfundi s.s. ársskýrslur, ársreikningar og tillaga að endurskoðaðri samþykkt fyrir byggðasamlagið.
Dagskrárliður 2 þarf sérstaka umfjöllun hjá hreppsnefnd Ásahrepps og skulu teknar til tveggja umræðna.
Hreppsnefnd Ásahrepps yfirfór fyrirliggjandi tillögu að endurskoðuðum samþykktum fyrir byggðasamlagið og átti sér stað umræða um þær. Nauðsynlegt er að gera breytingar á samþykktum byggðasamlagsins í ljósi breyttra laga og fyrirkomulags við meðferð og stjórn þessa málaflokks. Hreppsnefnd Ásahrepps óskar eftir að grein 5 verði endurskoðuð með tilliti til boðun fyrsta fundar nýrrar stjórnar.
Samþykktunum vísað til síðari umræðu hjá hreppsnefnd á næsta reglubundna fundi hreppsnefndar sem haldinn verður í september n.k.
Hreppsnefnd Ásahrepps yfirfór fyrirliggjandi tillögu að endurskoðuðum samþykktum fyrir byggðasamlagið og átti sér stað umræða um þær. Nauðsynlegt er að gera breytingar á samþykktum byggðasamlagsins í ljósi breyttra laga og fyrirkomulags við meðferð og stjórn þessa málaflokks. Hreppsnefnd Ásahrepps óskar eftir að grein 5 verði endurskoðuð með tilliti til boðun fyrsta fundar nýrrar stjórnar.
Samþykktunum vísað til síðari umræðu hjá hreppsnefnd á næsta reglubundna fundi hreppsnefndar sem haldinn verður í september n.k.
3.
1. fundur fjallskiladeildar Holtamannaafréttar kjörtímabilið 2022-2026
Fundurinn veriðu ekki haldinn fyrr en fimmtudaginn 18. ágúst n.k.
Þessum dagskrárlið er frestað til næsta fundar hreppsnefndar.
4.
Fundargerð 1. fundar stjórnar Lundar kjörtímabilið 2022-2026
Lögð fram fundargerð 1. fundar stjórnar Lundar kjörtímabilið 2022-2026. Einnig lögð fram fundargögn s.s. kynning á ástandi húsnæðis Lundar, árshlutauppgjör og yfirlit yfir framlög frá Vinnumálastofnun.
Til kynningar.
5.
Fundargerð 1. fundar félagsmálanefnar kjörtímabilið 2022-2026
Lögð fram fundargerð 1. fundar félagsmálanefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu, kjörtímabilið 2022-2026.
Til kynningar.
6.
Fundargerð 27. fundar stjórnar Tónlistarskóla Rangæinga bs
Lögð fram fundargerð 27. fundar stjórnar Tónlistarskóla Rangæinga bs, ásamt rekstaryfirliti og skóladagatali fyrir næsta skólaár.
Til kynningar.
7.
Fundargerð 73. fundar stjórnar Brunavarna Rangárvallasýslu bs
Lögð fram fundargerð 73. fundar Brunavarna Rangárvallasýslu bs.
Til kynningar.
8.
Fundargerð 222. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs
Lögð fram fundargerð 222. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Til kynningar.
9.
Fundargerð 62. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu
Lögð fram fundargerð 62. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 3. fundar seyrustjórnar
Lögð fram fundargerð 3. fundar seyrustjórnar.
Til kynningar.
11.
Fundargerð aukaaðalfundar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands
Lögð fram fundargerð aukaaðalfundar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, dags. 16. júní 2022.
Til kynningar.
12.
Fundargerð 219. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Lögð fram fundargerð 219. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands.
Til kynningar.
13.
Fundargerð 584. fundar stjórnar SASS
Lögð fram fundargerð 584. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
14.
Fundargerð 910. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 910. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
15.
Fundargerð 911. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 911. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
16.
