Hreppsnefnd Ásahrepps
37. fundur
20. janúar 2021
kl.
08:30
-
10:45
í fjarfundarkerfi Zoom
Nefndarmenn
Ásta Berghildur Ólafsdóttir
oddviti hrepssnefndar
Brynja Jóna Jónasdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Egill Sigurðsson
hreppsnefndarfulltrúi
Elín Grétarsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Guðmundur Jóhann Gíslason
hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Lögð fram tillaga að dagskrárbreytingu að inn komi einn nýr dagskrárliður nr. 9. Aðrir dagskrárliðir færast til sem því nemur.
Dagskrá
1.
208. fundur skipulagsnefndar
Fundargerð 208. fundar skipulagsnefndar lögð fram ásamt fundargerð 20-133. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa.
Mál nr. 16; Afgreiðslur byggingarfulltrúa 20-133 - 2012002F.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
2.
209. fundur skipulagsnefndar
Fundargerð 209. fundar skipulagsnefndar lögð fram ásamt fundargerð 20-134. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa.
Mál nr. 22; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 20-134 - 2012004F.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
3.
11. fundur vegna endurskoðunnar aðalskipulags Ásahrepps
Fundargerð 11. fundar vegna endurskoðunar aðalskipulags Ásahrepps lögð fram til samþykktar.
Hreppsnefnd samþykkir samhljóða framlagða fundargerð.
4.
12. fundur vegna endurskoðunar aðalskipulags Ásahrepps
Fundargerð 12. fundar vegna endurskoðunar aðalskipulags Ásahrepps lögð fram til samþykktar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagða fundargerð.
5.
13. fundur vegna endurskoðunar aðalskipulags Ásahrepps
Fundargerð 13. fundar vegna endurskoðunar aðalskipulags Ásahrepps lögð fram til samþykktar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagða fundargerð.
6.
83. fundur félagsmálanefndar
Fundargerð 83. fundar félagsmálanefnar tekin aftur fyrir í hreppsnefnd Ásahrepps.Óskað hefur verið eftir samþykki hreppsnefndar fyrir hækkun grunnfjárhæðar fjárhagsaðstoðar um 6%. Fundargerðin var lögð fram til kynningar á 36. fundi hreppsnefndar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti umrædda hækkun grunnfjárhæðar fjárhagsaðstoðar.
7.
Fundargerðir 1. og 2. fundar sameiningarnefndar
Lagðar fram fundargerðir 1. og 2. fundar sameiningarnefndar um sameiningu sveitarfélaga í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fundargerðirnar fyrir sitt leyti.
8.
25. fundur stjórnar Bergrisans bs.
Lögð fram fundargerð 25. fundar stjórnar Bergrisans bs. Stjórn óskar eftir staðfestingu sveitarstjórna aðildarsveitarfélaga vegna 1. dagskrárliðar er varðar viðaukasamning við þjónustusamninga milli Bergrisans og Sólheima.Ekki er verið að óska eftir viðbótarframlagi frá aðildarsveitarfélögunum á þessum tímapunkti heldur er um viðauka við fjárhagsáætlun Bergrisans að ræða.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti framlögð drög að viðaukasamning við Sólheima SES.
9.
Fundargerð 7. fundar stjórnar Lundar
Fundargerð 7. fundar stjórnar Lundar lögð fram. Óskað er eftir afgreiðslu hreppsnefndar Ásahrepps gagnvart tillögu stjórnar um að aðildarsveitarfélög Lundar gangist í ábyrgð fyrir hækkun yfirdráttarheimildar á rekstrarreikningi Lundar í Arionbanka. Yfirdráttur verði hækkaður um 10 milljónir króna, fari úr 10 milljónum í 20 milljónir króna.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita hlutfallslega ábyrgð að sínum hluta aðildar Ásahrepps að Lundi er lýtur að hækkun yfirdráttarheimildar rekstrarreiknings Lundar. Gæta verður að því að ef vaxtakostnaður byggingareiknings hafi verið greiddur af rekstrarreikningi, þá verði sá kostnaður greiddur til baka til rekstrarreiknings.
10.
Fundargerð 48. fundar stjórnar félags- og skólaþjónustu
Lögð fram fundargerð 48. fundar stórnar Byggðasamlags um félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
Til kynningar.
11.
24. fundur stjórnar Bergrisans bs.
Fundargerð 24. fundar stjórnar Bergrisans bs. lögð fram.
