Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

36. fundur
16. desember 2020 kl. 08:30 - 11:30
í fjarfundarkerfi Zoom
Nefndarmenn
Ásta Berghildur Ólafsdóttir oddviti hrepssnefndar
Brynja Jóna Jónasdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Egill Sigurðsson hreppsnefndarfulltrúi
Elín Grétarsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Guðmundur Jóhann Gíslason hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Beiðni Markaðsstofu Suðurlands um framlengingu á samstarfssamningi
Málsnúmer 2011029
Fulltrúi Markaðsstofu Suðurlands koma til fundar hjá hreppsnefnd Ásahrepps að kynna starfsemina.
Til kynningar.
2.
Framtíðarstefna um uppbyggingu Menningar- og fræðaseturs að Odda
Málsnúmer 2011001
Vísað er til dagskrárliðar 7.2 á 34. fundi hreppsnefndar.Elvar Eyvindsson mætti á fund hreppsnefndar undir þessum dagskrárlið. Hann kynnti drög að framtíðarstefnu um uppbyggingu Menningar- og fræðaseturs að Odda, Sæmundarstofa.
Til kynningar.
3.
Bréf til sveitarfélaga; stytting vinnuvikunnar
Málsnúmer 2012010
Lagt fram bréf BSRB, dags. 18. nóvember 2020, um styttingu vinnuvikunnar.
Til kynningar.
4.
Stöðuskýrsla nr. 8 frá uppbyggingarteymi, til ráðgefandi aðila
Málsnúmer 2012017
Stöðuskýrsla nr. 8 frá uppbyggingarteymi félagsmálaráðuneyti lögð fram.
Til kynningar.
5.
Ársskýrsla Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2019
Málsnúmer 2012011
Lögð fram Ársskýrsla Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2019.
Til kynningar.
6.
Bréf Hagstofu Íslands; manntal og húsnæðistal
Málsnúmer 2012029
Lagt fram bréf Hagstofu Íslands, dags. 27. nóvember 2020, þar sem kynnt er að í undirbúningi er taka manntals og húsnæðistals.
Til kynningar.
7.
Rekstraryfirlit 11. desember 2020.
Málsnúmer 2012035
Sveitarstjóri lagði fram rekstraryfirlit fyrir sveitarsjóð Ásahrepps, dags. 11. desember 2020.
Til kynningar.
8.
10. fundur stjórnar Vatnsveitu
Málsnúmer 2012039
Fundargerð 10. fundar stjórnar Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps lögð fram.
Til kynningar.
9.
82. fundur félagsmálanefndar
Málsnúmer 2012019
Fundargerð 82. fundar félagsmálanefndar lögð fram ásamt tillögu um hækkun á grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar og reglum um úthlutun sérstakra íþrótta- og tómstundastyrkja fyrir börn á tekjulágum heimilum skólaárið 2020-2021.
Til kynningar.
10.
83. fundur félagsmálanefndar
Málsnúmer 2012038
Fundargerð 83. fundar félagsmálanefndar lögð fram.
Til kynningar.
11.
Vinnuhópur um sameiningu sveitarfélaga V-Skaft og Rang.
Málsnúmer 2001001
Fundargerðir 14., 15., 16. og 17. fundar Verkefnahóps Sveitarfélagsins Suðurland lagðar fram.
Til kynningar.
12.
297. fundur stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Málsnúmer 2012026
Fundargerð 297. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands lögð fram.
Til kynningar.
13.
298. fundur stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Málsnúmer 2012027
Fundargerð 298. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands lögð fram.
Til kynningar.
14.
Aðalfundur Sorpstöðvar Suðurlands 2020
Málsnúmer 2012028
Fundargerð aðalfundar Sorpstöðvar Suðurlands, dags. 30. október 2020, lögð fram.
Til kynningar.
15.
Ársfundur UTU 2020
Málsnúmer 2012041
Fundargerð ársfunds UTU 2020 lögð fram ásamt ársskýrslu 2019 og ársreikningi 2019.
Til kynningar.
16.
Fundargerð 80. fundar stjórnar UTU.
Málsnúmer 2012025
Fundargerð 80. fundar stjórnar UTU lögð fram.
Til kynningar.
17.
Fundargerð 82. fundar stjórnar UTU.
Málsnúmer 2012032
Fundargerð 82. fundar stjórnar UTU ásamt kynningum Grímsnes- og Grafningshrepps og Bláskógabyggðar.
Til kynningar.
18.
10. fundur stjórnar Skógarsafns, dags. 27. nóvember 2020.
Málsnúmer 2012020
Fundargerð 10. fundar stjórnar Skógasafns lögð fram ásamt rekstraráætlun fyrir árið 2021.
Til kynningar.
19.
11. fundur stjórnar Skógasafns
Málsnúmer 2012042
Fundargerð 11. fundar stjórnar Skógasafns lögð fram ásamt endurskoðari rekstraráætlun 2021 ásamt greinargerð.
Ákvörðun hreppsnefndar Ásahrepps um að veita Byggðasafninu í Skógum, í samvinnu við önnur sveitarfélög, einfalda ábyrgð vegna lántöku þess hjá Lánasjóði sveitarfélaga og hún tryggð með tekjum sveitarfélagsins:

