Hreppsnefnd Ásahrepps
4. fundur
21. september 2022
kl.
08:30
-
11:45
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson
hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson
hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Heimsókn sýslumannsins á Suðurlandi á fund hreppsnefndar Ásahrepps
Sýslumaðurinn á Suðurlandi, Kristín Þórðardóttir, mætir á fund hreppsnefndar Ásahrepps til að kynna starfsemi og fyrirkomulag embættis sýslumanns og heyra væntingar sveitarstjórnarfólks til þjónsutu embættisins til framtíðar.
Hreppsnefnd Ásahrepps þakkar Kristínu Þórðardóttur fyrir upplýsandi fund og þakkar henni fyrir komuna.
2.
1. fundur fjallskiladeildar Holtamannaafréttar kjörtímabilið 2022-2026
Lögð fram fundargerð 1. fundar fjallskiladeildar Holtamannaafréttar kjörtímabilið 2022-2026, sem jafnframt var aðalfundur 2022.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir framlagða fundargerð fyrir sitt leyti.
3.
Fundargerð 2. fundar fjallskiladeildar Holtamannaafréttar
Lögð fram fundargerð 2. fundar fjallskiladeildara Holtamannaafréttar.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir fram lagða fundargerð fyrir sitt leyti.
4.
Fundargerð 244. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 244. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð 168. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa.
Mál nr. 1; Efnistaka á Mýrdalssandi; Umsagnarbeiðni - 2208047
Lögð er fram umsagnarbeiðni frá Skipulagsstofnun er varðar umhverfismatsskýrslu um efnistöku á Mýrdalssandi. Í framkvæmdinni felst umfangsmikil efnistaka á Mýrdalssandi þaðan sem efnið verður flutt með vörubílum til Þorlákshafnar. Gert er ráð fyrir að fullfermdir bílar aki á um 15 mínútna fresti.
Skipulagsstofnun fer fram á að umsagnaraðilar veiti umsögn um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar. Umsagnaraðilar skulu gefa álit sitt í samræmi við 16. gr. reglugerðar nr. 1381/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Í umsögn skal koma fram hvort umsagnaraðili hafi athugasemdir við umfjöllun í umhverfismatsskýrslu út frá starfssviði umsagnaraðila, svo sem um gögn sem byggt er á, úrvinnslu gagna, mat á vægi og eðli umhverfisáhrifa eða framsetningu umhverfismatsskýrslu. Einnig, ef á skortir, hvaða atriðum umsagnaraðili telur að gera þurfi frekari skil eða hafa sérstaklega í huga við leyfisveitingar, svo sem varðandi mótvægisaðgerðir og vöktun. Leyfisveitendur skulu í umsögn sinni gera grein fyrir þeim leyfum sem eru á starfssviði þeirra og framkvæmdin er háð.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við framlagða umhverfisskýrslu sem tekur til efnistöku á Mýrdalssandi. Nefndin telur að innan skýrslunnar sé á fullnægjandi hátt gert grein fyrir fyrirhugaðri framkvæmd í meginatriðum. Þau atriði skýrslunnar sem taka til áhrifa framkvæmdanna á sveitarfélög innan embættisins taka til aukinnar umferðar þungaflutninga í gegnum þau. Í skýrslunni kemur fram að ætla megi að heildaráhrif á umferð séu nokkuð neikvæð. Nefndin tekur undir það mat. Þrátt fyrir það mat eru ekki lagðar til mótvægisaðgerðir af hálfu framkvæmdaaðila er varðar aukið álag á þjóðveg 1, enda má ætla að allar slíkar áætlanir séu í forsvari Vegagerðarinnar og því ekki í höndum framkvæmdaaðila að leggja til aðgerðir sem taka til viðhalds eða úrbóta á þjóðvegi 1. Að mati nefndarinnar er ljóst að núverandi þjóðvegur 1 sem fer um aðildarsveitarfélög UTU þolir illa aukna þungaflutninga umfram það sem fyrir er, þótt svo að hlutfallsleg fjölgun ökutækja sem fer um veginn sé ekki mikil í heildina tekið. Þær framkvæmdir sem lýst er í skýrslunni og hugsanleg áhrif þeirra á aðildarsveitarfélög UTU eru ekki háðar útgáfu framkvæmda og/eða byggingarleyfa.
