Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

47. fundur
20. október 2021 kl. 08:30 - 12:35
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ásta Berghildur Ólafsdóttir oddviti hrepssnefndar
Brynja Jóna Jónasdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Egill Sigurðsson hreppsnefndarfulltrúi
Elín Grétarsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Guðmundur Jóhann Gíslason hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 224. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2110010
Lögð fram fundargerð 224. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 21-149.
Mál nr. 19; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 21-149 - 2109003F.
Fundargerð byggingarfulltrúa nr. 21-149 lögð fram til kynningar.
2.
Fundargerð 225. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2110034
Lögð fram fundargerð 225. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar nr. 21-150.
Mál nr. 1; Nes 1 L230551 og Nes 2 L230552; Deiliskipulag - 2109063.
Lögð er fram umsókn frá Óla Óskari Herbertssyni er varðar nýtt deiliskipulag fyrir Nes 1 L230551 og Nes 2 L230552 í Ásahreppi. Deiliskipulagið tekur til lóða fyrir íbúðarhús, gestahús og skemmu.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu til kynningar og umsagna í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Mál nr. 2; Röðull (L198895); umsókn um byggingarleyfi; geymsla með kjallara að hluta - 2110013.
Fyrir liggur umsókn Einars Ólafssonar fyrir hönd Hjartar M. Óskarssonar, móttekin 4. október 2021, um byggingarleyfi til að byggja 331 m2 geymslu með kjallara að hluta á íbúðarhúsalóðinni Röðull L198895 í Ásahreppi.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að deiliskipulag svæðisins sem samþykkt var til auglýsingar á fundi hreppsnefndar þann 21.10.2020 verði klárað í ferli áður en frekari byggingaframkvæmdir verði heimilaðar innan lóðarinnar. Athugasemdir komu fram frá Skipulagsstofnun er varðar fjarlægð frá vegi sem stöðvuðu framgang málsins. Undanþága frá ráðuneyti dags. 4.12.2006 liggur fyrir er varðar fjarlægð frá vegi. Umsótt framkvæmd rúmast ekki innan fyrrgreinds deiliskipulags. Hreppsnefndin mælist því til þess að deiliskipulagið verði lagt fram að nýju þar sem tekið verði tillit til aukinna byggingarheimilda á lóðinni. Hreppsnefndin mælist til þess að afgreiðslu byggingarleyfis verði frestað.

3. Endurskoðun aðalskipulags Ásahrepps 2020-2032 - 2002038.
Lögð er fram tillaga að heildarendurskoðun aðalskipulags Ásahrepps 2020-2032 til samþykktar fyrir auglýsingu í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að framlögð tillaga endurskoðunar aðalskipulags Ásahrepps verði samþykkt til auglýsingar, með fyrirvara um að reiðleiðir í landi Hellatúns verði teknar út til samræmis við athugasemdir Gunnars Haraldssonar. Tillagan verði send Skipulagsstofnun til athugunar í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Hreppsnefndin mælist til þess að tillagan verði auglýst skv. 31. gr. sömu laga að undangenginni samþykkt Skipulagsstofnunar.

Mál nr. 24; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 21-150 - 2110001F.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 21-150.
3.
Fundargerð 89. fundar stjórnar UTU; endurskoðuð samþykkt
Málsnúmer 2110020
Lögð fram fundargerð 89. fundar stjórnar UTU. 1. dagskrárliður fjallar um endurskoðaðar samþykktir fyrir byggðasamlagið UTU. Óskað er eftir staðfestingu aðildaarsveitarfélaganna, en tvær umræður í sveitarstjórn verða að eiga sér stað til samþykktar.
Lagðar voru fram endurskoðaðar samþykktir fyrir UTU bs ásamt yfirliti yfir minniháttar mál byggingarfulltrúa og útskýringar skipulagsfulltrúa.
