Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

45. fundur
19. nóvember 2025 kl. 08:30 - 13:15
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson hreppsnefndarfulltrúi
Karl Ölvirsson varamaður í hreppsnefnd
Þráinn Ingólfsson hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 312. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2511011
Lögð fram fundargerð 312. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU nr. 25-236.
Mál nr. 1; Einholt L180119; Einholt 1 og 2; Stofnun lóða - 2510035.
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 13.10.2025, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun 2ja nýrra landeigna úr landi Einholts L180119. Óskað er eftir að stofna annars vegar 809,8 fm lóð, Einholt 1, og hins vegar 1.260,8 fm lóð, Einholt 2, undir fyrirhuguð íbúðarhús. Lóðirnar eru í samræmi við deiliskipulag fyrir svæðið sem er í ferli í skipulagsmáli nr. 2506106.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við stofnun lóðanna skv. fyrirliggjandi merkjalýsingu. Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemd við erindið. Hreppsnefndin bendir á að framkvæmdir innan lóða er háð byggingarleyfi eftir gildistöku deiliskipulags.

Mál nr. 2; Ás 3 1-8lóð L204637; Skilgreining frístundalóðar; Deiliskipulag - 2508021.
Lögð er fram tillaga deiliskipulags, eftir kynningu, sem tekur til Áss 3 I-8 lóð L204637 í Ásahreppi. Í deiliskipulaginu felst að skilgreindur er byggingarreitur á lóðinni þar sem heimilt er að reisa allt að 200 fm frístundahús, 40 fm gestahús og 25 fm geymslu. Umsagnir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða deiliskipulagið og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.

Mál nr. 21; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 25-236 - 2510002F.
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 25-236.
2.
Fundargerð 313. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2511043
Lögð fram fundargerð 313. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU nr. 25-237.
Mál nr. 1; Lindarbær 1A L165304; Skilgreining svæðis, sólarsellugarður og gróðurbelti; Aðalskipulagsbreyting - 2510003.
Lögð er fram skipulagslýsing sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Ásahrepps 2020-2032. Svæðið sem breytingin nær til er Lindarbær 1A L165304. Áætlað er að land verði áfram skilgreint sem landbúnaður með heimild til orkuvinnslu. Búfé verður beitt á lífrænt vottað land og að landbúnaður sé ríkjandi landnotkun. Auk þess verður heimilt að nýta landið til uppsetningar á sólsellum (ljósrafhlöðum) til raforkuframleiðslu og framleiða allt að 2,4 MW. Stefnt er að því að raforkan verður seld inn á dreifikerfi Rarik.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða skipulagslýsingu til kynningar og umsagna í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Hreppsnefnd Ásahrepps beinir því til skipulagsembættisins að haldinn verði íbúafundur í Ásahreppi þar sem þessar hugmyndir verða kynntar og gefinn kostur á umræðu íbúa um málið, áður en skipulagslýsing fer í auglýsingu.

Mál nr. 2; Lindarbær 1A L1a65304; Skilgreining svæðis, sólarsellugarður og gróðurbelti; Deiliskipulagsbreyting - 2510004.
Lögð er fram skipulagslýsing er varðar nýtt deiliskipulag fyrir Lindarbæ 1A L165304. Áætlað er að land verði áfram skilgreint sem landbúnaður með heimild til orkuvinnslu. Búfé verður beitt á lífrænt vottað land og að landbúnaður sé ríkjandi landnotkun. Auk þess verður heimilt að nýta landið til uppsetningar á sólsellum (ljósrafhlöðum) til raforkuframleiðslu og framleiða allt að 2,4 MW. Stefnt er að því að raforkan verður seld inn á dreifikerfi Rarik. Í deiliskipulagi verður gerð grein fyrir fyrirkomulagi mannvirkja innan jarðarinnar ásamt aðkomu,
plönum og nánar gerð grein fyrir framkvæmdum.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða skipulagslýsingu til kynningar og umsagna í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Hreppsnefnd Ásahrepps beinir því til skipulagsembættisins að haldinn verði íbúafundur í Ásahreppi þar sem þessar hugmyndir verða kynntar og gefinn kostur á umræðu íbúa um málið, áður en skipulagslýsing fer í auglýsingu.

