Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

40. fundur
21. maí 2025 kl. 08:30 - 10:40
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 301. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2505021
Mál nr. 1: Holtamannaafréttur; Búðarháls; Skilgreining efnistökusvæðis; Aðalskipulagsbreyting - 2405016.
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir auglýsingu, er varðar skilgreiningu efnistökusvæðis á austanverðum Búðarhálsi, milli Tungnaár og vegarins að Sporðöldustíflu. Efnistökusvæðið er á gildandi deiliskipulagi Búðarhálsvirkjunar, merkt E8. Stærð námu verði 2,3 ha og heimiluð efnistaka allt að 49.000 m3. Umsagnir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins.
Vegna umsagnar Náttúruverndarstofnunar bendir skipulagsnefnd UTU á að viðkomandi náma E8 telst hentugt efnistökusvæði þar sem efnið passar vel þeirri notkun sem um ræðir auk þess sem stutt er frá svæðinu að notkunarstað efnisins. Staðsetning svæðisins er jafnframt þess eðlis að unnt er að aka með efnið um fáfarnari veg en í byggð. Í breytingunni er efnistökusvæðið stækkað úr 1 ha í 2,3 ha. Í eldra ask Ásahrepps var svæðið skilgreint 13 ha og hefur því verið gert ráð fyrir efnistöku á umræddu svæði til margra ára. Í samræmi við texta greinargerðar að þá er svæðið og nágrenni þess þegar raskað. Áður hefur verið unnið efni af svæðinu, uppbyggður vegur er þar rétt hjá ásamt háspennulínu í rúmlega 1 km fjarlægð auk þess að á svæðinu er stífla, miðlunarlón og þurr farvegur Tungnaár. Í þessu ljósi sér nefndin ekki ástæðu til að skoða aðra valkosti fyrir efnistöku eða gera ítarlegri grein fyrir umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir umrædda breytingu á aðalskipulagi eftir auglýsingu. Að mati hreppsnefndarinnar hefur verið brugðist við umsögnum eins og við á innan framlagðrar bókunar og innan tillögu aðalskipulagsbreytingar. Hreppsnefnd Ásahrepps óskar eftir því við Skipulagsstofnun að aðalskipulagsbreytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 3. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr.123/2010.

Mál nr. 2: Lindarbær 2 L176386; Íbúðarhús, gestahús og skemma-útihús; Deiliskipulag - 2501082.
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til Lindarbæjar 2 L176386 í Ásahreppi eftir auglýsingu. Jörðin hefur verið í eyði um árabil og engar byggingar eru á henni. Markmið eigenda jarðarinnar er að byggja íbúðarhús, útihús og gestahús, vera með fasta búsetu og nýta jörðina. Í deiliskipulaginu felst að heimilt er að byggja upp til fastrar búsetu, vera með landbúnaðarstarfsemi og mannvirki fyrir minniháttar ferðaþjónustu. Deiliskipulagið nær yfir 1 ha af jörðinni.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Hreppsnefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna, fjallað er um breytingar eftir auglýsingu í kafla 7.1. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Mál nr. 3: Þjóðholt (áður Kálfholt K 3a) L219274; Íbúðarhús, bílskúr og skemma; Deiliskipulag - 2504035.
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til Þjóðholts (áður Kálfholt K 3a) L219274 í Ásahreppi. Í deiliskipulaginu felst að skilgreindir eru byggingarreitir fyrir íbúðarhús og bílageymslu, skemmu og/eða hesthús og núverandi sumarhús. Hámarksbyggingarmagn verður 750 m2. Að öðru leyti verður landið nýtt sem beitiland eins og verið hefur.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að deiliskipulagið og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.
Ísleifur Jónason vék af fundi við afgreiðslu málsins.

Mál nr. 37: Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 25-225 - 2504002F .
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 25-225.
2.
Fundargerð 302. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2505035
Mál nr. 1; Sigölduvirkjun L165348; Jarðstrengir, lágspenna og ljósleiðari; Framkvæmdarleyfi - 2505007.
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Sigölduvirkjunar L165348 í Ásahreppi. Í framkvæmdinni felst lagning 132 kV jarðstrengja, ásamt lágspennulögnum og ljósleiðara frá tengivirkislóð Landsnets við Sigöldustöð og að endamastri um 300 m lagnaleið. Lagnaleiðin mun þvera Þjóðveg 208 (Fjallabaksleið nyrðri sem tengist þjóðvegi 25 Sprengisandsleið).
