Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

31. fundur
16. október 2024 kl. 08:30 - 12:00
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 288. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2410009
Lögð fram fundargerð 288. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU nr. 24-211.
Mál nr. 1; Ásmundarstaðir 2 (L165266); byggingarheimild; aðstöðuhús - 2409022.
Móttekin var umsókn þann 09.09.2024 um byggingarheimild fyrir 52 m2 aðstöðuhús á jörðinni Ásmundarstaðir 2 L165266 í Ásahreppi.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að málið fái málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna útgáfu framkvæmda- eða byggingarleyfis þar sem segir að sveitarstjórn sé heimilað að vikið sé frá kröfum 2. mgr. um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu þegar um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Málinu er vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

Mál nr. 2; Áskot lóð 3 L203831; Borholur; Framkvæmdarleyfi - 2409047.
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til borunar á hitastigulsholur við Ás og þar í kring til að kortleggja hitastigulinn á svæðinu. Fyrir liggja samningar við landeigendur sem taka til viðkomandi framkvæmda.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að útgáfa framkvæmdaleyfis verði samþykkt á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem fyrir liggja samningar við landeigendur um framkvæmdina telur nefndin ekki þörf á grenndarkynningu vegna málsins.

Mál nr. 23; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 24-211 - 2409002F.
Lögð fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 24-211.
2.
Fundargerð 289. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2410021
Lögð fram fundargerð 289. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU nr. 24-212.
Mál nr. 1; Ás III-1 land L204646; Bygging tjaldhýsa; Deiliskipulag - 2405108.
Lögð er fram eftir auglýsingu tillaga deiliskipulags sem tekur til lands Vesturáss og Áss 3 land III-1. Innan svæðisins eru skilgreindar byggingarheimildir sem taka til uppbyggingar á íbúðarhúsi, hesthúsi og reiðskemmu auk kúlutjalda sem ætluð eru til útleigu. Gerðar hafa verið breytingar á aðkomu að landinu frá auglýstri tillögu.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Nefndin telur að ekki sé ástæða til auglýsa málið að nýju vegna breyttrar vegtengingar þar sem samþykkt Vegagerðarinnar vegna bráðabirgðar vegtengingar að landinu liggur fyrir, skipulagsfulltrúi fundaði jafnframt með Vegagerðinni vegna málsins sem stendur við fyrri umsögn vegna málsins með fyrirvara um að komi til breytinga á deiliskipulagi svæðisins sem verði til þess að umferð um afleggjarann verði meiri þurfi hugsanlega að endurskoða viðkomandi tengingu. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Mál nr. 32; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 24-212 - 2409004F.
Lögð fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 24-212.
3.
Nefnd um göngu-, reiðhjóla- og reiðleiðir í Ásahreppi - 8
Málsnúmer 2409002F
4.
Fundargerð 85. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu.
Málsnúmer 2410011
Lögð fram fundargerð 85. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu bs. ásamt rökstuðningi vegna ráðningu verkefnastjóra farsældarlaganna.Dagskrárliður nr. 1 þarfnast staðfestingar hreppsnefndar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fyrir sitt leyti afgreiðslu stjórnar skv. dagskrárlið 1 og veitir fyrir sitt leyti heimild til að leitað verði tilboða í verkefnastjórn fyrir samþættingu þjónustu í tengslum við lög um farsæld barna, en verkefnastjóri myndi jafnframt leiða samþættingu þjónustunnar.
Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.
5.
5. vinnufundur stjórnar Odda bs um þróun leikskólastarfs
Málsnúmer 2410018
Lögð fram fundargerð 5. vinnufundar stjórnar Odda bs. um þróun leikskólastarfs. Einnig lögð fram skýrsla um þróun þjónustu í leikskólum Odda bs. unnin var af Skólastofunni slf.
Til kynningar.
6.
Fundargerð 29. fundar stjórnar Odda bs.
Málsnúmer 2410015
Lögð fram fundargerð 29. fundar stjórnar Odda bs.
Til kynningar.
7.
Fundargerð 30. fundar stjórnar Odda bs. - haustfundur
Málsnúmer 2410017
Lögð fram fundargerð 30. fundar stjórnar Odda bs. sem jafnframt var haustfundur Odda bs. Einnig lagðar fram starfsáætlanir leik- og grunnskóla sveitarfélaganna.
Til kynningar.
8.
Fundargerð 239. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Málsnúmer 2410008
Lögð fram fundargerð 239. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Til kynningar.
9.