Kaupsamningur um Faxatröð úr landi Ásborgar
Lagður fram kaupsamningur um landspildu úr landi Ásborgar, Faxatröð (lnr 233590) þar sem Eydís Indriðadóttir, kt. 070560-2759 afsalar Ásahreppi umræddri landspilu, 8.950 fermetrar að stærð, til lagningu reiðstígs án endurgjalds. Ásahreppur greiði allan útlagðan kostnað við afmörkun spildunnar og annan þann kostnað s.s. fyrir vinnu landfræðings, skráningargjald Þjóðskrár, þjónustugjald fasteignasala ásamt þinglýsingu og afgreiðslugjald skipulagsfulltrúa.Kaupsamningur hefur verið undirritaður með fyrirvara um samþykki hreppsnefndar Ásahrepps.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi kaupsamning og samkomulag um greiðslu kostnaðar við stofnun og afsal landspildunar og felur sveitarstjóra, Valtý Valtýssyni að undirrita öll þau skjöl sem viðkemur þessum viðskiptum s.s. kaupsamning og afsal. Jafnframt verði verkefnið um uppsetningu girðingar til að girða stiginn af sett í gang við fyrsta tækifæri, en Ásahreppur mun sjá um framkvæmd og greiðslu kostnaðar við það verk og jafnframt um flutning hliðs inn á land Ásborgar, skv. lýsingu í kaupsamningi.
Sveitarstjóra falið að vinna kostnaðaráætlun fyrir verkið en stefnt er að því að girða leiðina skv. fyrirliggjandi kaupsamningi.
Sveitarstjóra falið að vinna kostnaðaráætlun fyrir verkið en stefnt er að því að girða leiðina skv. fyrirliggjandi kaupsamningi.
17.
Endurskoðun samþykktar um kjör fulltrúa í Ásahreppi og greiðslur fyrir nefndarstörf
Lögð fram drög að endurskoðaðri samþykkt um kjör fulltrúa í Ásahreppi og greiðslur fyrir nefndarstörf.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi endurskoðaða samþykkt, með þeirri breytingu að formenn nefnda fá 4% af þingfararkaupi. Hreppsnefnd felur sveitarstjóra að birta hana á heimasíðu sveitarfélagsins með þeirri breytingu.
18.
Umsögn vegna samþykktar fyrir byggðasamlagið Odda bs.
Lagt fram bréf innviðaráðuneytis, dags. 30. júní 2022, þar sem gefin er umsögn vegna endurskoðaðrar samþykktar fyrir byggðasamlagið Odda bs. Fram koma þrjár athugasemdir sem snúa að sveitarstjórnarrétti.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að fela oddvita og sveitarstjóra að eiga samráð við fulltrúa Rangárþings ytra um svör við þessum athugasemdum. Verði viðbrögð og textabreytingar á samþykktum lagðar fyrir hreppsnefnd Ásahrepps til staðfestingar. Hreppsnefnd samþykkir samhljóða að óska eftir fundi hjá samráðsnefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps.
19.
Boð um skráningu í Ísland 2022
Lagt fram tölvuskeyti frá SagaZ, dags. 6. júlí 2022, þar sem Ásahreppi er boðin þátttaka í útgáfu "Ísland, atvinnuhættir og menning 2022".
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að taka ekki þátt í verkefninu.
20.
Umboð til félagsmálanefndar til að fara með verkefni barnaverndarnefndar itl 1. janúar 2023
Þann 29. apríl sl. samþykkti Alþingi frumvarp mennta- og barnamálaráðherra um frestun niðurlagningabarnaverndarnefnda til 1. janúar 2023. Félagsmálanefnd Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellsýslu hefur verið meðverkefni barnaverndarnefndar og er heimilt að fela nýrri félagsmálanefnd tímabundin verkefni barnaverndarnefndartil 1. janúar 2023.
Niðurstaða: Hreppsnefnd Ásahrepps skipar Elínu Grétarsdóttur sem aðalmann í Félagsmálanefnd Rangárvalla- og
Vestur-Skaftafellssýslu og Kristínu Ósk Ómarsdóttur til vara. Jafnframt samþykkir hreppsnefnd Ásahrepps fyrir
sitt leyti að fela Félagsmálanefndinni tímabundin verkefni barnaverndarnefndar til 1. janúar 2023.
