Hreppsnefnd Ásahrepps
43. fundur
17. september 2025
kl.
08:30
-
11:55
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson
hreppsnefndarfulltrúi
Karl Ölvirsson
varamaður í hreppsnefnd
Þráinn Ingólfsson
hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fulltrúar Íslenskrar Gagnavinnslu mæta á fund hreppsnefndar
Mættar eru á fund hjá hreppsnefnd Ásahrepps þær Anna Jonna Ármannsdóttir og Krista Hannesdóttir. Þær hafa nýlega fest kaup á jörðinni Lindabær 1A og eru komnar til að kynna hugmyndir sínar um orkuvinnslu á landinu.
Anna Jonna og Krista gerðu grein fyrir hugmyndum sínum um orkuvinnslu á landi Lindarbæjar 1A, en um er að ræða sólarorkuver. Hreppsnefnd þakkaði gestum fundarins fyrir greinagóða kynningu á fyrirhuguðu verkefni.
2.
Fundargerð 39. fundar stjórnar Odda bs.
Lögð fram fundargerð 39. fundar stjórnar Odda bs. 4. dagskrárliður þarfnast staðfestingar aðildarsveitarfélaga.
Bókun stjórnar Odda bs:
2403081 - Þróun leikskólastarfs
Lagðar fram niðurstöður foreldrakannana í leikskólunum vegna nýrrar gjaldskrár Odda bs. og starfsmannakannnir í leikskólunum. Stjórn Odda samþykkir að óbreytt fyrirkomulag verði á gjaldskrá Odda bs skólaárið 2025-2026 og reynslan metin aftur vorið 2026. Samþykkt samhljóða.
Lagt til að niðurstaða stjórnar Odda bs. verði samþykkt.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fyrir sitt leyti niðurstöðu stjórnar Odda bs.
Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.

3.
Fundargerð 40. fundar stjórnar Odda bs.
Lögð fram fundargerð 40. fundar stjórnar Odda bs. Dagskrárliður nr. 1 þarfnast staðfestingar hreppsnefndar Ásahrepps.
Bókun stjórnar Odda bs:
2508021 - Fjárhagsáætlun Odda bs. 2025. Viðaukar
Viðauki 1 við fjárhagsáætlun Odda bs. 2025.
Klara Viðarsdóttir fjármálastjóri fór yfir tillögu að viðauka 1 fyrir Odda bs.
Lagður fram viðauki 1 við rekstraráætlun Odda bs 2025. Greinargerð fylgir viðaukanum.
Viðaukinn gerir ráð fyrir auknum rekstarkostnaði að fjárhæð kr. 82.809.269 sem stafar af áhrifum kjarasamninga við kennara (56 millj.), kjarasamningsbundnum hækkun vegna aksturs starfsmanna og veikindaforföllum. Óskað er eftir að viðaukanum verði mætt með hækkun á framlögum sveitarfélaganna frá Ásahreppi kr. 9.111.485 kr. og Rangárþingi ytra kr.73.696.784
Stjórn Odda samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til sveitarfélaganna til endanlegrar afgreiðslu.
Samþykkt samhljóða.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti viðauka 1 hjá Odda bs, sbr. ofanritað.

4.
Fundargerð 308. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 308. fundar skipulagsnefndar UTU.
Til kynningar.
5.
Fundargerð 309. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 309. fundar skipulagsnefndar UTU. Jafnframt er lögð fram til kynningar fundargerð 233. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU.
Mál nr. 1; Ás 3 1-8lóð L204637; Skilgreining frístundalóðar; Deiliskipulag - 2508021.
Lögð er fram tillaga deiliskipulags sem tekur til Ás 3 I-8lóð L204637 í Ásahreppi. Í deiliskipulaginu felst að skilgreindur er byggingarreitur á lóðinni þar sem heimilt er að reisa allt að 200 fm frístundahús, 40 fm gestahús og 25 fm geymslu.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða deiliskipulagsbreytinguna til kynningar og umsagna með fyrirvara um uppfærð gögn í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Málið verður jafnframt grendarkynnt innan svæðisins.
Mál nr. 2; Búðarhálsvirkjun stöð L221893; Rafstrengur og ljósleiðari; Framkvæmdarleyfi - 2508080.