Sveitarstjórn Ásahrepps samþykkir samhljóða hér með að veita einfalda ábyrgð vegna lántöku Byggðasafnsins í Skógum hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 28.000.000 kr. til 12 ára, í samræmi við fyrirliggjandi lánsumsókn. Er ábyrgð þessi veitt sbr. heimild í 2. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, og er hún óskipt (in solidum) gagnvart kröfuhafa, en innbyrðis skiptist hún í hlutfalli við eignarhluti í Byggðasafninu í Skógum. Hreppsnefnd veitir Lánasjóðnum veð í tekjum sínum til tryggingar þeirri ábyrgð, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sömu laga. Ábyrgðin tekur til allra greiðslna sem og hvers kyns kostnaðar sem hlýst af vanskilum. Er lánið tekið til endurfjármögnunar á afborgunum eldri lána 2020 og 2021 hjá sjóðnum auk fjármögun á framkvæmdum Byggðasafnsins 2018, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.

Hreppsnefnd Ásahrepps skuldbindur hér með sveitarfélagið sem eiganda Byggðasafnsins í Skógum til að breyta ekki ákvæði samþykkta Byggðasafnsins sem leggur hömlur á eignarhald að félaginu að því leyti að félagið megi ekki fara að neinu leyti til einkaaðila.

Fari svo að Ásahreppur selji eignarhlut í Byggðasafninu í Skógum til annarra opinberra aðila, skuldbindur Ásahreppur sig til að sjá til þess að jafnframt yfirtaki nýr eigandi á sig ábyrgð á láninu að sínum hluta.