Fundargerð 76. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Málsnúmer 2410003
Lögð fram fundargerð 76. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 77. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Málsnúmer 2410016
Lögð fram fundargerð 77. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
11.
Fundargerð 16. fundar stjórnar Arnardrangs hses
Málsnúmer 2410004
Lögð fram fundargerð 16. fundar stjórnar Arnardrangs hses.
Til kynningar.
12.
Fundargerð 17. fundar stjórnar Arnardrangs hses
Málsnúmer 2410007
Lögð fram fundargerð 17. fundar stjórnar Arnardrangs hses.
Til kynningar.
13.
Fundargerð 327. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Málsnúmer 2410005
Lögð fram fundargerð 327. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Til kynningar.
14.
Fundargerð 238. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Málsnúmer 2410010
Lögð fram fundargerð 238. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands, ásamt bréfum frá Samtökum heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi, dags. 6. júní 2024, og Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, dags. 19. september 2024.
Til kynningar.
15.
Fundargerð 239. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Málsnúmer 2410020
Lögð fram fundargerð 239. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands.
Til kynningar.
16.
Fundargerð 613. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2410006
Lögð fram fundargerð 613. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
17.
Fundargerð 614. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2410024
Lögð fram fundargerðð 614. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
18.
Fundargerð 76. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 2410013
Lögð fram fundargerð 76. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
19.
Fundargerð 951. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2410002
Lögð fram fundargerð 951. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
20.
Fundargerð 952. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2410014
Lögð fram fundargerð 952. fundar stórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
21.
Uppfærð skipulagslýsing Ásmúlasel, Ásmúla 1B og Ásmúla 1C
Málsnúmer 2410026
Lögð fram uppfærð skipulagslýsing Ásmúlasel, Ásmúla 1B og Ásmúla 1C, breyting aðalskipulags og nýtt deiliskipulag fyrir verslunar- og jónustusvæði. Skipulagslýsing var kynnt á opnum íbúafundi á Laugalandi þann 3. október s.l. Lagt er fram minnisblað sveitarstjóra sem tekið var saman á fundinum. Einnig lagt fram erindi til hreppsnefndar Ásahrepps, dags. 10. október 2024, frá íbúum við Ásveg og öðrum hagaðilum þar sem farið er fram á að hreppsnefnd vísi frá og hætti við að auglýsa umrædda skipulagslýsingu. Krafist er að hætt verði við umræddar breytingar á skipulagi og þess krafist að aðalskipulag Ásahrepps 2020-2032 haldist óbreytt í þágu íbúa og með almannahagsmuni ofar sérhagsmunum.Lagt var fram tölvuskeyti Torfa G. Yngvasonar, dags. 14. október 2024, þar sem tilkynnt er að framlögð skipulagslýsing um breytingu á Aðalskipulagi Ásahrepps er dregin til baka.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að falla frá frekari kynningu á skipulagslýsingu sem tekur til breytinga á aðalskipulagi og nýju deiliskipulagi fyrir Ásmúlasel, Ásmúla 1B og Ásmúla 1C í Ásahreppi og lýsingin verði ekki kynnt frekar. Jafnframt samþykkir hreppsnefnd að ekki verði gerð breyting á Aðalskipulagi Ásahrepps 2020-2032 sem tekur til þeirrar uppbyggingar á þessu svæði sem tilghreind er í skipulagslýsingunni.
Þessi ákvörðun hreppsnefndar Ásahrepps byggir á þeim athugasemdum sem fram koma í bréfum frá íbúum og hagaðilum, dags. 10. október 2024, og barst hreppsnefnd eftir íbúafund sem haldinn var 3. október 2024 þar sem skipulagslýsing og uppbyggingaráform voru kynnt. Þessi ákvörðun er einnig í samræmi við ákvörðun Steinar Resort ehf (Torfa G. Yngvasonar) að draga málið til baka í ljósi afstöðu íbúa til málsins.
Hreppsnefnd Ásahrepps fagnar þeirri þátttöku sem varð meðal íbúa og hagaðila á íbúafundi þann 3. október s.l. þar sem skýr afstaða kom fram í málinu. Afstaða íbúa og hagaðila átti að vera grundvöllur fyrir frekari ákvarðanatöku hreppsnefndar gagnvart þessum uppbyggingaráformum.
22.
