Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

32. fundur
20. nóvember 2024 kl. 08:30 - 14:15
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 290. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2411005
Mál nr. 1; Ás 3 II-3land L204644; Skilgreining lóðar; Deiliskipulag - 2405084
Lögð er fram, eftir auglýsingu, tillaga deiliskipulags sem tekur til lands Áss 3 II-3land L204644. Tillagan tekur til um 2,3 ha lands þar sem gert er ráð fyrir uppbyggingu íbúðarhúss, gestahúss, bílskúrs og geymsluskúrs.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Hreppsnefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan skipulagstillögunnar. Hreppsnefnd Ásahrepps mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Eigendum Skógaráss L204645 verði tilkynnt um niðurstöðu málsins þar sem fram komu athugasemdir um aðkomu að lóðinni sem deiliskipulagið tekur til.

Mál nr. 27; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 24-213 - 2410002F
Lögð fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU nr. 24-213.
2.
Fundargerð 291. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2411041
Mál nr. 1; Efri-Sumarliðabær L165276; Húsaskógur; Stofnun lóðar - 2410080
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 21.10.2024, skv. reglugerð um merki fasteigna nr. 160/2024, er varðar stofnun nýrrar landeignar.
Óskað er eftir að stofna 40.000 fm landeign, Húsaskógur, úr landi Efri-Sumarliðabæjar L165276. Aðkoma að lóðinni er um vegslóða sem liggur frá heimreið Efri-Sumarliðabæ að landinu og með austurmörkum lóðarinnar.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við framlagða beiðni um afmörkun og stofnun lóðarinnar skv. framlagðri merkjalýsingu.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir erindið. Svæðið sem um ræðir er skilgreint sem skógaræktar- og landgræðslusvæði SL4 innan aðalskipulags Ásahrepps þar sem eftirfarandi skilmálar koma fram: "Skógræktarsvæði þar sem unnið er að gróðursetningu undir merkjum Suðurlandsskóga/Skógræktarinnar. Heimilt er að nýta svæðið til útivistar og útbúa gönguleiðir, áningarstaði og bílastæði. Stærð svæðis er um 117 ha." Hreppsnefnd Ásahrepps bendir á að framkvæmdir innan lands eru að jafnaði háðar útgáfu framkvæmdaleyfis og/eða byggingarleyfis. Hreppsnefndin bendir á að innan merkjalýsingar skal tilgreina með greinilegum hætti um notkun svæðisins á aðalskipulagi sveitarfélagsins.

Mál nr. 2; Holtamannaafréttur; Búðarháls; Skilgreining efnistökusvæðis; Aðalskipulagsbreyting - 2405016
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar er varðar skilgreiningu efnistökusvæðis á austanverðum Búðarhálsi, milli Tungnaár og vegarins að Sporðöldustíflu. Efnistökusvæðið er á gildandi deiliskipulagi Búðarhálsvirkjunar, merkt E8. Stærð námu verði 2,3 ha og heimiluð efnistaka allt að 49.000 m3.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða tillögu aðalskipulagsbreytingar til kynningar í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hreppsnefnd Ásahrepps bendir á að samningur um efnisnám og fyrirkomulag greiðslna fyrir efnisnám á námusvæðum sé forsenda útgáfu framkvæmdaleyfis.

Mál nr. 3; Ás 3 land II-3 L204644; Vegtenging; Framkvæmdarleyfi - 2410097
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til veglagningar og vegtengingar á milli afleggjara að Skógarási L204645 og Ás 3 land II-3 L204644.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á grundvelli heimilda deiliskipulags Skógaráss. Mælist hreppsnefndin til þess að málsaðili leiti samráðs við landeigenda Skógaráss um framkvæmdina í samráði við skipulagsfulltrúa UTU.