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Búðarhálsvirkjunar. Í framkvæmdinni felst lagning rafstrengs og ljósleiðara frá rafstreng Langöldu að tengiskáp við Búðarháls til að bæta raforku á vinnusvæði Vaðöldu.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að fenginn jákvæðri umsögn frá Forsætisráðuneytinu.
Mál nr. 3; Þjóðholt (áður Kálfholt K 3a) L219274; Íbúðarhús, bílskúr og skemma; Deiliskipulag - 2504035.
Lögð er fram, eftir auglýsingu, tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til Þjóðholts (áður Kálfholt K 3a) L219274 í Ásahreppi. Í deiliskipulaginu felst að skilgreindir eru byggingarreitir fyrir íbúðarhús og bílageymslu, skemmu og/eða hesthús og núverandi sumarhús. Hámarksbyggingarmagn verður 750 m2. Að öðru leyti verður landið nýtt sem beitiland eins og verið hefur. Umsagnir bárust á auglýsingartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Hreppsnefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna og mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Ísleifur Jónasson vék af fundi undir þessum lið.
Mál nr. 4; Umsagnarbeiðni; Ytri-Skógar, breytingar á gamla héraðsskólanum; Deiliskipulagsbreyting - 2509015.
Lögð er fram umsagnarbeiðni vegna deiliskipulagsbreytingar fyrir gamla héraðsskólann við Ytri-Skóga.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við framlagða deiliskipulagsbreytingu á gamla héraðsskólanum við Ytri-Skóga. Málin vísað til umræðu í hreppsnefnd Ásahrepps.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemdir fyrir sitt leyti og vísar málinu til Héraðsnefndar sem er landeigandi ásamt sveitarfélögunum í Vestur-Skaftafellssýslu.
Mál nr. 33; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 25-233 - 2509001F.
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 25-233.

6.
Fundargerð 249. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Lögð fram fundargerð 249. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Til kynningar.
7.
Fundargerð 92. fundar Félags- og skólaþjónustu FSRV
Lögð fram fundargerð 92. fundar Félags- og skólaþjónustu FSRV ásamt kynningu á farsældarráði og ársskýrslu umdæmisráðs Suður 2024.
Til kynningar.
8.
Fundargerð 126. fundar stjórnar UTU
Lögð fram fundargerð 126. fundar stjórnar UTU.
Til kynningar.
9.
Fundargerð 127. fundar stjórnar UTU
Lögð fram fundargerð 127. fundar stjórnar UTU.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 334. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Lögð fram fundargerð 334. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Til kynningar.
11.
Fundargerð 625. fundar stjórnar SASS
Lögð fram fundargerð 625. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
12.
Fundargerð 87. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 87. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
13.
Fundargerð 983. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 983. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
14.
Beiðni um hækkun taxta vegna refaveiða
Lögð fram beiðni Elimars Helga Sigurbjargarsonar, þar sem hann óskar eftir að greiðsla fyrir unninn ref hækki úr 9.000 kr í 10.000 kr og að tímakaup hækki úr 1.500 kr í 2.000 kr.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að uppfæra einingarverð í samræmi við tillögu Elimars, fyrir báða aðila sem eru samningsbundnir um refavinnslu fyrir Ásahrepp. Uppfært verð taki gildi fyrir árið 2026.
15.
Ársþing SASS 2025 í kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri
Lagt fram bréf SASS, dags. 27. ágúst 2025 þar sem kynnt er ákvörðun um að ársþing SASS 2025 verði haldið 23. og 24. október 2025. Skila þarf inn kjörbréfum með rafrænum hætti.
Aðalmenn Ásahrepps eru Ísleifur Jónasson og Nanna Jónsdóttir, en varamenn þeirra Kristín Hreinsdóttir og Helga Björg Helgadóttir.
16.
Samningur um rekstur tónlistarskóla; Tónsmiðja Suðurlands
Lagt fram tölvuskeyti Tónkjallarans, dags. 26. ágúst 2025, þar sem óskað er eftir að gerður verði samningur milli Ásahrepps og Tónkjallarans vegna reksturs tónlistarskóla. Greiðslur eru háðar fjölda nemenda frá Ásahreppi á hverjum tíma. Drög að samningi lagður fram sem gerir ráð fyrir að sveitarfélagið greiði kr. 770.593 skólaárið 2025-2026. Einn einstaklingur er skráður í nám hjá Tónkjallaranum næsta skólaár.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að ganga til samninga við Tónkjallarann á grundvelli þessara draga að samningi milli aðila.
