Hreppsnefnd Ásahrepps
44. fundur
30. júní 2021
kl.
08:30
-
08:50
í fjarfundarkerfi Zoom
Nefndarmenn
Ásta Berghildur Ólafsdóttir
oddviti hrepssnefndar
Brynja Jóna Jónasdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Egill Sigurðsson
hreppsnefndarfulltrúi
Elín Grétarsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Guðmundur Jóhann Gíslason
hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 220. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 220. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 21-145.
Mál nr. 1; Hestás L204647; Ein lóð verður tvær lóðir; Deiliskipulagsbreyting - 2106077.
Ásta B. Ólafsdóttir víkur af fundi undir afgreiðslu þessa dagskrárliðar.
Lögð er fram umsókn frá Ástu B. Ólafsdóttur og Gísla Sveinssyni er varðar breytingu á deiliskipulagi Hestáss L204647. Í breytingunni felst að lóð Hestáss verði skipt upp í tvær lóðir. Svæðið er skilgreint sem íbúðar- og landbúnaðarsvæði innan aðalskipulags Ásahrepps.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir viðkomandi breytingar á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi og verði grenndarkynnt næstu nágrönnum. Hreppsnefndin mælist til þess að leitað verði umsagnar Vegagerðarinnar vegna málsins.
Mál nr. 2; Kálfholt K 1b L219273; Laufbrekka; Breytt heiti lóðar - 2106139.
Brynja J. Jónasdóttir víkur af fundi við afgreiðslu þessa dagskrárliðar.
Lögð er fram umsókn Brynju J. Jónasdóttur og Sigurðar Ó. Óskarssonar, dags. 9. júní 2021, um breytingu á staðfangi lóðar úr landi Kálfholts. Óskað er eftir að Kálfholt K 1b L219273 fái staðfangið Laufbrekka.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða breytingu á staðfangi þessarar lóðar.
Mál nr. 58; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 21-145 - 2106002F.
Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 21-145 lögð fram til kynningar.

2.
Fundargerð 88. fundar félagsmálanefndar
Lögð fram fundargerð 88. fundar félagsmálanefndar.
Til kynningar.
3.
Fundargerð 89. fundar félagsmálanefndar
Lögð fram fundargerð 89. fundar félagsmálanefndar Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu.
Til kynningar.
4.
Fundargerð 303. stjórnarfundar Sorpstöðvar Suðurlands
Lögð fram fundargerð 303. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Til kynningar.
5.
899. fundur stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 899. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
6.
Skilabréf og álit samstarfsnefndar um sameiningu Ásahrepps, Mýrdalshrepps, Rangárþings eystra, Rangárþings ytra og Skaftárhrepps
Lagt fram til seinni umræðu skilabréf og álit samstarfsnefndar um sameiningu Ásahrepps, Rangárþings ytra, Rangárþing eystra, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps. Í nóvember 2020 samþykktu sveitarstjórnir Ásahrepps, Mýrdalshrepps, Rangárþings eystra, Rangárþings ytra og Skaftárhrepps að skipa samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaganna samkvæmt 1. mgr. 119. gr. sveitarstjórnarlaga. Samstarfsnefnd hefur skilað áliti sínu til sveitarstjórna með skilabréfi dags. 7. júní og greinargerðinni Sveitarfélagið Suðurland-stöðugreining og forsendur dags. 7. júní 2021. Samstarfsnefndin kom saman á 11 bókuðum fundum. Samstarfsnefnd skipaði 5 starfshópa sem fjölluðu um málaflokka sveitarfélaganna og lögðu fram efni og upplýsingar í greiningu og tillögugerð. Minnisblöð frá vinnu starfshópa eru aðgengileg á vefsíðu verkefnisins og hefur verkefnið verið kynnt á íbúafundum og