Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

35. fundur
22. janúar 2025 kl. 08:30 - 10:40
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 294. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2501019
Lögð fram fundargerð 294. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerðum afgreiðslufunda byggingarfluttrúa UTU nr. 217 og 218.
Mál nr. 1; Holtamannaafréttur; Búðarháls; Skilgreining efnistökusvæðis; Aðalskipulagsbreyting - 2405016
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir kynningu, er varðar skilgreiningu efnistökusvæðis á austanverðum Búðarhálsi, milli Tungnaár og vegarins að Sporðöldustíflu. Efnistökusvæðið er á gildandi deiliskipulagi Búðarhálsvirkjunar, merkt E8. Stærð námu verði 2,3 ha og heimiluð efnistaka allt að 49.000 m3. Umsagnir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhjóða framlagða tillögu að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna efnistökusvæðis á Búðarhálsi í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Mælist hreppsnefndin til þess að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 31 sömu laga að undangenginni samþykkt Skipulagsstofnunar.
Hreppsnefnd Ásahrepps bendir á að samningur um efnisnám og fyrirkomulag greiðslna fyrir efnisnám á námusvæðum sé forsenda útgáfu framkvæmdaleyfis.

Mál nr. 2; Sauðholt 2 L193421; Skilgreining tveggja frístundalóða, Slot og Hof; Deiliskipulag - 2412067
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til Sauðholts 2 L193421 í Ásahreppi. Í deiliskipulaginu felst skilgreining tveggja frístundalóða í landi Sauðholts 2. Á hvorri lóð er heimilt að byggja sumarhús, gestahús og geymslu/áhaldahús. Aðkoma að lóðunum er um nýjan slóða af heimreið að Sauðholti 2. Gert er ráð fyrir að lóðirnar fái staðvísana Slot og Hof.

Á grundvelli stefnumörkunar aðalskipulags Ásahrepps er varðar að á hverri jörð, sem er 20 ha eða stærri, sé heimilt að byggja allt að þrjú stök frístundahús samþykkir hreppsnefnd Ásahrepps samhljóða deiliskipulagið og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan verði sérstaklega kynnt eigendum aðliggjandi landeigna.

Mál nr. 3; Holtamannaafréttur L221893, Vatnsfellsskurður; Dýpkun Vatnsfellsskurðar ofan lokuvirkis; Framkvæmdarleyfi - 2412050
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til dýpkunar á Vatnsfellsskurði ofan lokuvirkis. Markmið framkvæmdarinnar er að tryggja flutningsgetu skurðarins með því að fjarlægja efni sem safnast hefur í skurðinn og viðhalda þannig hannaðri botnhæð 551 m h.y.s. Helstu verkþættir framkvæmdarinnar eru gerð bráðabirgðastíflu, vatnstæming skurðar, gröftur á seti úr skurði, mótvægisaðgerðir við stöð og fjarlæging bráðabirgðastíflu. Áætlaður verktími er frá mars 2025 til loka maí 2025.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með fyrirvara um að samningur um efnisnám og fyrirkomulag greiðslna fyrir efnisnám á námusvæðum sé lokið samkvæmt fyrri bókun hreppsnefndar. Að mati hreppsnefndarinnar rúmast framkvæmdin innan heimilda og stefnumörkunar aðal- og deiliskipulagsáætlana sveitarfélagsins.