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli heimilda gildandi deiliskipulags Sigölduvirkjunar og 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Mál nr. 2; Vatnsfellsvirkjun; Náma E59; Aðalskipulagsbreyting - 2505020.
Lögð er fram tillaga óverulegrar breytingar á aðalskipulagi Ásahrepps 2020 - 2032. Svæðið sem breytingin nær til er innan Holtamannaafréttar L221893 en breytingin felur í sér skilgreiningu á nýrri námu, E59. Náman er innan eldra námusvæðis sem var nýtt á framkvæmdatíma Vatnsfellsvirkjunar (iðnaðarsvæði I7). Markmið breytingarinnar er að afmarka námusvæði með góðu efni til framkvæmda og í námunda við virkjunina. Um er að ræða bögglabergsnámu með grófu bögglabergi, sem ekki er að finna í næsta nágrenni við virkjunina, og er hugsuð til viðhalds á mannvirkjum. Efnismagn er allt að 1.500 m3 og flatarmál námusvæðis 0,5 ha. Að efnistöku lokinni verður gengið frá námunni og hún aðlöguð að umhverfi í kring. Áhrif af breytingunni eru metin óveruleg þar sem svæðið er nú þegar raskað, efnismagn er lítið og stutt frá efnistökusvæði að notkunarstað efnis.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða viðkomandi breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi. Niðurstaða sveitarfélagsins verði auglýst og málið sent Skipulagsstofnun til samþykktar.

Mál nr. 32; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 25-226 - 2505001F.
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 25-226.
3.
Fundargerð 121. fundar stjórnar UTU
Málsnúmer 2505019
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir ársreikning 2024 fyrir sitt leyti.
Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.
Nanna Jónsdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa dagskrárliðar.
4.
Fundargerð 244. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Málsnúmer 2505015
H-liður fyrsta dagskráraliðar þarfnast staðfestingu hreppsnefndar Ásahrepps sem lýtur að endurskoðun á fjárhagsáætlun eftirlitsins og hækkuðum framlögum aðildarsveitarfélaga.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti framlagða endurskoðaða fjárhagsáæltun eftirlitsins fyrir rekstrarárið 2025. Hækkun launakostnaðar veldur hækkur á framlagi Ásahrepps um kr. 74.245 fyrir árið 2025. Heildarframlög Ásahrepps verða því kr. 431.821 á árinu 2025. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða viðauka 2 við fjárhagsáætlun Ásahrepps 2025 þar sem framlög til eftirlitsins hækka um kr. 74.245 (bókhaldslykill: 0322 3381) og verður því mætt með að ganga á handbært fé.
5.
Fundargerð 120. fundar stjórnar UTU
Málsnúmer 2505018
Til kynningar.
6.
Fundargerð 36. fundar stjórnar Odda bs.
Málsnúmer 2505022
Til kynningar.
7.
Fundargerð 247. fundar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Málsnúmer 2505017
Til kynningar.
8.
Fundargerð stjórnarfundar Skógasafns, dags. 9. maí 2025
Málsnúmer 2505025
Til kynningar.
9.
Fundargerð aðalfundar Skógasafns, 6. maí 2025
Málsnúmer 2505026
Til kynningar.
10.
Fundargerð 90. fundar Félags- og skólaþjónustu FSRV
Málsnúmer 2505029
Til kynningar.
11.
Fundargerð héraðsráðs Héraðsnefndar Rangæinga, dags. 15. apríl 2025
Málsnúmer 2505005
Til kynningar.
12.
Þinggerð 103. Héraðsþings HSK ásamt ársskýrsla 2024
Málsnúmer 2505014
Til kynningar.
13.
Fundargerð 333. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Málsnúmer 2505010
Til kynningar.
14.
Fundargerð 84. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Málsnúmer 2505023
Til kynningar.
15.
Fundargerð 22. fundar stjórnar Arnardrangs hses.
Málsnúmer 2505033
Til kynningar.
16.
Fundargerð 621. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2505012
Til kynningar.
17.
Fundargerð 82. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 2505006
Til kynningar.
18.
Fundargerð 83. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 2505007
Til kynningar.
19.
Fundargerð 976. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2505003
Til kynningar.
20.
Fundargerð 977. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2505011
Til kynningar.
21.
Fundargerð 978. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2505016
Til kynningar.
22.
