Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

43. fundur
16. júní 2021 kl. 08:30 - 10:15
í fjarfundarkerfi Zoom
Nefndarmenn
Ásta Berghildur Ólafsdóttir oddviti hrepssnefndar
Brynja Jóna Jónasdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Egill Sigurðsson hreppsnefndarfulltrúi
Elín Grétarsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Guðmundur Jóhann Gíslason hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Dagskrá
1.
218. fundur skipulagsnefndar
Málsnúmer 2105034
Fundargerð 218. fundar skipulagsnefndar lögð fram til afgreiðslu, ásamt fundargerð 143. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa.
Mál nr. 1; Ás 3 land II-2land (L204643);umsókn um byggingarleyfi; íbúðarhús og bílskúr - 2105021.
Fyrir liggur umsókn Sverris Sigurðssonar og Berthu Karlsdóttur, móttekin 06.05.2021, um byggingarleyfi til að byggja 121 m2 íbúðarhús og 75,2 m2 bílskúr á Ás 3 II-2land L204643 í Ásahreppi.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að málið fái málsmeðferð á grundvelli 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar. Berist engar athugasemdir vegna grenndarkynningar skal málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa. Forsenda frekari uppbyggingar á lóðinni er að hún verði deiliskipulögð. Hreppsnefndin mælist til þess að unnið verði deiliskipulag samhliða umsókn um byggingarleyfi vegna íbúðarhúss.

Mál nr. 30; Afgreiðslur byggingarfulltrúa.
Fundargerð 21-143. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lagður fram til kynningar.
2.
Fundargerð 219. fundar skipulagsnefndar
Málsnúmer 2106018
Fundargerð 219. fundar skipulagsnefndar UTU lögð fram til afgreiðslu, ásamt 144. afgreiðslu fundi byggingarfulltrúa.
Mál nr. 1; Ás 1 spilda 5 L204636; Ásgarður; Deiliskipulag - 2105072.
Lögð er fram umsókn frá Baldri Frey Gústafssyni er varðar deiliskipulag fyrir frístundalóðina Ás 1 spilda 5 L204636. Í deiliskipulaginu felst heimild fyrir uppbyggingu 200 fm frístundahúss, 70 fm gestahúss og 30 fm geymslu.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir deiliskipulagið og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins. Hreppsnefnd mælist til þess að staðföng lóða á svæðinu verði skoðuð m.t.t. staðfangareglugerðar. Hreppsnefnd bendir á að félagsheimilið í Ási heitir Ásgarður og að hafa sama nafn á öðrum lóðum innan deiliskipulags getur valdið misskilningi sem gæti haft áhrif á öryggismál.

Mál nr. 21; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 21-144 - 2105005F.
Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 21-144 lögð fram til kynningar.
3.
86. fundur stjórnar UTU
Málsnúmer 2105037
Lögð fram fundargerð 86. fundar stjórnar UTU ásamt drögum að gjaldskrá skipulagsfulltrúa.Stjórn UTU vísaði 1. dagskrárlið fundargerðar til staðfestingar hjá sveitarstjórnum aðildarsveitarfélaganna. Aðrir dagskrárliðir eru til kynningar.
1. dagskrárliður; Drög að gjaldskrá skipulagsfulltrúa.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að gjaldskrá skipulagsfulltrúa fyrir sitt leyti.

Aðrir dagskrárliðir eru til kynningar.
4.
Fundargerð 8. fundar sameiningarnefndar
Málsnúmer 2106010
Lögð fram fundargerð samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélaga í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fundargerðina fyrir sitt leyti.
5.
Fundargerð 9. fundar sameiningarnefndar
Málsnúmer 2106011
Lögð fram fundargerð 9. fundar samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélaga í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fundargerðina fyrir sitt leyti.
6.
Fundargerð 10. fundar sameiningarnefndar
Málsnúmer 2106012
Lögð fram fundargerð 10. fundar samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélaga í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fundargerð fyrir sitt leyti.
7.
Fundargerð 11. fundar sameiningarnefndar
Málsnúmer 2106013
Fundargerð 11. fundar samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélaga í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fundargerð samhljóða fyrir sitt leyti.
8.
