Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

44. fundur
15. október 2025 kl. 08:30 - 11:20
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson hreppsnefndarfulltrúi
Karl Ölvirsson varamaður í hreppsnefnd
Þráinn Ingólfsson hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Arna Hrönn Aradóttir verkefnastsjóri farsældar kemur á fund hreppsnefndar ásamt Svövu Davíðsdóttur.
Málsnúmer 2510002
Arna Hrönn Aradóttir, verkefnastjóri farsældar, kynnti innleiðingu farsældar á svæði Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu, í upphafi fundar. Einnig mætti Svava Davíðsdóttir á fundinn undir þessum dagskrárlið.
Hreppsnefnd Ásahrepps þakkar Örnu Hrönn fyrir góða kynningu á þeim verkefnum sem framundan eru hjá Félags- og skólaþjónustu í málefnum farsældar.
2.
Fundargerð 310. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2509027
Lögð fram fundargerð 310. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU nr. 25-234.
Mál nr. 1; Sauðholt 3 L192998; Sauðholt 3A; Sauðholt 4 L217521; Staðfesting á afmörkun, stofnun og sameining lóða - 2509038
Lögð er fram umsókn ásamt undirrituðum merkjalýsingum dags. 20.08.2025, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar staðfestingu á hnitsettri afmörkun landeigna ásamt stofnun og sameiningu landeigna. Óskað er eftir að stofna 46,4 ha spildu, Sauðholt 3A, úr landi Sauðholts 3 L192998 sem verður 162,3 ha eftir skiptin. Jafnframt er óskað eftir að nýja spildan verði sameinuð við Sauðholt 4 L217521 sem verður um 51 ha skv. meðfylgjandi merkjalýsingum.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.

Mál nr. 2;
Ásmundarstaðir 1 3_5 L165265; Ásmundarstaðir 1B; Stofnun nýrrar lóðar - 2509052
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 25.08.2025, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar skiptingu jarðar. Óskað er eftir að stofna 65,6 ha landeign, Ásmundarstaðir 1B, úr jörðinni Ásmundarstaðir 1 3/5 L165265 sem verður 65,6 ha eftir skiptin 3 skv. meðfylgjandi merkjalýsingu.
Hreppsnefnd Ásahrepps hefur fengið í hendur skiptalýsingu ásamt uppdráttum sem skapar óvissu um stærð upprunalands. Í ljósi þessara gagna þá frestar hreppsnefnd Ásahrepps á málinu og vísar málinu til frekari skoðunar hjá skipulagsembætti UTU.

Mál nr. 25; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 25-234 - 2509003F
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 25-234
3.
Fundargerð 311. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2510011
Lögð fram fundargerð 311. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU nr. 25-235.
Mál nr. 1; Bergholt (L238505); byggingarleyfi; einbýlishús - 2509045.
Móttekin var umsókn þann 14.09.2025 um byggingarleyfi fyrir 137,8 fm íbúðarhúsi með innbyggðum bílskúr á landinu Bergholt L238505 í Ásahreppi.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir engar athugasemdir við framlagða umsókn um byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsi. Deiliskipulag fyrir svæðið hefur verið í ferli og er í lokaafgreiðslu hjá embætti skipulagsfulltrúa UTU. Erindinu er vísað til byggingarfulltrúa.

Mál nr. 4; Umsagnarbeiðni; Aðalskipulag Þingeyjarsveitar - 2509065.
Þingeyjarsveit hefur óskað eftir umsögn Ásahrepps vegna tillögu að nýju aðalskipulagi Þingeyjasveitar.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir engar athugasemdir að svo komnu máli við framlagða tillögu að aðalskipulagi Þingeyjasveitar.

Mál nr. 17; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 25-235 - 2509005F.
Lögð fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU nr. 25-235.
4.
Fundargerð 6. fundar Almannavarnarnefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu
Málsnúmer 2509030
Lögð fram fundargerð 6. fundar almannavarnarnefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu. 4. dagskrárliður þarfnast staðfestingar hreppsnefndar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti fjárhagsáætlun almannavarnarnefndar sem fram kemur í bókun undir 4. dagskrárlið.