Mál nr. 3; Sigölduvirkjun L165348; Efnistaka - náma E58; Framkvæmdarleyfi - 2511016.
Sótt er um framkvæmdaleyfi fyrir efnistöku úr námu E58 við Sigöldustöð. Heimilt verður að taka allt að 35.000 m3. Efni úr námunni verður einkum nýtt við framkvæmdir í tengslum við fyrirhugaða stækkun Sigöldustöðvar. Megnið af efninu verður tekið á næstu árum, mest árið 2027. Stærð svæðis er 1 ha.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemd við útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 5. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem engir aðrir hagsmunaaðilar eru innan svæðisins sem framkvæmdin tekur til en umsækjandi er ekki talin þörf á grenndarkynningu.

Mál nr. 4; Nes 2 L230552; Birkines; Breytt heiti lóðar - 2510054.
Lögð er fram umsókn er varðar nýjan staðvísi fyrir L230552. Óskað er eftir því að Nes 2 fái nafnið Birkines. Einnig vantar staðfestingu á hnitum á landamerkjum.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemd við nafnið Birkines skv. fyrirliggjandi umsókn og samþykkir erindið.
Hreppsnefnd Ásahrepps bendir á að til að hægt sé að staðfesta hnitin á landamerkjunum þá þarf að berast merkjalýsing.

Mál nr. 32; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 25-237 - 2510004F.
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU nr. 25-237.
3.
Fundargerð 43. fundar stjórnar Odda bs
Málsnúmer 2511022
Lögð fram fundargerð 43. fundar stjórnar Odda bs ásamt gjaldskrá Odda bs fyrir árið 2026 og fjárhagsáætlun Odda bs fyrir rekstrarárið 2026.
Dagskrárliðir nr. 1 og 2 þarfnast staðfestingar hreppsnefndar Ásahrepps.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti gjaldskrá og fjárhagsáætlun Odda bs fyrir árið 2026.
Aðrir dagskrárliðir eru til kynningar.
4.
Fundargerð 13. fundar stjórnar Húsakynna bs.
Málsnúmer 2511016
Lögð fram fundargerð 13. fundar stjórnar Húsakynna bs. Dagskrárliður 2 þarf staðfestingar hreppsnefndar Ásahrepps. Einnig lögð fram fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 ásamt fylgigögnum.
Gert er ráð fyrir að fjárfesting verði 100 mkr. með framlagi Ásahrepps sem fjármagnar hlut Rangárþings ytra í þessari fjárfestingu, skv. eignarhlut sveitarfélaga í Húsakynnum bs. Lagt er upp með að lánið komi til greiðslu eftir fimm ár án vaxta, en verðtryggt.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirkomulag fjármögnunar á fjárfestingu og fjárhagsáætlun Húsakynna bs. rekstrarárið 2026. Sveitarstjóra falið að ganga frá samkomulagi vegna fjármögnunar fjárfestingar. Hreppsnefnd Ásahrepps áréttar mikilvægi þess að lokið verði við viðhaldsframkvæmdir á skólastjórabústað eins og gert var ráð fyrir í fyrsta áfanga.
5.
Fundargerð 12. fundar stjórnar Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps
Málsnúmer 2511029
Lögð fram fundargerð 12. fundar stjórnar Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps ásamt fjárhagsáætlun 2026 og framkvæmdaáætlun 2026-2029.
Dagskrárliðir 2 og 3 þarfnast staðfestingar hreppsnefndar Ásahrepps.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkja samhljóða gjaldskrá Vatnsveitunnar 2026 (dagskrárliður 2) og einnig fjárhagsáætlun Vatnsveitunnar 2026 (dagskrárliður 3).
Aðrir dagskrárliðir til kynningar.
6.
Fundargerð 88. fundar stjórnar Brunavarna Rangárvalla
Málsnúmer 2511019
Lögð fram fundargerð 88. fundar stjórnar Brunavarna Rangáarvallasýslu bs ásamt fjárhagsáætlun fyrir rekstrarárið 2026.
Annar dagskrárliður þarfnast staðfestingu hreppsnefndar Ásahrepps.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti fjárhagsáætlun Brunavarna Rangárvallasýslu fyrir árið 2026.
Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.
7.
Fundargerð 251. fundar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Málsnúmer 2511033
Lögð fram fundargerð 251. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs. ásamt Viðauka við fjárhagsáætlun 2025 , gjaldskrá fyrir árið 2026 og fjárhagsáætlun fyrir rekstarárið 2026.
Dagskárliðir 5, 6 og 7 þarfnast staðfestingar hreppsnefndar Ásahrepps.

