Hreppsnefnd Ásahrepps
45. fundur
18. ágúst 2021
kl.
08:30
-
09:30
í fjarfundarkerfi Zoom
Nefndarmenn
Ásta Berghildur Ólafsdóttir
oddviti hrepssnefndar
Brynja Jóna Jónasdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Egill Sigurðsson
hreppsnefndarfulltrúi
Elín Grétarsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Guðmundur Jóhann Gíslason
hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Kynning á starfsemi NPA Setri Suðurlands
Fulltrúar NPA Seturs Suðurlands, þær Hafdís Bjarnadóttir og Inga Sveinbjörg Ásmundsdóttir, mættu á fund hreppsnefndar Ásahrepps og kynntu starfsemi félagsins.
Umræða varð um starfsemi félagsins. Hreppsnefnd Ásahrepps þakkar fulltrúum NPA setursins fyrir greinargóðar upplýsingar. Hafdís og Inga yfirgáfu fundinn í lok þessa dagskrárliðar.
2.
Fundargerð 221. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 221. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt afgreiðslum byggingarfulltrúa 21-146.
Mál nr. 1; Efriás L230349; Deiliskipulag - 2107032.
Lögð er fram umsókn frá Z-Gardínubrautum ehf er varðar nýtt deiliskipulag að Efriás L230349. Í deiliskipulaginu felst heimild fyrir byggingu íbúðarhúss, þriggja gestahúsa og úthúss/skemmu.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða deiliskipulagið og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins. Auglýsing skipulagsins verði sérstaklega kynnt eigendum aðliggjandi landeigna.
Mál nr. 34; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 21-146 - 2107001F.
Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa 21-146 lögð fram til kynningar.
Lögð er fram umsókn frá Z-Gardínubrautum ehf er varðar nýtt deiliskipulag að Efriás L230349. Í deiliskipulaginu felst heimild fyrir byggingu íbúðarhúss, þriggja gestahúsa og úthúss/skemmu.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða deiliskipulagið og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins. Auglýsing skipulagsins verði sérstaklega kynnt eigendum aðliggjandi landeigna.
Mál nr. 34; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 21-146 - 2107001F.
Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa 21-146 lögð fram til kynningar.
3.
217. fundur stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu
Lögð fram fundargerð 217. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu, ásamt tillögu að nýrri gjaldskrá í kjölfar hækkana hjá þjónustuaðilum.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að staðfesta bókun stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs og samþykkir breytingu á gjaldskrá fyrir sitt leyti. Jafnframt er hreppsnefnd Ásarhepps ekki neikvæð fyrir sitt leyti að tekið verði upp klippikortakerfi fyrir fasteignaeigendur í Rangárvallasýslu frá og með næstu áramótum, en óskar eftir nánari útfærslu á framkvæmdinni áður en hún verði samþykkt.
Fundargerð að öðru leyti til kynningar.
Fundargerð að öðru leyti til kynningar.
4.
Fundargerð 12. fundar stjórnar Skógasafns
Lögð fram fundargerð 12. fundar stjórnar Skógasafns ásamt ársskýrslu 2020.
Til kynningar.
5.
Fundargerð 42. fundar stjórnar Odda bs.
Lögð fram fundargerð 42. fundar stjórnar Odda bs.
Til kynningar.
6.
Stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs á vestursvæði
Bréf umhverfis- og auðlindaráðuneytis, dags. 23. júní 2021, lagt fram að nýju, en málinu var frestað á 44. fundi hreppsnefndar og óskað eftir frekari gögnum.
Þar sem frekari gögn hafa ekki borist eins og hreppsnefnd óskaði eftir þá frestar hreppsnefnd Ásahrepps að taka málið fyrir efnislega, eða þar til að frekari gögn hafa borist.
7.
Athugasemdir við tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi Ásahrepps
Lagðar fram athugasemdir Samtaka útivistarfélaga, dags. 25. júní 2021, við tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi Ásahrepps.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að vísa þessum athugasemdum til vinnuhóps um endurskoðun aðalskipulags Ásahrepps. Sveitarstjóri hefur þegar sent athugasemdirnar á skipulagsráðgjafa og skipulagsfulltrúa.
