Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

37. fundur
19. mars 2025 kl. 08:30 - 11:00
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson hreppsnefndarfulltrúi
Karl Ölvirsson varamaður í hreppsnefnd
Þráinn Ingólfsson hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 297. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2503001
Lögð fram fundargerð 297. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð 221. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU.
Mál nr. 1; Ás 1 L165257; Ás 1 spilda 1 L220759; Sameining landeigna og breytt stærð - 2502063.
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 02.02.2025, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar sameiningu landeigna. Óskað er eftir að sameina Ás 1 spildu 1 L220759 við jörðina Ás 1 L165257 sem verður 41,9 ha eftir sameiningu skv. meðfylgjandi merkjalýsingu.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða afmörkun og breytta skráningu lóðanna skv. framlagðri merkjalýsingu.

Mál nr. 26; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 25-221 - 2502004F.
Lögð fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU nr. 25-221.
2.
Fundargerð 298. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2503018
Lögð fram fundargerð 298. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð 222. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU.
Mál nr. 1; Ás 2 (L165258); byggingarheimild; útihús - 2502081.
Móttekin var umsókn þann 24.02.2025 um byggingarheimild fyrir 100,7 m2 útihús á jörðinni Ás 2 L165258 í Ásahreppi.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að málið fái málsmeðferð á grundvelli 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar. Berist engar athugasemdir vegna grenndarkynningar skal málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

Mál nr. 31; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 25-222 - 2502006F.
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 25-222.
3.
Fundargerð 87. fundar stjórnar Brunavarna Rangárvallasýslu bs.
Málsnúmer 2503005
Lögð fram fundargerð 87. fundar stjórnar Brunavarna Rangárvallasýslu bs. ásamt ársreikningi fyrir rekstrarárið 2024.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir fyrir sitt leyti ársreikning Brunavarna Rangárvallasýslu bs. fyrir rekstrarárið 2024, skv. bókun stjórnar í 1. dagskrárlið.
Fundargerð að öðru leyti til kynningar.
4.
Vinnufundur hreppsnefndar 10. mars 2025
Málsnúmer 2503013
Lagt fram minnisblað vegna vinnufundar hreppsnefndar Ásahrepps sem haldinn var 10. mars 2025.
Til kynningar.
5.
Fundargerð 9. fundar stjórnar Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps
Málsnúmer 2503003
Lögð fram fundargerð 9. fundar stjórnar Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps.
Til kynningar.
6.
Fundargerð 34. fundar stjórnar Odda bs.
Málsnúmer 2503007
Lögð fram fundargerð 34. fundar stjórnar Odda bs.
Til kynningar.
7.
Minnisblað vegna fundar um mönnunarvanda HSU, 20. febrúar 2025
Málsnúmer 2502037
Lagt fram minnisblað vegna fundar sveitarfélaga í Rangárvallasýslu með HSU, sem haldinn var 20. febrúar 2025.
Til kynningar.
8.
Fundargerð 243. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Málsnúmer 2502038
Lögð fram fundargerð 243. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Til kynningar.
9.
Fundargerð 331. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Málsnúmer 2503002
Lögð fram fundargerð 331. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 21. fundar stjórnar Arnardrangs hses
Málsnúmer 2502036
Lögð fram fundargerð 21. fundar stjórnar Arnardrangs hses.
Til kynningar.
11.
Fundaragerð 6. fundar stjórnar Markaðsstofu Suðurlands
Málsnúmer 2503009
Lögð fram fundargerð 6. fundar stjórnar Markaðsstofu Suðurlands ásamt starfsáætlun 2025.
Til kynningar.
12.
Fundargerð 7. fundar stjórnar Markaðsstofu Suðurlands
Málsnúmer 2503010
Lögð fram fundargerð 7. fundar stjórnar Markaðsstofu Suðurlands.
Til kynningar.
13.
Fundargerð 82. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Málsnúmer 2503012
Lögð fram fundargerð 82. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
14.
Fundargerð 81. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 2503020
Lögð fram fundargerð 81. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
15.