5. dagskrárliður; Fjárhagsáætlun 2025 - Viðauki 2511073
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti framlagðan viðauka við fjárhagsáætlun 2025. Viðaukinn kallar ekki á neina breytingu á fjárhagsáætlun Ásahrepps fyrir árið 2025.

6. dagskrárliður; Gjaldskrá 2026 - 2510023.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti framlagða gjaldskrá fyrir árið 2026.

7. dagskrárliður; Fjárhagsáætlun 2026 - 2510022.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti framlagða fjárhagsáætlun fyrir rekstarárið 2026.

Aðrir dagskrárliðir eru til kynningar.
8.
Fundargerð 94. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu
Málsnúmer 2511017
Lögð fram fundargerð 94. fundar Félags- og skólaþjónustu ásamt fjárhagsáætlun 2026 með fylgiskjölum.
Fyrsti dagskárliður þarfnast staðfestingar hreppsnefndar Ásahrepps.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fyrir sitt leyti fram lagaða fjárhagsáætlun fyrir rekstrarárið 2026.
Aðrir dagskrárliðir til kynningar.
9.
Fundargerð stjórnar Skógasafns, dags. 24. október 2025
Málsnúmer 2511023
Lögð fram fundargerð stjórnar Skógasafns, dags. 24. október 2025 ásamt fjárhagsáætlun fyrir rekstrarárið 2026.
Dagskrárliður nr. 2 þarfnast staðfestingar hreppsnefndar Ásahrepps.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti fjárhagsáætlun Skógasafns fyrir rekstrarárið 2026.
Fundargerð er að öðru leyti til kynningar.
10.
Fundargerð 8. fundar Héraðsnefndar Rangæinga
Málsnúmer 2511018
Lögð fram fundargerð 8. fundar Héraðsnefndar Rangæinga ásamt fjárhagsáætlun 2026.
Fjórði dagskrárliður þarfnast staðfestingu hreppsnefndar Ásahrepps.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti fjárhagsáætlun Héraðsnefndar Rangæinga fyrir rekstrarárið 2026.
Aðrir dagskrárliðir eru til kynningar.
11.
Fundargerð 7. fundar Odda bs, vinnufundur
Málsnúmer 2511008
Lögð fram fundargerð 7. vinnufundar Odda bs.
Til kynningar.
12.
Fundargerð 250. fundar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Málsnúmer 2511002
Lögð fram fundargerð 250. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Til kynningar.
13.
Fundargerð stjórnar Skógasafns, dags. 1. júlí 2025
Málsnúmer 2511013
Lögð fram fundargerð stjórnar Skógasafns sem haldinn var 1. júlí 2025.
Til kynningar.
14.
Fundargerð Héraðsráðs Héraðsnefndar Rangæinga, dags. 21. október 2025
Málsnúmer 2511010
Lögð fram fundargerð Héraðsráðs Héraðsnefndar Rangæinga, dags. 21. október 2025.
Til kynningar.
15.
Fundargerð 11. fundar stjórnar Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps
Málsnúmer 2511028
Lögð fram fundargerð 11. fundar stjórnar Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps.
Til kynningar.
16.
Fundargerð 128. fundar stjórnar UTU
Málsnúmer 2511004
Lögð fram fundargerð 128. fundar stjórnar UTU.
Til kynningar.
17.
Fundargerð 88. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Málsnúmer 2511007
Lögð fram fundargerð 88. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
18.
Fundargerð aðalfundar Bergrisans 2025
Málsnúmer 2511012
Lögð fram fundargerð aðalfundar Bergrisans, sem haldinn var 9. október 2025.
Jafnframt voru lögð fram fundargögn aðalfundar, skýrsla stjórnar, samþykkt fjárhagsáætlun 2026 ásamt greinargerð og útkomuspá 2025.
Til kynningar.
19.
Fundargerð 337. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Málsnúmer 2511009
