Hreppsnefnd Ásahrepps
42. fundur
19. maí 2021
kl.
08:30
-
11:00
í fjarfundarkerfi Zoom
Nefndarmenn
Ásta Berghildur Ólafsdóttir
oddviti hrepssnefndar
Brynja Jóna Jónasdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Egill Sigurðsson
hreppsnefndarfulltrúi
Elín Grétarsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Guðmundur Jóhann Gíslason
hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 84. fundar stjórnar UTU
Um er að ræða 6. dagskrárlið fundargerðar, drög að gjaldskrá byggingarfulltrúa UTU, þar sem óskað er eftir samþykki hreppsnefndar Ásahrepps . Fulltrúar UTU gerðu grein fyrir breytingu gjaldskrár byggingarfulltrúa UTU með samanburði við önnur sambærileg embætti.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti fyrirliggjandi breytingu gjaldskrár byggingarfulltrúa UTU.
2.
Fundargerð 85. fundar stjórnar UTU.
Lögð fram fundargerð 85. fundar stjórnar UTU ásamt drögum að samþykktum UTU. Fulltrúar UTU sátu fundinn undir þessum dagskrárlið. 1. dagskrárliður fundargerðar var sérstaklega til umfjöllunar og kynntu fulltrúar UTU þær breytingar sem gerð er tillaga um í drögum að breytingu samþykkta UTU. Einnig var kynnt drög að gjaldskrá skipulagsfulltrúa sem er í vinnslu stjórnar UTU.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu, enda þarf að vinna að breytingum á samþykktum um stjórn Ásahrepps ef af verður.
reppsnefnd Ásahrepps þakkar fulltrúum UTU fyrir góða kynningu við dagskrárliði 1 og 2.
reppsnefnd Ásahrepps þakkar fulltrúum UTU fyrir góða kynningu við dagskrárliði 1 og 2.
3.
Fundargerð 216. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 216. fundar skipulagsnefndar UTU.
1. mál; Kálfholt K 1b L219273;Úr frístundalóð í landbúnaðarlóð; Deiliskipulagsbreyting - 2104021.
Lögð er fram umsókn frá Brynju Jónu Jónsdóttur og Sigurði Óskari Óskarssyni er varðar breytingu á deiliskipulagi Lækjartúns og Kálfholts er tekur til lóðar Kálholts L219273 merkt F1 innan deiliskipulags. Í breytingunni felst að lóð breytist úr frístundalóð í íbúðarlóð. Breytingin tekur eingöngu til greinargerðar skipulagsins.
Brynja Jóna Jónasdóttir víkur af fundi undir þessum dagskrárlið.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir viðkomandi breytingar á deiliskipulagi svæðisins. Málið skal fá málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
Mál nr. 2; Hellatún lóð F L201670 (Laufásvegur 9); Byggingarheimild gestahúss; Deiliskipulagsbreyting - 2104023.
Lögð er fram umsókn frá Gísla Magna Sigríðarsyni og Ansgard Bruno Jones er varðar breytingu á deiliskipulagi Hellatúns sem tekur til lóða og jarða við Laufásveg. Í breytingunni felst aukning á byggingarheimildum er varðar gestahús innan svæðisins. Núverandi heimildir gera ráð fyrir allt að 30 fermetra gestahúsi með 5 metra mænishæð. Eftir breytingu verði heimilt að byggja allt að 50 fermetra gestahús. Aðrir skilmálar deiliskipulagsins haldast óbreyttir. Svæðið er skilgreint sem íbúðarbyggð á aðalskipulagi Ásahrepps.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir viðkomandi breytingar á deiliskipulagi svæðisins. Málið skal fá málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi og verði grenndarkynnt innan skipulagssvæðisins.
Mál nr. 3; Námur og efnislosunarsvæði við Þórisós;Ný svæði; Aðalskipulagsbreyting - 2011057.