Aðrir dagskrárliðir eru til kynningar. Jafnframt oru lagðar fram til kynningar atviksáltun vegna eldgoss undir Mýrdalsjökli og eldgos Heklu ásamt viðbragðsáætlun Hótels Höfðabrekku vegna eldgoss undir Mýrdalsjökli.
5.
Fundargerð 41. fundar stjórnar Odda bs.
Málsnúmer 2510005
Lögð fram fundargerð 41. fundar stjórnar Odda bs.
Til kynningar.
6.
Fundargerð 42. fundar stjórnar Odda bs. Haustfundur
Málsnúmer 2510006
Lögð fram fundargerð 42. fundar stjórnar Odda bs sem jafnframt var haustfundur Odda bs.
Til kynningar.
7.
Fundargerð 93. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu
Málsnúmer 2509026
Lögð fram fundargerð 93. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu (FSRV) ásamt viðauka 1 við fjárhagsáætlun 2025.
Í viðauka 1 kemur fram kostnaðarauki hjá byggðasamlaginu að upphæð kr. 24.210.000 sem stafar að mestu leyti af hækkun launakostnaðar vegna nýrra kjarasamninga. Einnig eru breytingar vegna heimaþjónustu. Heildaráhrif þessara breytinga fyrir Ásahrepp er að framlög sveitarfélagsins til Félags- og skólaþjónustu lækkar um kr. 3.519.485. Ástæða þess er að áætluð framlög Ásahrepps til heimaþjónustu lækkar um tæplega 4,7 mkr. en kostnaðarhækkun vegna launaþáttar og þjónustukaupa við farsæld barna er kr. 1.159.308.

Hreppsnefnd Ásarhepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti þennan viðauka Félags- og skólaþjónustu, en gerir engar breytingar á fjárhagsáætlun sinni þar sem heildarframlög Ásahrepps eru að lækka með þessum viðauka.

Aðrir dagskrárliðir eru til kynningar.
8.
Fundargerð 335. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Málsnúmer 2509024
Lögð fram fundargerð 335. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Til kynningar.
9.
Fundargerð 336. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Málsnúmer 2509028
Lögð fram fundargerð 336. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 87. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Málsnúmer 2509017
Lögð fram fundargerð 87. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
11.
Fundargerð 626. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2509019
Lögð fram fundargerð 626. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
12.
Fundargerð 984. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2509018
Lögð fram fundargerð 984. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
13.
Fundargerð 985. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2509029
Lögð fram fundargerð 985. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
14.
Fjárhagsáætlun sveitarsjóðs Ásahrepps 2026-2029
Málsnúmer 2510010
Lögð fram vinnuskjöl vegna forvinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2026-2029. Um er að ræða vinnugögn fyrir næsta ár 2026, þar sem annars vegar er drög að áætlun sett fram á bókhaldslykla og hinsvegar málaflokkayfirlit sem byggir á þeim forsendum draganna. Vinnuskjöl verða síðan uppfærð í takt við aðrar innsendar áætlanir samstarfsverkefna eftir því sem þær berast. Stefnt er að framlagningu áætlunar 2026-2029 til fyrri umræðu þann 19. nóvember 2025.
Forsendur fjárhagsáætlunar voru ræddar og bent á að þessi frumdrög ríma vel við þá fjögurra ára áætlun sem samþykkt var á síðasta ári.
15.
Málstefna Rangárþings ytra og Ásahrepps
Málsnúmer 2509012
Lögð fram drög að málstefnu fyrir Ásahrepp og Rangárþing ytra, til annarrar og lokaafgreiðslu.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi málstefnu fyrir sitt leyti. Hreppsnefnd Ásahrepps felur sveitarstjóra að birta málstefnuna á heimasíðu Ásahrepps.
16.
Styrklbeiðni Æskulýðsnefndar kirkna í Rangárvallasýslu
Málsnúmer 2509020
Lagt fram bréf Æskulýðsnefndar kirkna í Rangárvallasýslu, dags. 15. september 2025, þar sem óskað er eftir fjárstyrk til að fjármagna mótshald í Vatnaskógi fyrir fermingarbörn dagana 24. - 25. september 2025.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að styrkja verkefnið um kr. 20.000.
17.
Samkomulag um viðhald girðinga meðfram Hringvegi í Ásahreppi
Málsnúmer 2509022
Samkomulag við Vegagerðina um viðhald girðinga meðfram Hringvegi í Ásahreppi rennur út á þessu ári. Samkomulagið var gert 2011. Komið hefur fram í samskiptum við Vegagerðina að ræða þurfi hvert framhaldið verði á þessu verkefni.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að framlengja samning við Vegagerðina og viðhalda sama vinnulagi varðandi girðingar með þjóðvegi 1, líkt og undanfarin ár.
18.
Frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum í samráðsgátt
Málsnúmer 2509023
Innviðaráðuneytið hefur kynnt drög að frumvarpi til breytingar á sveitarstjórnarlögum, mál nr. 180/2025.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að fela oddvita að undirrita áskorun til stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga og innviðaráðherra.
19.
Styrkveiting til lagningar útivistarstíga í Ásahreppi
Málsnúmer 2510003
Lagðar fram þrjár (3) umsóknir um styrk til lagningar og viðhalds útivistsarstíga í Ásahreppi.
Helga B. Helgadóttir vék af fundi við afgreiðslu styrkbeiðni vegna útivistarstígs frá Skjólholti til Syðri-Hamra.

