Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

46. fundur
10. desember 2025 kl. 08:30 - 10:00
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson hreppsnefndarfulltrúi
Karl Ölvirsson varamaður í hreppsnefnd
Þráinn Ingólfsson hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 131. fundar stjórnar UTU
Málsnúmer 2512004
Lögð fram fundargerð 131. fundar stjórnar UTU ásamt gjaldskrám fyrir annars vegar vegna skipulagsmála og hins vegar vegna byggingarmála og fjárhagsáætlun UTU bs fyrir árið 2026.Hreppsnefnd Ásahrepps þarf að til afgreiðslu dagskárliði 1 og 2 í fundargerð.
Dagskrárliður 1; Gjaldskrár UTU 2026.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti báðar gjaldskrárnar, þ.e. vegna skipulagsmála og vegna byggingarmála.

Dagskrárliður 2; Fjárhagsáætlun UTU 2026.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti fjárhagsáætlun UTU 2026.

Aðrir dagskrárliðir til kynningar.
2.
Fundargerð 37. fundar stjórnar Tónlistarskóla Rangæinga bs
Málsnúmer 2512005
Lögð fram fundargerð 37. fundar stjórnar Tónlistarskóla Rangæinga bs ásamt Viðauka við fjárhagsáætlun 2025 og fjárhagsáætlun 2026.Dagskrárliðir nr. 2 og 3 þarfnast afgreiðslu hreppsnefndar Ásahrepps.
Dagskrárliður 2; Fjárhagsáætlun Tónlistarskóla Rangæinga bs. 2025 - Viðaukar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti framlagðan viðauka. Viðaukinn kallar ekki á aukið fjárframlag frá Ásahreppi, þannig að ekki er þörf á viðauka við fjárhagsáætlun Ásahrepps 2025.

Dagskrárliður 3; Fjárhagsáætlun Tónlistarskóla Rangæinga bs. 2026.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti fram lagða fjárhagsáætlun fyrir rekstrarárið 2026.

Aðrir dagskrárliðir eru til kynningar.
3.
Fundargerð 129. fundar stjórnar UTU
Málsnúmer 2512002
Lögð fram fundargerð 129. fundar stjórnar UTU.
Til kynningar.
4.
Fundargerð 130. fundar stjórnar UTU
Málsnúmer 2512003
Lögð fram fundargerð 130. fundar stjórnar UTU.
Til kynningar.
5.
Viðauki 4 við fjárhagsáætlun Ásahrepps 2025
Málsnúmer 2512001
Lagður fram Viðauki 4 við fjárhagsáætlun Ásahrepps 2025. Í viðaukanum fellst að Odda bs og Húsakynnum bs er komið inn í áætlunina sem ssamstarfsverkefni A-hluta. Þessi breyting hefur í för með sér breytingu á lífeyrisskuldbindingum (60 þús.) og afborganir langtímalána (-484 þús). Nettu áhrif eru þau að lækkun á handbæru fé verður kr. 424 þús.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða Viðauka 4 og felur sveitarstjóra í samstarfi við KPMG að skila honum inn.
6.
Fjárhagsáætlun sveitarsjóðs Ásahrepps 2026-2029
Málsnúmer 2510010
Lögð fram til annarrar og lokaumræðu fjárhagsáætlun Ásahrepps 2026 - 2029.Umræða varð um fjárhagsáætlunina og sveitarstjóri kynnti einstaka liði og þær breytingar sem gerðar hafa verið frá fyrri framlagningu.Helstu kennitölur áætlunarinnar fyrir samstæðureikning rekstrarárið 2026 eru (í þús. kr.):Tekjur: 757.061Gjöld: 644.505Afskriftir: 29.614Fármagnstekjur: 10.328Rekstrarniðurstaða jákvæð: 93.269Fastafjármunir: 732.439Veltufjármunir: 404.502Eigir samtals: 1.136.941Eigið fé: 970.278Skuldbindingar: 8.211Langtímaskuldir: 78.882Skammtímaskuldir: 79.571Eigið fé og skuldir samtals: 1.136.941Gert er ráð fyrir eftirfarandi fjárfestingum á árinu 2026 (í þús. kr.): Gatnagerð: 15.000 Götulýsing og frágangur bílastæða Laugalandi: 10.000 Göngu-, reiðhjóla- og reiðstígagerð: 50.000 Eignir hjá Eignasjóði, Laugaland m.m: 35.000 Fjárfestingar samstarfsverkefna A-hluta: UTU: 799 Tónlistarskóli: 347 Fjárfestingar samstarfsverkefna B-hluta: Sorpstöðin / Vatnsveita: 11.593Samtals fjárfesting: 115.739
Oddviti bar upp fyrirliggjandi tillögu að fjárhagsáætlun Ásahrepps fyrir árin 2026-2029 til samþykktar. Tillagan var samþykkt samhljóða framlagða fjárhagsáætlun og sveitarstjóra falið að senda lögbundnum aðilum afrit af samþykktri áætlun í samráði við KPMG.
7.
Starfsmannamál
Málsnúmer 2511032
Lögð fram tilboð ráðningaskrifstofa í ráðningu í starf á skrifstofu Ásahrepps. Einnig lög fram drög að starfslýsingu.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að semja við Mögnum um ráðningu í þetta starf.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að starfshlutfall oddvita hækki um 10% og sveitarstjóra um 15% frá 1. desember 2025 fram að þeim tíma sem nýr starfsmaður kemur til starfa.
8.
Styrkveiting til lagningar útivistarstíga í Ásahreppi
Málsnúmer 2510003
Lögð fram drög að viðauka við verklagsreglur um úthlutun styrkja til lagningar útivistarstíga í Ásahreppi.Einnig Lögð fram umsókn um styrk til útivistar- og reiðvegagerðar í Ásahreppi frá íbúum sem lögheimili eiga í Einholti og Einhamri.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagðan viðauka við verklagsreglur.
Framlögð umsókn um styrk til útivistarstígs frá Einholti að hesthúsinu í Hestheimum er samþykkt með fyrirvara um að undirritað og útfyllt umsóknareyðublað berist skrifstofu Ásahrepps. Jafnframt er verkefnisstjóra falið að vera í sambandi við umsækjendur og að skila inn minnisblaði um verkefnið.