Hreppsnefnd Ásahrepps
4. fundur
19. ágúst 2026
kl.
08:30
-
12:15
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson
hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Emil Þórðarson
hreppsnefndarfulltrúi
Hugrún Hannesdóttir
varamaður í hreppsnefnd
Starfsmenn
Guðmundur Einarsson
Fundargerð ritaði:
Guðmundur Einarsson
skrifstofustjóri
Dagskrá
1.
Fjallskiladeild Holtamannaafréttar - 3
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir framlagða fundargerð 3. fundar Fjallskiladeildar Holtamannaafréttar, fyrir sitt leyti.
2.
Fundargerð 330. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 330. fundar skipulagsnefndar UTU.
Mál 1. Ásmundarstaðir 1 25; Skilgreindar nýjar lóðir; Deiliskipulag #2607024
Lögð er fram tillaga að nýju deiliskipulagi sem tekur til Ásmundarstaða 1 L187658 og Ásmundarstaða 3 L165267. Í deiliskipulaginu felst að tvær nýjar íbúðarlóðir eru stofnaðar. Heimilt að byggja allt að 3 hús á lóð, s.s. íbúðarhús með bílageymslu, gestahús/geymslu eða gróðurhús.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða deiliskipulagið til kynningar og umsagna í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um uppfærð gögn. Verði deiliskipulagið grenndarkynnt aðliggjandi landeigendum.
Mál 2. Ás 3 land II-3land L204644; Grænilundur; Breytt heiti lóðar #2607026
Lögð er fram umsókn er varðar nýjan staðvísi fyrir L204644. Óskað er eftir því að Ás 3 II-3 land fái nafnið Grænilundur.
Sveitarstjórn Ásahrepps samþykkir samhljóða að samþykkja erindið.
Lögð er fram tillaga að nýju deiliskipulagi sem tekur til Ásmundarstaða 1 L187658 og Ásmundarstaða 3 L165267. Í deiliskipulaginu felst að tvær nýjar íbúðarlóðir eru stofnaðar. Heimilt að byggja allt að 3 hús á lóð, s.s. íbúðarhús með bílageymslu, gestahús/geymslu eða gróðurhús.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða deiliskipulagið til kynningar og umsagna í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um uppfærð gögn. Verði deiliskipulagið grenndarkynnt aðliggjandi landeigendum.
Mál 2. Ás 3 land II-3land L204644; Grænilundur; Breytt heiti lóðar #2607026
Lögð er fram umsókn er varðar nýjan staðvísi fyrir L204644. Óskað er eftir því að Ás 3 II-3 land fái nafnið Grænilundur.
Sveitarstjórn Ásahrepps samþykkir samhljóða að samþykkja erindið.
3.
Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 26-258
Lögð fram fundargerð yfir afgreiðslur byggingarfulltrúa, 26-258.
Til kynningar
4.
Fundargerð 1. fundar Odda bs.
Lögð fram fundargerð 1. fundar Odda bs.
Til kynningar.
5.
Fundargerð 2. fundar Odda bs.
Lögð fram fundargerð 2. fundar Odda bs.
Til kynningar.
6.
Fundargerð 3. fundar Odda bs.
Lögð fram fundargerð 3. fundar Odda bs.
Til kynningar.
7.
Fundargerð 257. fundar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu
Lögð fram fundargerð 257. fundar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu.
Til kynningar.
8.
Fundargerð 91. fundar stjórnar Brunavarna Rangárvallasýslu bs.
Lögð fram fundargerð 91. fundar stjórnar Brunavarna Rangárvallasýslu bs.
Til kynningar.
9.
Fundargerð 1. fundar stjórnar Lundar
Lögð fram fundargerð 1. fundar stjórnar Lundar.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 1. fundar Héraðsnefndar Rangæinga.
Lögð fram 1. fundargerð Héraðsnefndar Rangæinga.
Til kynningar.
11.
Fundargerð 256. fundar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands.
Lögð fram fundargerð 256. fundar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands.
Til kynningar.
12.
Tilnefning nýrra fulltrúa í stjórn Gjafasjóðs Lundar
Tekið fyrir bréf frá Dvalarheimilinu Lundi, þar sem óskað er eftir tilnefningu nýrra fulltrúa í stjórn Gjafasjóðs Lundar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að Helga Björg Helgadóttir verði aðalmaður og Kristín Hreinsdóttir varamaður.
13.
Umsagnarbeiðni, leyfi til reksturs gististaðir í flokki II- C minna gistiheimili. Dagga litla ehf., Kúrukoti
Lagt fram umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á Suðurlandi, vegna rekstrarleyfis til gistingar fyrir Kúrukot, Dvergarbakka.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemd við rekstrarleyfi.
14.
Leikfimi 60 ára og eldri - fyrirkomulag
Á 2. fundi Heilsu- íþrótta- og tómstundanefndar RY var bókað:Heilsu-, íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að gerður verði þjónustusamningur við FEBRANG líkt og er gert við önnur félagasamtök sem hafa starfsemi í sveitarfélaginu.
Hreppsnefnd Ásahrepps tekur undir afgreiðslu nefndarinnar og vísar því til Héraðsnefndar Rangæinga að gerður verði samningur við FEBRANG vegna heilsueflingar 60 ára og eldri.
15.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps 2022-2026
Lögð fram drög að rekstraryfirliti sveitarsjóðs fyrir tímabilið janúar til júlí 2026.
Til kynningar.
16.
Frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands. Framtíð sameiginlegra verkefna sveitarfélaga
Lagt fram bréf frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, ásamt fylgigögnum, er varðar fyrirhugaða breytingar á starfseminni 1. janúar 2027.
Til kynningar.
17.
Staða endurbóta Laugalandi
Vinna við ýmsar endurbætur á húsnæði á Laugalandi hafa staðið yfir frá því í vor.
Staða framkvæmda og kostnaður ræddur.
18.
Framtíð félagsheimilisins Ásgarðs
Farið yfir stöðu mála vegna félagsheimilsins og ákveða með næstu skref.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að fela oddvita og skrifstofustjóra að vinna málið áfram.
19.
Samningur um viðhald girðinga
Samningur við verktaka vegna girðingavinnu á vegum Ásahrepps rennur út á þessu ári.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að oddviti og skrifstofustjóri geri drög að samningi.
20.
Starfsmannamál
Tímabundinn ráðningarsamningur við skrifstofustjóra Ásahrepps rennur út um næstu mánaðamót. Skoða þarf ráðningasamning við oddvita samhliða, samanber fyrri ákvörðun hreppsnefndar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að fela oddvita að endurnýja samning við skrifstofustjóra í samræmi við umræður á fundinum. Ekki er talin ástæða til að breyta samningi við oddvita.
21.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn samkvæmt fundaáætlun, miðvikudaginn 2. september, klukkan 8:00, á skrifstofunni Laugalandi.
Til kynningar.