Hreppsnefnd Ásarhepps samþykkir fyrir sitt leyti framlögð drög að nýjum samþykktum fyrir UTU bs, og vísar þeim til síðari umræðu á reglubundnum fundi sínum í nóvember n.k.
Aðrir dagskrárliðir fundargerðar eru til kynningar.
4.
Fundargerð 90. fundar stjórnar UTU
Málsnúmer 2110037
Lögð fram fundargerð 90. fundar stjórnar UTU ásamt fjárhagsáætlun embættisins fyrir árið 2022. Fjáhagsáætlun UTU 2022 þarfnast staðfestingar aðildarsveitarfélaganna.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir fram lagða fjárhagsáætlun UTU fyrir rekstrarárið 2022 fyrir sitt leyti.
5.
Fundur kjörstjórnar Ásahrepps 23. september 2021
Málsnúmer 2110017
Lögð fram fundargerð kjörstjórnar Ásahrepps, dags. 23. september 2021.
Til kynningar.
6.
Vinna við endurskoðun Aðalskipulags Ásahrepps 2020-2032
Málsnúmer 2003026
Lögð fram fundargerð samráðsfundar með Vegagerðinni. Megin fundarefni var lega Sprengisandsleiðar.
Til kynningar.
7.
Fundargerð 43. fundar stjórnar Odda bs.
Málsnúmer 2110012
Lögð fram fundargerð 43. fundar stjórnar Odda bs.
Til kynningar
8.
Fundargerð 15. fundar sameiningarnefndar
Málsnúmer 2110035
Fundargerð 15. fundar samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélaga í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
Til kynningar.
9.
Fundargerð 16. fundar sameiningarnefndar
Málsnúmer 2110036
Lögð fram fundargerð 16. fundar samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélaga í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 91. fundar félagsmálanefndar
Málsnúmer 2110015
Lögð fram fundargerð 91. fundar félagsmálanefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
Til kynningar.
11.
Fundargerð 88. fundar stjórnar UTU
Málsnúmer 2110003
Lögð fram fundargerð 88. fundar stjórnar UTU.
Til kynningar.
12.
Fundargerð aðalfundar Markaðsstofu Suðurlands, 12. maí 2021
Málsnúmer 2110006
Lögð fram fundargerð aðalfundar Markaðsstofu Suðurlands, sem haldinn var 12. maí 2021.
Til kynningar.
13.
Fundargerð 1. fundar stjórnar Markaðsstofu Suðurlands
Málsnúmer 2110007
Lögð fram fundargerð 1. fundar stjórnar Markaðsstofu Suðurlands.
Til kynningar.
14.
Fundargerð 2. fundar stjórnar Markaðsstofu Suðurlands
Málsnúmer 2110008
Lögð fram fundargerð 2. fundar stjórnar Markaðsstofu Suðurlands.
Til kynningar.
15.
Fundargerð 304. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Málsnúmer 2110013
Lögð fram fundargerð 304. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Til kynningar.
16.
Fundargerð 305. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Málsnúmer 2110014
Lögð fram fundargerð 305. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Til kynningar.
17.
Fundargerð 214. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Málsnúmer 2110021
Lögð fram fundargerð 214. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands. Jafnframt eru lagðar fram endurskoðaðuð samþykkt fyrir Heilbrigðiseftirlit Suðurlands og samþykkt um verndarsvæði vatnsbóla innan lögsagnarumdæma sveitarfélaganna á svæði Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, sem teknar verða til afgreiðslu á næsta aðalfundi HLS sem haldinn verður í tengslum ársþings SASS.
Til kynningar.
18.
Fundargerð 572. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2110004
Lögð fram fundargerð 572. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
19.
Fundargerð 901. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2110018
Lögð fram fundargerð 901. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
20.
