Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

34. fundur
18. desember 2024 kl. 08:30 - 10:15
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 292. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2412009
Mál nr. 1; Sauðholt 2 lóð L220917, Sauðholt 2B L231134; Sameining lóða; Deiliskipulag - 2411032.
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til lóða Sauðholts 2 lóð L220917 og Sauðholts 2B L231134. Í gildi er deiliskipulag sem tekur til lands L220917. Við gildistöku tillögunnar fellur núverandi skipulag svæðisins úr gildi. Í breytingunni felst sameining þessara tveggja lóða í eina auk skilgreiningar á byggingarreitum og byggingarheimildum.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagt deiliskipulag og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggja fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.

Mál nr. 2; Ás 3 III-1 land L204646; Bygging tjaldhýsa; Deiliskipulag - 2405108.
Lögð er fram, eftir auglýsingu og afgreiðslu Skipulagsstofnunar, tillaga deiliskipulags sem tekur til lands Vesturáss og Áss 3 land III-1. Innan svæðisins eru skilgreindar byggingarheimildir sem taka til uppbyggingar á íbúðarhúsi, hesthúsi og reiðskemmu auk kúlutjalda sem ætluð eru til útleigu. Gerðar hafa verið breytingar á aðkomu að landinu frá auglýstri tillögu. Skipulagsstofnun gerði athugasemdir við gildistöku deiliskipulagsins eftir auglýsingu þess og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt andsvörum og uppfærðum gögnum.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu og afgreiðslu Skipulagsstofnunar. Hreppsnefndin telur að brugðist hafi verið við umsögn sem barst vegna málsins með fullnægjandi hætti innan uppfærðra deiliskipulagsgagna og samantektar á athugasemdum og viðbrögðum sem lögð eru fram við afgreiðslu málsins. Hreppsefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda. Gögnin verði send Skipulagsstofnun til varðveislu í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Mál nr. 43; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 24-215 - 2411002F.
Lögð er fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 24/215.
2.
Fundargerð 293. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2412025
Mál nr. 30; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 24-216 - 2411005F.
Lögð fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 24-216.
3.
Fjallskiladeild Holtamannaafréttar - 8
Málsnúmer 2412001F
4.
Fundargerð kjörstjórnar Ásahrepps, dags. 30. nóvember 2024
Málsnúmer 2412010
Til kynningar.
5.
Fundargerð 32. fundar stjórnar Odda bs.
Málsnúmer 2412016
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir fyrir sitt leyti gjaldskrá og fjárhagsáætlun Odda bs. 2025, sbr. bókun sveitarstjórnar á 32. fundi sínum.
Fundargerð að öðru leyti til kynningar.
6.
Fundargerð 87. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu FSRV
Málsnúmer 2412020
Einnig lögð fram samþykkt gjaldskrá heimaþjónustunnar 2025 sem hreppsnefnd staðfestir fyrir sitt leyti.

Til kynningar.
7.
Fundargerð aðalfundar Sorpstöðvar Suðurlands bs 2024
Málsnúmer 2412001
Til kynningar.
8.
Fundargerð 329. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Málsnúmer 2412008
Til kynningar.
9.
Fundargerð 240. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Málsnúmer 2412015
Til kynningar.
10.
Fundargerð aðalfundar SASS 2024
Málsnúmer 2412002
Til kynningar.
11.
Fundargerð 955. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2412003
Til kynningar.
12.
Fundargerð 956. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2412004
Til kynningar.
13.
Fundargerð 957. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2412005
Til kynningar.
14.
Fundargerð 958. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2412007
Til kynningar.
15.
Fundargerð 959. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2412023
Til kynningar.
16.
Fundaráætlun hreppsnefndar Ásahrepps 2025
Málsnúmer 2412011
Lögð fram fundaráætlun hreppsnefndar Ásahrepps fyrir árið 2025.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir framlagða fundaráætlun og felur sveitarstjóra að birta hana á heimasíðu Ásahrepps.
17.
Húsnæðisáætlun Ásahrepps 2025
Málsnúmer 2412028
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi húsnæðisáætlun fyrir árið 2025, og felur sveitarstjóra að tilkynna afgreiðslu hreppsnefndar Ásahrepps til HMS.
18.
Hjólreiðaviðburður 21. júní 2025
Málsnúmer 2412013
Gert er ráð fyrir að hjólaleið um Ásahrepp verði að morgni frá Þjórsárbrú, norður um Heiðarveg að Hagabraut. Meðfylgjandi erindinu er kort af fyrirhugaðri leiðásamt lista yfir vegi og vegkafla sem nýttir verða. Viðburðurinn hefur hlotið jákvæða umsögn Vegagerðarinnar.

Hreppsnefnd Ásahrepps gerir engar athugasemdir við fyrirhugaða hjólaleið og samþykkir samhljóða það fyrir sitt leyti að hjólaleiðin liggi þessa leið í gegnum Ásahrepp.
19.
Minnisblað vegna úttektar Verkís á útivistarstíg um Faxatröð
Málsnúmer 2412014
Hreppsnefnd Ásahrepps þakkar fyrir úttektina og gerir ekki athugasemdir. Kristín Hreinsdóttir situr hjá við afgreiðslu þessa dagskrárliðar.
20.
Beiðni HSK um fjárframlag vegna ársins 2025
Málsnúmer 2412018
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita umbeðið rekstrarframlag, enda er gert ráð fyrir því í fjárhagsáætlun Ásahrepps fyrir árið 2025.
21.
Verksamningar vegna snjómoksturs á héraðs- og tengivegum
Málsnúmer 2412019
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fyrir sitt leyti þetta fyrirkomulag og verksamninga.

Hreppsnefnd Ásahrepps lýsir yfir áhyggjum sínum vegna skorts á hálkuvörnum í vetur á héraðs- og tengivegum innan sveitarfélagsins. Óskað er eftir skriflegum skýringum frá Vegagerðinni vegna þeirrar ákvörðunar að draga úr hálkuvörnum.
22.
Endurskoðun aðalskipulags Skaftárhrepps 2023-2043
Málsnúmer 2412021
Hreppsnefnd Ásahrepps hefur engar athugasemdir við framlagt og kynnt endurskoðað aðalskipulag Skaftárhrepps.
23.
Ábyrgðaraðili Ásahrepps vegna verkefnisins Bjartur lífstíll
Málsnúmer 2412022
Hlutverk ábyrgðaraðila sveitarfélags er að safna saman öllu íþrótta- og tómstundastarfi sem er í boði og birta upplýsingar inn á vefsíðu sveitarfélagsins. Vefsíða sveitarfélaga er síðan notuð og tengd við nýjan vettvang inn á Island.is sem að sýnir framboð á öllu landinu.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að sveitarstjóri verði ábyrgðaraðili Ásahrepps.
24.
Beiðni um fjárstyrk til Sigurhæða árið 2025
Málsnúmer 2412027
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að verða við styrkbeiðninni fyrir árið 2025.
25.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Málsnúmer 2101011
Til kynningar.
26.
Minnisblað um mótvægisaðgerðir vegna Sporðöldulóns 2024
Málsnúmer 2412006
Til kynningar.
27.
Kynning á fyirhuguðum framkvæmdum við Sigölduvirkjun
Málsnúmer 2412026
Til kynningar.
28.
Framlag ríkisins 2024 vegna barna með fjölþættan vanda
Málsnúmer 2412017
Til kynningar.
29.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Til kynningar.