Vestur-Skaftafellssýslu og Kristínu Ósk Ómarsdóttur til vara. Jafnframt samþykkir hreppsnefnd Ásahrepps fyrir
sitt leyti að fela Félagsmálanefndinni tímabundin verkefni barnaverndarnefndar til 1. janúar 2023.
21.
Beiðni Sigurhæða um að hitta hreppsnefnd Ásahrepps
Lagt fram tölvuskeyti Sigurhæða, dags. 3. ágúst 2022, þar sem fulltrúar Sigurhæða óska eftir að fá að hitta fulltrúa í hreppsnefnd Ásahrepps. Meðfylgjandi er tímatafla fyrir mögulegan tíma til að hittast.
Hreppsnefnd Ásahrepps óskar eftir að fulltrúar Sigurhæða komi á næsta reglubundna fund hreppsnefndar í september, ef það væri nokkur kostur.
22.
Framtíð félagsheimilisins Ásgarðs
Lögð fram drög að lóðarleigusamningi fyrir félagsheimilið Ásgarð að Ási. Jafnframt lögð fram tölvusamskipti sveitarstjóra við lögmann sveitarfélagsins, Jón Pál Hilmarsson.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að lóðarleigusamningi fyrir sitt leyti.
23.
Hraðahindrun á Ásveg á móts við Ás.
Lagt fram tölvuskeyti frá Hannesi B. Sigurgeirssyni og Ástríði Magnúsdóttur, dags. 10. ágúst 2022, þar sem óskað er eftir hraðahindrun á Ásveg til að draga úr aksturshraða framhjá afleggjurum að Ási. Einnig er óskað eftir bæjarskilti við heimreið að Ási 2.Vegagerðin hefur óskað eftir afstöðu hreppsnefndar Ásahrepps til uppsetningar hraðahindrunar á Ásveg við Ás.
Hreppsnefnd samþykkir samhljóða að sett verði upp bæjarskilti við heimreið að Ási 2, skv. því verklagi sem hefur verið viðhaft á undanförnum árum. Varðandi uppsetningu hraðahindrunar á Ásveg, þá gerir hreppsnefnd Ásahrepps engar athugasemdir við að Vegagerðin setji upp hraðahindrun á þessum stað til að tryggja umferðaröryggi í samráði við íbúa svæðisins.
24.
Efnistaka á Mýrdalssandi, umsagnarbeiðni vegna umhverfismatsskýrslu
Lagt fram tölvuskeyti Skipulagsstofnunar, dags. 11. ágúst 2022, er varðar efnistöku á Mýrdalssandi. Einnig lögð frma umhverfismatsskýrsla vegna þeirrar framkvæmdar.Óskað er eftir umsögn Ásahrepps um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu og óska eftir umsögn skipulagsnefndar UTU áður en umsögn er gefin af hálfu hreppsnefndar Ásahrepps.
25.
Vinnslusamningur vegna fjárhagsaðstoðar
Lagt fram tölvuskeyti Svövu Davíðsdóttur, félagsmálastjóra, dags. 10. ágúst 2022, þar sem óskað er eftir samþykki Ásahrepps fyrir drögum að vinnslusamningi vegna fjárhagsaðstoðar við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Lagt fram tölvuskeyti Svövu Davíðsdóttur, félagsmálastjóra, dags. 10. ágúst 2022, þar sem óskað er eftir samþykki Ásahrepps fyrir drögum að vinnslusamningi vegna fjárhagsaðstoðar við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Hreppsnefnd gerir engar athugasemdir við framlögð drög að vinnslusamningi, með viðbót 10.3 frá persónuverndarfulltrúa Ásahrepps, og felur Valtý Valtýssyni, sveitarstjóra, að undirrita vinnslusamninginn fyrir hönd Ásahrepps.
