Hreppsnefnd Ásahrepps
39. fundur
17. mars 2021
kl.
08:30
-
10:30
í fjarfundarkerfi Zoom
Nefndarmenn
Ásta Berghildur Ólafsdóttir
oddviti hrepssnefndar
Brynja Jóna Jónasdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Egill Sigurðsson
hreppsnefndarfulltrúi
Elín Grétarsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Guðmundur Jóhann Gíslason
hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Árlegur stöðufundur með fulltrúum Landsvirkjunar
Undir þessum dagskrárlið mættu þau Olivera Ilic og Georg Pálsson fyrir hönd Landsvirkjunar til að fara yfir stöðuna í vatnsbúskap og helstu verkefni ársins.
Hreppsnefnd Ásahrepps þakkar Oliveru og Georg fyrir að koma á fund hreppsnefndar og einnig fyrir veittar upplýsingar.
2.
Fundargerð 212. fundar skipulagsnefndar
Fundargerð 212. fundar skipulagsnefndar lögð fram ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa 21-137.
Mál nr. 1; Endurskoðun aðalskipulags Ásahrepps 2020-2032 - 2002038
Lögð er fram tillaga að heildarendurskoðun aðalskipulags Ásahrepps 2020-2032.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða tillögu nýs aðalskipulags sveitarfélagsins Ásahrepps 2020-2032 til kynningar í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bíða skal með að setja tillöguna í feril þar til að búið er að ganga frá samningum varðandi reiðleið milli Ásmundarstaða og Ásvegar.
Mál nr. 30; Afgreiðslur byggingarfulltrúa.
Fundargerð 21-137 fundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar.

3.
Fundargerð 213. fundar skipulagsnefndar
Lögð fram fundargerð 213. fundar skipulagsnefndar ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa 21-138.
Mál nr. 1; Namur og efnislosunarsvæði við Þórisós; Ný svæði; Aðalskipulagsbreyting - 2011057.
Lögð er fram tillaga vegna breytinga á aðalskipulagi Ásahrepps 2010-2022. Í breytingunni felst skilgreining á fjórum nýjum efnistökusvæðum og einu efnislosunarsvæði í nágrenni við Þórisós.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljoða tillögu að aðalskipulagsbreytingu til kynningar í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 2; Ás 3 land III-4 L204649; Reykásrimi; Stofnun lóðar - 2011064.
Ásta B. Ólafsdóttir víkur af fundi undir þessum dagskrárlið.
Lögð er fram umsókn Ástu B. Ólafsdóttur og Gísla Sveinssonar um skiptingu landsins Ás 3 land III-4 L204649 í 2 hluta. Óskað er eftir að stofna 81.087 fm úr L204649 sem verður 84.549 fm eftir skiptin. Þá er óskað eftir að nýja lóðin fá staðfangið Reykásrimi og jafnframt að staðfangi upprunalandsins verði breytt í Hestásrimi. Skv. umsækjanda þá hafa þessi hólf verið nefnd Rimar og mun Reykásrimi fylgja lóðinni Reykás. Fyrir liggur samþykki eigenda aðliggjandi landeigna fyrir hnitsetningunni sem og eigenda viðkomandi landeigna fyrir aðkomu að lóðunum sem er að breytast frá samþykktu lóðablaði dags. 08.11.2005 sem er fylgiskjal með þinglýstri landskiptagerð dags. 15.12.2005
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemd við skiptingu landsins né staðföng skv. fyrirliggjandi umsókn. Ekki er gerð athugasemd við staðfestingu landskipta skv. 13. gr. jarðalaga. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir erindið.
Mál 3; Húsar 1 land (L165334); Sumarbústaður viðbygging og auka byggingar á lóð - 2103016.
Fyrir liggur umsókn Gunnars Helgasonar og Bjarkar Jakobsdóttur, um viðbyggingu við sumarbústað 6,8 m2, geymslu 21,3 m2, baðhús 12,7 m2 og opið hestaskýli 20,5
m2 á lóðinni Húsar 1 land (L165334) í Ásahreppi.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir málið á grundvelli 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem engir aðrir hagsmunaaðilar en umsækjandi eru innan svæðisins er ekki talin þörf á grenndarkynningu og mælist nefndin til þess að málinu verði vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Mál nr. 25; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 21-138 - 2102004F.