Lögð fram fundargerð 337. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Til kynningar.
20.
Fundargerð 338. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Málsnúmer 2511041
Lögð fram fundargerð 338. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Til kynningar.
21.
Fundargerð 247. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Málsnúmer 2511036
Lögð fram fundargerð 247. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands.
Til kynningar.
22.
Fundargerð 248. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Málsnúmer 2511037
Lögð fram fundargerð 248. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands.
Lögð fram fundargerð 248. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands.
Til kynningar.
23.
Fundargerð aðalfundar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands bs 2025
Málsnúmer 2511038
Lögð fram fundargerð aðalfundar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands bs, sem haldinn var 24. október 2025. Einnig lögð fram fjárhagsáæltun fyrir rekstrarárið 2026 ásamt skiptingu framlaga aðildarsveitarfélaga.
Til kynningar.
24.
Fundargerð 249. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Málsnúmer 2511039
Lögð fram fundargerð 249. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands.
Til kynningar.
25.
Fundargerð 3. fundar stjórnar Markaðsstofu Suðurlands
Málsnúmer 2511042
Lögð fram fundargerð 3. fundar stjórnar Markaðsstofu Suðurlands.
Til kynningar.
26.
Fundargerð 627. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2511003
Lögð fram fundargerð 627. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
27.
Fundargerð 628. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2511034
Lögð fram fundargerð 628. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
28.
Fundargerð 629. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2511035
Lögð fram fundargerð 629. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
29.
Fundargerð 986. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2511005
Lögð fram fundargerð 986. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
30.
Fundargerð 987. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2511015
Lögð fram fundargerð 987. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
31.
Fundargerð 988. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2511024
Lögð fram fundargerð 988. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
32.
Gjaldskrá Ásaljóss 2026
Málsnúmer 2511026
Lögð fram tillaga að gjaldskrá Ásaljóss fyrir árið 2026.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagða tillögu að gjaldskrá og skal hún gilda frá 1. janúar 2026.
33.
Gjaldskrá fyrir hreinsun rotþróa 2026
Málsnúmer 2511027
Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir hreinsun rotþróa í Ásahreppi árið 2026.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagða tillögu að gjaldskrá vegna hreinsunar rotþróa og felur sveitarstjóra að birta hana í B-deild Stjórnartíðinda.
34.
Ákvörðun um álagningu útsvars, gjalda og gjaldskrár 2026
Málsnúmer 2511025
Lögð fram tillaga um álagningu útsvars, gjalda og gjaldskrár fyrir árið 2026.
1.
Álagningarprósenta útsvars 2026.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að álagningarprósenta útsvars skuli vera 14,97%.