Til kynningar.
12.
3. fundur leiðtogateymis á Suðurlandi
Lögð fram fundargerð 3. fundar leiðtogateymis á Suðurlandi, um samþættingu þjónustu við fötluð börn.
Til kynningar.
13.
Fundur lögreglustjóra með bæjar- og sveitarstjórum, 15. desember 2020
Fundargerð lögreglustjóra með bæjar- og sveitarstjórum, dags. 15. desember 2020, lögð fram.
Til kynningar.
14.
565. fundur stjórnar SASS
Fundargerð 565. fundar stjórnar SASS lögð fram.
Til kynningar.
15.
892. fundur stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundargerð 892. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram.
Til kynningar.
16.
Stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands
Lagt fram frumvarp umhverfisráðherra um stofnun Hálendisþjóðgarðs, þingmál 369. Frestur hefur verið gefinn til loka janúarmánaðar að skila inn umsögn eða athugasemdum.Lagt fram minnisblað vegna umsagnar hreppsnefndar Ásahrepps, dagsett 15. janúar 2021.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að fela sveitartjóra að senda inn athugasemdir við framlagt frumvarp til Alþingis og þingnefndar á grundvelli minnisblaðsins sem lagt var fram. Sveitarstjóri mun senda endanlega útgáfu athugasemda til fulltrúa í hreppsnefnd til endanlegrar staðfestingar með tölvupósti.
17.
Endurskoðun Aðalskipulags Ásahrepps
Lögð fram drög að forsendum og greinargerð sem Efla hefur unnið vegna endurskoðunar aðalskipulags Ásahrepps. Einnig lögð fram greinargerð um stöðu og tækifæri ferðaþjónsustu í Ásahreppi og minnisblað um flokkun landbúnaðarlands.
Hreppsnefnd Ásahrepps þakkar fyrir vel unnin skjöl og gerir engar athugasemdir við þær á þessu stigi vinnslunnar.
18.
Fegrunarátak Ásahrepps
Lögð fram skýrsla verkefnisstjóra um Fegrunarátak Ásahrepps.Alls tóku 72 aðilar þátt í verkefninu og voru greiddir út styrkir að upphæð kr. 30.048.773. Alls framkvæmdu umræddir þátttakendur við þetta verkefni að upphæð kr. 46.064.652.
Hreppsnefnd Ásahrepps þakkar verkefnisstjóra fyrir vel unnið verk og er ánægjulegt að sjá hve vel hefur tekist til í þessu verkefni.
Ekki hefur verið unnt að halda uppskeruhátíð eins og til stóð, en það verður skoðað betur þegar losnar um þær takmarkanir sem í gildi eru vegan COVID-19.
Ekki hefur verið unnt að halda uppskeruhátíð eins og til stóð, en það verður skoðað betur þegar losnar um þær takmarkanir sem í gildi eru vegan COVID-19.
19.
Upplýsingaskilti við göngustíga á Holtamannaafrétti
Lagðar fram tillögur að grunni upplýsingaskilta til uppsetningar við aðkomu að þeim gönguleiðum sem stikaðar voru síðasta sumar, þ.e. göngustígur upp með Köldukvísl og göngustígur við Dynk.
Hreppsnefnd Ásahrepps hefur engar athugasemdir við þær tillögur sem fram eru lagðar. Á þessum tímapunkti ennþá hægt að koma fram með tillögur um breytingar.
Þegar hönnun er komin á lokastig þá verður útlitshönnun lögð fyrir hreppsnefnd til endanlegrar staðfestingar.
Þegar hönnun er komin á lokastig þá verður útlitshönnun lögð fyrir hreppsnefnd til endanlegrar staðfestingar.
20.
Lögfræðiaðstoð fyrir fulltrúa Ásahrepps í umdæmisráði VJÞ
Í ljós hefur komið ágreiningur í svæðisráði vestursvæðis VJÞ vegna afstöðu til opnunar fyrir akandi umferð inn í Vonarskarð. Þar er farið gegn afstöðu hreppsnefndar Ásahrepps og gildandi aðalskipulagi. Fulltrúi Ásahrepps í svæðisráði óskar eftir að Ásahreppur kosti lögfræðiaðstoð vegna þessa ágreinings.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að fulltrúi Ásahrepps í svæðisráði VJÞ geti leitað til lögfræðings á kostnað sveitarsjóðs. Áður en þessi heimild er nýtt skal vikomandi leggja fram kostnaðaráætlun vegna vinnu lögfræðings og skal hún vera samþykkt af hreppsnefnd.