Ísleifur Jónasson vék af fundi við afgreiðslu þessa dagskrárliðar.
Ísleifur Jónasson vék af fundi við afgreiðslu þessa dagskrárliðar.
17.
Ágangur sauðfjár við Reykás
Lagt fram tölvuskeyti, Halldórs Ólafssonar og Soffíu Guðmundsdóttur, dags. 20. ágúst 2025 þar sem kvartað er yfir ágangi sauðfjár á landi þeirra Reykási. Jafnframt senda þau myndir máli sínu til stuðnings. Einnig lagt fram tölvuskeyti Guðríðar Hermannsdóttur, dags. 4. september 2025.
Hreppsnefnd Ásahrepps vísar til leiðbeininga sem gefnar hafa verið út vegna ágangsbúfénaðar, en þar segir:
"Ef lausaganga búfjár hefur ekki verið bönnuð með ákvæðum í samþykkt um búfjárhald skv. 5. gr. laga búfjárhald nr. 38/2013 leikur meiri vafi á skyldum sveitarstjórnar til að bregðast við beiðni um smölun ágangsfjár, sbr. niðurstöðu Landsréttar í máli 268/2020. Þar kemst dómurinn að þeirri niðurstöðu að heimild til lausagöngu búfjár feli í sér
almenna takmörkun eignarréttar sem eigi sér skýra stoð í lögum og að fasteignaeigendur verði sjálfir að hlutast til um að verja fasteign sína ágangi búfjár. Samskonar sjónarmið koma fram í 8. gr. laga um búfjárhald nr. 38/2013, þar sem gert er ráð fyrir að eigandi lands geti friðað afmarkað og tiltekið landsvæði, að því gefnu að vörslulínur séu fullnægjandi."
Hreppsnefnd samþykkir samhljóða að hlutast til um að aðilar sem málið varðar hittist og finni lausn á málinu.

18.
Fyrirspurn um leikskóladvöl 5 ára drengs frá Austurríki
Lagt fram tölvuskeyti Heklu Hermundsdóttur, dags. 22. ágúst 2025, þar sem hún spyrst fyrir um hvort 5 ára sonur hennar gæti fengið leyfi til að vera í leikskólanum Laugalandi í tvær vikur til að efla tengsl barnsins við íslenska menningu.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að hafna erindinu á grundvelli fordæmisgefandi atriða sem og vinnulags við aðlögun nýrra nemenda við leikskólann.
19.
Lagfæring siturbeðs rotþróar að Ásmundarstöðum
Lagt fram minnisblað um rotþró Jóns Ágúst Jóhannssonar og Reykjagarðs, dags. 21. ágúst 2025, undirritað af Markúsi Óskarssyni pípulagningarmanni og tveimur starfsmönnum Reykjagarðs, Sigurði Óskari Óskarssyni og Ágústi Ómari Eyvindssyni. Þar kemur fram að þeir hafi unnið að viðgerð siturlagnar umræddrar rotþróar. Þeir staðfesta að siturlögn hafi verið upphallandi og að klapparhaft hafi gert það að verkum að frárennsli var ekki nægjanlegt fyrir hendi og siturbeð og lagnir því ávallt fullar af vatni. Brjóta þurfti niður klapparhaftið um 50 cm til að hægt væri að leggja siturlögn í réttum niðurhalla þannig að frárennsli rotþróar myndi renna með réttum halla frá rotþró.Sveitarfélagið styrkti húseigendur á sínum tíma með kaupum og niðursetningu rotþróa og lagna. Þar sem aðstæður voru með þessum hætti og vatn komst ekki frá rotþró með eðlilegum hætti er óskað eftir að sveitarsjóður komi að kostun þessarar viðgerðar. Pípulagningarmaður hefur staðfest að vandamál hafi verið vegna þessarar rotþróar um árabil. Ástæða vandamálsins kom ekki í ljós fyrr en mokað var ofan af siturlögn.Kostnaður við verkið, sem unnið var af Markúsi Óskarssyni og Þjótanda nemur kr. 859.461 án VSK.