Mál nr. 4; Holtamannaafréttur L221893; Athafnasvæði við Sigöldustöð; Framkvæmdarleyfi - 2412066
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til athafnasvæðis við Sigöldustöð vegna fyrirhugaðrar stækkunar stöðvarinnar. Vinnubúðir verða annars vegar aðstaða verktaka og hins vegar fyrir starfsmenn Landsvirkjunar til eftirlits. Gert er ráð fyrir vinnuaðstöðu vegna uppbyggingar virkjunar og dvalaraðstöðu starfsfólks, mötuneyti o.fl. Þar að auki verður svæði fyrir sprengiefnageymslu, steypustöð, skemmur/verkstæði og haugsvæði fyrir mögulega efnislosun. Áætlað er að um 140 starfsmenn verði í vinnubúðunum þegar mest lætur. Vinnubúðir verða annars vegar á vegum verktaka, um 120 starfsmenn, og hins vegar á vegum Landsvirkjunar, um 20 starfsmenn. Gert er ráð fyrir tímabundinni nýtingu svæðisins meðan framkvæmdir við stækkun Sigöldustöðvar standa yfir. Reiknað er með að framkvæmdatíminn verði allt að 4 ár (um 42 mánuðir) og að búðirnar verði fjarlægðar og gengið frá athafnasvæðinu eins vel og verða má, innan þriggja ára eftir að framkvæmdum lýkur.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með fyrirvara um að samningur um efnisnám og fyrirkomulag greiðslna fyrir efnisnám á námusvæðum sé lokið samkvæmt fyrri bókun hreppsnefndar. Að mati hreppsnefndarinnar rúmast framkvæmdin innan heimilda og stefnumörkunar aðal- og deiliskipulagsáætlana sveitarfélagsins.

Mál nr. 5; Kálfholt L1.b L208177; Skipting lóðar í 6 búgarða; Deiliskipulag - 2309073
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags fyrir jörðina Kálfholt L1.b L208177 í Ásahreppi eftir auglýsingu. Gert er ráð fyrir að skipta upprunajörðinni upp í sex búgarða, 10 - 13 ha að stærð. Á hverjum búgarði verði heimild til að byggja íbúðar- og útihús. Umsagnir bárust á auglýsingartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim og uppfærðum gögnum.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Hreppsnefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna þar sem aðkoma að landinu er færð til í takt við umsögn Vegagerðarinnar auk þess sem byggingarreitir eru minnkaðir með það að markmiði að koma til móts við umsögn Náttúrufræðistofnunar. Hreppsnefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Mál nr. 6; Holtamannaafréttur L221893; Sigöldustöð; Efnistökusvæði; Aðalskipulagsbreyting - 2405114
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar sem tekur til breytingar á aðalskipulagi Ásahrepps 2020-2032, eftir auglýsingu. Með breytingunni felst að skilgreint verði nýtt efnistökusvæði við aðrennslisskurð Sigöldustöðvar. Efni hefur verið tekið af svæðinu við framkvæmdir tengdar virkjunum og vatnsmiðlun, en náman er ekki á skipulagi. Efni úr námunni verður einkum nýtt við framkvæmdir í tengslum við fyrirhugaða stækkun Sigöldustöðvar. Stærð efnistökusvæðis verður um 1 ha og heimilt verður að vinna allt að 49.000 m3 af efni. Umsagnir bárust við kynningu málsins og eru þær lagðar fram við afgreiðslu þess. Umsagnir sem bárust vegna málsins eru lagðar fram við afgreiðslu þess eftir auglýsingu.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða breytingu á aðalskipulagi eftir auglýsingu. Engar athugasemdir bárust á auglýsingatíma skipulagsbreytingarinnar. Hreppsnefnd Ásahrepps óskar eftir því við Skipulagsstofnun að aðalskipulagsbreytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 3. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hreppsnefnd Ásahrepps bendir á að samningur um efnisnám og fyrirkomulag greiðslna fyrir efnisnám á námusvæðum sé forsenda útgáfu framkvæmdaleyfis.

Mál nr. 47; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 25-218 - 2501001F
Lögð fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 25-218.