Afgreiðsla hreppsnefndar Ásahrepps er færð til bókar undir 18. dagskrárlið þessarar fundargerðar.
Mál nr. 19; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 22-168 - 2208001F
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 22-168.

5.
Fundargerð 245. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 245. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 22-169.
Mál nr. 1; Ásmúlasel L224543; Ásmúlasel, Ásmúli 1B og Ásmúli 1C; Deiliskipulag- 2209033.
Lögð er fram umsókn frá Möppunni ehf er varðar nýtt deiliskipulag í landi Ásmúlasels, Ásmúla 1B og Ásmúla 1C. Markmið með gerð deiliskipulagsins er að stilla upp 1 til 5 ha lóðum til fastrar búsetu auk 3 - 5 stærri lóða. Gert er ráð fyrir að innan lóða verði heimild til garðræktar, skógræktar, kolefnisbindingar, takmarkaðs búfjárhalds eða minni háttar atvinnustarfsemi s.s gallerí, vinnustofur eða gisting í
samræmi við ákvæði aðalskipulags sem nú er í lokaferli.
Að mati hreppsnefndar fellur skilgreining svo margra lóða innan við 10 ha illa að stefnu nýs aðalskipulags Ásahrepps er varðar landbúnaðarland L1. Á skilgreindu L3 svæði telur hreppsnefndin þó að stefnan samræmist skilmálum aðalskipulags er varðar uppbyggingu á landspildum sem eru 1-10 ha að stærð. Að mati hreppsnefndarinnar kæmi til skoðunar að skilgreina spildur þar sem heimild væri til fastrar búsetu á því svæði sem tekur til Ásmúla 1B - 1C ef lóðum væri fækkað umtalsvert og stærð þeirra aukin. Heildarstærð svæðisins er um 58 ha. Að mati hreppsnefndarinnar væri eðlilegra að á svæðinu væru skilgreind 4-5 smábýli. Horft verði til þess að takmarka uppbyggingu við lítinn hluta hverrar spildu til að lágmarka áhrif uppbyggingar á nýtingu landsins til matvælaframleiðslu.
Mál nr. 28; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 22-169 - 2208003F
Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 22-169 lögð fram til kynningar.

6.
Fundargerð 2. fundar stjórnar Odda bs.
Lögð fram fundargerð 2. fundar stjórnar Odda bs.
Til kynningar.
7.
Fundargerð 4. fundar seyrustjórnar
Lögð fram fundargerð 4. fundar seyrustjórnar.
Til kynningar.
8.
Fundargerð 2. fundar félagsmálanefndar
Lögð fram fundargerð 2. fundar félagsmálanefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu ásamt upplýsingum um breytingar á gjaldskrá til stuðningsfjölskyldna.
Til kynningar.
9.
Fundargerð 223. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs
Lögð fram fundargerð 223. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 220. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Lögð fram fundargerð 220. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands.
Til kynningar.
11.
Fundargerð 104. fundar svæðisráðs vestursvæðis VJÞ
Lögð fram fundargerð 104. fundar svæðisráðs vestursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs.
Til kynningar.
12.
Fundargerð 19. fundar nefndar um svæðisskipulag Suðurhálendis
Lögð fram fundargerð 19. fundar nefndar um svæðisskipulag Suðurhálendis.
Til kynningar.
13.
Fundargerð aðalfundar Bergrisans 2022
Lögð fram fundargerð aðalfundar Bergrisans bs, sem haldinn var 30. júní 2022.
Til kynningar.
14.
Fundargerð 42. fundar stjórnar Bergrisans bs
Lögð fram fundargerð 42. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
15.
Fundargerð 585. fundar stjórnar SASS
Lögð fram fundargerð 585. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
16.
Fundargerð 586. fundar stjórnar SASS
Lögð fram fundargerð 586. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
17.
Fundargerð 912. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 912. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitearfélaga.
Til kynningar.
18.