Fundargerð 964. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2503014
Lögð fram fundargerð 964. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
16.
Fundargerð 965. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2502039
Lögð fram fundargerð 965. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
17.
Fundargerð 966. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2502040
Lögð fram fundargerð 966. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
18.
Fundargerð 967. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2502041
Lögð fram fundargerð 967. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
19.
Fundargerð 968. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2502042
Lögð fram fundargerð 968. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
20.
Fundargerð 969. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2502043
Lögð fram fundargerð 969. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
21.
Fundargerð 970. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2503004
Lögð fram fundargerð 970. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
22.
Fundargerð 971. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2503015
Lögð fram fundargerð 971. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
23.
Breytingar á samþykktum Bergrisans bs.
Málsnúmer 2502007
Tillaga um breytingu á samþykktum Bergrisans bs. tekin til síðari og loka umræðu.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi breytingu á samþykktum Bergrisans bs, fyrir sitt leyti.
24.
Njáludagar í Rangárþingi
Málsnúmer 2502034
Lögð fram fyrstu drög að Njáludögum, sem Guðni Ágústson hefur stillt upp.
Hreppsnefnd Ásahrepps ræddi hugmyndir um verkefnið og líst vel á hugmyndina. Ekki er gert ráð fyrir kostnaði við þetta vekefni á fjárhagsáætlun ársins. Nauðsynlegt er að fyrir liggi sem fyrst kostnaðaráætlun fyrir verkefnið sem geri einnig grein fyrir hvernig þeim kostnaði verði mætt.
25.
Styrkbeiðni vegna æfinga- og keppnisferðar í borðtennis
Málsnúmer 2502035
Lagt fram tölvuskeyti Bærings J. B. Guðmundssonar borðtennisþjálfara, dags. 14. febrúar 2025, þar sem óskað er eftir styrk vegna þjálfunar- og keppnisferðar unglingalandsliðs Íslands í borðtennis til Svíþjóðar dagana 22. - 30. júní 2025. Þrír einstaklingar í hópnum eru úr Ásahreppi. Kostnaður sem hver þátttakandi þarf að bera er kr. 80.000 en Borðtennissamband Íslands mun greiða annan kostnað vegna ferðarinnar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að styrkja hvern þessara þriggja þátttakenda frá Ásahreppi um kr. 40.000, eða samtals kr. 120.000.
26.
Samstarfsverkefnið Coming, Staying, Living - Ruralizing Europe
Málsnúmer 2503008
Lagt fram bréf samtakanna Landsbyggðin lifir, dags. 4. mars 2025, þar sem verið er að kanna möguleika á samstarfi við sveitarfélög um verkefni sem á að skapa samtal milli íbúa og stjórnvalda við stefnumótun um þróun byggðalaga.
Hreppsnefnd Ásahrepps líst vel á hugmyndir samtakanna.
27.
Ritstjórn Goðasteins
Málsnúmer 2503011
Lagt fram tölvuskeyti frá Hörpu Rún Kristjánsdóttur, dags. 6. mars 2025, þar sem fram kemur að Hulda Brynjólfsdóttir hefur lokið störfum í ritnefnd Goðasteins. Þá vantar nýjan tengilið til að skrifa annál sveitarfélagsins sem gefinn er út árlega.
Hreppsnefnd Ásahrepps felur oddvita og sveitarstjóra að finna nýjan fulltrúa Ásahrepps í ritnefndina. Jafnframt þakkar hreppsnefnd Huldu Brynjólfsdóttur fyrir sitt góða framlag við störf sín í þágu Goðasteins.
28.
Styrkbeiðni vegna söngskrár Karlakórs Rangæiga 2025
Málsnúmer 2503016
Lagt fram tölvuskeyti Karlakórs Rangæinga, dags. 18. febrúar 2025, þar sem óskað er eftir fjárstyrk til fjármögnunar söngskrár fyrir vortónleika 2025.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita styrk að upphæð kr. 20.000.
29.
