Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

47. fundur
17. desember 2025 kl. 08:30 - 11:30
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Oddviti lagði fram tillögu að dagskrárbreytingu að inn komi nýr dagskrárliður nr. 4 og færast aðrir liðir til sem því nemur. Samþykkt samhljóða.
Dagskrá
1.
Fundargerð 314. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2512014
Lögð fram fundargerð 314. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU nr. 25-238.
Mal nr. 18; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 25-238 - 2511002F.
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU nr. 25-238.
2.
Fundargerð 315. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2512015
Lögð fram fundargerð 315. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU nr. 25-239.
Mál nr. 1; Lindarbær 1A L165304; Vegagerð; Framkvæmdarleyfi - 2511053.
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Lindarbæjar 1A L165304 í Ásahreppi. Í framkvæmdinni felst gerð aðkomuvegar innan landsins í samræmi við deiliskipulag.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Mál nr. 33; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 25-239 - 2512001F.
Lögð fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU nr. 25-239.
3.
Fundargerð 631. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2512020
Lögð fram fundargerð 631. fundar stjórnar SASS ásamt fylgiskjölum er varða 4. dagskrárlið fundargerðar. Tekinn er sérstaklega fyrir 4. liður í fundargerð stjórnar Samtaka Sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) frá 5. desember 2025 vegna breytinga á umgjörð og rekstri SOS sem þarfnast aðkomu SASS.Lagt er til að sveitarstjórn samþykki fyrir sitt leyti aðkomu SASS að verkefninu í samræmi við fyrirliggjandi ályktanir aðalfundar SOS og fyrirliggjandi samningsdrög.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir liggjandi tillögu um aðkomu SASS að verkefninu.
4.
Fundargerð 17. fundar stjórnar Lundar
Málsnúmer 2512032
Lögð fram fundargerð 17. fundar stjórnar Lundar. 4. dagskrárliður þarfnast afgreiðslu hreppsnefndar Ásahrepps.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að haldinn verði fundur með fulltrúum stýrihópsins til að fá skýrari mynd af því hvað felist í þessum breytingum áður en afstaða verður tekin til þeirrar tillögu sem liggur fyrir.
5.
Fundargerð 44. fundar stjórnar Odda bs
Málsnúmer 2512017
Lögð fram fundargerð 44. fundar stjórnar Odda bs.
Til kynningar.
6.
Fundargerð 95. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu
Málsnúmer 2512021
Lögð fram fundaragerð 95. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu.
Til kynningar.
7.
Fundargerð 339. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Málsnúmer 2512008
Lögð fram fundargerð 339. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Til kynningar.
8.
Fundargerð 340. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Málsnúmer 2512022
Lögð fram fundargerð 340. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Til kynningar.
9.
Fundargerð 250. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Málsnúmer 2512018
Lögð fram fundargerð 250. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 89. fundar stjórnar Bergrisans
Málsnúmer 2512013
Lögð fram fundargerrð 89. fundar stjórnar Bergrisans ásamt reglur Bergrisans um notendasamninga.
Til kynningar. Sveitarstjóra falið að birta reglurnar á heimasíðu Ásahrepps.
11.
Fundargerð ársþings SASS 2025
Málsnúmer 2512006
Lögð fram fundargerð ársþings SASS 2025 ásamt samantekt ársþingsins.
Til kynningar.
12.
Fundargerð 630. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2512016
Lögð fram fundargerð 630. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
13.
Fundargerð 989. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2512012
Lögð fram fundargerð 989. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
14.
Fundargerð 990. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2512023
Lögð fram fundargerð 990. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
15.
Húsnæðisáætlun Ásahrepps 2026
Málsnúmer 2512027
Lögð fram húsnæðisáætlun Ásahrepps 2026.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagða tillögu að húsnæðisáætlun Ásahrepps fyrir árið 2026.
16.
Fundaáætlun hreppsnefndar Ásahrepps 2026
Málsnúmer 2512031
Lögð fram fundaráætlun hreppsnefndar Ásahrepps fyrir árið 2026.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir framlagða fundaráætlun og felur sveitarstjóra að birta hana á heimasíðu Ásahrepps.
17.
Beiðni um samstarfssamning og fjárstyrk vegna íþróttastarfs Skotíþróttafélagsins Skyttna
Málsnúmer 2210002
Lögð fram drög að samningi við Skotíþróttafélagið Skyttur.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagðan samning og felur sveitarstjóra að undirrita hann fyrir hönd Ásahrepps.