Fjárhagsáæltun Ásahrepps 2025 - 2028
Málsnúmer 2410019
Lögð fram frumdrög að fjárhagsáætlun Ásahrepps fyrir árin 2025-2028.Umræða varð um drögin og sveitarstjóri gerði grein fyrir þeim forsendum sem liggja til grundvallar. Ljóst er að margar forsendur eru ekki komnar fram ennþá, en þessum drögum er ætlað að gefa vísbendingu um reksturinn næstu fjögur ár að teknu tilliti til þjóðhagsspár m.m.
Hreppsnefnd Ásahrepps vísar fjárhagsáætlun til næsta reglubundna fundar Ásahrepps, en á þeim tíma ættu allflestar forsendur að liggja fyrir við gerð fjárhagsáætlunar.
23.
Tenging One málakerfis við pósthólfið á island.is
Málsnúmer 2409014
Þessum dagskrárlið var frestað á 30. fundi hreppsnefndar Ásahrepps og sveitarstjóra falið að leita upplýsinga um aðra möguleika.Lagt fram tilboð Spektra varðandi uppsetningu og rekstur skjala- og fundarkerfi með tengingu við Þjóðskrá. Einnig lagt fram skjal sem sýnir sambanburð á kostnaði við að taka upp nýtt kerfi frá Spektra og kostnað við að halda áfram samningum við OneSystem með þessari nýju viðbót um birtingu skjala á Island.is.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að kaupa lausn OneSystem vegna tenginga við pósthólf Island.is til opinberra birtinga. Sveitarstjóra falið að ganga frá samningum við OneSystem og undirrita samning um kaup kerfisins.
24.
Námugjöld vegna efnistöku innan þjóðlendna
Málsnúmer 2408020
Lagt fram tölvuskeyti forsætisráðuneytisins, dags. 30. september 2024, ásamt álitsgerð um Guðjóns Bragasonar varðandi samning Landsvirkjunar og ríkisins og fleiri þátta.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir stöðu málsins, en þetta í skoðun hjá forsætisráðuneytinu og mun skýrari línur munu liggja fyrir eftir næsta fund ráðgjafanefnd um þjóðlendur sem haldinn verður 3. desember n.k.
25.
Styrkbeiðni Æskulýðsnefndar kirkna í Rangárvallasýslu
Málsnúmer 2410001
Lagt fram bréf Æskulýðsnefndar kirkna í Rangárvallasýslu, dags. 27. september 2024, þar sem óskað er eftir fjárstyrk að upphæð kr. 20.000 vegna mótshalds í Vatnaskógi með væntanlegum fermingarbörnum í sýslunni.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita umbeðinn styrk.
26.
Styrkbeiðni Samtakanna ''78
Málsnúmer 2410022
Lagt fram tölvuskeyti Samtakanna '78, dags. 20. september 2024, þar sem samtökin óska eftir fjárstyrk til reksturs samtakanna.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita samtökunum styrk að fjárhæð kr. 10.000.
27.
Styrkbeiðni Krabbameinsfélagsins Framför
Málsnúmer 2410023
Lagt fram tölvuskeyti Krabbameinsfélagsins Framför, dags. 7. október 2024, þar sem óskað er eftir fjárstyrk vegna styrktarátaksins "Blái trefillinn".
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita styrk til verkefnisins að upphæð kr. 10.000.
28.
Styrkbeiðni vegna Dags sauðkindarinnar í Rangárvallasýslu
Málsnúmer 2410025
Lagt fram tölvuskeyti Huldu Brynjólfsdóttur f.h. nefndar um "Dag sauðkindarinnar í Rangárvallasýslu", dags. 11. október 2024, þar sem óskað er eftir fjárstyrk frá Ásahreppi til að standa undir kostnaði við framkvæmd viðburðarins "Dagur sauðkindarinnar í Rangárvallasýslu".
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita fjárstyrk að upphæð kr. 50.000 til verkefnisins.
29.
Fyrirkomulag greiðslna til sveitarfélaga vegna söfnunar plastvara á víðavangi
Málsnúmer 2410012
Lagt fram bréf Úrvinnslusjóðs, dags. 26. september 2024, þar sem upplýst er um fyrirkomulag greiðslna til sveitarfélaga vegna söfnunar plastvara á víðavangi og úr rulabiðum árin 2023 og 2024. Ásahreppur fær greiddar kr. 38.383.
Til kynningar.
30.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Málsnúmer 2101011
Lagt fram rekstraryfirlit fyrir sveitarsjóð Ásahrepps fyrir tímabilið 1. janúar - 30. september 2024.
Til kynningar.
31.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn 20. nóvember 2024. Fundurinn verður haldinn á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi og hefst klukkan 8:30.
Til kynningar.