Jafnframt er Valtý Valtýssyni sveitarstjóra, kt. 221060-2379 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess að staðfesta f.h. Ásahrepps veitingu ofangreindrar ábyrgðar með áritun á lánssamninginn.
20.
90. fundur svæðisráðs vestursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs
Málsnúmer 2012021
Fundargerð 90. fundar svæðisráðs vestursvæðis VJÞ lögð fram.
Til kynningar.
21.
Fundargerð aðalfundar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, dags. 30. október 2020
Málsnúmer 2012024
Fundargerð aðalfundar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands lögð fram.
Til kynningar.
22.
208. fundur Heilbrigðisnefndar Suðurlands.
Málsnúmer 2012004
Fundargerð 208. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands lögð fram ásamt Viðbragðsáætlun til að bæta loftgæði utandyra.
Til kynningar.
23.
Fundargerð aðalfundar Bergrisans bs. dags. 25. nóvember 2020
Málsnúmer 2012023
Fundargerð aðalfundar Bergrisans bs. lögð fram.
Til kynningar.
24.
564. fundur stjórnar SASS
Málsnúmer 2012005
Fundargerð 564. fundar stjórnar SASS lögð fram.
Til kynningar.
25.
Fundargerð aðalfundar SASS 2020.
Málsnúmer 2012037
Fundargerð aðalfundar SASS frá 29. - 30. október 2020 lögð fram.
Til kynningar.
26.
Fundargerð aðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga, dags. 5. nóvember 2020
Málsnúmer 2012018
Fundargerð aðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga lögð fram.
Til kynningar.
27.
891. fundur stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2012015
Fundargert 891. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram.
Til kynningar.
28.
206. fundur skipulagsnefndar
Málsnúmer 2012012
Lögð fram fundargerð 206. fundar skipulagsnefndar ásamt afgreiðslum byggingarfulltrúa 20 - 131.
Mál nr. 1; Námur og efnislosunarsvæði við Þórisós; Ný svæði; Aðalskipulagsbreyting -
2011057.
Lögð er fram skipulagslýsing vegna breytinga á aðalskipulagi Ásahrepps 2010-2022. Í breytingunni felst skilgreining á fjórum nýjum efnistökusvæðum og einu efnislosunarsvæði í nágrenni við Þórisós.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fyrirliggjandi skipulagslýsingu til kynningar og umsagna í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Mál nr. 2;Efnistaka vegna endurbóta á Þórisstíflu; Umsagnarbeiðni - 2011072
Lögð er fram umsagnarbeiðni frá Skipulagsstofnun í samræmi við 6. gr. laga nr.106/2000 varðandi mat á umhverfisáhrifum. Óskað er eftir því að Ásahreppur gefi umsögn um hvort og á hvaða forsendum viðkomandi framkvæmd skuli háð mati á umhverfisáhrifum að teknu tilliti til 2. viðauka í framangreindum lögum í takt við framlagða beiðni.
Hreppsnefnd Ásahrepps telur að innan fyrirspurnar um matsskyldu sé á fullnægjandi hátt gert grein fyrir framkvæmdinni, umhverfi hennar, mótvægisaðgerðum og vöktun. Nefndin telur að efnistaka á grundvelli framlagðra gagna sé ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Viðkomandi námur eru hins vegar ekki skilgreindar innan aðalskipulags Ásahrepps og eru því háðar breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Skipulagslýsing vegna breytinga á aðalskipulagi er lögð fram samhliða beiðni þessari. Framkvæmdir á grundvelli fyrirspurnar eru að auki háð útgáfu framkvæmdaleyfis af hálfu sveitarfélagsins.

Hreppsnefnd Ásahrepps bendir á að gæta verður að vinnslu og frágangi efnistökustaðar sem liggur mjög nærri Köldukvísl. Tryggja verður að lífríki skaðist ekki af framkvæmdinni og fiskgengd eigi sér ekki stað úr Köldukvísl í efnistökusvæði.

Mál nr. 17; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 20-131 - 2011002F
Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa 20-131 lögð fram til kynningar.
29.
207. fundur skipulagsnefndar
Málsnúmer 2012033
Fundargerð 207. fundar skipulagsnefndar lögð fram ásamt afgreiðslum byggingarfulltrúa frá 2. desember 2020, 20-132.
Mál nr. 1; Áshamrar L165338; Breyting á byggingarmagni; Deiliskipulagsbreyting -
2012003
Lögð er fram umsókn frá Óðni Erni Jóhannssyni vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Húsar 1 í Ásahreppi, innan jarðar Áshamars L165338. Í breytingunni felst að heimilað verði aukið byggingarmagn um 80 fm á byggingarreit B1 fyrir íbúðarhús og bílskúr. Núverandi heimild gerir ráð fyrir 200 fm en eftir breytingu verði heimildin 280 fm. Aðrir skilmálar deiliskipulagsins breytast ekki.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir viðkomandi breytingar á deiliskipulagi svæðisins. Málið skal fá málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.