18.
Söfnun til varðveislu Gunnfaxa TF-ISB
Málsnúmer 2512007
Lagt fram tölvuskeyti Vina Gunnfaxa, dags. 17. nóvember 2025, þar sem óskað er eftir fjárhagslegum stuðningi við varðveislu Gunnfaxa TF-ISB. Óskað er eftir framlagi 100-250 þús. kr.
Hreppsnefnd Ásahrepps hafnar erindinu.
19.
Styrkveiting til lagningar útivistarstíga í Ásahreppi
Málsnúmer 2510003
Lagt fram minnisblað verkefnastjóra vegna umsóknar um styrk til lagningu útivistarstíga, Einholt - Sumarliðabær. Umrædd umsókn var lögð fram á 46. fundi hreppsnefndar þar sem umsóknin var samþykkt með fyrirvaraa um að útfyllt umsóknareyðublað berist ásamt minnisblaði verkefnastjóra. Minnisblað vegna verkefnisins er lagt fram og umsóknir annars vegar frá Einholti og hins vegar frá Einhamri. Lögð fram umsókn Miðhóls um nýlagningu útivistarstígs meðfram heimreið frá Ásmundarstaðavegi að Miðhól ásamt afstöðumynd um staðsetningu stígs.Einnig lögð fram stöðuskýrsla yfir þegar samþykkt verkefni.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita Einholti styrk fyrir nýlagningu útivistarstígs frá Einholti að hesthúsi að Hestheimum, sbr. flokk 1 í verklagsreglum. Styrkfjárhæð er kr. 1.500.000.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita Einhamri styrk fyrir viðhald útivistarstígs frá hesthúsi að Hestheimum að Sumarliðabæ 2, sbr. flokk 2 í verklagsreglum. Styrkfjárhæð er kr. 750.000.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita Miðhól styrk fyrir nýlagningu útivistarstígs meðfram heimreið að Miðhól frá Ásmundarstaðavegi, sbr. flokk 1 í verklagsreglum. Styrkfjárhæð er kr. 1.500.000.

Hreppsnefnd Ásahrepps bendir umsækjendum á að styrkur þessa árs fyrnist um áramót en hægt er að sækja um frestun á verklokum ef ekki tekst að ljúka verki. Færist þá styrkveiting til næsta árs, en viðkomandi getur þá ekki sótt um annan styrk á því ári.
20.
Framkvæmdir við Þjórsárbrú
Málsnúmer 2512019
Lagt fram tölvuskeyti Vegagerðarinnar, dags. 5. desember 2025, þar sem kynntar eru fyrirhugaðar framkvæmdir við Þjórsárbrú. Einnig lögð fram fylgiskjöl þessa tölvuskeytis. Þessar framkvæmdir eru í tengjast framkvæmdum við Vaðölduver, þ.e. flutning á vindmyllum og rafspenni. Það þarf að álagsmeta Þjórsárbrú og mögulega styrkja hana.
Næstu skref er öflun leyfa fyrir framkvæmdinni og verður það unnið í samráði við skipulagsfulltrúa UTU.
21.
Nýsköpunarstefna Suðurlands
Málsnúmer 2512024
Lagt fram tölvuskeyti Háskólafélags Suðurlands, dags. 10. desember 2025, þar kynnt er að SASS og Háskólafélag Suðurlands hafa undirritað samning vegna áhersluverfnisins "Nýsköpunarstefna Suðurlands". Verkefnið, sem er styrkt af Sóknaráætlun Suðurlands, felur í sér að Háskólafélagið leiði mótun heildstæðrar stefnu til að samræma og efla nýsköpunarstarf í landshlutanum. Ásahreppi er boðið að taka þátt í mótun stefnunar og þá tilnefna einn fulltrúa í verkefnið.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að Þráinn Ingólfsson verði fulltrúi Ásahrepps í verkefninu.
22.
Beiðni HSK um fjárframlag vegna ársins 2026
Málsnúmer 2512009
Lagt fram bréf Héraðssambandsins Skarphéðins, dags. 25. nóvember 2025, þar sem óskað er eftir fjárstyrk til reksturs sambandsins árið 2026. Óskað er eftir framlagi að upphæð kr. 290 á hvern íbúa hreppsins. Jafnfaramt er lögð fram ársskýrsla HSK 2024.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita umbeðið rekstrarframlag, enda er gert ráð fyrir því í fjárhagsáætlun Ásahrepps fyrir árið 2026.