Umsagnarbeiðni Sýslumannsins á Suðurlandi; rekstrarleyfi Hestheimar
Málsnúmer 2110009
Lagt fram bréf Sýslumannsins á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn hreppsnefndar Ásahrepps vegna umsóknar Eignarhaldsfélagsins Einhamars ehf, kt. 571014-1220 um rekstrarleyfi til reksturs gististaðar í flokki IV-B, stærra gistiheimili.Byggingarfulltrúi UTU hefur veitt jákvæða umsögn sbr. bréf þar að lútandi dags. 15. september 2021.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir engar athugasemdir við að umrætt leyfi verði veitt.
21.
Sameiginleg svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2021-2032
Málsnúmer 2110011
Lagt fram bréf verkefnisstjórnar sorpsamlaganna á Suður- og Vesturlandi þar sem óskað er eftir umsögn og athugasemdum við tillögu að nýrri Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2021-2032.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir engar athugasemdir við framlagða tillögu að svæðisáætlun.
22.
Beiðni um fjárstyrk til Æskulýðsnefndar kirkna í Rangárvallasýslu
Málsnúmer 2110002
Lagt fram bréf Æskulýðsnefndar kirkna í Rangárvallasýslu, dags. 4. október 2021, þar sem óskað er eftir fjárstuðningi Ásahrepps vegna starfs nefndarinnar, s.s. mótshald með væntanlegum fermingarbörnum í sýslunni. Óskað er eftir framlagi að upphæð kr. 20.000.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita fjárstyrk til verkefnisins að upphæð kr. 20.000.
23.
Ósk um styrk vegna Landsmóts hestamanna 2022
Málsnúmer 2110016
Lagt fram bréf Rangárbakk ehf, dags. 22. september 2021, þar sem óskað er eftir fjárstyrk að upphæð kr. 1.000.000 í byrjun árs 2022. Styrkurinn er ætlaður til þess að setja kraft í undirbúning og til þess að geta haldið Landsmót á Hellu sem mikill sómi verður af.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að hafna styrkbeiðninni.
24.
Innleiðing heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna í íslenskum sveitarfélögum
Málsnúmer 2110022
Lagt fram bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 17. september 2021, þar sem sveitarfélögum er gefinn kostur á að sækja um þátttöku í þessu stuðningsverkefni sem styrkt er af Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Umsóknarfrestur er til 22. október 2021.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að taka þátt í verkefninu.
25.
Endurskoðun samþykktar um stjórn og fundarsköp Ásahrepps
Málsnúmer 2110023
Lögð fram drög að endurskoðaðri samþykkt um stjórn og fundarsköp Ásahrepps. Um er að ræða breytingar sem m.a. lúta að heimild til rafrænna funda hreppsnefndar og undirnefnda og ritun fundargerða. Einnig breytingar á valdsviði skipulagsnefndar, skipulags- og byggingarfulltrúa.
Umræða varð um fram lagða tillögu og málinu vísað til seinni umræðu hjá hreppsnefnd sem verður á næsta reglubundna fundi hennar.
26.
Tillaga að breytingu á samþykktum SASS
Málsnúmer 2110024
Lögð fram tillaga um breytingu á samþykktum SASS sem stefnt er að því að fá lagða fram til afgreiðslu á næsta aðalfundi SASS.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að standa að þessari tillögu um breytingu á samþykktum SASS.
27.
Endurskoðun Aðalskipulags Ásahrepps
Málsnúmer 1910021
Lögð fram gögn varðandi endurskoðun Aðalskipulags Ásahrepps 2020-2032. Um er að ræða uppdrætti af byggð og Holtamannaafrétti, tillaga að greinargerð, tillaga að forsendum og umhverfisskýrslu og skýrsla um stöðu og tækifæri í ferðaþjónustu í Ásahreppi.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að fella út úr tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi Ásahrepps, reiðleiðir sem liggja í Hellatúni um land Gunnars Haraldssonar.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir að framlögð tillaga endurskoðunar aðalskipulags Ásahrepps verði samþykkt til auglýsingar, þó með þeirri breytingu sem lýtur að reiðleiðum í Hellatúni. Tillagan verði send Skipulagsstofnun til athugunar í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Hreppsnefndin mælist til þess að tillagan verði auglýst skv. 31. gr. sömu laga að undangenginni samþykkt Skipulagsstofnunar.