Fundargerð 21-138 afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar.

4.
Fundargerð 15. fundar vinnuhóps um endurskoðun aðalskipulags Ásahrepps
Fundargerð 15. fundar vinnuhóps um endurskoðun Aðalskipulags Ásahrepps lögð fram.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir framlagða fundargerð samhljóða.
5.
Fundargerð 4. fundar samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélaga
Fundargerð 4. fundar samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélaganna í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu lögð fram. Jafnframt lagður fram listi yfir þá aðila sem voru í starfshópum.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti fundargerðina og að sömu aðilar verði áfram í starfshópum og á síðasta ári.
6.
Fundargerð 5. fundar samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 5. fundar samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélaganna í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fundargerðina fyrir sitt leyti.
7.
Fundargerð oddvitanefndar UTU; seyrumálefni
Lögð fram fundargerð oddvitanefndar UTU, dags. 10. mars 2021. Einnig lögð fram drög að samstarfssamningi ásamt starfslýsingu þjónustufulltrúa.
Í 1. dagskrárlið er tekinn fyrir og afgreiddur endurskoðaður samstarfssamningur um sameiginlegan seyrurekstur og vísað til sveitarstjórna aðildarsveitarfélaga til endanlegrar afgreiðslu. Einnig var lagður fram endurskoðaður samstarfssamningur.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fyrir sitt leyti fram lagðan samstarfssamning og felur sveitarstjóra eða oddvita að undirrita samninginn fyrir hönd Ásahrepps.
Í 2. dagskrárlið kemur fram ósk frá Hrunamannahreppi að sveitarstjórnir aðildarsveitarfélaganna samþykki fjárfestingu á árinu 2021 að upphæð kr. 3.000.000 til að hægt sé að tengja saman botnplötu hreinsimannvirkja við innkeyrsludyr Seyrustaða á Flúðum. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fyrir sitt leyti umrædda fjárfestingu.

8.
Fjallskiladeild Holtamannaafréttar - 8
Fundargerð 8. fundar fjallskiladeildar Holtamannaafréttar lögð fram.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fundargerðina fyrir sitt leyti.
9.
Fundargerð 35. fundar stjórnar Odda bs.
Lögð fram fundargerð 35. fundar stjórnar Odda bs.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 36. fundar stjórnar Odda bs.
Lögð fram fundargerð 36. fundar stjórnar Odda bs.
Til kynningar.
11.
Fundargerð 12. fundar stjórnar Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps
Lögð fram fundargerð 12. fundar stjórnar Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps.
Til kynningar.
12.
Fundargerð 50. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu
Fundargerð 50. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu lögð fram.
Til kynningar.
13.
Fundargerð 85. fundar félagsmálanefndar
Lögð fram fundargerð 85. fundar félagsmálanefndar.
Til kynningar.
14.
Fundargerð 91. fundar svæðisráðs vestursvæðis VJÞ
Lögð fram fundargerð 91. fundar svæðisráðs vestursvæðis VJÞ.
Til kynningar.
15.
Fundargerð 92. fundar svæðisráðs vestursvæðis VJÞ
Lögð fram fundargerð 92. fundar svæðisráðs vestursvæðis VJÞ.
Til kynningar.
16.
Fundargerð 93. fundar svæðisráðs vestursvæðis VJÞ
Lögð fram fundargerð 93. fundar svæðisráðs vestursvæðis VJÞ.
Til kynningar.
17.
Fundargerð 94. fundar svæðisráðs vestursvæðis VJÞ
Lögð fram fundargerð 94. fundar svæðisráðs vestursvæðis VJÞ.
Til kynningar.
18.
Fundargerð 567. fundar stjórnar SASS
Fundargerð 567. fundar stjórnar SASS lögð fram.
Til kynningar.
19.
Fundargerð 44. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 44. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
20.
Fundargerð 895. fudnar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 895. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
21.
Beiðni um umsögn vegna stofnunar nýs lögbýlis, Áskot 2
Tölvuskeyti Jakobs S. Þórarinssonar lagt fram ásamt uppdrætti að eignarlandi hans Áskot lóð B, landnúmer L230171. Óskað er eftir að hreppsnefnd Ásahrepps veiti umsögn um stofnun nýs lögbýlis á umræddu landi og að lögbýlið fái heitið Áskot 2.
