Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

30. fundur
18. september 2024 kl. 08:30 - 11:30
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 286. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2409008
Mál nr. 1; Sultartangi; Rafstrengur og ljóslögn í 5km; Framkvæmdaleyfi - 2408070.
Lögð er fram umsókn frá Orkufjarskiptum hf er varðar framkvæmdaleyfi fyrir lagningu rafstrengs og ljóslagnar milli lokumannvirkja LV í Sultartanga. Lagnaleiðin er um 5 km.
Samkvæmt gildandi deiliskipulagi Sultartangastöðvar eru sveitarfélagsmörk Ásahrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps dregin austar en sýnt er á framlögðum gögnum. Að mati hreppsnefndar Ásahrepps ætti umsóknin því að taka til Skeiða- og Gnúpverjahrepps einnig. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu málsins.

Mál nr. 24; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 24-209 - 2408002F.
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 24-209.
2.
Fundargerð 287. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2409019
Mál nr. 1; Holtamannaafréttur; Búðarháls; Skilgreining efnistökusvæðis; Aðalskipulagsbreyting - 2405016.
Lögð er fram skipulagslýsing er varðar skilgreiningu efnistökusvæðis á austanverðum Búðarhálsi, milli Tungnaár og vegarins að Sporðöldustíflu innan aðalskipulags Ásahrepps. Efnistökusvæðið er á gildandi deiliskipulagi Búðarhálsvirkjunar, merkt E8. Stærð námu verði 2,3 ha og heimiluð efnistaka allt að 49.000 m3.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða skipulagslýsingu til kynningar og umsagna í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Mál nr. 2; Dvergabakki L165303; Dvergabakki A; Ný lóð; Reisa 6 smáhýsi; Deiliskipulag - 2403006.
Lögð er fram tillaga deiliskipulags sem tekur til lóðar Dvergabakka L1653030 í Ásahreppi eftir auglýsingu. Í skipulaginu felst skilgreining byggingarreita og byggingarheimilda fyrir gestahús innan jarðarinnar. Umsagnir bárust við tillöguna og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Hreppsnefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Hreppsnefnd Ásahrepps mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Mál nr. 3; Litlaland; Auknar byggingarheimildir; Deiliskipulagsbreyting - 2409024.
Lögð er fram tillaga óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Litlalands og Litlalands lóð. Í breytingunni felst að heildarbyggingarmagn innan reits B3 verður 1.700 fm í stað 1.500 fm áður. Byggingarreitur stækkar í takt við aukið byggingarmagn.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi. Að mati hreppsnefndar hefur breytingin ekki áhrif á aðra hagsmunaaðila innan svæðisins en umsækjandi og er því ekki talin þörf á grenndarkynningu.

Mál nr. 26; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 24-210 -2408004F.
Lögð fram til kyningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 24-210.
3.
Fundargerð 27. fundar stjórnar Odda bs.
Málsnúmer 2409001
Bókun stjórnar Odda bs:
3. Fjárhagsáætlun Odda bs. 2024. Viðaukar - 2408022
Klara Viðarsdóttir fjármálastjóri fór yfir tillögu að viðauka 1 fyrir Odda bs.

Lagður fram viðauki 1 við rekstraráætlun Odda bs 2024. Greinargerð fylgir viðaukanum.
Viðaukinn gerir ráð fyrir auknum rekstarkostnaði að fjárhæð kr. 8.000.000 sem stafar af aukningu á stöðugildi í grunnskólanum á Hellu, auknum launakostnaði í mötuneytinu á Hellu vegna forfalla og framlags til húsgagnakaupa í Laugalandsskóla. Óskað er eftir að viðaukanum verði mætt með hækkun á framlögum sveitarfélaganna frá Ásahreppi kr. 1.256.000 kr. og Rangárþingi ytra kr. 6.744.000.

Stjórn Odda samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til sveitarfélaganna til endanlegrar afgreiðslu.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að vísa afgreiðslu þessa dagskrarliðar í fundargerð Odda bs til 18. dagskrárliðar þessa fundar.

Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.
4.
Fundargerð 113. fundar stjórnar UTU
Málsnúmer 2409011
Bókun stjórnar UTU:
1. Minnisblað frá Hrunamannahreppi
Lagt fram minnisblað sem unnið var fyrir Hrunamannahrepp vegna mögulegra breytinga á samþykktum UTU, minnisblaðið var unnið af GB Stjórnsýsluráðgjöf um skipulagsmál dags. 16. maí 2024. Í minnisblaðinu er m.a. ábending til mræðu um að breyta samþykktum UTU á þann veg að sipulagsnefndir geti verið starfræktar í hverju sveitarfélagi fyrir sig en ekki ein sameiginleg skipulagsnefnd aðildarsveitarfélaganna eins og núverandi samþykktir UTU gera ráð fyrir.
Minnisblaðið hefur verið lagt fram til kynningar og tekið til umræðu í aðildarsveitarfélögum UTU. Stjórnarmenn kynntu og fóru yfir umræður sinna sveitarstjórna um framkomnar ábendingar í minnisblaðinu og núverandi fyrirkomulag skipulagsnefndar.
Stjórn þakkar Hrunamannahreppi fyrir minnisblaðið og góðar ábendingar til umræðu en í ljósi umræðu og bókana sveitarstjórna aðildarsveitarfélaganna vegna minnisblaðsins þá telur meirihluti stjórnar ekki tilefni til að breyta fyrirkomulagi á uppsetningu skipulagsnefndar UTU.
Fulltrúi Hrunamannahrepps óskar eftir því við aðildarsveitarfélög UTU að samþykktum UTU verði breytt, þar sem heimilað yrði að aðildarsveitarfélög UTU gætu starfrækt sína eigin skipulagsnefnd ef þau kjósa svo, með vísan í bókun sveitarstjórnar Hrunamannahrepps þann 16. maí sl.

Hreppsnefnd Ásahrepps er sátt við núverandi stöðu skipulagsmála og sér ekki ástæðu fyrir sitt leyti að breyta samþykktum byggðasamlagsins.

Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.
5.
Fundargerð 28. fundar stjórnar Odda bs.
Málsnúmer 2409013
Til kynningar.
6.
Fundargerð 10. fundar stjórnar Lundar
Málsnúmer 2409006
Til kynningar.
7.
Fundargerð 84. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu
Málsnúmer 2409007
Til kynningar
8.
Fundargerð 75. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Málsnúmer 2409002
Til kynningar
9.
Fundargerð 15. fundar stjórnar Arnardrangs hses.
Málsnúmer 2409003
Til kynningar.
10.
Fundargerð aðalfundar Arnardrangs hses 2024
Málsnúmer 2409016
Til kynningar.
11.
Fundargerð 237. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Málsnúmer 2409004
Til kynningar.
12.
Fundargerð 612. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2409010
Til kynningar.
13.
Fundargerð 3. fundar stjórnar Markaðsstofu Suðurlands
Málsnúmer 2409017
Til kynningar.
14.
Fundargerð 74. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 2409012
Til kynningar.
15.
Fundargerð 75. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 2409020
Til kynningar.
16.
Neyðarskýli við Hreysiskvísl
Málsnúmer 2409005
Hreppsnefnd Ásarhepps samþykkir samhljóða að óska eftir því við Eflu að gera lóðarblað fyrir umrætt neyðarskýli. Síðan verði sótt um stofnun lóðar í samstarfi við Forsætisráðuneyti og HMS. Þegar því er lokið verði óskað eftir grunnsamkomulagi við Forsætisráðuneyti um lóðina svo hægt verði að gera lóðarsamning við björgunarsveitina Dagrenningu / Landsbjörgu.
17.
Ársþing SASS 2024 á Hótel Örk 31. október - 1. nóvember 2024
Málsnúmer 2409009
Fulltrúar Ásahrepps á aðalfundum SASS eru:
Aðalmenn:
Ísleifur Jónasson
Nanna Jónsdóttir
Varamenn:
Kristín Hreinsdóttir
Helga Björg Helgadóttir

Fulltrúar Ásahrepps á aðalfundum Heilbrigðiseftirlits Suðurlands eru:
Aðalmenn:
Þráinn Ingólfsson
Helga Björ Helgadóttir
Varamenn:
Kristín Hreinsdóttir
Nanna Jónsdóttir

Hreppsnefnd Ásahrepps felur sveitarstjóra að skrá fulltrúa Ásahrepps á fundinn og ganga frá gistingu.
18.
Tenging One málakerfis við pósthólfið á island.is
Málsnúmer 2409014
Hreppsnefnd Ásahrepps felur sveitarstjóra að kanna þá möguleika sem eru í stöðunni áður en ákvörðun er tekin. Málinu frestað til næsta fundar hreppsnefndar.
19.
Viðauki nr. 1 við fjárhagsáætlun Ásahrepps 2024
Málsnúmer 2409015
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fram lagða tillögu um viðauka 1 við fjárhagsáætlun 2024, sem er samtals kostnaðaraukning að upphæð kr. 6.996.000 og verður þeim kostnaði mætt með lækkun handbærs fjár.

Sveitarstjóra falið að útfæra viðaukann í viðauka við fjárhagsáætlun 2024 og skila inn til þess bærra aðila í samstarfi við KPMG.
20.
Styrkbeiðni vegna útgáfu SÍBS blaðsins
Málsnúmer 2409018
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita styrk að upphæð kr. 10.000.
21.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Málsnúmer 2101011
Til kynningar.
22.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Til kynningar.