Hreppsnefnd gerir engar athugasemdir við framlögð drög að vinnslusamningi, með viðbót 10.3 frá persónuverndarfulltrúa Ásahrepps, og felur Valtý Valtýssyni, sveitarstjóra, að undirrita vinnslusamninginn fyrir hönd Ásahrepps.
26.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Lagt fram rekstaryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps tímabilið 1. janúar - 31. júlí 2022.
Til kynningar.
27.
Merking gögnuleiða á Holtamannaafrétti og málun Kláfsins
Lagt fram tölvuskeyti sem útlistar verkefnum sem Ásahreppur hefur samið við Flugbjörgunarsveitina Hellu, um merkingu gögnuleiða á Holtamannaafrétti og málun kláfsins yfir Tungnaá. Oddviti gerði grein fyrir stöðu verkefnanna.
Gert er ráð fyrir að þessum verkefnum verði lokið í næsta mánuði og að hægt verði að skila lokaskýrslu til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða í október n.k. og fá greiddan út þann styrk sem úthlutað hefur verið til verkefnanna. Hreppsnefd beinir því til umhverfisnefndar að skoða möguleika um meðferð úrgangs á þeim svæðum sem verið er að merkja sem gönguleiðir á Holtamannaafrétti.
28.
Norræna vatnaráðstefnan 30. ágúst 2022
Lagt fram tölvuskeyti Umhverfisstofnunar þar sem kynnt er Norræna vatnaráðstefnan sem haldin verður 30. ágúst 2022.
Til kynningar.
29.
Ársskýrsla Persónuverndar fyrir árið 2021
Lögð fram ársskýrsla Persónuverndar fyrir árið 2021.
Til kynningar.
30.
Flutningur fasteignaskrár og fasteignamats frá Þjóðskrá til HMS
Lagt fram bréf Þjóðskrár, móttekið 27. júní 2022, þar sem kynntur er flutningur fasteignaskrár og fasteignamats frá Þjóðskrá til HMS.
Til kynningar.
31.
Kostnaður Landskjörstjórnar vegna Ásahrepps við sveitarstjórnarkosninar 2022
Lagt fram bréf Landskjörstjórnar, dags. 30. júní 2022, þar sem útlistaður er kostnaður hennar við sveitarstjórnarkosningar í Ásahreppi. Landskjörstjórn mun innheimta þennan útlagða kostnað hjá Ásahreppi.
Til kynningar.
32.
Ársfundur náttúruverndarnefnda 2022
Lagt fram tölvuskeyti Umhverfisstofnunar, dags. 30. júní 2022, þar sem kynnur er ársfundur náttúruverndarnefnda árið 2022. Fundurinn verður haldinn 10. nóvember 2022.
Erindinu vísað til umhverfisnefndar Ásahrepps.
33.
Ársskýrsla Skógasafns ásamt ársreikningi 2021
Lögð fram ársskýrsla Skógasafns fyrir árið 2021 ásamt ársreikningi 2021.
Til kynningar.
34.
Rammasamningur milli ríkis og sveitarfélaga um uppbyggingu íbúða
Lagt fram tölvuskeyti Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 12. júlí 2022, ásamst rammasamningi um uppbyggingu íbúða á næstu 10 árum.
Til kynningar.
35.
Drög að reglugerð um umferðarmerki í opið samráð
Lagt fram tölvuskeyti innviðaráðuneytis, dags. 14. júlí 2022, þar sem kynnt eru drög að nýrri reglugerð um umferðarmerki sem komin eru í opið samráð.
Til kynningar.
36.
Boð um fund með stjórn og forstjóra Landsnets
Lagt fram tölvuskeyti Landsnets, dags. 26. júlí 2022, þar sem fultrúum úr hreppsnefnd Ásahrepps er boðið til fundar með stjórn og forstjóra Landsnets á Hotel Stracta þann 8. september n.k.
Til kynningar.
37.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn á Laugalandi þann 21. september 2022 og hefst fundur klukkan 8:30.
Til kynningar.