2.
Álagningarhlutfall fasteignaskatts 2026.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að álagningaprósenta fasteignaskatts verði:
A
0,15% af fasteignamati á íbúðarhúsnæði, bílageymslur, geymsluhúsnæði, lönd og útihús í landbúnaði og sumarhús, allt með tilheyrandi lóðum.
B
1,32% af fasteignamati sjúkrastofnana skv. lögum um heilbrigðisþjónustu, skóla, heimavista, leikskóla, íþróttahúsa og bókasafna, að meðtöldum lóðum og lóðarréttindum.
C
1,65% af fasteignamati allra annarra fasteigna með tilheyrandi lóðum, þó að undanskildum fasteignum í 0 flokki.
Afsláttur af fasteignaskatti til fasteignaeigenda sem eru 67 ára og eldri, eða 75% öryrkjar eða meira, og eiga lögheimili í viðkomandi fasteign fer eftir samþykkt um tekjutengdan afslátt af fasteignaskatti sem samþykkt var af hreppsnefnd Ásahrepps 13. desember 2017.
Gjalddagar verða sex (6) talsins árið 2026, fyrsta hvers mánaðar frá 1. febrúar til 1. júlí. Þar sem heildarupphæð er undir kr. 20.000 er einn gjalddagi, 1. apríl. eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga.
Ekki verða sendir út greiðsluseðlar né álagningarseðlar í bréfpósti. Álagningarseðlar eru aðgengilegir á heimsíðunni www.island.is. Stofnuð verður krafa í heimabanka með sama hætti og áður sem hægt er að greiða rafrænt. Þeir sem óska þess að fá áfram send skjöl með bréfpósti gefst kostur á því og er bent á að hafa samband við skrifstofu hreppsins.

3.
Gjaldskrá kaldavatnsveitu 2026.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að vatsgjöld verði samkvæmt gjaldskrá Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps bs.

4.
Gjaldskrá vegna meðhöndlunar úrgangs 2026.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að gjald fyrir meðhöndlun úrgangs verði samkvæmt gjaldskrá Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs fyrir sorphirðu og sorpeyðingu.

5.
Gjaldskrá íþróttamiðstöðvarinnar á Hellu, Laugalandi og Þykkvabæ 2026.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að gjaldtaka vegna almennrar notkunar íþróttamiðstöðvanna fari eftir sameiginlegri gjaldskrá Rangárþing ytra og Ásahrepps.

6.
Gjaldskrá fyrir hreinsun rotþróa 2026.
Gjöld vegna hreinsun rotþróa í Ásahreppi fer eftir gjaldskrá sem samþykkt var 19. nóvember 2025. Þar kemur fram að árleg rotþróargjald vegna rotþróa allt að 6000 lítra sem tæmdar eru þriðja hvert ár verði kr. 13.500, en þær sem tæmdar eru fimmta hvert ár kr. 8.100.


7.
Heimgreiðslur 2026.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að reglur um heimgreiðslur, frá 1. janúar 2025, verði óbreyttar og hámarksupphæð verði kr. 125.000.

8.
Íþrótta- og tómstundastyrkur 2026.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að reglur um íþrótta- og tómstundastyrki, frá nóvember 2024, verði óbreyttar og styrkur geti numið allt að kr. 100.000.

9.
Hvatastyrkur til íbúa eldri en 60 ára til íþrótta- og heilsustyrkingar 2026.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita íbúum Ásahrepps hvatastyrk til heilsuefnlingar og félagslegrar virkni að upphæð allt að kr. 75.000 á hvern íbúa eldri en 60 ára, gegn framvísun greiðslukvittunar fyrir kostnaði er lýtur að heilsurækt og félagslegrar virkni viðkomandi á árinu 2026. Vísað er til reglna um hvatastyrki sem samþykktar voru 20. desember 2023.

10.
Leikskólagjald.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að leikskólagjöld verið skv. útgefinni gjaldskrá Odda bs. fyrir árið 2026.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita aukinn afslátt til einstæðra foreldra, námsmanna og öryrkja.
Afslættir verði:
Einstæðir foreldrar: 50%
Námsmenn: annað foreldri 25% en ef báðir foreldrar 50%
Öryrkjar: annað foreldri 25% en ef báðir foreldrar 50%.

