Hreppsnefnd Ásahrepps
3. fundur
14. júlí 2026
kl.
08:30
-
10:15
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson
hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Gréta Vilborg Guðmundsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Emil Þórðarson
hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Guðmundur Einarsson
Fundargerð ritaði:
Guðmundur Einarsson
skrifstofustjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 1. fundar Húsakynna bs.
Lögð fram fundargerð 1. fundar Húsakynna bs.
Til kynningar.
2.
Fundargerð 329, fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 329. fundar skipulagsnefndar UTU.Mál 1 - Sigölduvirkjun L165348; Stækkun Sigöldustöðvar; Framkvæmdarleyfi - 2502032Framkvæmdarleyfi fyrir Sigölduvirkjun L165348; Stækkun Sigöldustöðvar var gefið út 10. mars 2025 og auglýst í Lögbirtingablaðinu 21. maí 2025. Kæra barst Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála vegna leyfisins. Fyrir liggur úrskurður nefndarinnar þar sem kærunni er vísað frá. Úrskurðurinn er lagður fram til kynningar.Lagt fram erindi frá Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála þar sem kæru vegna framkvæmdarleyfis fyrir Sigölduvirkjun L165348 er vísað frá. Nefndin tekur úrskurðinn til kynningar. Útgefið framkvæmdarleyfi stendur óbreytt og heldur gildi sínu samkvæmt ákvörðun sveitarfélagsins.
Til kynningar.
3.
Fundargerð 26-255, afgreiðslur byggingarfulltrúa
Lagaðar fram afgreiðslur byggingarfulltrúa UTU, fundargerð númer 26-255.
Til kynningar.
4.
Fundargerð 26-256, afgreiðslur byggingarfulltrúa
Lagaðar fram afgreiðslur byggingarfulltrúa UTU, fundargerð númer 26-256.
Til kynningar.
5.
Fundargerð 26-257, afgreiðslur byggingarfulltrúa
Lagaðar fram afgreiðslur byggingarfulltrúa UTU, fundargerð númer 26-257.
Til kynningar.
6.
Aðalfundargerð Félags- og skólaþjónustu (FSRV).
Lögð fram fundargerð aðalfundar Félags- og skólaþjónustu Rangárvallasýslu og V-Skaftafellssýslu (FSRV), ásamt fylgiskjölum.
Til kynningar.
7.
Fundargerð 100. Fundar stjórnar Félags- og Skólaþjónustu (FSRV)
Lögð fram fundargerð 100. Fundar stjórnar Félags- og Skólaþjónustu (FSRV), ásamt fylgigögnum.
Til kynningar.
8.
Fundargerð 1. fundar Heilsu-, íþrótta- og tómstundanefndar RY.
Lögð fram fundargerð 1. fundar Heilsu-, íþrótta- og tómstundanefndar RY.
Til kynningar.
9.
Samtök orkusveitarfélaga, fundargerð auka aðalfundar og uppfærðar samþykktir
Lögð fram fundargerð auka aðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga, auk uppfærðra samþykkta þeirra.
Til kynningar.
10.
Nýtt deiliskipulag, Sigöldugljúfur, umsagnarbeiðni
Rangárþing ytra er með deiliskipulag, Sigöldugljúfur dsk, nr. 0449/2026, í auglýsingu og óskar eftir umsögn Ásahrepps.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að fela skrifstofustjóra að senda inn jákvæða umsögn.
11.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Lagt fram málaflokkayfirlit fyrir sveitarsjóð, tímabilið janúar til júní 2026.Einnig tölfræðigögn til fróðleiks.
Til kynningar.
12.
Samtök orkusveitarfélaga, kynningarbæklingur og gögn.
Lögð fram gögn frá Samtökum orkusveitarfélaga; kynningarbæklingur um starfsemina og stöðuskjal um skattlagningu orkumannvirkja.
Til kynningar.
13.
Hugmyndir varðandi jarðgerðarvélar
Lagðar fram hugmyndir um jarðgerðar-/moltuvélar, sem mögulega gætu stuðlað að sparnaði við sorpflutninga og vinnslu lífræns sorps. Möguleg útfærsla væri að styrkja íbúa til kaupa á slíkum búnaði.
Til kynningar.
14.
Skilgreining landeignarinnar Safamýrar
Lagt fram erindi frá Landnotum ehf, vegna vinnu við skilgreiningu landeigna í Safamýri. Fram kemur að vegna óvæntra krafna um eignalýsingar muni kosnaður við verkefnið aukast.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagt tilboð frá Landnotum um að ljúka verkefninu.
15.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn miðvikudaginn 19. ágúst, klukkan 8:30. á skrifstofunni Laugalandi.
Til kynningar.