Hreppsnefnd Ásahrepps
41. fundur
21. apríl 2021
kl.
08:30
-
10:30
í fjarfundarkerfi Zoom
Nefndarmenn
Brynja Jóna Jónasdóttir
oddviti hrepssnefndar
Egill Sigurðsson
hreppsnefndarfulltrúi
Elín Grétarsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Guðmundur Jóhann Gíslason
hreppsnefndarfulltrúi
Karl Ölvirsson
hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 214. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 214. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð 139. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa.
Mál nr. 1; Hellatún 2 L165287; Hellatún 2A, 2B, 2C og Hellatún 3; Stofnun lóða - 1909072.
Lögð er fram umsókn Þórodds Skaptasonar um staðfestingu á afmörkun og skiptingu jarðarinnar Hellatún 2 L165287 skv. meðfylgjandi lóðablöðum. Óskað er eftir að stofna eftirfarandi 4 nýjar landeignir úr jörðinni: Hellatún 2A 9.612 fm lóð utan um skráð svínahús, Hellatún 2B 32.026 fm lóð, Hellatún 2C 2.753 fm lóð og Hellatún 2E 167,2 ha land skv. mælingu út í miðjan læk en 165 ha miðað við þurrlendi. Hellatún 2 verður 23 ha eftir landskiptin. Einnig er óskað eftir staðfestingu á afmörkun og breytingu á staðfangi L190237 sem í dag er skráð Hellatún 2 lóð og með stærðina 2.500 fm. Óskað er eftir að hún fái staðfangið Hellatún 2D og skv. nákvæmari mælingum sem ekki hefur legið fyrir áður þá mælist hún 6.444 fm. Að auki er óskað eftir staðfangabreytingu fyrir L201676 úr Hellatún land 2 í Hellatún 2F. Aðkomur að nýjum landeignum eru sýndar á lóðablöðunum.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemd við stofnun lóðanna né staðföng skv. fyrirliggjandi umsókn. Ekki er gerð athugasemd við staðfestingu landskipta skv. 13. gr. jarðalaga. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi umsókn með fyrirvara um umsögn Vegagerðarinnar fyrir vegtengingum og samþykki eigenda aðliggjandi landeigna á hnitsettri afmörkun.
Mál nr. 27; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 21-139 - 2103002F.
Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 21-139 lögð fram til kynningar.

2.
Fundargerð 215. fundar skipulagsnefndar
Lögð fram fundargerð 215. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð 140. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa.
Mál nr. 36; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 21-140 - 2103004F.
Fundargeð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 21-140 lagður fram til kynningar.
Fundargeð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 21-140 lagður fram til kynningar.
3.
Fundargerð 84. fundar stjórnar UTU
Lögð fram fundargerð 84. fundar stjórnar UTU. Dagskrárliðir 5 og 6 til staðfestingar hjá hreppsnefnd.
5. dagskrárliður; Drög að samþykktum UTU vegna stöðuleyfa.
Lögð fram drög að samþykktum UTU vegna stöðuleyfa. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög.
6. dagskrárliður; Drög að gjaldskrá byggingarfulltrúa UTU.
Lögð fram drög að gjaldskrá byggingarfulltrúa UTU. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu þessa dagskrárliðar og óskar jafnframt eftir því að fulltrúar embættisins komi á næsta fund hreppsnefndar og kynni málið betur.
Aðrir dagskrárliðir fundargerðar eru til kynningar.

4.
Fundargerð 6. fundar sameiningarnefndar
Lögð fram fundargerð 6. fundar sameiningarnefndar sveitarfélaga í Rangárvalla- og Vestur-Saftafellssýslu.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fundargerðina samhljóða.
5.
Fundargerð 7. fundar sameiningarnefndar
Lögð fram fundargerð 7. fundar sameiningarnefndar sveitarfélaga í Rangárvalla- og Vestur-Saftafellssýslu.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fundargerðina samhljóða.
Hreppsnefnd Ásahrepps ræddi kynningu á framvindu verkefnisins og upplýsingagjöf til íbúa. Hreppsnefnd leggur áherslu á að vel verði staðið að kynningu verkefnisins og tryggt verði að sú kynning berist til allra íbúa sveitarfélagsins.

6.
Fundargerð 37. fundar stjórnar Odda bs
Lögð fram fundargerð 37. fundar stjórnar Odda bs.
Til kynningar.
7.
Fundargerð 38. fundar stjórnar Odda bs.
Lögð fram fundargerð 38. fundar stjórnar Odda bs. Einnig lagður fram ársreikningur Odda bs 2020, sem áritaður hefur verið af stjórn og endurskoðanda.
Til kynningar.
8.