11.
Mötuneytiskostnaður leik- og grunnskólabarna.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrri ákvörðun hreppsnefndar frá desember 2017 að greitt verði áfram 100% mötuneytisgjald fyrir öll leik- og grunnskólabörn á árinu 2026. Niðurgreiðslurnar gilda fyrir börn með lögheimili og aðsetur í Ásahreppi.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir framlagða tillögu sem er í 11 liðum og felur sveitarstjóra að birta á heimasíðu Ásahrepps og tilkynna til fjármálaráðuneytis ákvörðun sína um álagningarprósentu útsvars 2026.
35.
Fjárhagsáætlun sveitarsjóðs Ásahrepps 2026-2029
Málsnúmer 2510010
Lögð fram drög að fjárhagsáætlun Ásahrepps fyrir árin 2026-2029, fyrri umræða.
Sveitarstjóri fór yfir framlagða tillögu að fjárhagsáætlun sveitarsjóðs Ásahrepps fyrir árin 2026-2029, gerði grein fyrir ýmsum liðum áætlunar og svaraði fyrirspurnum.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að vísa framlagðri fjárhagsáætlun til síðari umræðu og lokaafgreiðslu, sem mun fara fram á aukafundi í desember n.k.
36.
Styrkveiting til lagningar útivistarstíga í Ásahreppi
Málsnúmer 2510003
Lögð var fram stöðuskýrsla um verkefni sem hafa fengið vilyrði um styrk til uppbyggingar útivistarstíga. Einnig lögð fram umsókn um styrk vegna lagningar útivistarstíga frá Sumarliðabæ 2. Umsóknin er ekki fullútfærð skv. reglum og umsóknareyðublaði sveitarfélagsins. Umræða fór fram um fyrirkomulag útborgunar styrkja til lagningar útivistarstíga í Ásahreppi.
Umræða varð um fyrirkomulag útborgunar styrkja vegna lagningar útivistarstíga í Ásahreppi. Sveitarstjóra falið að útfæra viðauka við gildandi reglur í samræmi við umræður og leggja fram á næsta fundi hreppsnefndar. Viðaukinn er ætlaður til einföldunar á fyrirkomulagi útborgana.
Varðandi framlagða styrkumsókn á þessum fundi, þá er Kristínu og Ísleifi falið að hitta og ræða við umsækjendur.
37.
Styrkbeiðni vegna aðventuhátíðar 2025
Málsnúmer 2510013
Lagt fram bréf Kvenfélagsins Einingar, dags. 10. október 2025, þar sem óskað er eftir fjárstyrk til að standa straum af kostnaði við aðventuhátíð á Laugalandi þann 30. nóvember n.k. líkt og undanfarin ár.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita styrk að upphæð kr. 30.000.
38.
Umsagnarbeiðni um breytingu á rekstrarleyfi vegna Hestheima
Málsnúmer 2511006
Lagt fram bréf Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 10. júlí 2025 (Málsnúmer: 2021-013809) þar sem óskað er eftir umsögn vegna umsóknar um breytingu á gistileyfi. Umsækjandi er Eignarhaldsfélagið Einhamar ehf, kt. 571014-1220. Sótt er um breytingu á leyfi til reksturs gistisstaðar í flokki IV-B Stærra gistiheimili. Staðsetning er að Hestheimum í Ásahreppi, fasteignanúmer: 225-3008. Rýmisnúmer 01 0101 gistihús og veitingar, 01 0102 gestahús, 03,04,07,08,09,10 og 12 gestahús.Jákvæð umsögn byggingarfulltrúa UTU barst 15. október 2025.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemdir við að umrætt leyfi verði veitt.
39.
Samkomulag um viðhald girðinga meðfram Hringvegi í Ásahreppi
Málsnúmer 2509022
Lögð fram drög að samkomulagi milli Ásahrepps og Vegagerðarinnar um viðhald girðinga meðfram Hringveginum (1) um Ásahrepp.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að samkomulagi og felur sveitarstjóra að ganga frá endanlegri gerð samkomulagsins með Vegagerðinni og undirrita samkomulagið fyrir hönd Ásahrepps.