Mál nr. 4; Holtamannaafréttur L221893; Sigöldustöð; Efnistökusvæði; Aðalskipulagsbreyting - 2405114
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar sem tekur til breytingar á aðalskipulagi Ásahrepps 2020-2032 eftir kynningu. Með breytingunni felst að skilgreint verði nýtt efnistökusvæði við aðrennslisskurð Sigöldustöðvar. Efni hefur verið tekið af svæðinu við framkvæmdir tengdar virkjunum og vatnsmiðlun, en náman er ekki á skipulagi. Efni úr námunni verður einkum nýtt við framkvæmdir í tengslum við fyrirhugaða stækkun Sigöldustöðvar. Stærð efnistökusvæðis verður um 1 ha og heimilt verður að vinna allt að 49.000 m3 af efni. Umsagnir bárust við kynningu málsins og eru þær lagðar fram við afgreiðslu þess.
Afgreiðsla Skipulagsstofnunar fyrir auglýsingu liggur fyrir en tillagan fór fyrir mistök til yfirferðar hjá Skipulagsstofnun eftir kynningu þar sem óskað var eftir heimild til að auglýsa tillöguna. Er tillagan því lögð fram til samþykktar fyrir auglýsingu.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagða tillögu að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna efnistökusvæðis við Sigöldustöð í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 31 sömu laga. Samþykkt Skipulagsstofnunar fyrir auglýsingu tillögunnar liggur fyrir.
Hreppsnefnd Ásahrepps bendir á að samningur um efnisnám og fyrirkomulag greiðslna fyrir efnisnám á námusvæðum sé forsenda útgáfu framkvæmdaleyfis.

Mál nr. 5; Kálfholt L165294; Kálfholt M1, Bergholt og Kálfholt M2; Stofnun lóða - 2411005

Ísleifur Jónasson vék af fundi við afgreiðslu málsins.

Lögð er fram til samþykktar merkjalýsing, skv. reglugerð um merki fasteigna nr. 160/2024, sem tekur til landskipta á jörðinni Kálfholt 165294 í Ásahreppi. Þremur spildum er skipt úr jörðinni Kálfholti M1 (28,6 ha) Kálfholt M2 (16,5 ha) og Bergholt (65.964 fm)
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við stofnun spildnanna skv. framlagðri merkjalýsingu.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða erindið. Hreppsnefnd bendir á að framkvæmdir innan lóðar eru að jafnaði háðar gerð deiliskipulags sem tekur til svæðisins.

Mál nr. 39; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 24-214 - 2410004F
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU nr. 24-124.
3.
Nefnd um göngu-, reiðhjóla- og reiðleiðir í Ásahreppi - 9
Málsnúmer 2410002F
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir samhljóða fundargerðina.
4.
Fundargerð 31. fundar stjórnar Odda bs.
Málsnúmer 2411021
Dagskrárliðir 2, 3 og 4 þarfnast staðfestingar hreppsnefndar Ásahrepps.

Bókun stjórnar Odda bs. undir 2. dagskrárlið:
Viðauki 2 við fjárhagsáætlun Odda bs. 2024 Klara Viðarsdóttir fjármálastjóri fór yfir tillögu að viðauka 2 fyrir Odda bs. Lagður fram viðauki 2 við rekstraráætlun Odda bs 2024. Greinargerð fylgir viðaukanum. Viðaukinn gerir ráð fyrir auknum rekstarkostnaði að fjárhæð kr. 9.600.000. Óskað er eftir að viðaukanum verði mætt með hækkun á framlagi frá Rangárþingi ytra að fjárhæð kr. 44.893.041 en lækkun framlaga frá Ásahreppi um kr.35.293.041. Gert er ráð fyrir leiðréttingu framlaga sveitarfélaganna vegna uppfærslu á raunfjölda nemenda frá hvoru sveitarfélagi. Stjórn Odda samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til sveitarfélaganna til endanlegrar afgreiðslu.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti framlagðan viðauka 2 við fjárhagsáætlun 2024.

