Hreppsnefnd Ásahrepps
39. fundur
7. maí 2025
kl.
10:30
-
11:45
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson
hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson
hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Ársreikningur Ásahrepps 2024, síðari umræða
Lagður fram ársreikningur Ásahrepps fyrir rekstrarárið 2024 ásamt sundurliðunarbók og endurskoðunarskýrslu.Helstu kennitölur samstæðureiknings eru eftirfarandi í þús. kr.:REKSTRARREIKNINGUR:Rekstrartekjur: 697.992Rekstrargjöld: -507.879Afskriftir: -23.113Fjármagnsgjöld: 7.302Rekstrarniðurstaða jákvæð: 174.302EFNAHAGSREIKNINGURFastafjármunir: 492.546Veltufjármunir: 463.936Eignir samtals: 956.482Eigið fé: 786.128Skuldbindingar: 7.211Langtímaskuldir: 81.877Skammtímaskuldir: 81.266Eigið fé og skuldir samtals: 956.482Handbært fé í árslok: 331.041Veltufjárhlutfall: 5,71Eiginfjárhlutfall: 82,2%Skuldahlutfall: 24,4%Jafnvægisregla - rekstrarjöfnuður: 227.470
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi ársreikning og staðfestir hann með áritun sinni.
2.
Kæra Náttúrugriða vegna útgáfu tveggja framkvæmdaleyfa í sambandi við fyrirhugaða stækkun Sigöldustöðvar
Lögð fram drög að greinargerðum um kærur Náttúrugriða vegna útgáfu framkvæmdaleyfa vegna stækkunar Sigöldustöðvar og aðstöðusköpunar vegna framkvæmdanna, sem Lögmenn Suðurlands hafa unnið.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti framlögð drög að greinargerðum Lögmanna Suðurlands.
Oddvita og sveitarstjóra falið að vinna málið áfram í samstarfi við Lögmenn Suðurlands og Landsvirkjun.
Oddvita og sveitarstjóra falið að vinna málið áfram í samstarfi við Lögmenn Suðurlands og Landsvirkjun.