8.
Reglur um lækkun og niðurfellingu dráttarvaxta á fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði
Lagt fram tölvuskeyti Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 16. júlí 2021, ásamt drögum að reglum um lækkun og niðurfellingu dráttarvaxta á fasteignaskatta á atvinnuhúslnæði.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að ekki sé ástæða fyrir Ásahrepp að svo komnu máli að setja á slíkar reglur.
9.
Bæjarmerkingar með Ásvegi; svæðisskilti
Lagt fram tölvuskeyti Vegagerðarinnar þar sem bent er á að upplýsingaskilti neðan Landvegamóta veitir ekki upplýsingar um ný íbúðarhús / nýbýli í Ásahreppi. Það miklar viðbætur hafa verið er varðar byggð með Ásvegi að ekki er unnt að koma því inn á núverandi skilti. Ef gera skal nýtt skilti með uppfærðum upplýsingum mun það vera á kostnað sveitarfélaganna.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að skiltið verði endurnýjað fyrir sitt leyti og eiga skal samráð við Rangárþing ytra um endurnýjun skiltisins.
10.
Ákvörðun um fyrirkomulag stjórnsýslu Ásahrepps vegna Covid-19.
Ákvörðun um fyrirkomulag hreppsnefndarfundar í septembermánuði.
Í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu samþykkir hreppsnefnd Ásahrepps samhljóða að næsti fundur verði fjarfundur, þar sem heimild hefur verið gefin fyrir því fyrirkomulagi hreppsnefndafunda til 1. október 2021.
11.
Beiðni um umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi fyrir gistingu; Hellatún
Lagt fram bréf Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 8. júlí 2021 þar sem óskað er eftir umsögn hreppsnefndar Ásahrepps vegna umsóknar Lindutúns ehf (kt: 700718-0340), Hellatúni, um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II-C.
Jákvæð umsögn byggingarfulltrúa liggur fyrir. Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemdir við að rekstrarleyfi verði veitt.
12.
Hugmyndir um upplýsingamiðstð Vatnajökulsþjóðgarðs í Hrauneyjum
Lagðar fram til upplýsinga hugmyndir Vatnajökulsþjóðgars um upplýsingamiðstöð í Hrauneyjum.
Til kynningar.
13.
Auglýsing um ákvörðun ráðherra til að tryggja starfhæfi og nýtt heimildarákvæði sveitarstjórnarlaga
Lögð fram auglýsing um ákvörðun ráðherra til að tryggja starfhæfi og nýtt heimidarákvæði sveitarstjórnarlaga. Með þessu er heimild veitt til að hreppsnefndarfundir, sem og aðrir nefndarfundir, verði haldnir í fjarfundarbúnaði. Heimild gildir til 1. október 2021.
Til kynningar.
14.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Lagt fram rekstraryfirlit fyrir sveitarsjóð Ásahrepps frá 1. janúar 2021 til 31. júlí 2021.
Til kynningar.
15.
Íbúafundir vegna tillögu um sameiningu sveitarfélaga í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu
Samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaga í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu hefur samþykkt á síðasta fundi sínum sem haldinn var föstudaginn 13. ágúst 2021 að íbúafundir verði haldnir í öllum sveitarfélögunum í fyrir hluta september n.k. Fundirnir eru staðarfundir en verður jafnframt streymt á netinu. Rangárþing eystra, 6. september í Hvoli kl. 20:00 Mýrdalshreppur, 9. september í Leikskálum kl. 20:00Skaftárhreppur, 13. september í Kirkjuhvoli kl. 20:00Ásahreppur, 14. september að Laugalandi kl. 20:00Rangárþing ytra, 15. september í íþróttahúsinu Hellu kl. 20:00
Til kynningar.
16.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn 15. september n.k. og verður haldinn í fjarfundarbúnaði Zoom. Fundur hefst klukkan 8:30.
Til kynningar.