Bókun stjórnar Odda bs undir 3. dagskrárlið er:
Lögð fram og rædd tillaga að gjaldskrá fyrir Odda bs fyrir árið 2025. Tillagan gerir ráð fyrir breytingum á gjaldskrá leikskólana í kjölfar tillagna stýrihóps um þróun leikskólastarfs. Markmiðið með breytingum á gjaldskrá er m.a. að reyna að koma til móts við ákvæði kjarasamninga um styttingu vinnutímans og bæta rekstrarumhverfi leikskólanna. Þar er verið að taka upp stigskipta gjaldskrá eftir vistunartíma. Jafnframt er verið að gera tillögu um leikskólarnir loki kl. 14:00 á föstudögum en boðið verði upp á sérskráningar eftir kl. 14:00 á föstudögum. Þá verði leikskólar lokaðir í jólafríi grunnskóla og dimbilviku en í boði verði upp á sérskráningar í jólafríi og í dimbilviku en tekið sérstakt gjald fyrir. Þá er lagt til að gjöld vegna fyrir hverjar 15 mín umfram 8 klst. vistun og gjald fyrir að sækja börn of seint í leikskóla hækki. Gert er ráð fyrir að fæðisgjöld og gjöld vegna skóladagheimila hækki um 3,5% í samræmi við tilmæli kjarasamninga en gert er einnig ráð fyrir að skóladagheimili loki kl. 14:00 á föstudögum. Gjaldskráin tekur gildi 1. janúar 2025. Gjaldskráin samþykkt samhljóða.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða gjaldskrá Odda bs. 2025. Jafnframt samþykkir sveitarstjórn þær tillögur sem stjórn Odda bs. hefur samþykkt á 30. fundi sínum um þróun leikskólastarfs til að styrkja starfsumhverfi leikskólana og mæta kröfum vegna styttingu vinnuvikunnar. Hreppsnefnd leggur áherslu á að í kjölfar þessara breytinga verði þær kynntar ítarlega fyrir foreldrum leikskólabarna og þeirra foreldra sem nýta sér skóladagheimili grunnskóla. Jafnframt er lagt til að breytingar á gjaldskrá og þróunar leikskólastarfs verði tekið til skoðunar eftir skólaárið.

Bókun stjórnar Odda bs. undir 4. dagskrárlið:
Lögð er fram og rædd tillaga að fjárhagsáætlun 2025 fyrir Odda bs. Stjórnin hefur átt vinnufund m.a. með öllum skólastjórum byggðasamlagsins og farið yfir þeirra áherslur. Gert er ráð fyrir að heildarkostnaður sveitarfélaganna vegna Odda bs verði kr. 1.698.746.000 sem er um 12% hækkun frá áætlun síðasta árs. Framlögin skiptast þannig að hlutur Rangárþings ytra verður kr. 1.504.722.269 og hlutur Ásahrepps kr. 193.990.731. Áætlunin miðar við fjölda grunn- og leikskólabarna þann 1. október 2024 sem er 270 grunnskólabörn og leikskólabörn sem telja 148,7 barngildi. Tillaga er um að samþykkja fjárhagsáætlun 2025 fyrir Odda bs. Samþykkt samhljóða.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða niðurstöður stjórnar Odda bs undir dagskrárliðum nr. 2, 3 og 4 í fundargerð.

Að öðru leyti er fundargerðin til kynningar.
5.
Fundargerð 11. fundar stjórnar Húsakynna bs.
Málsnúmer 2411016
Dagskrárliður nr. 2 þarfnast staðfestingar hreppsnefndar Ásahrepps.
Bókun stjórnar Húsakynna er:
Fjárhagsáætlun fyrir árið 2025 lögð fram til umræðu og samþykktar. Gert er ráð fyrir 15 mkr. í fjárfestingu árinu vegna áframhaldandi uppbyggingar á leikskóladeildum og viðhaldi á skólahúsnæði. Stefnt að því að sambærilegt fjármagn verði lagt til reksturs og fjárfestingu til næstu fjögurra ára. Lagt til að gera fjárfestingar- og viðhaldsáætlun í samræmi við frumdrög húsrýmisáætlunar sem verði tilbúin fyrir vinnu fjárhagsáætlunar 2026-2029. Samþykkt samhljóða.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi fjárhagsáætlun fyrir árið 2025, fyrir sitt leyti.
6.
Fundargerð 8. fundar stjórnar Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps
Málsnúmer 2411027
Dagskrárliðir 2 og 3 þarfnast staðfestingu hreppsnefndar Ásahrepps.

Bókun stjórnar um 2. dagskrárlið:
Lögð fram tillaga að fjárhagsáætlun ársins 2025.
Tillaga gerir ráð fyrir að tekjur verði 140mkr og rekstrarniðurstaða verði jákvæð um 16,8mkr. Fjárfesting ársins verði 37mkr. Ekki er gert ráð fyrir lántöku á árinu. Samþykkt samhljóða.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fjárhagsáætlun 2025 fyrir sitt leyti.