1. Skjólholt til Syðri-Hamra.
Áætluð verklok eru desember 2025.
Umsækjendur eru frá fjórum lögheimilum, þ.e. Áshamrar, Skjólholt, Syðri-Hamrar 3 og Syðri-Hamrar 5. Fyrir liggur greinargerð verkefnisstjóra um verkefnið sem lögð er fram.
Um er að ræða lagningu stígs frá þjóðvegi 1 að rúllplani á Syðri-Hömrum, 2 km, og frá rúlluplani að Steinslæk 520 metrar. Sótt er um styrk í flokki 1.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veittur verði styrkur allt að upphæð kr. 6 mkr til verkefnisins, en styrkur fæst greiddur gegn framvísun reikninga og að lokinni úttekt umsjónaraðila.

2. Útivistarstígur meðfram Vetleifsholtsvegi.
Áætluð verklok eru áramót 2025/2026.
Umsækjendur eru frá fjórum lögheimilum, þ.e. Kastalabrekku, Rifshalakoti, Vetleifsholti og Hrúti 2.
Um er að ræða lagningu stígs frá pípuhliði á sveitarfélagamörkum að hliði við Kastalabrekku. Fyrir liggur greinargerð verkefnisstjóra um verkefnið sem lög er fram. Sótt eru styrk í flokki 1.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veittur verði styrkur allt að upphæð kr. 6 mkr til verkefnisins, en styrkur fæst greiddur gegn framvísun reikninga og að lokinni úttekt umsjónaraðila.