Lögð er fram tillaga vegna breytinga á aðalskipulagi Ásahrepps 2010-2022 eftir kynningu. Í breytingunni felst skilgreining á fjórum nýjum efnistökusvæðum og einu efnislosunarsvæði í nágrenni við Þórisós. Engar athugasemdir bárust á kynningartíma skipulagsbreytingar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fyrirliggjandi tillögu um breytingu á aðalskipulagi Ásahrepps 2010-2022 vegna efnistökusvæða í nágrenni við Þórisós í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 31. gr. sömu laga að undangenginni samþykkt Skipulagsstofnunar.
Mál nr. 31; Afgreiðslur Byggingarfulltrúa - 21-141 - 2104002F.
Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa 21-141 lögð fram til kynningar.

4.
Fundargerð 217. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 217. fundar skipulagsnefndar UTU.
Mál nr. 27; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 21-142 - 2104006F.
Afgreiðslur byggingarfulltrúa á fundi 21-142 lagðar fram til kynningar.
Afgreiðslur byggingarfulltrúa á fundi 21-142 lagðar fram til kynningar.
5.
Fundargerð frá fjarfundi um gerð Svæðisskipulags fyrir Suðurhálendið
Lögð fram fundargerð frá fjarfundi um gerð svæðisskipulags fyrir Suðurhálendið, sem haldinn var 30. apríl 2021. Einnig voru lögð fram drög að starfsreglum fyrir svæðisskipulagsnefnd Suðurhálendis.Starfshópurinn óskar eftir formlegri staðfestingu frá sveitarstjórnum aðildarsveitarfélaga og Skipulagsstofnun.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fyrirliggjandi drög að starfsreglum fyrir sitt leyti.
6.
Fundargerð 16. fundar vinnuhóps um endurskoðun aðalskipulags Ásahrepps
Lögð fram fundargerð 16. fundar vinnuhóps um endurskoðun aðalskipulags Ásahrepps. Í fundargerðinni kemur fram að mikilvægt sé að koma tillögunni í kynningu og til umsagnaraðila og óska síðan í kjölfarið heimildar til að auglýsa tillöguna. Gert er ráð fyrri því að tillaga nýs aðalskipulags verði auglýst til kynningar innan næstu skipulagsauglýsingar UTU. Tillaga nýs aðalskipulags verði tekin fyrir til samþykktar hreppsnefndar Ásahrepps að kynningartíma loknum. Í kjölfar samþykktar sveitarfélagsins verði óskað heimildar Skipulagsstofnunar fyrir auglýsingu málsins. Gert er ráð fyrir að haldinn verði íbúafundur síðsumars, ágúst eða september, ef aðstæður leyfa.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir framlagða fundargerð samhljóða og fyrirliggjandi áætlun um kynningu og auglýsingu aðalskipulagstillögunnar.
7.
Fundargerð 39. fundar stjórnar Odda bs.
Lögð fram fundargerð 39. fundar stórnar Odda bs.
Til kynningar.
8.
Fundargerð 95. fundar svæðisráðs vestursvæðis VJÞ
Lögð fram fundargerð 95. fundar svæðisráðs vestursvæðis VJÞ.
Til kynningar.
9.
Fundargerð 96. fundar svæðisráðs vestursvæðis VJÞ
Lögð fram fundargerð 96. fundar svæðisráðs vestursvæðis VJÞ.
Til kynningar.
10.
211. fundur Heilbrigðiseftirlits Suðurlands
Lögð fram fundargerð 211. fundar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands.
Til kynningar.
11.
Fundargerð 301. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Lögð fram fundargerð 301. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Til kynningar.
12.
5. fundur nefndar um Svæðisskipulag Suðurhálendis
Lögð fram fundargerð 5. fundar nefndar um Svæðisskipulag Suðurhálendis.
Til kynningar.
13.