Mál nr. 26; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 20-132 - 2011004F.
Afgreiðslur byggingarfulltrúa 20-132 lagðar fram til kynningar.
30.
4. fundur nefndar um Svæðisskipulag Suðurhálendis
Málsnúmer 2012013
Lögð fram fundargerð 4. fundar nefndar um Svæðisskipulag Suðurhálendis, ásamt starfsreglum og minnisblaði um kostnaðarskiptingu. Skipa þarf tvo aðalmenn í nefndina og tvo til vara.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða þátttöku sína í verkefninu og starfsreglur. Jafnframt samþykkir hreppsnefnd samhljóða þá kostnaðarskiptingu sem fram kemur í meðfylgjandi minnisblaði. Gert verður ráð fyrir þessum fjárútgjöldum í fjárhagsáætlun Ásahrepps 2021-2024.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að skipa eftirtalda aðila sem aðalmenn og varamenn í samstarfsnefndina:
Aðalmenn
Ásta Berghildur Ólafsdóttir
Egill Sigurðsson

Varamenn:
Guðmundur Jóhann Gíslason
Elín Grétarsdóttir
31.
Stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands
Málsnúmer 2012022
Lagt fram frumvarp umhverfisráðherra um stofnun hálendisþjóðgarðs, þingmál nr. 369. Einnig lögð fram tölvuskeyti frá Bláskógabyggð og Samtökum ferðaþjónustunnar um sama málefni.
Hreppsnefnd Ásahrepps mótmælir fyrirliggjandi frumvarpi um Hálendisþjóðgarð og skorar á Alþingi að vísa þessu þingmáli frá. Hreppsnefnd Ásahrepps getur engan veginn fallist á að svo stór hluti sveitarfélagsins verði gerður að þjóðgarði.

Hreppsnefnd Ásahrepps getur ekki fallist á að skipulagsvald og stjórnsýsla svæðisins færist frá hinum lýðræðislega kjörnu fulltrúum sveitarfélagsins til fulltrúa annarra sveitarfélaga, félagasamtaka og embættismanna. Það hefur sýnt sig að undanförnu hvernig getur farið, s.s. vinnubrögð og ákvarðanir sem nýlega hafa verið uppi á borðum Vatnajökulsþjóðgarðs. Þar er vísað til hugmynda um opnun umferðar vélknúinna ökutækja inn í Vonarskarð. Í því máli hefur umdæmisráð og stjórn gengið þvert á gildandi aðalskipulag Ásahrepps og hunsað vilja hreppsnefndar Ásahrepps. Þar sem þetta mál er í gerjun þessa dagana, er enginn trúverðugleiki í huga hreppsnefndar Ásahrepps að virða skuli skipulagsvald sveitarfélaga. Slíkar yfirlýsingar eru hjómið eitt.

Hreppsnefnd Ásahrepps telur að verið sé að vinna þetta stóra mál, Hálendisþjóðgarð, frá öfugum enda og birtist henni sem að háttvirtur ráðherra umhverfismála hafi það markmið eitt að slá yfirráðum sínum yfir miðhálendi Íslands og færa í hendur embættismanna og sérhagsmunaaðila. Hreppsnefnd Ásahrepps hefur áður bent á, svo og hin þverpólitíska nefnd sem var falið að meta kosti slíks þjóðgarðs, að mikil greiningarvinna og samráð er óunnið. Að ekki sé nú minnst á fjármögnun verkefnisins, á þeim tímum sem halli ríkissjóðs hefur aldrei verið meiri á lýðveldistímanum.
Hreppsnefnd Ásahrepps mótmælir þessum vinnubrögðum og hvetur til þess að mál sem þetta verði unnið af skynsemi, haft samráð við hagsmunaaðila, faglegt mat og tillögugerð um uppbyggingu innviða og rekstrarforsendur metnar og heilstætt kostnaðarmat gert. Þessi vinna er frumforsenda þess að hægt sé að velta upp þeirri spurningu hvort rétt sé að stofna þjóðgarð af þessu tagi. Hér virðist sú aðferðafræði vera höfð í hávegum, að skjóta fyrst og spyrja svo.

Hreppsnefnd Ásahrepps vill benda á að fjöldi svæða hefur verið friðlýstur á undanförnum árum sem kalla þegar á mikið fjármagn. Það hefur nú þegar reynst ríkisvaldinu þungt í skauti að fjármagna þau verkefni sem stofnað hefur verið til, en mikilvægt er að fjárveitingavaldið tryggi nægjanlegt fjármagn til þeirra friðlýsinga sem þegar hefur verið stofnað til. Það er frumforsenda þess að umræddar friðlýsingar þjóni tilgangi sínum.