Beiðni um lausn frá störfum í nefnd um útivistarstíga
Málsnúmer 2505020
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að leysa Jón Sæmundsson undan störfum nefndarinnar. Jóni er þakkað fyrir hans framlag til vinnu nefndarinnar. Hreppsnefnd samþykkir að leggja þessa nefnd niður og færa verkefnin í nýjan farveg.
Jafnframt samþykkir hreppsnefnd að halda vinnufund fljótlega til að taka ákvörðun um framhald þessarar vinnu.
23.
Útivistarstígar í Ásahreppi
Málsnúmer 2504018
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að útfæra þessar verklagsreglur betur og verður það gert á vinnufundi hreppsnefndar sem haldinn verður mánudaginn 2. júní kl. 14:00 á skrifstofu Ásahrepps.
24.
Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir efnistöku vegna nýs tengivirkis við Sigöldustöð
Málsnúmer 2505036
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemdir við útgáfu framkvæmdaleyfis fyrir efnistöku allt að 4000 rúmmetra úr námu E58 á grundvelli 5. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem segir m.a. að heimilt sé að falla frá grenndarkynningu framkvæmdaleyfis ef gerð er grein fyrir framkvæmdinni og fjallað ítarlega um hana í aðalskipulagi. Þar sem engir aðrir hagsmunaaðilar eru innan svæðisins sem framkvæmdin tekur til en umsækjandi, auk þess sem svæði er sérstaklega tilgreint sem efnistökusvæði sem einkum verður nýtt til framkvæmda við stækkun Sigöldustöðvar innan aðalskipulags Ásahrepps telur sveitarstjórn að fyrrgreindum skilyrðum skipulagslaga sé fullnægt og að ekki sé þörf á grenndarkynningu vegna framkvæmdarinnar.
Þegar hefur verið gerður samningur við Landsnet um efnistöku á þessu námusvæði og forsætisráðuneyti hefur samþykkt þann samning fyrir sitt leyti. Skipulagsfulltrúa UTU falin útgáfa framkvæmdaleyfis.
25.
Ályktanir frá aðalfundi Garps til sveitarstjórna Rangárþing ytra og Ásahrepps
Málsnúmer 2505037
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fyrir sitt leyti að fundur verði haldinn til að fara yfir þau mál sem félagið bendir á.
26.
Tillaga um breytingu á deiliskipulagi að Strönd, sorpstöðin
Málsnúmer 2505008
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemdir við framlagða tillögu að breytingu deiliskipulagsins.
27.
Öryggisvöktun upplýsingakerfa sveitarfélaga, rammasamningur
Málsnúmer 2505013
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að ganga til samninga við Syndis á grundvelli þessa rammasamnings um öryggisvöktun.
28.
Styrkumsókn til að gera upp Austurleiðarrútu fyrir Skógasafn
Málsnúmer 2505027
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita umbeðinn styrk.
29.
Áform um lagabreytingar á sviði sveitarstjórnarmála kynnt í samráðgátt
Málsnúmer 2505032
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að fela oddvita og sveitarstjóra að vinna umsögn um framlögð áform í samvinnu við Guðjón Bragason lögmann.
30.
Kerfisáætlun Landsnets 2025-2034
Málsnúmer 2505002
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir engar athugasemdir við framlagða áætlun.
31.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Málsnúmer 2101011
Til kynningar.
32.
Minnisblað vegna úttektar á vegum í Ásahreppi, 23. apríl 2025
Málsnúmer 2505034
Til kynningar.
33.
Ársreikningur Íþróttafélagsins Garps 2024
Málsnúmer 2505031
Til kynningar.
34.
Skýrslur og ársreikningur 2024 frá Hestamannafélaginu Geysi
Málsnúmer 2505004
Til kynningar.
35.
Drög að Sóknaráætlun Suðurlands hafa verið birt í samráðsgáatt stjórnvalda
Málsnúmer 2505038
Til kynningar.
36.
Fræðsluefni um skaðsemi vindorkuvera á Íslandi
Málsnúmer 2505009
Til kynningar.
37.
Afrit af bréfi SSK til Héraðsnefndar Rangæinga
Málsnúmer 2505024
Til kynningar.
38.
Starfsleyfisskylda vegna jarðborana
Málsnúmer 2505028
Til kynningar.
39.
Héraðsvegur að Fákshólum tekinn inn á vegaskrá
Málsnúmer 2505030
Til kynningar.
40.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Til kynningar.