Almennt kemur Ásahreppur ekki að viðhaldi frárennsliskerfa við íbúðarhúsnæði í Ásahreppi, en hreppurinn kostaði kaup og niðursetningu á frárennsliskerfum (rotþrær og siturlagnir) á sínum tíma. Hreppurinn skuldbatt sig ekki fyrir viðhaldi þessara frárennsliskerfa sem sett voru niður í þessu verkefni. Komið hefur í ljós við skoðun að við umrædda rotþró eru óvenjulegar aðstæður, þ.e. klapparhaft sem hindrað hefur eðlilegt frárennsli gæti verið um siturlögn. Hefur pípulagningarmaður staðfest að með óbreyttu mun siturlögn ekki virka eðlilega. Brjóta varð úr klapparhafti og lækka um 50 cm. til að frárennsli verði eðlilegt. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir að veita Reykjagarði styrk á móti kostnaði við fleygun klapparhaftsins. Sveitarstjóra falið að ljúka málinu við málsaðila.
20.
Kæra nr. 101-2025; Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála; Sauðholt
Lögð fram tilkynning frá Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindarmála þar sem kynnt er kæra nr. 101/2025 vegna deiliskipulags í landi Sauðholts 2, ásamt fylgigögnum.Einnig lagðar fram athugasemdir Ásahrepps ásamt fylgigögnum sem unnin hefur verið af Lögmönnum Suðurlandi.
Á þessari stundu liggur ekki fyrir úrskurður nefndarinnar.
21.
Þakkir frá Njálufélaginu
Lagt fram bréf Njálufélagsins, dags. 29. ágúst 2025, þar sem færðar eru þakkir fyrir framlag Ásahrepps til Njáluvöku. Jafnframt er óskað eftir að Ásahreppur tilnefni tengilið við Njálufélagið þar sem hugur stendur til að halda starfi Njálufélagsins áfram á komandi árum.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að tilnefna Þráinn Ingólfsson sem fulltrúa Ásahrepps.
22.
Málstefna Rangárþings ytra og Ásahrepps
Lögð fram til fyrri umræðu drög að málstefnu Rangárþings ytra og Ásahepps. Umræða varð um fyrirliggjandi drög.
Hreppsnefnd Ásahrepps vísar málinu til síðari og lokaafgreiðslu á næsta reglubundna fundi hreppsnefndar í október n.k.
23.
Vegklæðning á heimreið að Laufbrekku
Lagt fram tölvuskeyti Vegagerðarinnar, dags 10. september 2025, þar sem upplýst er um tilboðsverð Borgarverks og Þjótanda í lagningu burðarlags og klæðningar á heimreiðina að Laufbrekku. Þjótandi gerir tilboð í báða verkþætti en Borgarverk aðeins í klæðningu.
Þar sem Þjótandi er tilbúinn að taka að sér báða verkþætti þá samþykkir hreppsnefnd Ásahrepps fyrir sitt leyti að samið verði við Þjótanda um verkið. Kostnaður við verkið skv. tilboði er kr. 4.081.000, en hlutur Ásahrepps yrði þá um kr. 3.900.000 og fellur alveg innan fjárfestingaráætlun 2025.
24.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Lagt fram málaflokkayfirlit frá 1. janúar til 31. ágúst 2025.
Til kynningar.
25.
Mótvægisaðgerðir vegna Sporðöldulóns 2025
Lagt fram minnisblað Lands og skógar, dags. 4. september 2025, vegna skoðunarferðar um uppgræðslur á Búðarhálsi og Þóristungum.
Til kynningar.
26.
Bréf Náttúruhamfaratryggingar Íslands
Lagt fram bréf Náttúruhamfaratryggingar Íslands, dags. 10. september 2025, þar sem bent er á áhrif 16. gr. laga nr. 55/1992 ef byggingar eru reistar á svæðum sem fyrir fram er vitað að eru sérlega næm fyrir náttúruhamförum sem eru bótaskyldar hjá NTÍ.
Til kynningar.
27.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar verður haldinn á skrifstofu Ásahrepps þann 15. október 2025. Fundur hefst klukkan 8:30.
Til kynningar.