Fundargerð 14. fundar stjórnar Húsakynna bs
Lögð fram fundargerð 14. fundar stjórnar Húsakynna bs. Ársreikningur Húsakynna bs 2020, lagður fram.
Til kynningar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að leggja áherslu á að viðgerð á gólfi íþróttasalar á Laugalandi verði flýtt sem kostur er.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að leggja áherslu á að viðgerð á gólfi íþróttasalar á Laugalandi verði flýtt sem kostur er.
9.
Fundargerð 13. fundar stjórnar Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps
Lögð fram fundargerð 13. fundar stjórnar Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps. Einnig lagður fram ársreikningur Vatnsveitu 2020.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 86. fundar félagsmálanefndar
Fundargerð 86. fundar félagsmálanefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu lögð fram.
Til kynningar.
11.
Fundargerð 87. fundar félagsmálanefndar
Lögð fram fundargerð 87. fundar félagsmálanefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
Til kynningar.
12.
Fundargerð 216. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs
Lögð fram fundargerð 216. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu. Ársreikningur Sorpstöðvar 2020 lagður fram.
Til kynningar.
13.
Fundargerð 83. fundar stjórnar UTU
Lögð fram fundargerð 83. fundar stjórnar UTU.
Til kynningar.
14.
Fundargerð 210. fundar Heilbrigðisnefndar
Fundargerð 210. fundar Heilbrigðisnefndar lögð fram.
Til kynningar.
15.
Fundargerð 300. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Lögð fram fundargerð 300. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Til kynningar.
16.
Fundargerð 27. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Lögð fram fundargerð 27. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
17.
Fundargerð 28. fundar stjórnar Bergrisans bs
Lögð fram fundargeð 28. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
18.
Fundargerð 568. fundar stjórnar SASS
Lögð fram fundargerð 568. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
19.
Fundargerð 896. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 896. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
20.
Ársreikningur Ásahrepps 2020 (síðari umræða)
Lagður fram til síðari umræðu ársreikningur Ásahrepps fyrir rekstrarárið 2020 ásamt sundurliðunum. Helstu kennitölur samstæðureiknings eru eftirfarandi í þús. kr.:REKSTRARREIKNINGURRekstrartekjur: 306.323Rekstrargjöld: -352.087Afskriftir: -15.383Fjármagnsgjöld: -354Rekstrarniðurstaða neikvæð: -61.502EFNAHAGSREIKNINGURFastafjármunir: 395.011Veltufjármunir: 177.448Eignir samtals: 572.459Eigið fé: 502.045Langtímaskuldir: 38.545Skammtímaskuldir: 70.414Eigið fé og skuldir samtals: 572.459Handbært fé í árslok: 154.997Veltufjárhlutfall: 5,14Eiginfjárhlutfall: 91,8%Skuldahlutfall: 14,6%Jafnvægisrégla - rekstrarjöfnuður: 110.293
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi ársreikning og staðfestir hann með rafrænni undirritun fyrir utan Karl Ölvisson og sveitarstjóra sem árita reikninginn með beinum hætti.
21.
Ósk um umsögn vegna stofnunar lögbýlis að Röðli.
Lagt fram bréf Gottleibs Konráðssonar, dags. 7. apríl 2021, þar sem hann óskar eftir afstöðu hreppsnefndar Ásahrepps gagnvart því að stofnað verði lögbýli að Röðli í Ásahreppi.
Gerð er tillage um að hreppsnefnd Ásahrepps geri engar athugasemdir við að Röðull (Landnúmer: 198895) verði gert að lögbýli. Samþykkt samhljóða.
22.
Boð um skráningu í Ísland 2020, Íslands atvinnuhættir og menning
Lagt fram bréf SagaZ, dags 19. mars 2021, þar sem Ásahreppi er boðin skráning í ritið Ísland 2020 sem fjallar um atvinnuhætti og menningu á Íslandi. Heilsíðu grein kostar kr. 268.000 án VSK og opnu grein kr. 357.000 án VSK. Árleg uppfærsla á vef eftir útgáfu er kr. 20.000.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að hafna þátttöku í útgáfunni.
23.
Námutaka í landi Sauðholts
Lagt fram béf Kristjönu Rangarsdóttur og Arnar I. Ingvarssonar, Sauðholti, Þar sem þau fara fram á að námutaka á sandi í landi þeirra verði ekki leyfð og að náma verði ekki sett í aðalskipulag í landi þeirra.
Hreppsnefnd Ásahrepps fellst á framkomna beiðni og vísar málinu til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum sveitarfélagsins við endurskoðun aðalskipulags Ásahrepps.
24.
Kynningarmyndefni fyrir sveitarfélög
Lagt fram tölvuskeyti Tjörva Jónssonar, dags. 29. mars 2021, þar sem hann býður Ásahreppi að vinna kynningarmyndefni fyrir Sveitarfélagið.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að hafna boðinu.