Fundargerð 40. fundar stjórnar Odda bs.
Málsnúmer 2105029
Lögð fram fundargerð 40. stjórnarfundar Odda bs.
Til kynningar.
9.
Fundargerð 41. fundar stjórnar Odda bs.
Málsnúmer 2105030
Lögð fram fundargerð 41. fundar stjórnar Odda bs. - vorfundur.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 8. fundar stjórnar Lundar
Málsnúmer 2106006
Lögð fram fundargerð 8. fundar stjórnar Lundar, hjúkrunar og dvalarheimilis.
Til kynningar
11.
Fundargerð 23. fundar stjórnar Tónlistarskóla Rangæinga
Málsnúmer 2106007
Lögð fram fundargerð 23. fundar stjórnar Tónlistarskóla Rangæinga ásamt ársreikningi 2020.
Til kynningar.
12.
Fundargerð 302. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Málsnúmer 2106008
Lögð fram fundargerð 302. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Til kynningar.
13.
Fundargerð 212. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Málsnúmer 2106016
Lögð fram fundargerð 212. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands.
Til kynningar.
14.
Fundargerð 13. aðalfundar Háskólafélags Suðurlands ehf.
Málsnúmer 2105027
Lögð fram fundargerð 13. aðalfundar Háskólafélags Suðurlands ehf.
Til kynningar.
15.
Fundargerð 570. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2106017
Lögð fram fundargerð 570. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
16.
Fundargerð 898. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2106001
Lögð fram fundargerð 898. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
17.
Fundargerð XXXVI. landsþings Sambands íslenskra sveitarféalga
Málsnúmer 2106003
Lögð fram fundargerð XXXVI. landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga ásamt skýrslu Framtíðarseturs Íslands.
Til kynningar.
18.
Umsagnarbeiðni; stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs
Málsnúmer 2105028
Lagt fram tölvuskeyti Vatnajökulsþjóðgarðs, dags. 21. maí 2021, þar sem kynnt er að auglýst er eftir umsögnum um breytingatillögu að Stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs, 3. útgáfu.Einnig lögð fram umrædd breytingartillaga.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemdir á þessu stigi máls.
19.
Skipulagslýsing; Svæðisskipulag Suðurhálendisins 2020-2032
Málsnúmer 2105032
Lagt fram tölvuskeyti SASS, dags. 26. maí 2021, ásamt skipulagslýsingu fyrir svæðisskipulag Suðurhálendisins 2020-2032. Óskað er eftir afgreiðslu sveitarfélaganna sem að verkefninu standa.
Hreppsnefnd Ásahrepps hefur farið yfir lýsingu skipulagsáforma fyrir Svæðisskipulag Suðurhálendis 2020-2032 sem samþykkt var á fundi Svæðisskipulagsnefndar þann 25. maí 2021. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi skipulagslýsingu fyrir sitt leyti, til kynningar í samræmi við 1. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og grein 3.2.4 í skipulagsreglugerð nr. 90/2013.
20.
Stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands
Málsnúmer 2012022
Lagt fram tölvuskeyti Björns Helga Barkarsonar, umhverfisráðuneytinu, þar sem kynntar eru hugmyndir um nýja útfærslu á mörkum hálendisþjóðgarðs.
Hreppsnefnd Ásahrepps fagnar því að frumvarp til laga um stofnun hálendisþjóðgarðs náði ekki fram að ganga, enda hafði hreppsnefnd gert alvarlegar athugasemdir við umrætt frumvarp. Nauðsynlegt er að hafa annað vinnulag ef taka skal upp þráðinn í framtíðinni, þar sem sveitarfélögin og nytjaréttarhafar verði setti í forgrunn í allri undirbúningsvinnu.
21.
Beiðni um styrk við lagfæringu reiðvegar að Króki
Málsnúmer 2105036
Lagt fram tölvuskeyti Reynis Arnars Pálmasonar, dags. 28. maí 2021, þar sem óskað er eftir fjárstyrk frá sveitarfélaginu til efniskaupa við lagfæringu á um 2ja kílómetra kafla af reiðvegi frá þjóðvegi 1 að Króki
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita styrk til efniskaupa að upphæð kr. 500.000.
22.