3. Útivistarstígur meðfram Ásvegi.
Áætluð verklok eru 20. desember 2025.
Umsækjendur eru frá tuttugu og tveimur (22) lögheimilum, þ.e. Litla-Landi, Berustöðum 2, Berustöðum 2 lóð 1, Ási 1, Ási 2, Fákshólum, Skammalæk, Ásmúla, Ásbrú, Hestási, Viðarási, Steinási, Ási 1 (Ás-Sel), Áskoti 1, Hellatúni 1, Hellatúni 2, Vesturási, Vörðuholti, Fjallstúni, Sauðholti 2, Skógarási og Framnesi. Fyrir liggur greinargerð verkefnisstjóra um verkefnið sem lög er fram. Sótt eru styrk í flokki 2.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veittur verði styrkur allt að upphæð kr. 16,5 mkr til verkefnisins, en styrkur fæst greiddur gegn framvísun reikninga og að lokinni úttekt umsjónaraðila.
20.
Dagur sauðkindarinnar í Rangárvallasýslu, styrkbeiðni
Málsnúmer 2510007
Lagt fram tölvuskeyti Félags Saupðfjárbænda í Rangárvallasýslu, dags. 7. október 2025, þar sem óskað er eftir fjárstyrk að upphæð kr. 125.000 vegna kostnaðar við framkvæmd viðburðarins. Viðburðurinn var haldinn 11. október s.l. í reiðhöllinni Hvolsvelli. Jafnframt var lögð fram kostnaðaráætlun fyrir viðburðinn sem byggir á rauntölum frá síðasta ári.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita styrk að upphæð kr. 75.000 til verkefnisins.
21.
Styrkbeiðni Krabbameinsfélagsins Framför
Málsnúmer 2510008
Lagt fram tölvuskeyti Krabbameinsfélagsins Framfarar, dags. 30. september 2025, þar sem óskað er eftir fjárstyrk vegna styrktarátakinu "Blái trefillinn".
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita styrk að fjárhæð kr. 9.000.
22.
Landssamband lögreglumanna, styrkbeiðni
Málsnúmer 2510009
Lagt fram tölvuskeyti Landssambands lögreglumanna, dags. 18. september 2025 þar sem óskað er eftir fjárstyrk vegna útgáfu blaðsins Lögreglumaðurinn 2025.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að hafna erindinu.
23.
Stofnun lögbýlis á landspildu úr jörðinni Framnes, Nes 2
Málsnúmer 2510012
Lögð fram umsókn Hreggviðs L. Jónssonar um stofnun nýs lögbýlis á jörðinni Nes 2 (L230552) úr landi Framness í Ásahreppi. Fyrir liggur meðmæli Búnaðarsambands Suðurlands.Jafnframt er óskað eftir því að nafni spildunnar verði breytt úr Nes 2 í Birkines.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fyrir sitt leyti að stofnað verði lögbýli á áðurnefndri jörð. Hvað varðar breytingu á nafni jarðarinnar þá bendir hreppsnefnd umsækjanda að sækja um nafnabreytingu hjá skipulags- og byggingarembætti UTU. Sækja þarf um á þjónustugátt á heimasíðu UTU, www.utu.is.
24.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Málsnúmer 2101011
Lagt fram málaflokkayfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps fyrir tímabilið 1. janúar - 30. september 2025.
Til kynningar.
25.
Bréf Skógræktarfélags Íslands, nýskógrækt
Málsnúmer 2509021
Lagt fram bréf Skógræktarfélags Íslands, dags. 22. september 2025, þar sem kynnt er ályktun frá aðalfundi félagsins sem snýr að skipulagsmálum og nýskógrækt.
Til kynningar.
26.
Tölvuskeyti Náttúruverndarstofnunar, breyting á stjórnunar- og verndaráætlun VJÞ
Málsnúmer 2509025
Lagt fram tölvuskeyti Náttúruverndarstofnunar, dags. 25. september 2025, þar sem kynnt er breyting á stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs sem sent var til staðfestingar umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þann 19. september 2025.Lögð er fram greinargerð og kort sem málið varðar.
Til kynningar.
27.
Minningardagur um fórnarlömb umferðaslysa
Málsnúmer 2510001
Lagt fram bréf innviðaráðuneytisins, dags. 30. september 2025, þar sem kynntur er aðþjóðlegur minningardagur Sameinuðu þjóðanna um fórnarlömb umferðarslysa. Minningardagurinn verður haldinn 16. nóvember 2025.
Til kynningar.
28.
Kvennaverkfall 50 ára
Málsnúmer 2510004
Lagt fram tölvuskeyti Kvenréttindafélags Íslands, dags. 6. október 2025, þar sem vakin er athygli á að þann 24. október n.k. eru 50 ár liðin frá sögulegum Kvennafrídegi.
Til kynningar.
29.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn 19. nóvember 2025 á skrifstofu Ásahrepps. Fundur hefst klukkan 8:30.
Til kynningar.