Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

42. fundur
20. ágúst 2025 kl. 08:30 - 10:30
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 305. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2506026
Mál nr. 1; Ás 1 L165257; Ás; Stofnun lóðar - 2506086.
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 18.06.2025, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun nýrrar landeignar. Óskað er eftir að stofna 14,1 ha landeign, Ás, úr landi Áss 1 L165257. Íbúðarhús, hesthús og reiðhöll eru innan nýrrar landeignar.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemd við afmörkun landsins skv. framlagðri merkjalýsingu. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða erindið. Hreppsnefnd bendir á að framkvæmdir innan lóðar eru að jafnaði háðar gerð deiliskipulags sem tekur til svæðisins.

Mál nr. 28; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 25-229 - 2506002F.
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 25-229.
2.
Fundargerð 306. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2507003
Mál nr. 1; Einholt L180119; Skilgreining lóða; Einholt 1 og Einholt 2; Deiliskipulag - 2506106.
Lögð er fram tillaga deiliskipulags sem tekur til Einholts L180119 í Ásahreppi. Í deiliskipulaginu felst skilgreining tveggja lóða og byggingarreita innan þeirra fyrir íbúðarhús og bílskúr.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða deiliskipulagið og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins. Nefndin bendir á að fjarlægð bygginga frá Einholtsvegi, sem er héraðsvegur, skal vera minnst 50 metrar á grundvelli gr. 5.3.2.5. Í ljósi þess að því verður ekki viðkomið gagnvart skilgreindum lóðum sem skipulagið tekur til gerir nefndin ráð fyrir því að vegkaflinn frá afleggjaranum að Hestheimum L212134 að Einholti verði skilgreindur sem einkavegur ekki á forsvari Vegagerðarinnar.

Mál nr. 2; Nes 2 L230552; Breyting byggingarreits; Deiliskipulagsbreyting - 2507007.
Lögð er fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu fyrir Nes 2 L230552 í Ásahreppi. Í breytingunni felst að byggingarreitur B3 stækkar og færist til norðvesturs.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir viðkomandi breytingu á deiliskipulagi svæðisins með fyrirvara um að fullnægjandi gögn verði lögð fram við afgreiðslu málsins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi. Þar sem engir aðrir hagsmunaaðilar eru innan svæðisins en umsækjandi og aðliggjandi nágranni sem hefur þegar veitt samþykki fyrir breytingunni telur hreppsnefndin ekki þörf á grenndarkynningu.

Mál nr. 21; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 25-230 - 2506004F.
Lögð er fram til kybnningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 25-230.
3.
Fundargerð 307. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2508008
Mál nr. 1; Bergholt L238505; Íbúðarhús, gestahús og hesthús; Deiliskipulag - 2503060.
Lögð er fram, eftir auglýsingu, tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til Bergholts L238505 í Ásahreppi. Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarsvæði og þar verður heimilt að byggja íbúðarhús, gestahús og hesthús/reiðhöll. Umsagnir bárust á auglýsingartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum og rökstuðningi fyrir undanþágu vegna byggingar hesthúss nær vegi en 50m.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Hreppsnefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Hreppsnefnd Ásahrepps mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda með fyrirvara um jákvæða niðurstöðu um fjarlægðamörk hesthúss frá vegi og að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Ísleifur Jónasson vék af fundi við afgreiðslu málsins.

Mál nr. 36; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 25-232 - 2508001F.
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU nr. 25-232.

Mál nr. 37; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 25-231 - 2507002F
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU nr. 25-231.


4.
Fjallskiladeild Holtamannaafréttar - 9
Málsnúmer 2508001F
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fundargerð 9. fundar Fjallskiladeildar Holtamannaafréttar fyrir sitt leyti.
5.
Fundargerð 38. fundar stjórnar Odda bs.
Málsnúmer 2506027
Til kynningar.
6.
Fundargerð 248. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Málsnúmer 2507004
Til kynningar.
7.
Fundargerð 15. fundar stjórnar Lundar
Málsnúmer 2507006
Til kynningar.
8.
Fundargerð 91. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu
Málsnúmer 2506017
Til kynningar.
9.
Fundargerð aðalfundar Félags- og skólaþjónustu, 10. júní 2025
Málsnúmer 2506016
Til kynningar.
10.
Fundargerð 123. fundar stjórnar UTU
Málsnúmer 2507005
Til kynningar.
11.
Fundargerð 124. fundar stjórnar UTU
Málsnúmer 2508004
Til kynningar.
12.
fundargerð 125. fundar stjórnar UTU
Málsnúmer 2508005
Til kynningar.
13.
Fundargerð 245. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Málsnúmer 2506023
Til kynningar.
14.
Fundargerð 86. fundar Bergrisans bs.
Málsnúmer 2506024
Til kynningar.
15.
Fundargerð 24. fundar stjórnar Arnardrangs hses
Málsnúmer 2506025
Til kynningar.
16.
Fundargerð aðalfundar Eignarhaldsfélags Suðurlands
Málsnúmer 2507007
Til kynningar.
17.
Fundargerð 623. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2506022
Til kynningar.
18.
Fundargerð 624. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2508007
Til kynningar.
19.
Fundargerð 85. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 2506014
Til kynningar.
20.
Fundargerð 86. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 2506015
Til kynningar.
21.
Fundargerð 981. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2506018
Til kynningar.
22.
Fundargerð 982. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2506019
Til kynningar.
23.
Fundargerð 246. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Málsnúmer 2508009
Til kynningar.
24.
Kerfisáætlun Landsnets 2025-2034
Málsnúmer 2505002
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir engar athugasemdir.
25.
Bókunarsíða fyrir fjallaskála
Málsnúmer 2506028
Hreppsnefnd Ásahrepps telur að þessi hugmynd henti sveitarfélaginu ekki að svo komnu máli.
26.
Umsagnarbeiðni vegna gistileyfis; Vesturás
Málsnúmer 2507002
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fyrir sitt leyti að umrætt leyfi verði veitt.
27.
Styrkbeiðni vegna þátttöku á heimsmeistaramóti í hestaíþróttum í Sviss
Málsnúmer 2508002
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að styrkja Kristján Árna um kr. 100.000.
28.
Breytingartillaga á stjórnunar- og verndaráætlun, Vonarskarð
Málsnúmer 2508003
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir engar athugasemdir við fyrirliggjandi tillögu.
29.
Tillaga að breytingu á flokkun Kjalölduveitu og virkjunarkosta í Héraðsvötnum
Málsnúmer 2508006
Hreppsnefnd Ásahrepps er sammála þessari tillögu um flokkun Kjalölduveitu og vísar til fyrri bókunar um Kjalölduveitu á 37. fundi hreppsnefndar, dags. 19. mars 2025.
30.
Styrkbeiðni Hjálparstarfs kirkjunnar og aðstoð við barnafjölskyldur
Málsnúmer 2508010
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita styrk að upphæð kr. 10.000.
31.
Sinfó í sundi, samfélagsgleði um allt land í ágús
Málsnúmer 2506020
Til kynningar.
32.
Samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga vegna barna með fjölþættan vanda
Málsnúmer 2506021
Til kynningar.
33.
Breytt rekstrarform Sigurhæða
Málsnúmer 2507001
Til kynningar.
34.
Fyrirspurn sveitarstjóra í Rangárvallasýslu til Landsnets
Málsnúmer 2508001
Til kynningar.
35.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Til kynningar.