Hreppsnefnd Ásahrepps
35. fundur
7. desember 2020
kl.
08:30
-
10:30
í fjarfundarkerfi Zoom
Nefndarmenn
Ásta Berghildur Ólafsdóttir
oddviti hrepssnefndar
Brynja Jóna Jónasdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Egill Sigurðsson
hreppsnefndarfulltrúi
Elín Grétarsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Guðmundur Jóhann Gíslason
hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
33. fundur stjórnar Odda bs.
Fundargerð 33. fundar stjórnar Odda bs. lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
2.
Fundargerð 6. fundar Héraðsnefndar Rangæinga ásamt fundargerð héraðsráðs 10. nóv. 2020
Fundargerð 6. fundar Héraðsnefndar Rangæinga lögð fram til kynningar, ásamt fundargerð héraðsráðs dags. 10. nóvember 2020.
Lagt fram til kynningar.
3.
34. fundur stjórnar Odda bs.
Lögð fram fundargerð 34. fundar stjórnar Odda bs.2. dagskrárliður; rekstraráætlun 2021.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fyrir sitt leyti rekstraráætlun Odda bs. 2021, sbr. 2. dagskrárlið fundargerðar, með 3 atkvæðum (ÁBÓ, BJJ og GJG) en 2 sitja hjá (EG og ES).
4.
22. fundur stjórnar Tónlistarskóla Rang.
Lögð fram fundargerð 22. fundar stjórnar Tónlistarskóla Rangæinga bs.Rekstraráætlun 2021.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir samhljóða fyrir sitt leyti rekstraráætlun Tónlistarskóla Rangæinga bs. fyrir rekstrarárið 2021.
5.
11. fundur stjórnar Vatnsveitu
Lögð fram fundargerð 11. fundar stjórnar Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps.Fjárhagsáætlun Vatnsveitu 2021.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir fyrir sitt leyti fjárhagsáætlun Vatnsveitu fyrir rekstrarárið 2021.
6.
49. fundur stjórnar félags- og skólaþjónustu
Lögð fram fundargerð 49. fundar stjórnar félags- og skólaþjónustu lögð fram. Dagskrárliðir 1, 4, 5 og 6 til staðfestingar aðildarasveitarfélaga.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir samhljóða fyrir sitt leyti fjárhagsáætlanir skólaþjónustu, félagsþjónustu, málaflokks fatlaðs fólks og heimaþjónustu fyrir rekstrarárið 2021.
7.
67. fundur stjórnar Brunavarna Rang.
Lögð fram fundargerð 67. fundar stjórnar Brunavarna Rangárvallasýslu bs. 2. dagskrárliður, fjárhagsáætlun 2021 til staðfestingar aðildarsveitarfélaga.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir samhljóða fjárhagsáætlun Brunavarna Rangárvallasýslu 2021 fyrir sitt leyti.
8.
214. fundur stjórnar Sorpstöðvar Rang.
Lögð fram fundargerð 214. fundar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.3. og 4. dagskrárliður til staðfestingar hreppsnefndar.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir samhljóða fyrir sitt leyti gjaldskrá Sorpstöðvar, sbr. 3. dagskrárlið og rekstraráætlun Sorpstöðvarinnar 2021, sbr. 4. dagskrárlið.
9.
Fundur oddvitanefndar UTU um seyrumál, dags. 27. nóvember 2020.
Lögð fram fundargerð oddvitanendar UTU, sem haldinn var 27. nóvember 2020.Dagskrárliðir 1, 2, 3 og 4 vísað til staðfestingar aðildarsveitarfélaganna.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti bókanir við dagskrárliði 1, 2, 3 og 4. Sveitarstjóra falið að undirrita skiptayfirlýsingu og lóðarleigusamning vegan Flatholts 2 fyrir hönd Ásahrepps.
Hreppsnefnd felur sveitarstjóri að vinna tillögu að samþykkt um fráveitumálefni og gjaldskrá fyrir þjónustuna sem lagðar verði fram til fyrri umræðu á næsta reglubundna fundi hreppsnefndar.
Hreppsnefnd felur sveitarstjóri að vinna tillögu að samþykkt um fráveitumálefni og gjaldskrá fyrir þjónustuna sem lagðar verði fram til fyrri umræðu á næsta reglubundna fundi hreppsnefndar.
10.
81. fundur stjórnar UTU bs.
Fundargerð 81. fundar stjórnar UTU bs. lögð fram. Dagskrárliður 4 er til staðfestingar hjá aðildarsveitarfélögum.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi fjárhagsáætlun UTU bs. árið 2021 fyrir sitt leyti.
11.
Fjárhagsáætlun Ásahrepps 2021 - 2024
Umræða um drög að fjárhagsáætlun Ásahrepps 2021-2024.
Sveitarstjóri lagði fram drög að fjárhagsáætlun Ásahrepps 2021-2024 og gerði grein fyrir þeim breytingum sem hafa átt sér stað frá síðasta fundi. Búið er að setja inn rekstrartölur í samræmi við rekstraráætlanir byggðasamlaga sem samþykktar hafa verið og skv. samþykkt hreppsnefndar á 34. fundi um álagningu og gjaldskrár.
Fjárhagsáætlun Ásahrepps 2021-2024 vísað til afgreiðslu á næsta reglubundna fundi hreppsnefndar sem haldinn verður þann 16. desember n.k.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að óska eftir fresti til að skila inn fjárhagsáætlun Ásahrepps 2021-2024 fram að jólum eða til og með 23. desember 2020. Sveitarstjóra falið að óska eftir umræddum fresti fyrir hönd Ásahrepps.
Fjárhagsáætlun Ásahrepps 2021-2024 vísað til afgreiðslu á næsta reglubundna fundi hreppsnefndar sem haldinn verður þann 16. desember n.k.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að óska eftir fresti til að skila inn fjárhagsáætlun Ásahrepps 2021-2024 fram að jólum eða til og með 23. desember 2020. Sveitarstjóra falið að óska eftir umræddum fresti fyrir hönd Ásahrepps.
12.
Ákvörðun um fyrirkomulag stjórnsýslu Ásahrepps vegna Covid-19.
Taka þarf ákvörðun um fyrirkomulag stjórnsýslu Ásahrepps í ljósi aðstæðna á tímum COCID-19. Ákveðið var að loka skrifstofunni fyrir almenningi þar sem ekki var hægt að tryggja nándarreglu sóttvarna.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að hafa skrifstofu sveitarfélagsins áfram lokaða fyrir almenningi skv. fyrri auglýsingu. Hreppsnefnd mun endurskoða þessa ákvörðun sína á reglubundna fundi sínum í janúar 2021.