21.
Styrkir sveitarsjóðs Ásahrepps vegna hitaveitutenginga
Lagður fram samningur Hitaveitu Rangæinga og Ásahrepps um tengingu húsrýmis í Ásahreppi (2002), ásamt reglum um fjárframlög Ásahrepps til nýrra hitaveituframkvæmda (2009)og afrit af 12. dagskrárlið í fundargerð hreppsnefndar Ásahrepps frá 11. desember 2012 "Viðauki við reglur um hitaveitutengingar". Nauðsynlegt er að skilningur á fyrri samningum og samþykktum sé réttur.
Hreppsnefnd Áshrepps vísar til fyrri samþykkta varðandi styrki úr sveitarsjóði Ásahrepps vegna hitaveitu tenginga.
Í samningi Ásahrepps og Hitaveitu Rangæinga, frá árinu 2002, segir í 11. grein um tengigjöld að eftir að lagningu dreifikerfis munu notendur greiða tengigjöld í samræmi við gjaldskrá Hitaveitunnar á hverjum tíma. Í 14. grein segir jafnframt að nýir notendur sem af hagkvæmni- og tækniástæðum reynist unnt að tengja hitaveitunni, greiða stofngjöld til Hitaveitunnar samkvæmt gildandi gjaldskrá hennar á hverjum tíma.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti reglur um fjárframlög Ásahrepps til nýrra hitaveituframkvæmda þann 26. maí 2009, þar sem samþykkt var að koma að fjármögnun tenginga til lögheimila sem óska eftir því ef arðsemi tengingar er ekki nægjanleg skv. mati Orkuveitu Reykjavíkur. Fjármögnun frá sveitarsjóði verði því grundvöllur þess að hagkvæmni náist við viðkomandi tengingu. Þá verði gerður þríhliða samningur milli umsækjanda tengingar, Orkuveitu Reykjavíkur og Ásahrepps. Hámarksframlag Ásahrepps vegna nýs lögheimilis getur numið allt að tíföldu tengigjaldi íbúðarhús skv. gjaldskrá Orkuveitu Reykjavíkur á hverjum tíma.
Vegna þeirra aðstæðna, þar sem ekki er unnt að tengja nýtt lögheimili þá samþykkti hreppsnefnd Ásahrepps þann 12. desember 2012 viðauka við reglur um fjárframlög Ásahrepps til nýrra hitaveituframkvæmda. Þá er um að ræða fjárframlag vegna framkvæmdakostnaðar við aðra húshitunarkosti sem leiða til orkusparnaðar.
Í samningi Ásahrepps og Hitaveitu Rangæinga, frá árinu 2002, segir í 11. grein um tengigjöld að eftir að lagningu dreifikerfis munu notendur greiða tengigjöld í samræmi við gjaldskrá Hitaveitunnar á hverjum tíma. Í 14. grein segir jafnframt að nýir notendur sem af hagkvæmni- og tækniástæðum reynist unnt að tengja hitaveitunni, greiða stofngjöld til Hitaveitunnar samkvæmt gildandi gjaldskrá hennar á hverjum tíma.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti reglur um fjárframlög Ásahrepps til nýrra hitaveituframkvæmda þann 26. maí 2009, þar sem samþykkt var að koma að fjármögnun tenginga til lögheimila sem óska eftir því ef arðsemi tengingar er ekki nægjanleg skv. mati Orkuveitu Reykjavíkur. Fjármögnun frá sveitarsjóði verði því grundvöllur þess að hagkvæmni náist við viðkomandi tengingu. Þá verði gerður þríhliða samningur milli umsækjanda tengingar, Orkuveitu Reykjavíkur og Ásahrepps. Hámarksframlag Ásahrepps vegna nýs lögheimilis getur numið allt að tíföldu tengigjaldi íbúðarhús skv. gjaldskrá Orkuveitu Reykjavíkur á hverjum tíma.
Vegna þeirra aðstæðna, þar sem ekki er unnt að tengja nýtt lögheimili þá samþykkti hreppsnefnd Ásahrepps þann 12. desember 2012 viðauka við reglur um fjárframlög Ásahrepps til nýrra hitaveituframkvæmda. Þá er um að ræða fjárframlag vegna framkvæmdakostnaðar við aðra húshitunarkosti sem leiða til orkusparnaðar.