Bókun stjórnar um 3. dagskrárlið:
Lögð fram drög að gjaldskrá Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps til samþykktar. Lagt er til að hækka gjaldskrá um 3,5%. Samþykkt samhljóða.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða gjaldskrá 2025 fyrir sitt leyti.

Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.
7.
Fundargerð 85. fundar stjórnar Brunavarna Rangárvallasýslu bs
Málsnúmer 2411017
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fyrirliggjandi fjárhagsáætlun 2025 fyrir sitt leyti.
8.
Fundargerð 240. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Málsnúmer 2411032
Dagskrárliðir 2, 3 og 4 þarfnast staðfestingar hreppsnefndar Ásahrepps.

Bókun stjórnar við dagskrárlið nr. 2:

Lagður fram viðauki við fjárhagsáætlun 2024. Helstu breytingar skv. honum er að gert er ráð fyrir að tekjur hækki um 56,9 m.kr. vegna aukins móttekins úrgangs. Þá hækka laun um 8,5 m.kr. vegna aukinna umsvifa og forfalla vegna veikinda. Hliðgjöld hjá þjónustuaðila hækka um 9,5 m.kr vegna aukins magns sem sent er frá Strönd.
Stjórn samþykkir viðaukann og vísar honum til staðfestingar aðildarsveitarfélaga.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti framlagðan viðauka við fjárhagsáætlun 2024.

Bókun stjórnar við dagskrárlið nr. 3:
Tillaga að gjaldskrá 2025 lögð fram. Lagt er til að sorphirðu- og sorpeyðingargjöld hækki um 3,5%. Móttökugjöld á gjaldskyldum úrgangi hækka í samræmi við hækkanir á afsetningu hjá þjónustuaðilum og vegna aukins kostnaðar við meðhöndlun og vinnslu úrgangs á Strönd fyrir afsetningu.
Stjórn samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrá og vísar henni til afgreiðslu aðildarsveitarfélaga.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti framlagða gjaldskrá 2025.

Bókun stjórnar við dagskrárlið nr. 4:
Fjárhagsáætlun 2025 lögð fram. Gert er ráð fyrir að tekjurnar verði 270,7 m.kr. og gjöld fyrir utan fjármagnsliði 268,1 m.kr. Gert er ráð fyrir að veltufé frá rekstri verði 32,2 m.kr. og að fjárfestingar á árinu 2025 verði 51 m.kr.
Fjárhagsáætlun er samþykkt og vísað til staðfestingar aðildarsveitarfélaga.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti fjárhagsáætlun 2025.

Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.
9.
Fundargerð 34. fundar stjórnar Tónlistarskóla Rangæinga bs
Málsnúmer 2411039
Dagskrárliður nr. 2 þarfnast staðfestingar hreppsnefndar Ásahrepps.

Bókun stjórnar við dagskrárlið nr. 2:
Lögð fram rekstraráætlun ársins 2025
Gert er ráð fyrir:
Rekstrartekjum að upphæð kr. 162.866.000.
Rekstrargjöld að upphæð kr. 162.690.000, án fjármagnsliða.
Rekstrarframlög sveitarfélaganna verði kr. 138.322.000.
Stjórn samþykkir fjárhagsáætlun og vísar til staðfestingar aðildarsveitarfélaga.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti framlagða fjárhagsáætlun 2025.

Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.
10.
Fundargerð 116. fundar stjórnar UTU
Málsnúmer 2411045
Dagskrárliður nr. 5, Fjárhagsáætlun UTU 2025-2028, þarfnast staðfestingar hreppsnefndar Ásahrepps.
Nanna Jónsdóttir vék af fundi við afgreiðslu 5. dagskrárliðar.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti framlagða fjárhagsáætlun fyrir árin 2025-2028.
11.
Fundargerð 6. fundar Héraðsnefndar Rangæinga
Málsnúmer 2411018
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að fjárhagsáætlun Héraðsnefndar Rangæinga 2025 fyrir sitt leyti. Jafnframt samþykkir hreppsnefnd samhljóða fyrir sitt leyti að gengið verði til samninga um að Rangárþing ytra taka að sér bókhaldsþjónustu fyrir Héraðsnefndina.

Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.

Að öðru leyti er fundargerðin lögð fram til kynningar.
12.
Fundargerð 86. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu
Málsnúmer 2411019
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti fjárhagsáætlun Félags- og skólaþjónustu fyrir rekstrarárið 2025.
13.
Fundargerð stjórnar Skógasafns, 12. nóvember 2024
Málsnúmer 2411037
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir fyrir sitt leyti fjárhagsáætlun Skógasafns 2025.
Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.
14.
Fundargerð stjórnar Skógasafns, 10 september 2024
Málsnúmer 2411033
Til kynningar.
15.
Fundargerð stjórnar Skógasafns, 3. október 2024
Málsnúmer 2411034
Til kynningar.
16.
Fundargerð stjórnar Skógasafns, 9. október 2024
Málsnúmer 2411035
Til kynningar.
17.
Fundargerð stjórnar Skógasafns, 18. október 2024
Málsnúmer 2411036
Til kynningar.
18.
Fundargerð 11. fundar stjórnar Lundar
Málsnúmer 2411003
Til kynningar.
19.
Fundargerð 12. fundar stjórnar Lundar
Málsnúmer 2411004
Til kynningar.
20.
Fundargerð héraðsráðs Héraðsnefndar Rangæinga, dags. 16. október 2024
Málsnúmer 2411001
Til kynningar.
21.
Fundargerð 84. fundar stjórnar Brunavarna Rangárvallasýslu bs
Málsnúmer 2411044
Til kynningar.
22.
Fundargerð 114. fundar stjórnar UTU
Málsnúmer 2411023
Til kynningar.
23.
Fundargerð 115. fundar stjórnar UTU
Málsnúmer 2411024
Til kynningar.
24.
Fundargerð 328. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands bs.
Málsnúmer 2411007
Til kynningar.
25.
Fundargerð aðalfundar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands 2025
Málsnúmer 2411022
Til kynningar.
26.
Fundargerð aðalfundar Bergrisans bs. dags. 14. október 2024
Málsnúmer 2411009
Til kynningar.
27.
Fundargerð 78. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Málsnúmer 2411014
Til kynningar.
28.
Fundargerð 18. fundar stjórnar Arnardrangs hses.
Málsnúmer 2411010
Til kynningar.
29.
Fundargerð 19. fundar stjórnar Arnardrangs hses.
Málsnúmer 2411011
Til kynningar.
30.
Fundargerð aðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga sem haldinn var 9. október 2024
Málsnúmer 2411008
Til kynningar.
31.
Fundargerð 953. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2411015
Til kynningar.
32.
Fundargerð 954. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2411025
Til kynningar.
33.
Ákvörðun um álagningu útsvars, gjalda og gjaldskrár 2025
Málsnúmer 2411042
1.
Álagningarprósenta útsvars 2025
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að álagningarprósenta útsvars skuli vera 14,97%.

2.
Álagningarhlutfall fasteignaskatts 2025
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að álagningaprósenta fasteignaskatts verði:
A
0,15% af fasteignamati á íbúðarhúsnæði, bílageymslur, geymsluhúsnæði, lönd og útihús í landbúnaði og sumarhús, allt með tilheyrandi lóðum.
B
1,32% af fasteignamati sjúkrastofnana skv. lögum um heilbrigðisþjónustu, skóla, heimavista, leikskóla, íþróttahúsa og bókasafna, að meðtöldum lóðum og lóðarréttindum.
C
1,65% af fasteignamati allra annarra fasteigna með tilheyrandi lóðum, þó að undanskildum fasteignum í 0 flokki.
Afsláttur af fasteignaskatti til fasteignaeigenda sem eru 67 ára og eldri, eða 75% öryrkjar eða meira, og eiga lögheimili í viðkomandi fasteign fer eftir samþykkt um tekjutengdan afslátt af fasteignaskatti sem samþykkt var af hreppsnefnd Ásahrepps 13. desember 2017.
Gjalddagar verða sex (6) talsins árið 2025, fyrsta hvers mánaðar frá 1. febrúar til 1. júlí. Þar sem heildarupphæð er undir kr. 20.000 er einn gjalddagi, 1. apríl. eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga.
Ekki verða sendir út greiðsluseðlar né álagningarseðlar í bréfpósti. Álagningarseðlar eru aðgengilegir á heimsíðunni www.island.is. Stofnuð verður krafa í heimabanka með sama hætti og áður sem hægt er að greiða rafrænt. Þeir sem óska þess að fá áfram send skjöl með bréfpósti gefst kostur á því og er bent á að hafa samband við skrifstofu hreppsins.