25.
Ákvörðun um fyrirkomulag stjórnsýslu Ásahrepps vegna Covid-19.
Taka þarf ákvörðun um fyrirkomulag stjórnsýslu Ásahrepps í ljósi aðstæðna á tímum COVID-19.Ákveðið var að loka skrifstofunni fyrir almenningi þar sem ekki var hægt að tryggja nándarreglu sóttvarna.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að viðhafa óbreytt fyrirkomulag áfram, en ákvörðunin verður endurskoðuð á næsta fundi hreppsnefndar. Sveitarstjóra falið að birta þessa ákvörðun með sama hætti og síðast á heimasíðu Ásahrepps og með að hengja upp auglýsingu við skrifstofu sveitarfélagsins.
26.
Beiðni um styrk vegna uppsetningar varmadælu
Lögð fram að nýju umsókn þeirra Sigríðar Þóru og Bergsteins um styrk vegna uppsetningar varmadælu við íbúðarhús þeirra í landi Hrúts. Fyrir liggur yfirlýsing frá veitum að ekki er mögulegt að tengja umrætt íbúðarhús við veitukerfi þeirra.Sveitarstjóri lagði fram útreikning á styrkfjárhæð skv. samþykkt Ásahrepps um styrk vegan uppsetningar varmadælu. Styrkfjárhæð nemur kr. 1.447.530. Ekki er gert ráð fyrir þessum kostnaði á fjárhagsáætlun ársins 2021.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að gera viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2021, sem nemur styrkfjárhæðinni, og felur sveitarstjóra og KPMG að útfæra Viðauka 1 og skila inn skv. lögum og reglum í samstarfi við endurskoðendur sveitarfélagsins.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita umræddan styrk.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita umræddan styrk.
27.
Ákvörðun um íbúafund vegna vinnu við endurskoðun Aðalskipulags Ásahrepps
Umræða varð um möguleika á íbúafundum í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu.
Hreppsnefnd sér ekki að tök verði á að halda íbúafundi fyrr en bólusetning við COVID-19 er lengra komin og aflétting fjöldatakmarkana orðin að veruleika.
28.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Sveitarstjóri lagði fram rekstraryfirlit fyrir sveitarsjóð Ásahrepps, dags. 14. apríl 2021.
Sveitarstjóri lagði fram rekstraryfirlit fyrir sveitarsjóð Ásahrepps, dags. 14. apríl 2021.
Til kynningar.
Til kynningar.
29.
Áskorun til sveitarfélaga um að nota innlend matvæli í skólamáltíðir
Lögð fram áskorun Bændasamtaka íslands til sveitarfélaga um að nota innlend matvæli í skólamáltíðir.
Til kynningar.
Hreppsnefnd Ásahrepps tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í erindinu og vísa því til stjórnar Odda bs. og bendir á að þörf væri á að skerpa á innkaupastefnu Odda bs. hvað þetta varðar.
Hreppsnefnd Ásahrepps tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í erindinu og vísa því til stjórnar Odda bs. og bendir á að þörf væri á að skerpa á innkaupastefnu Odda bs. hvað þetta varðar.
30.
Reglugerð um starfsemi Fasteignasjóðs JS
Lagt fram tölvuskeyti Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 17. mars 2021, þar sem kynnt er ný reglugerð um starfsemi Fasteignasjóðs Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Reglugerðin felur í sér aukinn stuðning við úrbætur í aðgengismálum fatlaðs fólks.
Til kynningar.
31.
12. stöðuskýrsla teymis um uppbyggingu félags- og atvinnumála
Lögð fram 12. stöðuskýrsla teymis um uppbyggingu félags- og atvinnumála í kjölfar COVID-19.
Til kynningar.
32.
Aðgerðaráætlun sveitarfélaga til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf og heimili
Lagt fram bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 30. mars 2021, þar sem kynnt er minnisblað , dags. 24. mars 2021, með mati á stöðu verkefna í viðspyrnuáætlun sambandsins frá mars 2020.
Til kynningar.
33.
Breytingar á lögum um málefni sveitarfélaga vegna COVID-19
Lagt fram tölvuskeyti samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis, dags. 31. mars 2021, þar sem kynntar eru breytingar á lögum um málefni sveitarfélaga og COVID-19 faraldursins.
Til kynningar.
34.
Bréf ráðuneytis vegna upplýsinga um fjármál sveitarfélaga
Lagt fram bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis, dags 13. apríl 2021 þar sem kynnt er að óskað verði eftir upplýsingum um fjármál sveitarfélaga vegna þeirra erfiðu tímabundnu aðstæðna sem ríkir í þjóðfélaginu.
Til kynningar.
35.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar verður haldinn 19. maí 2021 og hefst klukkan 8:30.