Hreppsnefnd Ásahrepps
38. fundur
17. febrúar 2021
kl.
08:30
-
10:40
í fjarfundarkerfi Zoom
Nefndarmenn
Ásta Berghildur Ólafsdóttir
oddviti hrepssnefndar
Brynja Jóna Jónasdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Egill Sigurðsson
hreppsnefndarfulltrúi
Elín Grétarsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Guðmundur Jóhann Gíslason
hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Kynning á aðalskipulagstillögu fyrir hreppsnefnd Ásahrepp
Skipulagsráðgjafar mæta á fund hreppsnefndar til að kynna tillöguna.
Ingibjörg Sveinsdóttir, Gísli Gíslason og Vigfús Þór Hróbjartsson mættu á fund hreppsnefndar Ásahrepps og kynntu aðalskipulagstillögu Ásahrepps.
Skipulagsráðgjarfar kynntu fyrir hreppsnefnd drög að greinargerð, forsendur umhverfisskýrslu, greinargerð um ferðamál ásamt uppdráttum af byggð og afrétti.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að tillagan verði kynnt hjá skipulagsnefnd og í framhaldinu verði hún kynnt almenningi.
Skipulagsráðgjarfar kynntu fyrir hreppsnefnd drög að greinargerð, forsendur umhverfisskýrslu, greinargerð um ferðamál ásamt uppdráttum af byggð og afrétti.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að tillagan verði kynnt hjá skipulagsnefnd og í framhaldinu verði hún kynnt almenningi.
2.
Fundargerð 210. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 210. fundar skipulagsnefndar UTU.
Mál nr. 1; Sporðöldulón; Tveir grjótgarðar; Framkvæmdaleyfi - 2101019.
Lögð er fram umsókn frá Landsvirkjun vegna framkvæmdaleyfis við Sporðöldulón. Í framkvæmdinni felst gerð tveggja grjótgarða til viðbótar við fyrirstöðugarð 1 sem var gerður árið 2020. Áætlað grjótmagn í garða er 13.000 m3. Efnistaka er áætluð úr Hellunámu merkt E16 á aðalskipulagi Ásahrepps. Áætlaður framkvæmdatími er maí til nóvember 2021.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli heimilda aðalskipulags sveitarfélagsins þar sem á svæðinu er skilgreint iðnaðarsvæði og náma.
Mál nr. 20; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 21-135 - 2101002F.
Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 21-135 lögð fram til kynningar.
Lögð er fram umsókn frá Landsvirkjun vegna framkvæmdaleyfis við Sporðöldulón. Í framkvæmdinni felst gerð tveggja grjótgarða til viðbótar við fyrirstöðugarð 1 sem var gerður árið 2020. Áætlað grjótmagn í garða er 13.000 m3. Efnistaka er áætluð úr Hellunámu merkt E16 á aðalskipulagi Ásahrepps. Áætlaður framkvæmdatími er maí til nóvember 2021.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli heimilda aðalskipulags sveitarfélagsins þar sem á svæðinu er skilgreint iðnaðarsvæði og náma.
Mál nr. 20; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 21-135 - 2101002F.
Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 21-135 lögð fram til kynningar.
3.
Fundargerð 211. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 211. fundar skipulagsnefndar UTU.
Mál nr. 26; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 21-136 -2101004F.
Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 21-136 lögð fram til kynningar.
Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 21-136 lögð fram til kynningar.
4.
14. fundur vegna endurskoðunar aðalskipulags Ásahrepps
Fundargerð 14. fundar vegna endurskoðunar aðalskipulags Ásahrepps.
Varðandi 5. dagskrárlið þá skal það tekið fram að ekki hefur hugmynd um stækkun skógræktarreitsins í Ásabrekku verið rædd við landeigendur enda hugmynd á frumstigi. Ljóst er að ekki verður um slíka stækkun að ræða nema með samþykki landeigenda. Enn fremur hefur ekki gefist tími eða aðstæður til að ganga frá samningi við landeigendur um aðgengi að Ásabrekkuskógi, en farið verður í það um leið og aðstæður leyfa.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
5.
Fundargerð 3. fundar sameiningarnefndar SvSuðurland
Fundargerð 3. fundar sameiningarnefndar lögð fram.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir hana fyrir sitt leyti.
6.
Fundargerð 84. fundar félagsmálanefndar
Lögð fram fundargerð 84. fundar félagsmálanefndar.
Til kynningar.
7.
Fundargerð 215. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs
Lögð fram fundargerð 215. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Til kynningar.
8.
Fundargerð fundar héraðsráðs Héraðsnefndar Rangæinga, dags. 14. janúar 2021
Lögð fram fundargerð fundar héraðsráðs Héraðsnefndar Rangæinga, sem haldinn var 14. janúar 2021.
Til kynningar.
9.
Fundargerð 299. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Lögð fram fundargerð 299. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 25. fundar stjórnar Bergrisans bs
Lögð fram fundargerð 25. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
11.
209. fundur Heilbrigðisnefndar Suðurlands, ásamt drögum að samþykkt um verndarsvæði vatnsbóla
Fundargerð 209. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands lögð fram ásamt drögum að samþykkt um verndarsvæði vatnsbóla.
Til kynningar.
12.
566. fundur stjórnar SASS
Fundargerð 566. fundar stjórnar SASS lögð fram.
Til kynningar.
13.
Fundargerð 893. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 893. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
14.
Fundargerð 894. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundargerð 894. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram.
Til kynningar.
15.