Einnig var lögð fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 24-217.
2.
Fundargerð 86. fundar stjórnar Brunavarna Rangárvallasýslu bs.
Málsnúmer 2501003
Lögð fram fundargerð 86. fundar stjórnar Brunavarna Rangárvallasýslu bs.
Til kynningar.
3.
Fundargerð 5. fundar almannavarnarnefndar
Málsnúmer 2501004
Lögð fram fundargerð 5. fundar almannavarnarnefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýlu ásamt fundargögnum.
Til kynningar.
4.
Fundargerð 117. fundar stjórnar UTU
Málsnúmer 2501011
Lögð fram fundargerð 117. fundar stjórnar UTU.
Til kynningar.
5.
Fundargerð 241. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Málsnúmer 2501016
Lögð fram fundargerð 241. fundar Heilbrigðisnefnar Suðurlands.
Til kynningar.
6.
Fundargerð 20. fundar stjórnar Arnardrangs hses.
Málsnúmer 2501010
Lögð fram fundargerð 20. fundar stjórnar Arnardrangs hses.
Til kynningar.
7.
Fundargerð 79. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Málsnúmer 2501009
Lögð fram fundargerð 79. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
8.
Fundargerð sameiginlegs fundar Samtaka orkusveitarfélaga og Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum
Málsnúmer 2501007
Lögð fram fundargerð sameiginlegs fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga og stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum, sem haldinn var 6. desember 2024.
Til kynningar.
9.
Endurskoðun erindisbréfa kjörnefndar, umhverfisnefndar og atvinnu-, jafnréttis- og ferðamálanefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2501001
Lagðar fram tillögur að endurskoðuðum kjörbréfum fyrir fastanefndir Ásahrepps, kjörstjórnar, umhverfisnefndar og atvinnu-, jafnréttis- og ferðamálanefndar.
Gerðar hafa verið leiðréttingar í takt við breytingar á lögum og tilvísana til þeirra ásamt nokkrum orðalagsbreytingum til að auka skýrleika á innihaldi kjörbréfanna.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi endurskoðuð erindisbréf.
10.
Beiðni um tilnefningar í svæðisráð vestursvæðis í Vatnajökulsþjóðgarði 2025-2029
Málsnúmer 2501002
Lagt fram tölvuskeyti umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis, dags. 19. desember 2024, þar sem óskað er eftir tilnefningar í svæðisráð vestursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðar eða staðfestingar á sitjandi fulltúum fyrir hönd Ásahrepps.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að staðfesta núverandi fulltrúa Ásahrepps í svæðisráð vestursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs, þ.e. aðalmaður Þráinn Ingólfsson og varamaður Nanna Jónsdóttir.
11.
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tækifærisleyfis vegna þorrablóts Áshreppinga
Málsnúmer 2501008
Lagt fram bréf Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 6. janúar 2025, þar sem óskað er eftir umsögn Ásahrepps vegna umsóknar um tækifærisleyfis fyrir Þorrablót Ásahrepps 8. febrúar 2025.
Hreppsnefnd gerir engar athugasemdir við að umbeðið tækifærisleyfi sé veitt, en bendir á að umrætt húsnæði er í Rangárþingi ytra og ber því sveitarfélagi að gefa umsögn um framlagða umsókn.
12.
Styrkbeiðni vegna útgáfu SÍBS blaðsins
Málsnúmer 2501012
Lagt fram tölvuskeyti SÍBS, dags. 10. janúar 2025, þar sem óskað er eftir styrk vegna útgáfu SÍBS blaðsins og styðja þannig við SÍBS og Reykjalund.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita styrk að upphæð kr. 10.000.
13.
Staða mála í Rangárvallasýslu vegna heilsugæslu HSu og læknaskorts
Málsnúmer 2501015
Umræða varð um stöðu mála í Rangárvallasýslu er varðar heilsugæslu HSU, læknaskort m.m.
Hreppsnefnd Ásahrepps hefur verulegar áhyggjur af þeirri stöðu sem upp er komin varðandi mönnun lækna í sýslunni.
Fundur var haldinn mánudaginn 6. janúar 2025 með fulltrúum sveitarfélaga í Rangárvallasýslu og forsvarsmönnum HSU. Á þeim fundi kom m.a. fram að búið væri að tryggja mönnun lækna í héraðinu að minnsta kosti næstu tvo mánuði. Betur má ef duga skal og ítrekar hreppsnefnd Ásahrepps mikilvægi þess að tryggð verði mönnun lækna í Rangárvallasýslu til framtíðar. Núverandi staða og óvissa varðandi mönnun er óboðleg íbúum og gestum í sýslunni.