Það er afar furðulegt að umhverfisráðherra hlaupi af stað með þetta þingmál án þess að fjármálaáætlun liggi fyrir eða þarfagreining á innviðauppbyggingu. Sérstaklega í því ljósi að þeir þjóðgarðar sem hafa verið stofnaðir, standa frammi fyrir miklum fjárhagslegum og rekstrarlegum vanda. Vandinn er nægur hjá ríkinu að koma ríkisfjármálum í lag á næstu árum, því er hreppsnefnd Ásahrepps afar undrandi á því að frumvarp þetta skuli hafa verið samþykkt af ríkisstjórn landsins og sett í þinglega málsmeðferð. Hreppsnefnd Ásahrepps hvetur því ríkisstjórn og Alþingi eindregið að vísa þessu máli frá og láta kortleggja forsendur þess áður en það verði gert að þingmáli. Þetta mál er alls ekki nægjanlega undirbúið og dregur einungis úr trúverðugleika ríkisvaldsins á þessum tímum.
32.
Tillaga að viðauka við Landsskipulagsstefnu 2015-2026.
Málsnúmer 2012001
Lagt fram tölvuskeyti Skipulagsstofnunar þar sem kynnt er tillaga að viðauka við Landsskipulagsstefnu 2015-2026, ásamt tillögunni sjálfri.
Hreppsnefnd Ásahrepps hefur engar athugasemdir við framlagða tillögu.
Samþykkt samhljóða.
33.
Tillaga að breytingum á samþykkt um Heilbrigðiseftirlit Suðurlands.
Málsnúmer 2012007
Lögð fram tillaga að breytingum á samþykkt um Heilbrigðiseftirlit Suðurlands ásamt ábendingum Lex lögmanna.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir engar athugasemdir við þær breytingar sem fram koma í tillögunni.
Samþykkt samhljóða.
34.
Fundaráætlun hreppsnefndar Ásahrepps 2021
Málsnúmer 2012006
Lögð var fram fundaráætlun hreppsnefndar Ásahrepps fyrir árið 2021.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagða fundaráætlun.
35.
Stofnun miðlægs tækniteymis Sambands Íslenskra sveitarfélaga.
Málsnúmer 2012002
Lagt fram tölvuskeyti frá Stafrænu ráði á Suðurlandi ásamt tillögum um fjármögnun sameiginlegra starfrænna verkefna.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að taka þátt í verkefninu á grundvelli tillagna um fjármögnun. Gert verður ráð fyrir þessum kostnaði í fjárhagsáætlun Ásahrepps 2021-2024.
36.
Tölvuskeyti Skógræktarfélags Rangæinga vegna Ásabrekku.
Málsnúmer 2012014
Lagt fram tölvuskeyti Skógræktarfélags Rangæinga þar sem fram kemur fyrirspurn um afstöðu til uppsetningar á leiktækjum við skógarreitinn í Ásabrekku.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir engar athugasemdir við að leiktæki verði sett upp innan skógarreitsins í Ásabrekku.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að sett verði upp einhver leiktæki en gæta verður vel að öryggismálum. Þegar formlegar hugmyndir liggja fyrir verði þær kynntar fyrir hreppsnefnd áður en formlegt samþykki er gefið og styrktarvilyrði.
37.
Mótmæli vegna leiða til hagræðingar í rekstri Odda bs.
Málsnúmer 2012036
Lagt fram bréf ásamt undirskriftarlista 94 einstaklinga þar sem mótmælt er leiðum stjórnar Odda bs. við hagræðingu í rekstri leikskóla Rangárþings ytra og Ásahrepps. Skorað er á stjórn Odda bs. að draga þessa ákvörðun til baka og leitast eftir því að skoða aðrar leiðir til hagræðingar í rekstri.
Hreppsnefnd Ásahrepps vill vekja athygli á að tillögur um útfærslu á styttingu vinnuvikunnar lágu ekki fyrir frá 3 af 4 skólum sveitarfélaganna þegar haldinn var umræddur fundur í stjórn Odda bs. og leiða var leitað til að ákvarða fjárhagslegan ramma fyrir stofnanirnar árið 2021. Nú hafa allar skólastofnanir skilað inn sínum tillögum og hefur sveitarstjórn Rangárþing ytra samþykkt fyrir sitt leyti að fara eftir þeim tillögum til reynslu í 3 mánuði og meta skal þá stöðuna hvernig til hafi tekist m.t.t. innra starfs og skipulags.

