Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

41. fundur
18. júní 2025 kl. 08:30 - 10:10
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 303. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2506001
Lögð fram fundargerð 303. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 25-227.
Mál nr. 34; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 25-227 - 2505003F.
Lögð fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 25-227.
2.
Fundargerð 304. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2506013
Lögð fram fundargerð 304. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð 228. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU.
Fundargerð 304. fundar skipulagsnefndar UTU lögð fram ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU nr. 25-228.

Mál nr. 1; Einholt, L180119;stofnun lóða og uppbygging; Fyrirspurn - 2506053.
Lögð er fram fyrirspurn sem tekur til stofnunar lóða úr landi Einholts L180119. Á lóðunum er gert ráð fyrir uppbyggingu íbúðarhúsa. Um er að ræða 1.260,7 fm lóð sem fengi staðfangið Einholt 2 og 809,8 fm lóð sem fengi staðfangið Einholt 1. Fyrir hefur verið gefið út byggingarleyfi á annarri lóðinni innan jarðar Einholts. Gert er ráð fyrir sambærilegri uppbyggingu á lóðunum, u.þ.b. 140 fm íbúðarhús með bílskúr.
Að mati hreppssnefndar Ásahrepps fellur framlögð beiðni ágætlega að stefnumörkun aðalskipulags Ásahrepps er varðar landskipti innan kafla 2.3.1 er varðar að nýjar spildur séu í tengslum við og nýti þau veitu- og samgöngukerfi sem fyrir eru og að aðgengi frá þjóðvegi sé tryggt. Hins vegar er fyrirhuguð uppbygging ekki til þess fallinn að viðhalda dreifbýlisyfirbragði verði hún of umfangsmikil. Í ljósi þess að viðkomandi svæði er skilgreint sem L3 - landbúnaðarland með rúmum byggingarheimildum telur hreppsnefndin að fyrirhuguð uppbygging innan jarðarinnar og stofnun lóða umhverfis íbúðarhús innan jarðarinnar sé ekki þess eðlis að skilgreina þurfi íbúðarsvæði umhverfis uppbygginguna. Hins vegar telur hreppsnefndin eðlilegt að fyrirhuguð uppbygging og stofnun lóða sæki sér heimildir í deiliskipulag. Mælist hreppsnefnd Ásahrepps því til þess að unnið verði deiliskipulag sem tekur til svæðisins þar sem framkvæmdaheimildir, staðföng, lóðarmörk og byggingarreitir verði skilgreindir.