Efnistaka á Mýrdalssandi, umsagnarbeiðni vegna umhverfismatsskýrslu
Á 3. fundi hreppsnefndar Ásahrepps var ákveðið að óska eftir umsögn skipulagsnefndar um umhverfismatsskýrslu um efnistöku á Mýrdalssandi. Skipulagsnefnd hefur skilað inn umsögn sinni, sjá bókun hennar undir 1. dagskrárlið þessa fundargerðar.Lagt fram bréf UTU sem fram kemur umsögn skipulagsnefndar UTU um efnistöku á Mýrdalssandi. Hreppsnefnd Ásahrepps tekun undir bókun skipulagsnefndar UTU.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemd við framlagða umhverfisskýrslu sem tekur til efnistöku á Mýrdalssandi. Hreppsnefndin telur að innan skýrslunnar sé á fullnægjandi hátt gert grein fyrir fyrirhugaðri framkvæmd í meginatriðum. Þau atriði skýrslunnar sem taka til áhrifa framkvæmdanna á Ásahrepp taka til aukinnar umferðar þungaflutninga í gegnum sveitarfélagið. Í skýrslunni kemur fram að ætla megi að heildaráhrif á umferð séu nokkuð neikvæð. Hreppsnefndin tekur undir það mat. Þrátt fyrir það mat eru ekki lagðar til mótvægisaðgerðir af hálfu framkvæmdaaðila er varðar aukið álag á þjóðveg 1, enda má ætla að allar slíkar áætlanir séu í forsvari Vegagerðarinnar og því ekki í höndum framkvæmdaaðila að leggja til aðgerðir sem taka til viðhalds eða úrbóta á þjóðvegi 1. Að mati hreppsnefndarinnar er ljóst að núverandi þjóðvegur 1 sem fer um Ásahrepp þolir illa aukna þungaflutninga umfram það sem fyrir er, þótt svo að hlutfallsleg fjölgun ökutækja sem fer um veginn sé ekki mikil í heildina tekið. Þær framkvæmdir sem lýst er í skýrslunni og hugsanleg áhrif þeirra á Ásahrepp eru ekki háðar útgáfu framkvæmda og/eða byggingarleyfa.
19.
Hugmyndir um jepparallý á Holtamannaafrétti
Lagt fram tölvuskeyti Tryggva M. Þórðarsonar, dags. 15. ágúst 2022, þar sem hann óskar eftir afstöðu hreppsnefndar Ásahrepps til hugmynda að nýta slóða á Holtamannaafrétti fyrir jepparallý. Í skeytinu eru nefndar tvær leiðir, annars vegar leið sem er eftir Búðarhálsi og fer síðan niður að Sporðöldulóni og meðfram því og aftur upp á háls. Hins vegar er það slóð sem hefur á kortum fengið nafnið Ósölduslóð sem liggur milli Sprengisandsvegar og Þórisvatns.
Heppsnefnd Ásahrepps leggst gegn jepparallý á þessum vegslóðum.
20.
Skipan í milliþinganefndir fyrir komandi ársþing SASS
Lagt fram tölvuskeyti SASS, dags. 23. ágúst 2022, þar sem óskað er eftir að hreppsnefnd Ásahrepps skipi kjörna fulltrúa á ársþingi SASS í milliþinganefndir.
Hreppsnefnd Ásahrepps skipar Ísleif Jónasson í samgöngunefnd og Nönnu Jónsdóttur í allsherjarnefnd.
21.
Tilnefning eins aðila í samstarfsnefnd um friðland í Þjórsárverum
Lagt fram tölvuskeyti Umhverfisstofnunar, dags. 24. ágúst 2022, þar sem óskað er eftir að hreppsnefnd Ásahrepps tilnefni einn fulltrúa í samstarfsnefnd um friðland í Þjórsárverum.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að tilnefna Ísleif Jónasson sem fulltrúa Ásahrepps í samstarfsnefnd um friðland í Þjórsárverum og Nönnu Jónsdóttur til vara.
22.
Vindorkuvettvangsferð til Danmerkur 24. - 27. október 2022
Lagt fram tölvuskeyti SASS, dags. 7. september 2022, þar sem kynnt er fyrirhuguð vindorkuvetvangsferð til Danmerkur dagana 24. - 27. október 2022.
Hreppsnefnd Ásahrepps sendir ekki fulltrúa í þessa ferð.
23.