Jafnframt beindi sveitarstjórn Rangárþings ytra til stjórnar Odda bs. að athugað verði hvort að megi hliðra þannig til innan þess fjárhagsramma sem settur hefur verið fyrir Odda bs 2021 að tímabundnir akstursstyrkir til leikskólastarfsmanna geti engu að síður haldist út það tímabil sem upphaflega var gert ráð fyrir en falli ekki niður fyrr eins og lagt var upp með í áætluninni.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti samþykkt Rangárþings ytra varðandi fyrirkomulag styttingar vinnuvikunnar í skólastofnunum sveitarfélaganna, svo og að beina því til stjórnar Odda bs að endurskoða ákvörðun um uppsögn á samningum um akstursstyrki til leikskólastarfsmanna.

Fulltrúar E-lista leggja fram eftirfarandi bókun:
Við fulltrúar E lista fögnum því að meirihluti Ásahrepps, fulltrúar L lista hafi séð að sér og tekið jákvætt í erindi frá foreldrasamfélaginu sem snýr að því að mótmæla hagræðingarleiðum stjórnar Odda bs í rekstri leikskóla Rangárþings ytra og Ásahrepps, sem þau höfðu samþykkt á síðasta fundi hreppsnefndar, þann 7. desember s.l. í stað þess að taka mið af umræðu á fundinum sem gerðu það að verkum að fulltrúar E listans sátu hjá.
38.
Vinnuhópur um sameiningu sveitarfélaga V-Skaft og Rang.
Málsnúmer 2001001
Lögð fram tillaga verkefnahóps Sveitarfélagsins Suðurland um að hefja formlegar viðræður um sameiningu sveitarfélaganna í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að hefja könnun á möguleikum á sameiningu sveitarfélaganna skv. 119. grein sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, með fyrirvara um samþykki allra þeirra sveitarstjórna sem aðild eiga að "Sveitarfélaginu Suðurland".

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að skipa eftirtalda þrjá aðalfulltrúa og tvo til vara í samstarfsnefnd sem kanna skal möguleika á sameiningu sveitarfélaganna í samræmi við 119. grein sveitarstjórnarlaga:
Ásta Berghildur Ólafsdóttir
Egill Sigurðsson
Valtýr Valtýsson

Til vara:
Brynja Jóna Jónasdóttir
Elín Grétarsdóttir

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að samstarfsnefnd skal leita eftir sjónarmiðum og hugmyndum íbúa, starfsmanna og annarra hagsmunaaðila við undirbúning tillögu til sveitarstjórna.
Samstarfsnefndinni er falið að setja verkefninu nánari verkáætlun og tímaramma.

Hreppsnefnd Ásahrepps lýsir því jafnframt yfir að hún mun ekki nýta heimild í 2. mgr. 120. gr. sveitarstjórnarlaga, komi til þess að sameiningartillaga verði samþykkt af íbúum í hluta sveitarfélaganna. Í því felst að hafni íbúar einhvers sveitarfélaganna tillögu um sameiningu í kosningum, munu aðrar sveitarstjórnir ekki taka ákvörðun um sameiningu þeirra sveitarfélaga án þess að hafnar verði nýjar sameiningarviðræður og kosið að nýju.
39.
Ákvörðun um endurgreiðslu vegna bæjarlýsingar, ljósastaurar.
Málsnúmer 2012034
Sveitarstjóri lagði fram yfirlit yfir kostnað við bæjarlýsingu, sem fengin var hjá RARIK og Orkusölunni.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að endurgreiðsla vegan bæjarlýsingar verði kr. 60.000 fyrir tvo ljósastaura á hvert heimili þar sem skráð er búseta.
40.
Samstarfssamningur við Íþróttafélagið Garp
Málsnúmer 2012030
Lögð fram drög að endurskoðuðum samstarfssamningi milli Íþróttafélagsins Garps og Ásahrepps. Einnig liggur fyrir að ákvarða árlegt framlag Ásahrepps vegan ársins 2020.
Vegna ársins 2020 þá samþykkir hreppsnefnd samhljóða að styrkur ársins nemi kr. 2.000 á hvern íbúa.