23.
Styrkbeiðni Íþróttasambands fatlaðra vegna útgáfu Hvata
Málsnúmer 2512025
Lagt fram tölvuskeyti Íþróttasambands fatlaðra, dags. 27. nóvember 2025, þar sem óskað er eftir fjárstyrk vegna útgáfum blaðsins Hvata.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita styrk að upphæð kr. 9.000.
24.
Styrkbeiðni SOS barnaþorpanna
Málsnúmer 2512026
Lagt fram tölvuskeyti SOS barnaþorpanna, dags. 17. nóvember 2025, þar sem óskað er eftir fjárstyrk til útgáfu fréttablaðs samtakanna.
Hreppsnefnd Ásahepps samþykkir samhljóða að styrkja samtökin um kr. 9.000.
25.
Umsókn um styrk fyrir Skólahreysti 2026
Málsnúmer 2512029
Lagt fram bréf Hreysti smiðjunnar ehf þar sem óskað er eftir fjárstyrk til endurnýjunar á keppnistólum og tækjum, sem er forsenda þess að hægt verði að halda keppnina á næsta ári 2026.
Hreppsnefnd Ásahrepps bendir á að sveitarfélagið er þegar að greiða þátttökugjöld í gegnum rekstur grunnskóla.
26.
Beiðni ADHD samtakanna um styrk fyrir starfsemi sína
Málsnúmer 2512030
Lagt fram tölvuskeyti ADHD samtakanna, dags. 26. nóvember 2025, þar sem óskað er eftir fjárstyrk til styrktar starfsemi samtakanna. Einnig lögð fram umsókn um styrk vegna fræðslu 2025 og almenn greinargerð um starfsemi samtakanna.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að styrkja samtökin um kr. 10.000.
27.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Málsnúmer 2101011
Lagt fram málaflokkayfirlit fyrir sveitarsjóð Ásahrepps fyrir tímabilið 1. ja´núar til 30. nóvember 2025.
Til kynningar.
28.
Kæra Náttúrugriða vegna útgáfu tveggja framkvæmdaleyfa í sambandi við fyrirhugaða stækkun Sigöldustöðvar
Málsnúmer 2504010
Laður fram úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 57/2025, vegna kæru ákvörðunar Ásahrepps um útgáfu framkvæmdaleyfis fyrir stækkun Sigöldustöðvar.Felld var úr gildi ákvörðun hreppsnefndar Ásahrepps frá 19. febrúar 2025 um að veita framkvæmdaleyfi fyrir stækkun Sigöldustöðvar.
Til kynningar.
29.
Söfnun fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2026
Málsnúmer 2512010
Lagt fram bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 25. nóvember 2025, þar sem kynnt er að Sambandið tekur við söfnun fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2026.
Til kynningar.
30.
Niðurstaða stýrihóps um eignarhlut sveitarfélaga í hjúkrunarheimilum
Málsnúmer 2512011
Lagt fram tölvuskeyti Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 26. nóvember 2025, þar sem kynnt er niðurstaða stýrihóps um eignarhlut sveitarfélaga í hjúkrunarheimilum. Niðurstaðan gagnvart Lundi er að eignarhlutur aðildarsveitarfélaganna færist yfir til ríkisins og er stefnt á að afhending eignarinnar fari fram 1. janúar 2026.Engin greiðsla fer fram við afsalaðan hlut sveitarfélaganna og ríkið tekur við allri ábyrgð á ástandi, viðhaldi og endurbótum frá þeim tíma.
Til kynningar, en bókað var um málið í dagskrárlið nr. 4 í þessari fundargerð.
31.
Boðun auka aðalfundar Sorpstöðvar Suðurlands
Málsnúmer 2512028
Lagt fram tölvuskeyti Sorpstöðvar Suðurlands, dags 12. desember 2025, þar sem boðað er til auka aðalfundar Sorpstöðvarinnar. Fundurinn verður haldinn í fjarfundarbúnaði þann 16. janúar 2026 klukkan 11:00.Kjörinn fulltrúi Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs er fulltrúi fyrir sveitarfélögin, en lögð er áhersla á að allir sveitarstjórnarfulltrúar og sveitarstjórar aðildarsveitarfélaga hafa heimild til setu fundarinns sem áheyrnarfulltrúar.
Til kynningar.
32.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn 21. janúar 2026 á skrifstofu Ásahrepps. Fundur hefst klukkan 8:30.
Til kynningar.