Tölvuskeyti Jafningafræðslu Suðurlands ásamt skýrslu 2020
Málsnúmer 2106004
Lagt fram tölvuskeyti frá Jafningjafræðslu Suðurlands þar sem óskað er eftir að sveitarfélögin á Suðurlandi fjármagni kostnað við jafningjafræðsluna sumarið 2021, þar sem SASS hafði ekki tök á að fjármagna hana. Óskað er eftir styrk fyrir heimsókn í vinnuskóla í sumar.Einnig er lögð fram ársskýrsla Jafningjafræðslu Suðurlands fyrir árið 2020.
Hreppsnefnd Ásahrepps tekur vel í erindið en felur sveitarstjóra að vera í sambandi við Rangárþing ytra þar sem þar er starfræktur vinnuskóli sem Ásahreppur er þátttakandi í.
23.
Skilabréf og álit samstarfsnefndar um sameiningu Ásahrepps, Mýrdalshrepps, Rangárþings eystra, Rangárþings ytra og Skaftárhrepps
Málsnúmer 2106014
Í nóvember 2020 samþykktu sveitarstjórnir Ásahrepps, Mýrdalshrepps, Rangárþings eystra, Rangárþings ytra og Skaftárhrepps að skipa samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaganna samkvæmt 1. mgr. 119. gr. sveitarstjórnarlaga. Samstarfsnefnd hefur skilað áliti sínu til sveitarstjórna með skilabréfi dags. 7. júní og greinargerðinni Sveitarfélagið Suðurland-stöðugreining og forsendur dags. 7. júní 2021.Samstarfsnefndin kom saman á 11 bókuðum fundum. Samstarfsnefnd skipaði 5 starfshópa sem fjölluðu um málaflokka sveitarfélaganna og lögðu fram efni og upplýsingar í greiningu og tillögugerð. Minnisblöð frá vinnu starfshópa eru aðgengileg á vefsíðu verkefnisins og hefur verkefnið verið kynnt á íbúafundum og sjónarmiða þeirra aflað. Það er álit samstarfsnefndar að fram skuli fara atkvæðagreiðsla meðal íbúa sveitarfélaganna um sameiningu sveitarfélaganna í eitt. Lagt er til að atkvæðagreiðsla fari fram laugardaginn 25. september 2021 í öllum sveitarfélögunum. Jafnframt leggur nefndin til að samstarfsnefnd verði falið að undirbúa atkvæðagreiðslu og kynna tillöguna og helstu forsendur fyrir íbúum sveitarfélaganna.
Hreppsnefnd Ásahrepps vísar málinu til síðari umræðu sbr. 2. mgr. 119. gr. sveitarstjórnarlaga nr.
138/2011. Aukafundur verður haldinn hjá hreppsnefnd Ásahrepps fyrir síðari umræðu um tillöguna. Fundurinn verður haldinn þann 30. júní 2021 kl. 08:30 og verður sá fundur fjarfundur í fundarkerfi Zoom.

Hreppsnefnd skorar á Alþingi og ríkisstjórn að bæta samgöngur innan svæðisins. Sérstök áhersla verði lögð á bundið slitlag á héraðs- og tengivegi, en á svæðinu eru rúmlega 1.300 km af héraðs- og tengivegum. Af þeim eru um 500 km malarvegir eða 38%. Um þá vegi ferðast börn og fullorðnir daglega til skóla og vinnu, en auk þess flytja vegirnir ferðamenn að mörgum fallegustu ferðamannastöðum landsins.
24.
Aðalfundarboð Eignarhaldsfélags Suðurlands, 28. júní 2021
Málsnúmer 2106015
Lagt fram bréf Eignarhaldsfélgs Suðurlands, dags. 8. júní 2021, þar sem boðaður er aðalfundur félagsins sem haldinn verður 28. júní n.k.Einnig lögð fram fundargögn s.s. dagskrá fundar, samþykktir félagsins og hluthafaskrá.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að Valtýr Valtýsson verði fulltrúi Ásahrepps á aðalfundinum og Ásta B. Ólafsdóttir til vara.
25.
Ákvörðun um fyrirkomulag stjórnsýslu Ásahrepps vegna Covid-19.