Jafnframt tekur hreppsnefnd Ásahrepps jákvætt í fyrirliggjandi drög að samstarfssamningi en frestar málinu til næsta fundar þar til endanleg útfærsla samnings liggur fyrir.
41.
Beiðni Markaðsstofu Suðurlands um framlengingu á samstarfssamningi
Málsnúmer 2011029
Vísað er til dagskrárliðar 7.4 á 34. fundi hreppsnefndar.Dagný H. Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurlands, kom inn á fund hreppsnefndar í upphafi fundar. Hún kynnti starfsemi Markaðsstofunnar og forsendur þess að óskað er eftir endurnýjun samstarfssamnings Ásahrepps og Markaðsstofunnar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að endurnýja umræddan samstarfssamning um þrjú (3) ár skv. fyrirliggjandi drögum. Jafnframt felur hreppsnefnd sveitarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd hreppsnefndar Ásahrepps.
42.
Framlenging verksamnings vegna snjómoksturs á tengivegum og heimreiðum
Málsnúmer 2012031
Lögð fram drög að samningi um framlengingu samnings við Þjótanda um snjómokstur á tengivegum og heimreiðum, til 15. apríl 2021.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlengingu samnings um eitt ár, eða til 15. apríl 2021, fyrir sitt leyti. Hreppsnefnd lýsir yfir vonbrigðum sínum er varðar í hvaða stöðu þetta mál er komið. Hreppsnefnd leggur áherslu á að í lok framlengingar verði leitað tilboða að nýju í þennan verkþátt og haft verði samráð við hreppsnefnd Ásahrepps við undirbúning þess.
43.
Þjónustusamningur við Hestamannafélagið Geysi
Málsnúmer 2010012
Beiðni Hestamannafélagsins Geysis um endurnýjun þjónustusamnings við Ásahrepp sem lýkur um næstu áramót. Lögð fram drög að endurskoðuðum þjónustusamningi.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að endurskoðuðum þjónustusamningi og felur sveitarstjóra að undirrita hann fyrir hönd Ásahrepps.
44.
Fjárhagsáætlun Ásahrepps 2021 - 2024
Málsnúmer 2011036
Fjárhagsáætlun sveitarsjóðs Ásahrepps 2021 - 2024 lögð fram til lokaumræðu og afgreiðslu
Fjárhagsáætlun 2021-2024 fyrir Ásahrepp lögð fram til lokaumræðu og afgreiðslu.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir fjárhagsáætluninni og skýrði ýmsa liði. Helstu kennitölur áætlunarinnar fyrir samstæðureikning rekstrarárið 2021 eru (í þús. kr.):

Tekjur: 329.029
Gjöld: 343.237
Fármagnstekjur: 3.882
Rekstrarniðurstaða neikvæð: -10.326

Fastafjármunir: 400.787
Veltufjármunir: 141.649
Eigir samtals: 542.435

Eigið fé: 482.010
Langtímaskuldir: 36.484
Skammtímaskuldir: 23.941
Eigið fé og skuldir samtals: 542.435

Gert er ráð fyrir eftirfarandi fjárfestingum á árinu 2021 (í þús. kr.):
Gatnagerð: 11.000
Götulýsing og plan: 2.500
Reiðvegagerð: 2.000
Viðgerðir á Ásgarði: 10.000
Samtals fjárfesting: 25.500

Oddviti bar upp fyrirliggjandi tillögu að fjárhagsáætlun Ásahrepps fyrir árin 2021-2024 til samþykktar. Tillagan var samþykkt samhljóða og sveitarstjóra falið að senda lögbundnum aðilum afrit af samþykktri áætlun í samráði við KPMG endurskoðun.