28.
Framtíð félagsheimilisins Ásgarðs
Málsnúmer 2110025
Umræða varð um framtíð félagsheimilisins Ásgarðs að Ási, en hreppsnefnd hafði sett á áætlun í ár og á næsta ári fjárframlag til endurbóta á húsinu. Ekki hefur legið fyrir niðurstaða í stofnun lóðar fyrir húsið sem er frumforsenda þess að hægt verði að ráðast í þær framkvæmdir.
Tillaga liggur fyrir um að kanna hug íbúa til verkefnisins. Íbúafundur verður haldinn fljótlega þar sem til umræðu verður endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins en einnig að málefni Ásgarðs verði til umræðu á fundinum.
29.
Heilsueflandi samfélag
Málsnúmer 2110026
Hugmyndir hafa verið upp um það að Ásahreppur myndi sækja um og fara í þá vegferð að verða heilsueflandi samfélag.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu til næsta fundar.
30.
Lagning rafstrengs að Ferjukoti við Hald
Málsnúmer 2109015
Áfram hefur verið unnið að fjármögnun verkefnisins að rafvæða Ferjukot við Hald. Fyrir liggur vilyrði fyrir fjármögnun til verkefnisins frá Landsvirkjun og atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu. Einnig liggur fyrir vilji frá Umhverfisstofnun og Vatnajökulsþjóðgarði að fyrirfram greiða leigu á húsinu frá byrjun júní til 20. september í tíu ár. Með þessu fjármagni væri verkefnið að fullu fjármagnað.
Oddviti leggur til að gengið verði til samninga við Vatnajökulsþjóðgarð og Umhverfisstofnun, en með þeirri breytingu að leigutaki greiði rafmagns- og hitunarkostnað á leigutíma. Jafnframt leggur oddviti til að ákveðið verði að ráðast í verkefnið að rafvæða Ferjukot við Hald.
Tillagan samþykkt með þremur (3) atkvæðum (ÁBÓ, BJJ og GJG) en tveir á móti (EG og ES).

Fulltrúar E-lista leggja fram eftirfarandi bókun:
"Fulltrúar E-lista telja óásættanlegt að verja hátt í fjörutíu milljónum króna til að rafvæða réttarskúrinn við Haldréttir, þrátt fyrir að Landsvirkjun og ráðuneyti styrki framkvæmdina. Ekki er hægt með nokkru móti hægt að styðja þessa tillögu."
Egill Sigurðsson
Elín Grétarsdóttir
31.
Dagur sauðkindarinnar, styrkbeiðni
Málsnúmer 2110028
Lagt fram tölvuskeyti Huldu Brynjólfsdóttur f.h. nefndar sauðkindardagsins, dags. 27. september 2021, þar sem óskað er eftir fjárstyrk vegna dags sauðkindarinnar sem haldinn verður á Hvolsvelli þann 16. október 2021.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að styrkja verkefnið að upphæð kr. 50.000.
32.
Heilsutengt námskeið á vegum Kvenfélagsins Framtíðarinnar, beiðni um stuðning.
Málsnúmer 2110029
Lagt fram tölvuskeyti Kvenfélagsins Framtíðarinnar, dags. 11. október 2021, þar sem kynnt er fyrirhugað heilsutengt námskeið sem haldið yrði að Lauglandi. Kvenfélagið vill kanna það hvort Ásahreppur myndi vilja koma að þessu verkefni með kvenfélaginu sem liður í heilsueflingu og bættri lýðheilsu.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að styrkja verkefnið að upphæð kr. 125.000.
33.
Beiðni um innviðauppbyggingu Ásaljóss við Skógarás
Málsnúmer 2110031
Lagt fram bréf Ástu B Ólafsdóttur og Gísla Sveinssonar, dags. 1. október 2021, þar sem óskað er eftir að Ásaljós kosti uppbyggingu innviða ljósleiðarakerfis við Skógarás til að tryggja fleiri notendum aðgang að ljósleiðarakerfinu á því svæði.