3.
Gjaldskrá kaldavatnsveitu 2025.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að vatsgjöld verði samkvæmt gjaldskrá Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps bs.

4.
Gjaldskrá vegna meðhöndlunar úrgangs 2025.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að gjald fyrir meðhöndlun úrgangs verði samkvæmt gjaldskrá Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs fyrir sorphirðu og sorpeyðingu.

5.
Gjaldskrá íþróttamiðstöðvarinnar á Hellu, Laugalandi og Þykkvabæ 2025.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að gjaldtaka vegna almennrar notkunar íþróttamiðstöðvanna fari eftir sameiginlegri gjaldskrá Rangárþing ytra og Ásahrepps.

6.
Gjaldskrá fyrir hreinsun rotþróa 2025.
Gjöld vegna hreinsun rotþróa í Ásahreppi fer eftir gjaldskrá sem samþykkt var 20. nóvember 2024. Þar kemur fram að árleg rotþróargjald vegna rotþróa allt að 6000 lítra sem tæmdar eru þriðja hvert ár verði kr. 13.000, en þær sem tæmdar eru fimmta hvert ár kr. 7.800.

7.
Heimgreiðslur 2025.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að reglur um heimgreiðslur sem lagðar eru fram á þessum fundi og verði kr. 125.000 á árinu 2025.

8.
Íþrótta- og tómstundastyrkur 2025.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að reglur um íþrótta- og tómstundastyrki, frá nóvember 2019, verði óbreyttar og styrkur geti numið allt að kr. 100.000.

9.
Hvatastyrkur til íbúa eldri en 60 ára til íþrótta- og heilsustyrkingar 2025.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita íbúum Ásahrepps hvatastyrk til heilsuefnlingar og félagslegrar virkni að upphæð allt að kr. 75.000 á hvern íbúa eldri en 60 ára, gegn framvísun greiðslukvittunar fyrir kostnaði er lýtur að heilsurækt og félagslegrar virkni viðkomandi á árinu 2025.

10.
Leikskólagjald.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að leikskólagjöld verið skv. útgefinni gjaldskrá Odda bs. fyrir árið 2025.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita aukinn afslátt til einstæðra foreldra, námsmanna og öryrkja.
Afslættir verði:
Einstæðir foreldrar: 50%
Námsmenn: annað foreldri 25% en ef báðir foreldrar 50%
Öryrkjar: annað foreldri 25% en ef báðir foreldrar 50%