40.
Húsaleigusamningur fasteignar að Laugalandi (219-7249), skrifstofuhúsnæði
Málsnúmer 2511020
Lögð fram drög að húsaleigusamningi milli Húsakynna bs og Ásahrepps vegna leigu á húsnæði undir skrifstofu Ásahrepps í neðri hæð skólastjórabústaðar. Um er að ræða eignarhluta með fastanúmer 219-7249 samkvæmt Fasteignaskrá Íslands.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi húsaleigusamning og felur sveitarstjóra að ganga frá samningi við Húsakynni bs og undirrita hann fyrir hönd Ásahrepps.
41.
Landspildur í Safamýri
Málsnúmer 2511021
Sýslumaðurinn á Suðurlandi hefur sent hreppsnefnd Ásahrepps erindi, dags. 3. nóvember 2025, er varðar landspildur sem tilheyra jörðum í Þykkvabæ en eru sitthvoru megin við hreppamörk Ásahrepps og Rangárþings ytra. Spildurnar í Safamýri hafa alltarf fylgt með jörðum í Þykkvabæ og eru skráðar í Rangárþingi ytra þó svo að þær falli innan Ásahrepps miðað við núgildandi hreppamörk. Ræddar hafa verið leiðir til að leiðrétta skráningu spildnanna, en segja má að þær séu í nokkurskonar gíslingu miðað við stöðuna í dag. Þrjár leiðir hafa verið nefndar til lausnar þessu vandamáli. Í fyrsta lagi að færa mörk sveitarfélaganna, í öðru lagi að leysa málin sem misræmismál og í þriðja lagi að stofna þá hluta jarðanna sem liggja innan marka Ásahrepps á hefðbundinn hátt.
Hreppsnefnd Ásahrepps hugnast best að leið 3 verði farin. Kanna þarf betur hvernig hægt er að skilgreina þessar landspildur í merkjalýsingu og úr hvaða upprunalandi þær verði stofnaðar.
42.
Framtíð félagsheimilisins Ásgarðs
Málsnúmer 2110025
Lagt fram tölvuskeyti Kristins Reynissonar, dags. 10. nóvember 2025, þar sem hann óskar eftir að fá félagsheimilið Ásgarð leigt.
Hreppsnefnd Ásahrepps getur ekki tekið afstöðu til erindisins. Húsið er ekki í eigu sveitarfélagsins nema um 10%, en ekki hefur enn náðst að þinglýsa lóðarleigusamningi ennþá. Í þeim lóðarleigusamningi sem gerður hefur verið milli landeigenda og Ungmennafélags Ásahrepps er tekið sérstaklega fram hvaða starfsemi megi vera í húsinu, en það er ekki gert ráð fyrir að breyta því í íbúðarhúsnæði.
43.
Öryggisúttekt BSI á Íslandi á Íþróttamiðstöðinni á Laugalandi
Málsnúmer 2511030
Lögð fram öryggisúttekt BSI á Íslandi fyrir Íþróttamiðstöðina á Laugalandi, íþróttahús og sundlaug.
Hreppsnefnd Ásahrepps þakkar fyrir að þessi úttekt hafi verið framkvæmd, sem sýnir að ráðast þarf í ýmsar úrbætur sem allra fyrst til að tryggja öryggi þeirra sem nýta þessi íþróttamannvirki.
Mikilvægt er að Húsakynni bs taki þessa úttekt til skoðunar og geri tímasetta aðgerðaráætlun til að koma öryggismálum í lag hjá Íþróttamiðstöðinni.
44.
Uppsögn úr starfi byggðaþróunarfulltrúa.
Málsnúmer 2511031
Lagt fram tölvuskeyti sveitarstjóra Rangárþings ytra, dags. 4. nóvember 2025 ásamt uppsagnarbréfi Stefáns F. Friðrikssonar, þar sem hann tilkynnir uppsögn sína úr starfi byggðaþróunarfulltrúa Rangárvallasýslu.Sveitarstsjóri Rangárþings eystra er að vinna að auglýsingu starfsins og vill kanna hug hreppsnefndar Ásahrepps um beina þátttöku í verkefninu að þessu sinni.
Hreppsnefnd Ásahrepps sér ekki ástæðu til að breyta aðkomu sinni að verkefninu að sinni.
45.
Starfsmannamál
Málsnúmer 2511032