Þingmál 101; Þingályktunartillaga um breytingu á þingsályktun nr. 24 152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða
Málsnúmer 2503017
Lagt fram tölvuskeyti nefnda- og greiningarsviðs Alþingis, dags. 6. mars 2025, þar sem þingmál 101; þingsályktunartillaga um breytingu á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæði, er sent til umsagnar.
Hreppsnefnd Ásahrepps tók til umræðu framlagða tillögu til þingsályktunar og komu ýmis sjónarmið fram í umræðunni sem lýtur að hugmyndum um Skrokkölduvirkjun, Urriðafossvirkjun og Kjalölduveitu. Oddvita og sveitarstjóra falið að fullvinna umsögn fyrir hönd hreppsnefndar Ásahrepps í takt við umræðu og niðurstöðu hennar. Umsögn verði skilað inn til Alþingis.
30.
Vinnustofa - kynning á fyrirhuguðum flutningum vegna vindmylla fyrir Vaðölduver
Málsnúmer 2503019
Lagt fram tölvuskeyti Landsvirkjunar, dags. 13. mars 2025, þar sem kynnt er að fyrirhuguð vinnustofa miðvikudaginn 9. apríl 2025. Vinnustofan mun snúast um allt það sem huga þarf að í undirbúningi flutninga á vindmyllum og aðgerðir sem þurfa við flutningana sjálfa.
Oddviti og sveitarstjóri Ásahrepps mæta sem fulltrúar hreppsnefndar Ásahrepps á vinnustofuna.
31.
Starfsmaður íþróttamiðstöðvar Laugalandi og sumaropnun sundlaugar 2025
Málsnúmer 2503022
Lögð fram tvö tölvuskeyti sveitarstjóra Rangárþings ytra, dags. 13. mars 2025, ásamt fylgiskjölum. Um er að ræða annarsvegar sumaropnun sundlaugarinnar á Laugalandi 2025 og hins vegar starfsmannamál íþróttamiðstöðvarinnar á Laugalandi.
Hreppsnefnd Ásahrepps finnst það ekki góður kostur að skerða þjónustu á Laugalandi svona mikið, þó skilningur sé fyrir hendi er varðar litla nýtingu sundlaugarinnar á virkum dögum. Hreppsnefnd vill þó leggja áherslu á að mikil nauðsyn er að auka vakt og eftirlit hjá íþróttamiðstöðinni á Laugalandi og þörfin að aðkallandi þegar á þessari stundu. Miður er að bíða skuli með að auka við þann þátt fram á haustið þegar nýtt skólaár hefst.
Hreppsnefnd Ásahrepps er tilbúin að auka fjármagn til reksturs íþróttamiðstöðvarinnar á Laugalandi þegar í stað til að auka umsjón og eftirlit ásamt því að skerða minna opnun sundlaugarinnar næsta sumar.
Hreppsnefnd Ásahrepps vill beina því til sveitarstjórnar Rangárþings ytra hvort ekki væri skynsamlegt að einn fulltrúi Ásahrepps hefði seturétt á fundum Heilsu-, íþrótta- og tómstundanefndar Rangárþings ytra þegar til umræðu eru sameiginleg málefni sveitarfélaganna og unnar stefnumótandi tillögur.
32.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Málsnúmer 2101011
Lagt fram rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps fyrir tímabilið 1. janúar - 28. febrúar 2025.
Til kynningar.
33.
Uthlutun úr Landbótasjóði
Málsnúmer 2503006
Lagt fram bréf Lands og skóga, dags. 3. mars 2025, þar sem kynnt er úthlutun úr Landbótasjóði 2025 til Ásahrepps. Úthlutunin er kr. 3.339.000 sem nýttur verður í dreifingu tilbúins áburðar.
Til kynningar.
34.
Þakkar- og hvatningarbréf mennta- og barnamálaráðherra vegna fyrirlagningar PISA 2025
Málsnúmer 2503021
Lagt fram þakkar- og hvatningarbréf mennta- og barnamálaráðherra, dags. 13. mars 2025, vegna fyrirlagnar PISA 2025.
Til kynningar.
35.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn 16. apríl 2025. Fundurinn verður haldinn á skrifstofu Ásahrepps og hefst kl. 8:30.
Til kynningar.