11.
Mötuneytiskostnaður leik- og grunnskólabarna.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrri ákvörðun hreppsnefndar frá desember 2017 að greitt verði áfram 100% mötuneytisgjald fyrir öll leik- og grunnskólabörn á árinu 2025. Niðurgreiðslurnar gilda fyrir börn með lögheimili og aðsetur í Ásahreppi.
34.
Gjaldskrá Ásaljóss fyrir árið 2025
Málsnúmer 2411046
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagða tillögu að gjaldskrá og skal hún gilda frá 1. janúar 2025.
35.
Fjárhagsáæltun Ásahrepps 2025 - 2028
Málsnúmer 2410019
Umræður urðu um framlagða áætlun og henni vísað til síðari umræðu. Gert er ráð fyrir að síðari umræða og afgreiðsla fari fram á aukafundi hreppsnefndar sem haldinn verður 4. desember n.k. klukkan 13:00 á skrifstofu Ásahrepps.
36.
Neyðarskýli við Hreysiskvísl
Málsnúmer 2409005
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi grunnsamkomulag fyrir lóðina við Hreysiskvísl og felur sveitarstjóra að fullklára það í samvinnu við forsætisráðuneytið. Jafnframt felur hreppsnefnd sveitarstjóra að undirrita grunnsamkomulagið fyrir hönd Ásahrepps.
37.
Styrkbeiðni vegna aðventuhátíðar að laugalandi 2024
Málsnúmer 2411006
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita styrk að upphæð kr. 30.000.
38.
Erindi Rangárþings ytra; aukaframlag vegna árshátíðar 2024
Málsnúmer 2411013
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að leggja til kr. 50.000 sem sinn hlut í að brúa þetta bil.
39.
Verkefnisstjóri íþrótta- og fjölmenningarmála
Málsnúmer 2411020
Byggðaráð Rangárþings ytra bókaði á 31. fundi sínum:
Farið var yfir starfslýsingu verkefnisstjóra íþrótta- og fjölmenningarmála og hvernig verkefnið hefði gengið.
Byggðarráð leggur til að auglýst verði starf íþrótta- og fjölmenningarfulltrúa á grundvelli starfslýsingarinnar sem myndi taka til starfa um næstu áramót og sveitarstjóra verði falið að undirbúa auglýsingu fyrir starfið. Jafnframt verði óskað eftir því að Ásahreppur taki þátt í verkefninu á sama hátt og með önnur samstarfsverkefni sveitarfélaganna. Samþykkt samhljóða.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða af fresta afgreiðslu erindisins og óska eftir að fulltrúi frá Rangárþingi ytra komi á fund hreppsnefndar 4. desember n.k. til að gera betur grein fyrir þessu verkefni og kostnaði við það.
40.
Styrkbeiðni Ljóssins, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöðvar
Málsnúmer 2411026
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita Ljósinu styrk að upphæð kr. 10.000.
41.
Ósk um lækkaðan umferðarhraða framhjá bæjunum Ás 1, 2 og 3 með tveimur hraðahindrunum
Málsnúmer 2411030
Hreppsnefnd Ásahepps tekur undir með bréfritara að þetta ástand sem nú er við Ás er óviðunandi. Samþykkt samhljóða að ítreka fyrri beiðni Ásahrepps til Vegagerðarinnar um að koma þessu í framkvæmd og tryggja sem best umferðaröryggi á þessum stað.
42.
Styrkbeiðni íþróttasambands fatlaðra vegna Allir með leikanna fyrir fötluð börn
Málsnúmer 2411031
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita sambandinu styrk að upphæð kr. 10.000.
43.
Styrkbeiðni Hjálparstarfs kirkjunnar vegna jólasöfnunar
Málsnúmer 2411038
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita styrk að upphæð kr. 10.000.
44.
Söguhringur í Rangárvallasýslu
Málsnúmer 2411040
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að taka þátt í verkefninu.
45.
Erindi Garps um endurskoðun styrks og Sportabler
Málsnúmer 2411043
Hreppsnefnd Ásahrepps ákvað á síðasta ári að taka ekki upp kerfi Sportabler vegna hversu hár kostnaðurinn er, þá sérstaklega að teknu tilliti til fjölda barna og ungmenna sem myndu nýta sér lausnina.

Varðandi samstarfssamning við Garp þá er hreppsnefnd Ásahrepps tilbúin til að fara í endurskoðun á styrkfjárhæð núgildandi samnings. Sveitarstjóra falið að ræða við formann stjórnar Garps.
46.
Alþingiskosningar 30. nóvember 2024
Málsnúmer 2411047
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að kjörfundur verði haldinn í Miðgarði að Laugalandi og að kosningar hefjist klukkan 10:00 og ljúki klukkan 18:00.
Sveitarstjóra er falið að undirbúa nauðsynlegan fjölda kjörskráa fyrir kjörstjórn.
47.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Málsnúmer 2101011
Til kynningar.
48.
Staða verkefnisins Endurskoðun leiðarkerfis landsbyggðarvagna
Málsnúmer 2411002
Til kynningar.
49.
Ályktun aðalfundar Skógræktarfélags Íslands um vörsluskyldu búfjár
Málsnúmer 2411012
Til kynningar.
50.
Niðurstaða verðkönnunar í helmingamokstur og heimreiðar Rangárþings ytra og Ásahrepps
Málsnúmer 2411028
Til kynningar.
51.
Ályktanir vegna kjaradeilu kennara við Samband íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2411029
Til kynningar.
52.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Til kynningar.