6. fundur nefndar um Svæðisskipulag Suðurhálendis
Lögð fram fundargerð 6. fundar nefndar um Svæðisskipulag Suðurhálendis. Einnig lögð fram Stöðuskýrsla 2020 ásamt Umhverfisskýrsla.
Til kynningar.
14.
Fundargerð 46. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 46. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
15.
Fundargerð 569. fundar stjórnar SASS
Lögð fram fundargerð 569. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
16.
Fundargerð 897. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 897. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
17.
Landgræðsluáætlun 2021-2031 og umhverfismat áætlunarinnar
Landgræðslan hefur óskað eftir umsögn um fyrirliggjandi drög að landgræðsluáætlun 2021-2031 ásamt umhverfismati áætlunar.
Hreppsnefnd Ásahrepps hefur engar athugasemdir að svo komnu máli.
18.
Kynning á drögum að landsáætlun í skógrækt 2021-2031 ásamt umhverfismati hennar
Skógræktin hefur óskað eftir umsögn um fyrirliggjandi drög að landsáætlun í skógrækt 2021-2031 ásamt drög að umhverfismati áætlunarinnar.
Hreppsnefnd Ásahrepps hefur engar athugasemdir að svo komnu máli.
19.
Fundargerð oddvitanefndar UTU; seyrumálefni
Á 39. fundi hreppsnefndar Ásahrepps var endurskoðaður samstarfssamningur um sameiginlegan seyrurekstur samþykktur af hreppsnefnd. Samkvæmt þeim samningi þarf hreppsnefnd Ásahrepps að skipa einn aðalmann í stjórn verkefnisins og einnig einn varamann.
Hreppsnefnd Ásahrepps skipar Ásta B. Ólafsdóttir sem aðalmann og Egil Sigurðsson sem varamann í stjórnina.
20.
Kostnaður lögmannsþjónustu vegna Vatnajökulsþjóðgarðs
Oddviti sagði frá aðstoð sem veitt var af lögmanni vegna úrvinnslu mála sem tengjast Vatnajökulsþjóðgarði, vestursvæði. Fyrir liggur reikningur fyrir lögfræðiráðgjöf að upphæð kr. 248.000.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að reikningurinn verði greiddur af sveitarsjóði Ásahrepps.
21.
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum
Lagt fram tölvuskeyti frá skrifstofu nefndarsviðs Alþingis, dags. 4. maí 2021. Þar eru kynnt drög að frumvarpi til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum og lögum um tekjustofna sveitarfélaga (lágmarksíbúafjöldi sveitarfélags) sem Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis er að vinna með. Nefndin stefnir að því að taka málið aftur á dagskrá þann 12. maí 2021.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að gerð sé athugasemd við það vinnulag sem er viðhaft, það er að einungis sé gefinn 8 daga fyrirvari til að vinna umsögn eða athugasemdir við þetta viðamiklar breytingar sem hafa mikið gildi fyrir sveitarfélög sem frumvarpið hefði veruleg áhrif á ef af lögum verður.
22.
Bréf Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis
Lagt fram bréf framsögumanns umhverfis- og samgögnunefndar Alþingis, Kolbeini Óttarssyni Proppé, þar sem óskað er eftir fundi með fulltrúum sveitarfélagsins.
Hreppsnefnd Ásahrepps tekur vel í þessa beiðni og sér sér fært að halda fund með nefndinni miðvikudaginn 26. maí n.k. klukkan 15:30.
23.
Samningur um hestagerði í Nýjadal
Lagt fram tölvuskeyti Vatnajökuls þjóðgarðs, dags. 11. maí 2021, þar sem óskað er eftir framlengingu á samningi milli VJÞ og Ásahrepps um hestagerðið í Nýjadal. Einnig lagður fram samningur milli aðila sem undirritaður var 28. desember 2017, sem rennur út 1. júní 2021.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að framlengja umræddan samning óbreyttan.
24.
Ákvörðun um fyrirkomulag stjórnsýslu Ásahrepps vegna Covid-19.