Mál nr. 21; Afgreiðslur byggingarfulltyrúa - 25-228 - 2505005F.
Lögð fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 25-228.
3.
Fundargerð 122. fundar stjórnar UTU
Málsnúmer 2506002
Lögð fram fundargerð 122. fundar stjórnar UTU. 2. dagskrárliður fundargerðar þarnast afstöðu hreppsnefndar Ásahrepps.
Lögð fram tillaga að breytingu á samþykktum Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita bs. sbr bókun undir 2. dagskrárlið.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti þessa breytingu á samþykktum UTU og vísar henni til annarrar umræðu á næsta reglubundna fundi hreppsnefndar.
4.
Fundargerð samráðsnefndar Rangárþings ytra og Ásahrepps, 10. júní 2025
Málsnúmer 2506012
Lögð fram fundargerð samráðsnefndar Rangárþings ytra og Ásahrepps, dags. 10. júní 2025.
Til kynningar.
5.
Fundargerð 37. fundar stjórnar Odda bs. -
Málsnúmer 2505043
Lögð fram fundargerð 37. fundar stjórnar Odda bs. sem var vorfundur.
Til kynningar.
6.
Fundargerð 14. fundar stjórnar Lundar, hjúkrunar- og dvalarheimilis
Málsnúmer 2506006
Lögð fram fundargerð 14. fundar stjórnar Lundar. Einnig lagðir fram ársreikningar fyrir Lund 2024, gjafasjóð Lundar 2024 og byggingarsjóð Lundar 2024.
Til kynningar.
7.
Fundargerð 36. fundar stjórnar Tónlistarskóla Rangæinga bs.
Málsnúmer 2506004
Lögð fram fundargerð 36. fundar stjórnar Tónlistarskóla Rangæinga bs.
Til kynningar.
8.
Fundargerð 7. fundar Héraðsnefndar Rangæinga
Málsnúmer 2506005
Lögð fram fundargerð 7. fundar Héraðsnefndar Rangæinga sem haldinn var 22. maí 2025. Einnig lögð fram efitrfarandi gögn:Ársreikningur Héraðsnefndar Rangæinga 2024Ársreikningur Skógasafns 2024Ársskýrsla Skógasafns 2024
Til kynningar.
9.
Fundargerð 23. fundar stjórnar Arnardrangs hses
Málsnúmer 2505045
Lögð fram fundargerð 23. fundar stjórnar Arnardrangs hses ásamt ársreikningi 2024.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 85. fundar stjórnar Bergrisands bs.
Málsnúmer 2506003
Lögð fram fundargerð 85. fundar stjórnar Bergrisans bs. Jafnframt er lögð fram uppbyggingaráætlun húsnæðis fyrir fatlað fók á starfssvæðinu sem stjórn samþykkti á sama fundi.
Til kynningar.
11.
Fundargerð 622. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2505042
Lögð fram fundargerð 622. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
12.
Fundargerð 84. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 2506008
Lögð fram fundargerð 84. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
13.
Fundargerð 979. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2505044
Lögð fram fundargerð 979. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
14.
Fundargerð 980. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2506007
Lögð fram fundargerð 980. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
15.
Útivistarstígar í Ásahreppi
Málsnúmer 2504018
Lögð fram lokadrög að verklagsreglum við úthlutun styrkja til viðhalds eða lagningu nýrra útivistarstíga í Ásahreppi ásamt drögum að umsóknareyðublaði um styrk.Jafnframt eru lögð fram drög að samningi við verkefnastjóra fyrir verkefni, en fyrir liggur samkomulag við Kristínu Hreinsdóttur vegna þeirrar vinnu. Gildistími samnings er frá 18. júní 2025 og út árið 2026. Framlengingarákvæði er í samningi.
Hreppsenefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagðar verklagsreglur og samning við verkefnastjóra.
16.
Árshátíð Rangárþings ytra og Ásahrepps
Málsnúmer 2505040
Lagt fram tölvuskeyti markaðs- og kynningarfulltrúa Rangárþings ytra, dags. 16. maí 2025, þar sem upplýst er um að sameiginleg árshátíð Rangárþings ytra og Ásahrepps verði haldinn 3. október 2025.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fyrir sitt leyti þessa tímasetningu. Gert er ráð fyrir kostnaði við þennan viðburð á fjárhagsáætlun ársins.
17.
Áform um lagabreytingar á sviði sveitarstjórnarmála kynnt í samráðgátt
Málsnúmer 2505032
Lögð fram lokadrög að umsögn Ásahrepps vegna áforma um lagabreytingar í tengslum við fasteignaskatta af orkumannvirkjum, en áform hafa verið birt í samráðsgátt s
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagða umsögn og felur sveitarstjóra að senda hana inn í samráðsgátt stjórnvalda.
18.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Málsnúmer 2101011
Lagt fram málaflokkayfirlit fyrir sveitarstjóð Ásahrepps fyrir tímabilið 1. janúar - 31. maí 2025.
Til kynningar.
19.
Ársskýrsla orlofsnefndar húsmæðra 2024 ásamt ársreikningi
Málsnúmer 2505039
Lögð fram ársskrýrsla orlofsnefndar húsmæðra árið 2024 ásamt ársreikningi.
Til kynningar.
20.
Stjórnskipulag og hópslysaáætlun á Suðurlandi
Málsnúmer 2505041
Lögð fram hópslysaáætlun fyrir Suðurland og stjórnskipulag aðgerðarstjórnar á Suðurlandi, sem unnin hefur verið af Lögreglustjóranum á Suðurlandi í samvinnu við almannavarnarnefndirnar á Suðurlandi.
Til kynningar.
21.
Skipulag skógræktar - leiðbeiningar um val á landi til skógræktar
Málsnúmer 2506009
Lagt fram bréf frá Vinum íslenskrar náttúru, dags 4. júní 2025, þar sem sendar eru leiðbeiningar um val á landi til skógræktar.
Til kynningar.
22.
Afnotaleyfi vegna vinnu á vegsvæði Fjallabaksleiðar nyrðri (208-06)
Málsnúmer 2506010
Lagt fram afrit af afnotaleyfi Vegagerðarinnar vegna vinnu á vegsvæði Fjallabaksleiðar nyrðri (208-06) vegna framkvæmda Landsvirkjunar við Sigöldustöð. Einnig lagðar fram reglur um leiðslur á vegsvæðum og afstöðumynd.Lokað verður fyrir umferð yfir brýr við Sigöldustöð frá kl. 20:00 - 10:00 eingverja daga á tímabilinu 15. júlí - 15. ágúst. Umferð verður þó hleypt í gegn á 3-60 mínútna fresti. Nánari tímasetningar verða síðan kynntar á www.umferdin.is.
Til kynningar.
23.
Hvatning Félags atvinnurekenda um fasteignaskatta
Málsnúmer 2506011
Lagt fram tölvuskeyti Félags atvinnurekenda, dags. 10. júní 2025, þar sem sveitarfélög eru hvött til að lækka álagningarprósentu fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði, í ljósi hækkunar á fasteignamati sem kynnt hefur verið af HMS nýlega. Jafnframt er lögð fram kynning á skýrslu starfshóps sem kom út snemmsumars 2023, en þar voru ábendingar um meðalhófsþak á prósentubreytingu fasteignaskatta milli ára.
Til kynningar.
24.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn 20. ágúst 2025 á skrifstofu Ásahrepps. Fundur hefst klukkan 8:30.Sumarleyfi hreppsnefndar Ásahrepps er júlímánuður. Skrifstofu Ásarhepps verður lokað vegna sumarleyfa frá 7. júlí til og með 8. ágúst 2025.
Samþykkt samhljóða.