Lagt fram bréf Ragnheiðar Á. Ólafsdóttur, dags. 28. október 2025, þar sem hún segir upp störfum hjá Ásahreppi með þriggja mánaða uppsagnarfresti. Áætluð starfslok eru því í lok janúar 2026.
Umræða varð um stöðu mála hjá skrifstofu Ásahrepps. Hreppsnefnd samþykkir samhljóða að auglýsa stöðu hjá skrifstofu Ásahrepps sem fyrst. Um væri að ræða 70 - 100% starf. Sveitarstjóra falið að vinna starfslýsingu og ræða við ráðningarskrifstofu sem fyrst. Jafnframt verði unnir viðaukar við núverandi ráðningasamninga þar til nýr starfsmaður hefur hafið störf.
46.
Beiðni um fjárstyrk til Sigurhæða árið 2026
Málsnúmer 2511040
Lagt fram bréf Sigurhæða, dags. 12. nóvember 2025, þar sem sótt er um styrk að fjárhæð kr. 160.281 frá Ásahreppi til reksturs verkefnisins árið 2026.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að verða við styrkbeiðninni fyrir árið 2026.
47.
Þingmál 101; Þingályktunartillaga um breytingu á þingsályktun nr. 24 152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða
Málsnúmer 2503017
Lagt fram tölvuskeyti nefnda- og greiningarsviðs Alþingis, dags. 6. mars 2025, þar sem þingmál 101; þingsályktunartillaga um breytingu á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæði, er sent til umsagnar.
Hreppsnefnd Ásahrepps ítrekar fyrri umsögn sína um þingsályktunartillöguna, dags. 19. mars 2025, sem lýtur að hugmyndum um Skrokkölduvirkjun, Urriðafossvirkjun og Kjalölduveitu.
48.
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun nr. 48-2011
Málsnúmer 2511044
Lagt fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun nr. 48/2011.
Hreppsnefnd Ásahrepps tekur undir umsögn Samtaka orkusveitarfélaga dags. 22. apríl 2025.
49.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Málsnúmer 2101011
Lagt fram málaflokkayfirlit fyrir sveitarsjóð Ásahrepps fyrir tímabilið 1. janúar til 31. október 2025.
Til kynningar.
50.
Farsældarráð á Suðurlandi
Málsnúmer 2511001
Lagt fram tölvuskeyti Örnu Ír Gunnarsdóttur, verkefnastjóra farsældarráðs á Suðurlandi, dags. 12. október 2025 þar sem kynnt eru drög að skipuriti Farsældarráðs á Suðurlandi ásamt samstarfsyfirlýsingu um svæðisbundinn samráðsvettvang á Suðurlandi.
Til kynningar.
51.
Kæra Náttúrugriða vegna útgáfu tveggja framkvæmdaleyfa í sambandi við fyrirhugaða stækkun Sigöldustöðvar
Málsnúmer 2504010
Lagður fram úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 56/2025, vegna kæru ákvörðunar Ásahrepps um útgáfu framkvæmdaleyfis fyrir athafnasvæði vegna stækkunar Sigölduvirkjunar.Málinu var vísað frá.
Til kynningar.
52.
Kæra nr. 101-2025; Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála; Sauðholt
Málsnúmer 2509004
Lagður fram úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 101/2025, vegna kæru ákvörðunar Ásahrepps um að samþykkja nýtt deiliskipulag vegna Sauðholts 2. Málinu var vísað frá.
Til kynningar.
53.
Fundargerð íbúafundar í Fljótsdalshreppi 21. október 2025
Málsnúmer 2511014
Lögð fram fundargerð íbúafundar í Fljótsdalshreppi sem haldinn var 21. október 2025. Í fundargerð kemur fram ályktun vegna lagafrumvarps sem kynnt hefur verið í Samráðsgátt stjórnvalda um breytingar á sveitarstjórnarlögum.
Til kynningar.
54.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn 17. desember 2025 á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi. Fundur hefst klukkan 8:30.
Til kynningar.