Hreppsnefnd Ásahrepps
46. fundur
15. september 2021
kl.
08:30
-
10:00
í fjarfundarkerfi Zoom
Nefndarmenn
Ásta Berghildur Ólafsdóttir
oddviti hrepssnefndar
Brynja Jóna Jónasdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Egill Sigurðsson
hreppsnefndarfulltrúi
Elín Grétarsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Guðmundur Jóhann Gíslason
hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 222. fundar skipulagsnefndar
Mál nr. 1; Námur og efnislosunarsvæði við Þórisós; Ný svæði; Aðalskipulagsbreyting - 2011057.
Lögð er fram tillaga vegna breytingar á aðalskipulagi Ásahrepps 2010-2022 eftir auglýsingu. Í breytingunni felst skilgreining á fjórum nýjum efnistökusvæðum og einu efnislosunarsvæði í nágrenni við Þórisós. Umsagnir bárust á auglýsingatíma skipulagsbreytingar og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða breytingu á aðalskipulagi eftir auglýsingu. Engar athugasemdir bárust á auglýsingatíma skipulagsbreytingarinnar og brugðist hefur verið við umsögnum innan tillögunnar þar sem við á. Hreppsnefnd Ásahrepps óskar eftir því við Skipulagsstofnun að aðalskipulagsbreytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 3. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Mál nr. 2; Kálfholt K4a; Upprunaland Kálfholt L165294; Stofnun lóðar - 2108031.
Brynja J. Jónasdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa dagskrárliðar.
Lögð er fram umsókn frá Ísleifi Jónssyni er varðar stofnun 13,4 ha landspildu úr landi Kálfholts L165294. Spildunni er ætlað að sameinast Laufbrekku (áður Kálfholt k1b) L219273.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar skv. fyrirliggjandi umsókn. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða erindið með fyrirvara um að samhliða verði unnin breyting á deiliskipulagi svæðisins sem gerir grein fyrir breyttri legu og stærð lóðarinnar. Breyting á deiliskipulagi fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43.gr. skipulagslaga og verði grenndarkynnt innan skipulagssvæðisins.
Mál nr. 3; Sauðholt A og Sauðholt B; Upprunaland Sauðholt L165313; Stofnun lóða - 2107070.
Lögð er fram umsókn Kristjönu Ragnarsdóttur er varðar stofnun tveggja lóða úr landi Sauðholts, L165313. Umsóknin byggir á gildandi deiliskipulagi svæðisins.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemd við stofnun lóðanna á grundvelli fyrirliggjandi umsóknar að undangenginni óverulegri breytingu á deiliskipulagi svæðisins þar sem lega vegar innan svæðisins er lagfærð og stærð og staðsetning lóðanna er skýrð og samræmd í takt við framlagt lóðarblað. Deiliskipulagsbreyting fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi. Þar sem engir aðrir hagsmunaaðilar eru innan svæðisins en umsækjandi er ekki talin þörf á grenndarkynningu. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða erindið með ofangreindum fyrirvara ásamt fyrirvara um uppfært lóðablað m.a. til samræmis við breytt deiliskipulag.
Mál nr. 49; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 21-147 - 2107026F.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 21-147.

2.
Fundargerð 223. fundar skipulagsnefndar
Mál nr. 34. Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 21-148 - 2108002F.
Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 21-148 lögð fram til kynningar.

3.
Fjallskiladeild Holtamannaafréttar - 9
Hreppsnefnd Ásahepps samþykkir fundargerðina fyrir sitt leyti.
4.
Fundargerð 12. fundar sameiningarnefnd
Til kynningar.
5.
Fundargerð 13. fundar sameiningarnefndar
Til kynningar.
6.
Fundargerð 14. fundar sameiningarnefndar
Til kynningar.
7.
Fundargerð 68. fundar stjórnar Brunavarna Rangárvallasýslu bs.
Til kynningar.
8.
Fundargerð 69. fundar stjórnar Brunavarna Rangárvallasýslu bs.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir samhljóða ársreikning Brunavarna Rangárvallasýslu bs fyrir árið 2020 fyrir sitt leyti.
Fundargerð til kynningar að öðru leyti.
Fundargerð til kynningar að öðru leyti.
9.
Fundargerð 90. fundar félagsmálanefndar
Til kynningar.
10.
Fundargerð 87. fundar stjórnar byggðasamlags UTU
Til kynningar.
11.
Fundargerð 213. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Til kynningar.
12.
Fundargerð 29. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
13.
Fundargerð 30. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
14.
Fundargerð 31. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
15.
571. fundur stjórnar SASS
Til kynningar.
16.
Fundargerð 900. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Til kynningar.
17.
Möguleg stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs
Hreppsnefnd Ásahrepps hafnar samhljóða fyrirhugaðri stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs, sbr. framlagt erindi umhverfis- og auðlindaráðuneytis, sem lítur að landsvæði innan Holtamannaafréttar.
18.
Tenging ljósleiðara að Áshömrum og Húsum
Hreppsnefnd Ásahrepps tekur jákvætt í erindið og samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að vinna kostnaðaráætlun fyrir verkefnið og leggja fyrir næsta reglubundna fund hreppsnefndar til lokaafgreiðslu.
19.
Tilnefning í ungmennaráð Suðurlands
Brynja J. Jónasdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa dagskrárliðar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að tilnefna:
Þorbjörg Skarphéðinsdóttir sem aðalmann og Sveinn Skúli Jónsson sem varamann fyrir hönd Ásahrepps.

20.
Bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis; breytingar á leiðbeiningum um ritun fundargerða og notkun fjarfunda
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir engar athugasemdir við auglýsingar um leiðbeiningar um ritun fundargerða sveitarstjórna og leiðbeiningar um notkun fjarfundarbúnaðar á fundum sveitarstjórna.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að gera breytingu á samþykktum um stjórn og fundarsköp Ásahrepps þar sem heimilað verði notkun fjarfundarbúnaðar á fundum sveitarstjórna og undirnefnda.

21.
Beiðni um styrk vegna námskeiðskostnaðar
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir að greiða styrk ef fræðslusjóður FOSS greiðir ekki allan námskeiðskostnaðinn. Styrkfjárhæð ræðst af því að greiða þá mismun sem útaf stendur.
22.
Lagning rafstrengs að Ferjukoti við Hald
Staða mála lögð fram til kynningar. Endanleg afstaða verður tekin til verkefnisins þegar endanleg staða fjármögnunar liggur fyrir.
23.
Kjörskrár fyrir alþingiskosningar og sameiningarkosningar sem fram fara 25. september 2021
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir framlagðar kjörskrár og felur sveitarstjóra að árita þær.
Kjörskrárnar liggja frammi á skrifstofu Ásahrepps frá og með deginum í dag, þann 15. september 2021.
Oddvita eða sveitarstjóra er veitt umboð hreppsnefndar Ásahrepps að gera leiðréttingar á kjörskrárstofni eftir því sem tilefni er til.

24.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Lagt fram málaflokkayfirlit fyrir sveitarsjóð Ásahrepps tímabilið 1. janúar - 31. ágúst 2021.
Til kynningar.
Til kynningar.
25.
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga; innleiðing lagaum samþætta þjónustu í þágu farsældar barna
Til kynningar.
26.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Fundurinn verður staðarfundur og verður haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins á Laugalandi.