Hreppsnefnd Ásahrepps hafði fengi gögn send í tölvupósti og höfðu allir hreppsnefndarfulltrúar samþykkt erindið með tölvupósti. Formleg bókun í fundargerð er hér gerð. Hreppsnefnd samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti að stofnað verði nýtt lögbýli á umræddu landi og gerir engar athugasemdir við að það fái nafnið Áskot 2.
22.
Tillaga um afskriftir á útistandandi kröfum
Lögð fram tillaga um afskriftir á útistandandi kröfum. Um er að ræða gamlar kröfur sem ekki eru innheimtanlegar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að þessar kröfur verði afskrifaðar, en þær eru í heild að upphæð kr. 621.468.
23.
Ásaljós, ársreikningur 2020
Ársreikningur 2020 fyrir Ásaljós lagður fram og kynnti sveitarstjóri niðurstöður ársins.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi ársreikning og áritar hann rafrænt í gegnum Signet.is.
24.
Ákvörðun um fyrirkomulag stjórnsýslu Ásahrepps vegna Covid-19.
Taka þarf ákvörðun um fyrirkomulag stjórnsýslu Ásahrepps í ljósi aðstæðna á tímum COVID-19.Ákveðið var að loka skrifstofunni fyrir almenningi þar sem ekki var hægt að tryggja nándarreglu sóttvarna.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að viðhafa óbreytt fyrirkomulag áfram, en ákvörðunin verður endurskoðuð á næsta fundi hreppsnefndar. Sveitarstjóra falið að birta þessa ákvörðun með sama hætti og síðast á heimasíðu Ásahrepps og með að hengja upp auglýsingu við skrifstofu sveitarfélagsins.
25.
Umferðarþing 19. nóvember 2021
Lagt fram tölvuskeyti Samgöngustofu þar sem kynnt er að Umferðarþing verður haldið þann 19. nóvember 2021.
Til kynningar.
26.
Drög að umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um drög að stefnu ráðherra um meðhöndlun úrgangs 2021-2032
Lögð fram drög að umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um drög að stefnu ráðherra um meðhöndlun úrgangs 2021 - 2032.
Til kynningar.
27.
Bréf UMFÍ og ÍSÍ um þátttöku barna og ungmenna af erlendum uppruna í skipulögðu íþróttastarfi
Lagt fram bréf UMFÍ og ÍSÍ þar sem veittar eru upplýsingar um bækling til foreldra um mikilvægi þátttöku barna og ungmenna af erlendum uppruna í skipulögðu íþróttastarfi.
Til kynningar.
28.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Sveitarstjóri lagði fram rekstraryfirlit fyrir sveitarsjóð Ásahrepps, dags. 12. mars 2021.
Til kynningar
29.
Bréf Jafnréttisstofu um áhrif nýrar jafnréttislöggjafar á sveitarfélög
Lagt fram bréf Jafnréttisstofu, dags. 2. mars 2020, þar sem vakin er athygli á áhrifum nýrrar jafnréttislöggjafar á sveitarfélög.
Til kynningar.
30.
Stöðuskýrsla nr. 11 teymis um uppbyggingu félags- og atvinnumála
Lögð fram 11. stöðuskýrsla teymis um uppbyggingu félags- og atvinnumála í kjölfar COVID-19.
Til kynningar.
31.
Tillaga að viðauka við landsskipulagsstefnu 2015-2026
Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar, dags. 9. mars 2021, og tölvuskeyti Skipulagsstofnunar, dags. 8. mars 2021, er varðar tillögu að viðauka við landsskipulagsstefnu 2015-2026.
Til kynningar.
32.
Úthlutun styrks úr Landbótasjóði fyrir árið 2021
Lagt fram bréf Landgræðslunnar, dags. 9. mars 2021, þar sem kynnt er úthlutun úr Landbótasjóði vegan áburðardreifingar á 192 ha svæði á Holtamannaáfrétti. Styrkupphæðin er kr. 2.500.000.
Til kynningar.
33.
Félagsstarf fullorðinna á tímum COVID-19.
Lagt fram tölvuskeyti félagsmálaráðuneytis, dags. 11. mars 2021, sem varðar félagsstarf fullorðinna á árinu 2021 í ljósi COVID-19.
Til kynningar.
34.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar verður haldinn 21. apríl 2021.