sjónarmiða þeirra aflað. Það er álit samstarfsnefndar að fram skuli fara atkvæðagreiðsla meðal íbúa sveitarfélaganna um sameiningu sveitarfélaganna í eitt. Lagt er til að atkvæðagreiðsla fari fram laugardaginn 25.september 2021 í öllum sveitarfélögunum. Samstarfsnefndin leggur einnig til við sveitarstjórnirnar að þær lýsi því yfir að þær muni ekki nýta heimild í 2. mgr. í 120. gr. sveitarstjórnarlaga, komi til þess að sameiningartillaga verði samþykkt af íbúum í hluta sveitarfélaganna, nema að undangengnu samráði við íbúa. Í því felst að hafni íbúar einhvers sveitarfélaganna sameiningartillögu í kosningum, munu aðrar sveitarstjórnir ekki taka ákvörðun um sameiningu þeirra sveitarfélaga án þess að hafnar verði nýjar sameiningarviðræður og kosið að nýju. Jafnframt leggur nefndin til að samstarfsnefnd verði falið að undirbúa atkvæðagreiðslu og kynna tillöguna og helstu forsendur fyrir íbúum sveitarfélaganna.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að kosning um sameininguna fari fram þann 25. september 2021, samhliða kosningum til Alþingis og felur samstarfsnefnd að undirbúa atkvæðagreiðsluna og kynna tillöguna og helstu forsendur fyrir íbúum.
Jafnframt skorar hreppsnefnd Ásahrepps á Alþingi og ríkisstjórn að bæta samgöngur innan svæðisins. Sérstök áhersla verði lögð á bundið slitlag á héraðs- og tengivegi, en á svæðinu eru rúmlega 1.300 km af héraðs- og tengivegum. Af þeim eru um 500 km malarvegir eða 38%. Um þá vegi ferðast börn og fullorðnir daglega til skóla og vinnu, en auk þess flytja vegirnir ferðamenn að mörgum fallegustu ferðamannastöðum landsins.

7.
Kynning á starfsemi NPA Setri Suðurlands
Lagt fram bréf NPA Seturs Suðurlands, dags. 7. júní 2021, þar sem óskað er eftir að fá að koma á fund hreppsnefndar Ásahrepps til að kynna starfsemi félagsins og hugmyndafærði þess.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að bjóða fulltrúum félagsins á næsta reglubundna fund hreppsnefndar sem haldinn verður þann 18. ágúst 2021.
8.
Stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs á vestursvæði
Lagt fram bréf umhverfis- og auðlindaráðuneytis, dags. 23. júní 2021, þar sem óskað er eftir afstöðu hreppsnefndar Ásahrepps gagnvart hugmyndum um stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs. Um er að ræða landsvæði norðan Tungnaár og austan sveitarfélagamarka við Rangárþing ytra.
Hreppsnefnd Ásahrepps er ekki tilbúin til að taka afstöðu til erindisins á þessum tímapunkti. Hreppsnefnd Ásahrepps telur að fyrirvari sé of skammur og gögn fátækleg. Hreppsnefnd þarf að kynna sér málið betur og óskar eftir frekari gögnum þ.m.t. korti sem sýnir umrætt landsvæði sem rætt er um. Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
9.
Styrkbeiðni vegna uppsetningar frisbígolfvallar að Laugalandi
Lagt fram tölvuskeyti frá Foreldrafélagi Laugalandsskóla, dags 25. júní 2021, þar sem óskað er eftir fjárstyrk sem nemur kostnaði við kaup á og uppsetningu einnar körfu á frisbígolfvelli sem verið er að setja upp á Laugalandi. Kostnaður við eina körfu er kr. 200.000.
Hreppsnefnd Ásahrepps fagnar því að upp verður settur löglegur keppnisvöllur í frisbígolfi að Laugandi og samþykkir samhljóða að veita styrk sem nemur kaupum og uppsetningu á einni körfu að upphæð kr. 200.000.
10.
16. stöðuskýrsla teymis um uppbyggingu félags- og atvinnumála í kjölfar COVID-19
Lögð fram 16. stöðuskýrsla teymis um uppbyggingu félags- og atvinnumála í kjölfar COVID-19.
Til kynningar.