Lögð voru fram tillaga að sameiginlegri ályktun sveitarfélaganna vegna mönnunarvanda lækna í sýslunni og áskorun til ráðherra heilbrigðismála að beita sér fyrir lausnum á þessari stöðu sem nú er uppi.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti framlagða ályktun.
14.
Erindi stjórnar Lundar; viðbygging
Málsnúmer 2501017
Lagt fram erindi stjórnar Lundar, sem barst þann 17. janúar 2025, ásamt minnisblaði frá vinnufundi stjórnar Lundar ásamt fulltrúum sveitarstjórna Rangárþings ytra og Ásahrepps.
Í erindinu er óskað eftir því við sveitarstjórnir Rangárþings ytra og Ásahrepps að fá heimild til að láta vinna húsrýmis- og kostnaðaráætlun, á kostnað sveitarfélaganna, fyrir framkvæmd sem snýr að því að byggja nýja 6-8 rýma hjúkrunarálmu við Lund auk sameiginlegs rýmis fyrir tómstundir og tengda þjónustu sem myndi nýtast bæði núverandi starfsemi Lundar, fyrirhuguðum þjónustuíbúðum sem og dagvistunarrýmum með framtíðarvöxt að leiðarljósi. Í þeirri vinnu er mikilvægt að rýna einnig núverandi húsnæði Lundar og taka tillit til möguleika þar, við gerð húsrýmis- og kostnaðaráætlunar.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti framlagða beiðni.
15.
Umboð til handa skipulagsfulltrúa til að undirrita merkjalýsingar
Málsnúmer 2501018
Lagt fram tölvuskeyti skipulagsfulltrúa UTU, dags. 17. janúar 2025, þar sem óskað er eftir afstöðu hreppsnefndar Ásahrepps til þess að veita skipulagsfulltrúa umboð til að undirrita merkjalýsingar f.h. landeiganda þegar það á við, þ.e. þegar landeigandi er sveitarfélag.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita skipulagsfulltrúa UTU umboð til undirrita merkjalýsingar fyrir hönd Ásahrepps þegar sveitarfélagið sjálft er landeigandi.
16.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Málsnúmer 2101011
Lagt fram málaflokkayfirlit fyrir sveitarsjóð Ásahrepps janúar - desember 2024.
Til kynningar.
17.
Staða verkefnisins Endurskoðun leiðarkerfis landsbyggðarvagna
Málsnúmer 2411002
Lögð fram tilkynning nr. 2 um stöðu verkefnisins Endurskoðun leiðarkerfis landsbyggðarvagna.
Til kynningar.
18.
Skýrslur Hestamannafélagsins Geysis fyrir starfsárið 2023
Málsnúmer 2501005
Lagður fram ársreikningur Hestamannafélagsins Geysis fyrir rekstrarárið 2023, ásamt skýrslu æskulýðsnefndar Geysis.
Til kynningar.
19.
Tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu Buguvegar (273-01) Ásahreppi af vegaskrá
Málsnúmer 2501006
Lagt fram afrit af bréfi Vegagerðarinnar, dags. 2. janúar 2025, þar sem tilkynnt er um fyrirhugaða niðurfellingu héraðsvegar Buguvegur (273-01) af vegaskrá.
Til kynningar.
20.
Tilkynning um nýjan héraðsveg að Laufbrekku
Málsnúmer 2501013
Lagt fram afrit af samþykktarbréfi Vegagerðarinnar, dags. 10. janúar 2025, þar sem tilkynnt er um að héraðsvegur að Laufbrekku er kominn inn á vegaskrá Vegagerðarinnar.
Til kynningar.
21.
Handbók um uppbyggingu ferðamanastaða
Málsnúmer 2501014
Lögð fram til kynningar handbók sveitarfélaga um uppbyggingu ferðamannastaða 2025, sem unnin hefur verið af Markaðsstofu Suðurlands.
Til kynningar.
22.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn 19. febrúar 2025 á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi. Fundur hefst klukkan 8:30.
Til kynningar.