Ásta B. Ólafsdóttir víkur af fundi undir þessum dagskrárlið.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að Ásaljós kosti þessa innviðauppbyggingu og tryggi með þeim hætti að önnur íbúðarhús á þessu svæði geti tengst dreifikerfi Ásaljóss.
34.
Söluumboð vegna Giljatanga 7
Málsnúmer 2110032
Lagt fram samningur um söluþjónustu fasteignasala vegna fyrirhugaðrar sölu á íbúðinni Giljatanga 7 að Laugalandi. Einnig lagt fram söluyfirlit fyrir eignina.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að semja við Fannberg fasteignasölu um sölu eignarinnar og felur sveitarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd Ásahrepps.
35.
Fjárhagsáætlun Ásahrepps 2022-2025
Málsnúmer 2110033
Umræða um forsendur fjárhagsáætlunar 2022-2025.
Umræða varð um forsendur fjárhagsáætlunar 2021. Fjárhagsáætlun 2022-2025 verður lögð fram til fyrri umræðu á næsta fundi hreppsnefndar í nóvember n.k.
36.
Ósk um að leigja Gásagust, Holtamannaafrétti.
Málsnúmer 2110030
Lagt fram tölvuskeyti Ágústs Þ. Guðbergssonar, dags. 6. október 2021, þar sem hann óskar eftir, fyrir hönd félagsskapar af jeppaeigendum, að fá leigðan Gásagust á Holtamannaafrétti.
Hreppsnefnd Ásahrepps er tilbúin að eiga samtal við Ágúst um möguleika á fyrirkomulagi um nýtingu hússins. Er oddvita og sveitarstjóra falið að eiga samtal við viðkomandi aðila.
37.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Málsnúmer 2101011
Rekstaryfirli fyrir sveitarsjóð Ásahrepps, tímabilið 1. janúar - 30. september 2021, lagt fram.
Til kynningar.
38.
Minnisblað; niðurstöður kosninga um sameiningartillögu 25. september 2021
Málsnúmer 2110019
Lagt fram minnisblað um niðrustöður sameiningakosninga sem fram fóru 25. september 2021. Þar kemur fram að öll sveitarfélög utan Ásahrepps samþykktu tillöguna, en Ásahreppur felldi tillöguna með 80% á móti en 20% samþykktu.
Til kynningar.
Hreppsnefnd Ásahrepps felur oddvita og sveitarstjóra að kanna möguleika á að gera könnun meðal íbúa Ásahrepps um hug þeirra til sameiningar sveitarfélaga. Ef til skoðanakönnunar kemur þá verði það kynnt vel með dreifiriti á öll heimili sveitarfélagsins og á heimasíðu sveitarfélagsins.
39.
Tilnefning svæða í Emerald Network
Málsnúmer 2110005
Lagt fram bréf Steinars Kaldal, umhverfis- og auðlyndaráðuneytinu, dags. 10. septebmer 2021 þar sem kynnt er áform ráðuneytisins að tilnefna svæði í Emerald Network. Svæðin eru Guðlaugstungur, Vatnajökulsþjóðgarður, Verndarsvæði Mývatns og Laxár, Vestmannsvatn og Þjórárver.
Til kynningar.
40.
Bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis, reikningsskil sveitarfélaga
Málsnúmer 2110027
Lagt fram bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis, dags. 11. október 2021 þar sem kynnt er breyting á reglugerð 1212/2015 um reikningsskil sveitarfélaga.
Til kynningar.
41.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn 17. nóvember 2021 á skrifstofu Ásahrepps. Fundurinn hefst kl. 8:30.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að haldinn verði íbúafundur vegna endurskoðunar aðalskipulags Ásahrepps klukkan 11:00 -14:00, laugardaginn 30. október eða 6. nóvember.