Málsnúmer 2101016
Skrifstofa Ásahrepps hefur verið lokuð almenningi þar sem ekki var hægt að tryggja nándarreglu sóttvarna.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að opna skrifstofuna núna fyrir almenningi þar sem búið er að aflétta takmörkunum að töluverðu leyti.
Einnig samþykkir hreppsnefnd samhljóða að næsti reglubundni fundur hreppsnefndar, þann 18. ágúst n.k., verði staðarfundur og mun fundurinn verða haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins á Laugalandi.
26.
Fyrirspurn varðandi Giljatanga 7
Málsnúmer 2106019
Lagt fram tölvuskeyti Erlu B. Sigurðardóttur, dags. 11. júní 2021, varðandi fyrirsprun um framtíðarsýn hreppsnefndar á Giljatanga 7 sem er í eigu Ásahrepps.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að selja eignina Giljatangi 7 og kynna þá ákvörðun leigutökum og segja upp leigusamningi með lögbundnum uppsagnarfresti. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram.
27.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Málsnúmer 2101011
Sveitarstjóri lagði fram rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps 1. janúar - 31. maí 2021.
Til kynningar.
Rætt var um fyrirhugaðar fjárfestingar ársins og þá sérstaklega endurbætur Ásgarðs. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti samhljóða að skipa þriggja manna vinnuhóp til að undirbúa og sjá um þær framkvæmdir sem fyrirhugaðar eru á þessu ári og því næsta. Ásta B. Ólafsdóttir og Egill Sigurðsson eru skipuð í vinnuhópinn fyrir hönd hreppsnefndar. Kallað verður eftir fulltrúa ungmennafélagsins í vinnuhópinn.
28.
Bréf FEBFANG um þjónustu sveitarfélaga
Málsnúmer 2105025
Lagt fram tölvuskeyti frá fulltrúa Ásahrepps í Öldungaráði Rangárvallasýslu. Þar er kynnt bréf frá Félagi eldri borgara í Rangárvallasýslu þar sem rætt er um þjónustu sem sveitarfélögin veita eldri borgurum á svæðinu.
Til kynningar.
Sveitarstjórar hafa verið að yfirfara þessa þjónustu og kannað verður hvort hægt sé að samræma þessa þjónustu innan sveitarfélaganna.
29.
Orlof húsmæðra 2021
Málsnúmer 2105031
Lagt fram bréf Orlofs húsmæðra ásamt yfirliti yfir greiðslur sveitarfélaga í Árnes- og Rangárvallasýslu. Einnig lögð fram ársskýrsla og ársreikningur fyrir árið 2020.
Til kynningar.
30.
Ársskýrsla og ársreikningur 2020 Heilbrigðiseftirlits Suðurlands
Málsnúmer 2105033
Lögð fram árskýrsla 2020 ásamt ársreikningi 2020 fyrir Heilbrigðiseftirlit Suðurlands.
Til kynningar.
31.
15. stöðuskýrsla teymis um uppbyggingu félags- og atvinnumála
Málsnúmer 2105035
15. stöðuskýrsla teymis um uppbyggingu félags- og atvinnumála í kjölfar COVID-19 lögð fram.
Til kynningar.
32.
Umburðarbréf atvinnu- og nýsköpunarráðuneytis vegna breytinga á jarðalögum
Málsnúmer 2105038
Lagt fram umburðarbréf atvinnu- og nýsköðunarráðuneytis, dags. 28. maí 2021, þar sem kynntar eru breytingar á jarðalögum nr. 81/2004.
Til kynningar.
33.
Launaþróun sveitarfélaga; minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2106002
Lagt fram bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 1. júní 2021 ásamt minnisblaði um launaþróun sveitarfélaga dagsett 26. maí 2021.
Til kynningar.
34.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Sumarleyfi hreppsnefndar Ásahrepps verður í júlímánuði og verður næsti reglubundni fundur hreppsnefndar haldinn miðvikudaginn 18. ágúst 2021, en heimilt er þó að boða hreppsnefnd saman til fundar ef þörf krefur fram að 18. ágúst n.k.Sumarleyfi skrifstofu verður frá 1. júlí og til 6. ágúst n.k.
Samþykkt samhljóða.