Taka þarf ákvörðun um fyrirkomulag stjórnsýslu Ásahrepps í ljósi aðstæðna á tímum COVID-19. Ákveðið var að loka skrifstofunni fyrir almenningi þar sem ekki var hægt að tryggja nándarreglu sóttvarna.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að viðhafa óbreytt fyrirkomulag áfram, en ákvörðunin verður endurskoðuð á næsta fundi hreppsnefndar. Sveitarstjóra falið að birta þessa ákvörðun með sama hætti og síðast á heimasíðu Ásahrepps og með að hengja upp auglýsingu við skrifstofu sveitarfélagsins.
25.
Tölvuskeyti fyrir hönd Skrauta, félags um verndun landslagsheildarinnar Vonarskarðs
Lagt fram tölvuskeyti Kára Kristjánssonar, fyrir hönd Skrauta, félags um verndun landslagsheildarinnar Vonarskarðs í Ásaheppi.Fulltrúar félagsins óska eftir að koma á framfæri við skipulagsnefndina, sjánarmiðum Skrauta varðandi landslagsheildina Vonarskarðs, sem og að kynna markmið félagsins í stuttu máli.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að fela fulltrúum í vinnuhópi um endurskoðun aðalskipulags Ásahrepps að finna fundartíma með þeim þar sem þeir geti gert grein fyrir erindinu.
26.
Styrkbeiðni frá Stígamótum
Lagt fram tölvuskeyti Stígamóta, dags. 12. maí 2021, þar sem óskað er eftir fjárstyrk til að mæta aukinni ásókn í þjónustu Stígamóta við að veita viðtöl og stuðning við brotaþola kynferðisofbeldis og aðstandendur þeirra.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita Stígamótum styrk að upphæð kr. 20.000.
27.
17. júní hátíðarhöld 2021
Umræða um fyrirkomulag hátíðarhalda í Ásabrekkuskógi þann 17. júní n.k.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir að fyrirkomulag verði með svipuðu sniði og verið hefur síðast liðin ár. Oddvita og sveitarstjóra falið að halda utan um verkefnið.
28.
Aðgerðir gegn útbreiðslu kerfils
Umræða um aðgerðir gegn útbreiðslu kerfils með þjóðvegi 1 milli Heiðarvegar og heimreið að Borgarholti.
Hreppsnefnd Ásahrepps felur sveitarstjóra að ræða við fagmann í garðyrkju til að leita upplýsinga um möguleika á að eitra fyrir plöntunni.
29.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Sveitarstjóri lagði fram rekstraryfirlit fyrir fyrstu fjóra mánuði ársins, janúar - apríl 2021.
Til kynningar.
30.
13. stöðuskýrsla teymis um uppbyggingu félags- og atvinnumála
Lögð fram 13. stöðuskýrssla teymis um uppbyggingu félags- og atvinnumála í kjölfar COVID-19.
Til kynningar
31.
14. stöðuskýrsla teymis um uppbyggingu félags- og atvinnumála
Lögð fram 14. stöðuskýrsla teymis um uppbyggingu félags- og atvinnumála í kjölfar COVID-19.
Til kynningar
32.
Skráningar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs að Strönd árið 2020
Lögð fram skýrsla sem Mannvit hefur unnið, "Skráningar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs að Strönd árið 2020.
Til kynningar.
33.
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, um meðhöndlun úrgangs og um úrvinnslugjald
Lögð fram umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum um meðhöndlun úrgans og lögum um úrvinnslugjald (hringrásarhagkerfið).
Til kynningar.
34.
Opið bréf til sveitarfélaga frá samtökum grænkera á Íslandi
Lagt fram opið bréf frá Samtökum grænkera á Íslandi um framboð á grænkerafæði í leik- og grunnskólum.
Til kynningar. Hreppsnefnd vísar erindinu til stjórnar Odda bs.
35.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar Ásahrepps verðu haldinn 16. júní 2021 og hefst klukkan 8:30.