Umsókn um rekstrarleyfi gistingar í flokki II; Krókur og Miðmundarholt 1-6
Lagt fram tölvuskeyti og bréf Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 29. janúar 2021, ásamt tölvuskeyti skipulagsfulltrúa, dags. 29. janúar 2021. Óskað er eftir óskilyrtri umsögn hreppsnefndar Ásahrepps um umsókn um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II að Króki og Miðmundarholti 1-6.Einnig lagt fram nýtt aðalskipulag um verslunar- og þjónustusvæði Miðmundarholti.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti að rekstrarleyfi fyrir sölu gistingar í flokki II að Króki og Miðmundarholti 1-6 verði veitt. Jákvæð umsögn hreppsnefndar Ásahrepps byggist á grundvelli skilgreindrar landnotkunar svæðisins innan aðalskipulags Ásahrepps. Deiliskipulag fyrir svæðið hefur verið í ferli og er brátt að ljúka.
16.
Beiðni um umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi í flokki II; Áshamrar
Lögð fram beiðni Sýslumannsins á Suðurlandi um umsögn vegan umsóknar rekstrarleyfis til sölu gistingar í flokki II að Áshömrum.Fyrir liggur jákvæð umsögn byggingarfulltrúa.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti að rekstrarleyfi verði veitt, enda samræmist sú starfsemi aðalskipulagi Ásahrepps og deiliskipulagi svæðisins.
17.
Ákvörðun um fyrirkomulag stjórnsýslu Ásahrepps vegna Covid-19
Taka þarf ákvörðun um fyrirkomulag stjórnsýslu Ásahrepps í ljósi aðstæðna á tímum COVID-19.Ákveðið var að loka skrifstofunni fyrir almenningi þar sem ekki var hægt að tryggja nándarreglu sóttvarna.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að viðhafa óbreytt fyrirkomulag áfram, en ákvörðunin verður endurskoðuð á næsta fundi hreppsnefndar. Sveitarstjóra falið að birta þessa ákvörðun með sama hætti og síðast á heimasíðu Ásahrepps og með að hengja upp auglýsingu við skrifstofu sveitarfélagsins.
18.
Leigusamningur um Ferjukot sumarið 2021
Lögð fram drög að leigusamningi vegna Ferjukots sumarið 2021.
Hreppsnefnd Áshrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi samning. Leigufjárhæð fyrir tímabilið verði kr. 600.000 og skiptist greiðslan til jafns á annars vegar Vatnajökulsþjóðgarð og hins vegar á Umhverfisstofnun.
19.
Beiðni um upplýsingar um búsetu vegna manntals Þjáðskrár Íslands
Lagt fram bréf Hagstofu Íslands, dags. 27. janúar 2021, þar sem óskað er eftir upplýsingum um íbúa í Ásahreppi sem ekki hafa neitt skilgreint heimilisfang í þjóðskrá.
Um er að ræða 17 einstaklinga skv. Þjóðskrá. Málið rætt og sveitarstjóra falið að kanna forsendur þessara skráninga og skila inn gögnum til Þjóðskrár.
20.
Beiðni um breytingu á einingarverði samnings milli TRS og Ásaljóss
Lagt fram tölvuskeyti frá TRS þar sem óskað er eftir verðbreytingu á vinnuliðum Verksamnings um þjónustu við Ásaljós.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða umrædda beiðni TRS.
21.
Tilboð í kolefnisútreikninga fyrir Ásahrepp
Lagt fram tölvuskeyti Eflu verkfræðistofu þar sem Ásahreppi er gert tilboð í kolefnisútreikninga fyrir sveitarfélagið.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tilboð Eflu um kolefnisútreikninga fyrir Ásahrepp og fellur kostnaður við verkefnið undir vinnu við endurskoðun Aðalskipulags Ásahrepps.
22.
Lóðarleigusamningur vegna Fremstutungu, Holtamannaafrétti.
Lögð fram drög að lóðarleigusamningi vegna lóðarinnar Fremstatunga (225243)í tengslum við sölu Landsvirkjunar á eignum sem á lóðinni standa.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemdir við fram lögð drög að samningi og samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að ganga endanlega frá lóðarleigusamningi við kaupanda eignanna og undirrita lóðarleigusamning fyrir hönd Ásahrepps.
23.
Upplýsingaskilti við göngustíga á Holtamannaafrétti
Lögð fram tillaga að útliti upplýsinga- og fræðsluskilta sem setja skal upp við gönguleiðirnar að Dynk og Hvanngiljafossi svo og með Köldukvísl.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að útlit skiltana verði eins og fram kemur í tillögunni, þó að litur á ramma verði grænn en aðeins ljósari en fram kemur í tillögunni.
24.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Rekstraryfirlit fyrir sveitarsjóð Ásahrepps, dags. 12. febrúar 2021, lagt fram.
Til kynningar.
25.
Umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð.
Lögð fram umsögn Sambands íslenskra sveietarfélaga um frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð, þingmál 369.
Til kynningar.
26.
Stöðuskýrsla nr. 9 teymis um uppbyggingu félags- og atvinnumála
Stöðuskýrsla nr. 9 frá teymi um uppbyggingu félags- og atvinnumála í kjölfar COVID-19.
Til kynningar.
27.
Stöðuskýrsla nr. 10 teymis um uppbyggingu félags- og atvinnumála
Stöðuskýrsla nr. 10 frá teymi um uppbyggingu félags- og atvinnumála í kjölfar COVID-19.
Til kynningar.
28.
Mótvægisaðgerðir vegna Sporðöldulóns, Lr 2021_01
Lögð fram skýrsla Lr 2021/01 Mótvægisaðgerðir vegna Sporðöldulóns, aðgerðir 2020.
Til kynningar.
29.
Drög að umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga; hringrásarhagkerfi
Lögð fram drög að umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um breytingar á úrgangslöggjöf, hringrásarhagkerfi.
Til kynningar.
30.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn miðvikudaginn 17. mars 2021.