Samningur um umdæmisráð barnaverndar á landsbyggðinni
Samningur sveitarfélaga á landsbyggðinni um umdæmisráð barnaverndar.Lögð voru fram drög að samningi um sameiginlegt umdæmisráð barnaverndar á landsbyggðinni, ásamt viðaukum og erindisbréfi valnefndar. Öll sveitarfélög landsins skulu hafa skipað umdæmisráð fyrir 1. október n.k.
Hreppsnefnd samþykkir samhljóða að Ásahreppur verði aðili að sameiginlegu umdæmisráði barnaverndar á landsbyggðinni. Hreppsnefnd Ásahrepps felur sveitarstjóra að vinna að framgangi málsins og í framhaldinu undirrita samning fyrir hönd Ásahrepps. Jafnframt er sveitarstjóra falið að kanna hvort gera þurfi breytingar á samþykkt um stjórn Ásahrepps vegna hins sameiginlega umdæmisráðs.
24.
Fundargerð aðalfundar Félags- og skólaþjónustu 2022
Lagðar fram til seinni umræðu endurskoðaðar samþykktir Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og V-Skaftafellssýslu bs.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi samþykktir Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og V-Skaftafellssýslu eftir tvær umræður hjá hreppsnefnd.
25.
Beiðni um uppsetningu ljósastaura og styrk á móti kaupum á rotþró
Lögð fram tölvuskeyti Reynis Arngrímssonar þar sem hann óskar eftir uppsetningu á ljósastaurum og styrk á móti kaupum á rotþró við íbúðarhús að Steinási. Reynir og Nanna Maja Norðdahl eiga lögheimili að Steinási.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að settir verði upp tveir ljósastaurar að Steinási og veittur verði styrkur á móti kaupum á rotþró við íbúðarhús þar að upphæð kr. 300.000.
26.
Styrkbeiðni Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna
Lagt fram tölvuskeyti Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna, dags. 2. september 2022, þar sem óskað er eftir fjárstyrk vegna útgáfu blaðsins "Börn með krabbamein".
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita styrk að fjárhæð 5.000.
27.
Tilnefning í starfshóp um heimavist FSu
Lagt fram tölvuskeyti frá SASS, dags. 6. september 2022, þar sem óskað er eftir tilnefningu í starfshóp sem kortleggur mögulegar leiðir viðö rekstur heimavistar við FSu. Rangárvallasýsla og Vestur Skaftafellssýsla skulu tilnefna tvo fulltrúa í starfshópinn, einn fulltrúa frá hvorri sýslu. Í fyrri starfshóp var Anton Kári Halldórsson fulltrúi Rangárvallasýslu og Einar Freyr Elínarson fulltrúi Vestur-Skaftafellssýslu. Báðir aðilar gefa kost á sér að vera fulltrúar í þessum starfshópi.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að Anton Kári Halldórsson og Einar Freyr Elínarson verði fulltrúar sýslnanna í starfshópnum.
28.
Styrkbeiðni vegna dags sauðkindarinnar í Rangárvallasýslu
Lagt fram tölvuskeyti Huldu Brynjólfsdóttur f.h. félags sauðfjárbænda, dags. 13. september 2022, þar sem óskað er eftir fjárstyrk vegna dags sauðkindarinnar sem haldinn verður þann 1. október 2022.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að styrkja verkefnið að upphæð kr. 50.000.
29.
Styrkbeiðni vegna framkvæmda við Kálfholtskirkjugarð
Lagt fram bréf og fylgiskjöl sóknarnefndar Kálfholtskirkju, dags. 15. september 2022, þar sem óskað er eftir fjárstyrk til framkvæmda við kirkjugarðinn í Kálfholti. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti á síðasta ári styrk til framkvæmdanna að upphæð kr. 1,1 mkr. Verkið reyndist mun umfangsmeira og ráðist var í meiri framkvæmdir en til stóð á þessum tímapunkti. Ákveðið var að ljúka fyrirhuguðum framkvæmdum sem áður var búið að áfangaskipta. Til þess að fullfjármagna verkið vantar fjárstyrk að upphæð kr. 2.563.733, en kirkjugarðurinn hefur fullnýtt sitt eigið fjármagn ásamt styrkjum frá Kirkjugarðasjóði að upphæð kr. 1.200.000 og frá Ásahreppi kr. 1.100.000.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita styrk að fjárhæð kr. 2.563.733. Samþykkt er að gera Viðauka 3 við fjárhagsáætlun Ásahrepps fyrir árið 2022. Fjámögnun mun ganga á handbært fé sem þessu nemur. Sveitarstjóra falið að útfæra Viðauka 3 í samstarfi við KPMG og senda til lögbundinna aðila.