22.
Ákvörðun um fyrirkomulag stjórnsýslu Ásahrepps vegna Covid-19.
Taka þarf ákvörðun um fyrirkomulag stjórnsýslu Ásahrepps í ljósi aðstæðna á tímum COVID-19.Ákveðið var að loka skrifstofunni fyrir almenningi þar sem ekki var hægt að tryggja nándarreglu sóttvarna.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að viðhafa óbreytt fyrirkomulag áfram, en ákvörðunin verður endurskoðuð á næsta fundi hreppsnefndar. Sveitarstjóra falið að birta þessa ákvörðun með sama hætti og síðast á heimasíðu Ásahrepps og með að hengja upp auglýsingu við skrifstofu sveitarfélagsins.
23.
Tölvuskeyti Huldu Brynjólfsdóttur; reiðvegir í Ásahreppi
Lagt fram tölvuskeyti Huldu Brynjólfsdóttur, dags. 8. janúar 2021, þar sem hún segir sig frá því verkefni að ræða og semja við landeigendur um lagningu reiðvega.
Hreppsnefnd tekur erindi Huldu til greina og þakkar henni fyrir vel unnin störf. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að vísa tilnefningu nýs aðila í nefndina til næsta fundar.
24.
Samstarfssamningur við Íþróttafélagið Garp
Lög fram drög að samstarfssamningi við Íþróttafélagið Garp, en gerðar hafa verið orðalagsbreytingar í takt við umræðu í hreppsnefnd á 36. fundi.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi þjónustusamning og felur sveitarstjóra að undirrita hann fyrir hönd Ásahrepps.
25.
Minnisblað um iðjuþjálfa HSu
Lagt fram minnisblað skólaþjónustunnar um starf iðjuþjálfa Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. Árið 2007 var gerður samstarfssamningur um starf iðjuþjálfa á Suðurlandi. Aðilar samningsins vour HSu, Svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra á Suðurlandi og SASS f.h. sveitarfélaga á Suðurlandi að undanskildum Vestmannaeyjum. Núverandi iðjuþjálfi lætur af störfum nú í vor og því vill HSu kanna hug sveitarstjórna á Suðurlandi, sem stóðu að fyrri samstarfssamningi, til áframhaldandi samstarfs og þá hvernig þjónustu skuli háttað.Einnig eru lögð fram drög að nýjum samstarfssamningi ásamt starfslýsingu iðjuþjálfa.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti að gerður verði nýr samstarfssamningur á þeim forsendum sem fram koma í framlögðum gögnum.
26.
Styrkbeiðni Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna, janúar 2021
Lagt fram tölvuskeyti Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna, dags. 6. janúar 2021, þar sem óskað er eftir styrk vegna útgáfu blaðsins "Börn með krabbamein".
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita félaginu styrk að upphæð kr. 10.000.
27.
Tillögur Velferðarvaktarinnar til ríkis og sveitarfélaga í mótvægisaðgerðurm vegna COVID-19
Bréf Velferðarvaktarinnar, dags 7. desember 2020, þar sem gerðar eru tillögur til ríkis og sveitarfélaga í mótvægisaðgerðum vegna COVID-19.
Til kynningar.
28.
Áskorun til sveitarfélaga
Áskorun Samtaka grænkera á Íslandi um skýr markmið varðandi framboð grænkerafæðis lögð fram.
Til kynningar. Samþykkt samhljóða að senda umrædda áskorun til stjórnar Odda bs til frekari skoðunar í ljósi reksturs og þjónustu skólamötuneyta sveitarfélaganna.
29.
Lokaskýrsla um tilraunaverkefni um sérstakan húsnæðisstuðning
Lokaskýrsla Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um tilraunaverkefni um sérstakan húsnæðisstuðning lögð fram.
Til kynningar.
30.
Drög að umsögn um drög að viðbótum við landsskipulagsstefnu 2015-2026.
Lögð fram drög að umsögn um drög að viðbótum við landsskipulagsstefnu 2015-2026, sem unnin hefur verið af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
31.
Reksstraryfirlit í lok árs 2020
Lagt fram rekstraryfirlit fyrir árið 2020, eins og staða bókhalds er þann 13. janúar 2020.
Til kynningar.
32.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn 17. febrúar 2021 og hefst klukkan 8:30.
Til kynningar.