30.
Stofnun nefndar um göngu-, reiðhjóla- og reiðleiðir í Ásahreppi
Lögð fram tillaga frá Nönnu Jónsdóttur og Ísleifi Jónassyni um að stofnuð verði þriggja manna nefnd um göngu-, hjóla- og reiðleiðir út kjörtímabilið. Hlutverk nefndarinnar verður m.a. að marka heildar stefnu um málaflokkinn í hreppnum í samstarfið við landeigendur og aðra íbúa. Nefndin á jafnframt að kanna möguleika á aðkomu stofnana að slíkum framkvæmdum og greina möguleg tækifæri sem fælust í tengingum á göngu-, hjóla- og reiðleiðum um sveitarfélagið. Starfsmaður nefndarinnar er sveitarstjóri.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að þessi nefnd verði stofnuð og að vinnulag verði eins og fram kemur í tillögu NJ og ÍJ. Hreppsnefnd skipar eftirtalda aðila í nefndina:
Nanna Jónsdóttir, formaður
Ísleifur Jónasson
Jón Sæmundsson
Nanna Jónsdóttir, formaður
Ísleifur Jónasson
Jón Sæmundsson
31.
Ákvörðun um vinnufund hreppsnefndar Ásahrepps
Lögð fram tillaga frá Nönnu Jónsdóttur og Ísleifi Jónassyni um að hreppsnefnd verði með vinnufund á næstu vikum og í framhaldi verði haldinn íbúafundur með það að markmiði að heyra og kanna áherslur sem íbúar vilja sjá á kjörtímabilinu.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fram lagða tillögu samhljóða. Samþykkt að vinnufundur verði haldinn 10. október n.k. klukkan 8:30.
Verkefni fundarins verður undirbúningur fjárhagsáætlunarvinnu til næstu ára og helstu áherslumál næstu ára.
Verkefni fundarins verður undirbúningur fjárhagsáætlunarvinnu til næstu ára og helstu áherslumál næstu ára.
32.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Lagt fram rekstraryfirlit fyrir sveitarsjóð Ásahrepps fyrir tímabilið 1. janúar til 31. ágúst 2022.
Til kynningar.
33.
Ársskýrsla Skógasafns ásamt ársreikningi 2021
Lögð fram ársskýrsla Skógasafns ásamt ársreikningi 2021.
Til kynningar.
34.
Stækkun Sigöldustöðvar um allt að 65 MW, matsáætlun
Lagt fram álit Skipulagsstofnunar um matsáætlun um stækkun Sigöldustöðvar um allt að 65 MW.
Lagt fram álit Skipulagsstofnunar um matsáætlun um stækkun Sigöldustöðvar um allt að 65 MW.
Til kynningar.
Til kynningar.
35.
Starfshópur til að skoða og gera tillögur um nýtingu vindorku
Lagt fram tölvuskeyti frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti þar sem kynntur er starfshópur til að skoða og gera tillögur til umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytisins um nýtingu vindorku.
Til kynningar.
36.
Bókun byggðaráðs Skagafjarðar um málefni fatlaðs fólks
Lagt fram tölvuskeyti SASS, dags. 25. ágúst 2022, þar sem kynnt er bókun byggðaráðs Skagafjarðar um hallarekstur á málaefnum fatlaðs fólks.
Til kynningar.
37.
Endurskoðun Aðalskipulags Ásahrepps
Lagt fram tölvuskeyti EFLU, dags. 1. september 2022, þar sem fram koma viðbrögð við athugasemdum Skipulagsstofnunar við tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi Ásahrepps. Einnig lagt fram minnisblað, dags. 31. ágúst 2022 vegna sama efnis.
Til kynningar.
38.
Ársskýrsla Íþróttafélagsins Garps 2021
Lögð fram árskýrsla Íþróttafélagsins Garps fyrir árið 2021 ásamt ársareikningi.
Til kynningar.
39.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn 19. október 2022. Fundurinn verður haldinn á skrifstofu Ásahrepps og hefst klukkan 8:30.
Til kynningar.